Morgunblaðið - 21.11.2002, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 57
örugg stýring viðskiptakrafna
EDDA – miðlun og útgáfa kynnir
haust- og jólaútgáfu sína þetta árið
með stórtónleikum í Austurbæ
(gömlu Bíóborginni) núna á föstu-
daginn. Fram koma KK, Stuðmenn,
Ensími, Bent og 7Berg, Steindór
Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson,
Hörður Torfa, Afkvæmi guðanna,
Búdrýgindi og leynigestir.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 en
húsið verður opnað kl. 21.00. Að-
gangur er ókeypis. Myndbönd
verða sýnd á breiðtjaldi og geisla-
diskar viðkomandi listamanna
verða á sérstöku kynningarverði.
Morgunblaðið/Þorkell
Ensími er ein þeirra sveita sem troða munu upp í Austurbæ.
Stórtónleikar Eddu – miðlunar
Jólaútgáfan kynnt
MICHAEL Jackson vakti furðu fólks með því
að láta son sinn hanga fram af svölum hótels á
þriðjudag. „Mér urðu á hræðileg mistök,“ sagði
hann í skriflegri yfirlýsingu sem hann gaf út í
fyrrakvöld. Söngvarinn lét ungan son sinn,
Prince Michael II, hanga fram af svölum hótels
í Berlín með því að halda annarri hendi um mitti
hans. Jackson segist hafa látið spennu augna-
bliksins hlaupa með sig í gönur.
Hugsanlegt að atvikið verði rannsakað leggi
einhver fram ákæru á hendur Jackson vegna
þess. Þá hefur þýska lögreglan verið hvött til að
handtaka hann vegna atviksins þar sem hann
hafi stofnað lífi barnsins í hættu.
Michael Jackson í vondum málum
AP
„Mér urðu á
hræðileg mistök“
Kviðristir
(Ripper: Letter From Hell)
Hrollvekja
Kanada, 2001. Góðar stundir VHS. 114
mín. Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
John Eyres. Aðalhlutverk: A.J. Cook,
Bruce Payne, Jürgen Prochnov.
NÍTJÁNDU aldar raðmorðinginn
sem gengur undir heitinu Jack the
Ripper eða Kobbi kviðristir er orð-
inn að goðsögn sem bæði fræðaheim-
urinn og alþýðu-
menningin hafa
leitast við að ráða í
allt frá því að morð-
inginn sá skildi við
síðasta illa limlesta
fórnarlambið sitt.
Vísindalegar
drápsaðferðir
morðingjans og
hatursfullt val hans
á fórnarlömbum meðal vændis-
kvenna úr undirheimum Lundúna
hafa skilið eftir spurningar í hugum
manna, þess efnis hvort þarna hafi
verið menntamaður á ferð, eða hvort
um einhvers konar samsæri hafi ver-
ið að ræða. Unglingahrollvekjan
Ripper: Letter From Hell hefur sín-
ar aðferðir til að ráða í goðsöguna
um kviðristinn og fer þar frjálslega
með söguna. Þar verður kobbagoð-
sagan í raun flötur fyrir hina marg-
sögðu unglingadrápsmynd til að út-
víkka sig örlítið, og ná handrits-
höfundarnir aðeins að gera sér
örlítinn mat úr þeim fleti. Daðrað er
við kenninguna um að morðinginn
hafi verið af hinu illa, handbendi
djöfulsins, ef ekki djöfullinn sjálfur.
Það var fyrst og fremst meðhöndl-
unin á kobba-goðsögninni sem varð
til þess að ég píndi mig til að horfa á
myndina á enda, að öðru leyti er hún
bara enn ein leiðigjarna unglinga-
hrollvekjan. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Útvatn-
aður
Kobbi