Morgunblaðið - 21.11.2002, Síða 58
58 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er eitthvað óhuggulega
áhugavert við kisulórurnar í Atom-
ic Kitten. Þar sem dagskipunin hjá
Spice Girls var að hver og ein ætti
að höfða til mis-
munandi sam-
félagshópa virð-
ast þær
Natasha, Jenny
og Liz vera ein-
ræktuð eintök
hver af annarri.
Ekki þótti mér nú mikið til
koma þegar ég heyrði útgáfuna af
„Eternal Flame“ þeirra Bangles
stúlkna sem vinsælt varð í fyrra.
Illa sungið og myndbandið uppfullt
af glórulausum glennum. Feels so
Good kemur því þægilega á óvart
og stendur hér um bil undir nafni.
Lögin 15 renna áreynslulaust í
gegnum tóneyrað, öll í svipaða,
letilega taktinum. Þó að mörg lag-
anna séu vissulega steingeld pirrar
það alls ekki; þetta er meira eins
og að fara í gott og slakandi bað
með nærandi ilmolíum. Humm ...
eða einhvern veginn þannig.
Ekkert að þessu. Þrjár stjörnur,
eina á kjaft og ekki orð um það
meir.
Mjúkir
kettlingar
Atomic Kitten
Feels so good
Mmmmmmmjúkt og þægilegt sykurpopp
frá Atomic Kitten. Afskaplega þægilegt
og furðu þolgott líka.
Innocent/Virgin
Arnar Eggert Thoroddsen
HLJÓMSVEITIN Sálin hans Jóns
míns verður aldeilis á nýjum stað
næstu þrjú kvöldin en hún ætlar að
spila með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands undir stjórn Bernharðs Wilk-
insonar. Mikill áhugi er fyrir tón-
leikunum og eru örfáir miðar eftir í
stóra sal Háskólabíós.
„Það var haft samband við okkur
í vor og við beðnir um að spila okk-
ar tónlist á tónleikum með þeim,“
segir Guðmundur Jónsson, gítar-
leikari og lagasmiður Sálarinnar,
um upphafið.
„Við ákváðum að taka eingöngu
nýja tónlist,“ segir hann. Um er að
ræða lög, sem voru samin í febrúar
og mars, áður en kallið kom.
„Í júlí í sumar fórum við í stúdíó
og útsettum þessa tónlist,“ segir
Guðmundur og bætir við að Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson hafi eft-
ir það tekið við lögunum og skrifað
þau fyrir Sinfóníuna.
„Það er gríðarmikil vinna. Síðan
höfum við bara verið að hittast og
bera saman bækur okkar.“’
Ellefu lög á tón-
leikadagskránni
Á dagskrá tónleikanna eru níu
ný lög og tvö gömul, „Á nýjum
stað“ og „Þú fullkomnar mig“.
„Það er svolítið krefjandi fyrir
áhorfendur að hlusta bara á nýja
tónlist í klukkutíma. Þannig að við
ákváðum að gefa áhorfendum líka
eitthvað sem þeir þekkja,“ segir
Guðmundur.
Flest laganna hafa því aldrei
heyrst áður en hann segir þau í
beinu framhaldi af því sem Sálin
hefur áður gert.
Guðmundur segir það hafa verið
heldur yfirþyrmandi í fyrstu að
spila með Sinfóníunni „Það er ekki
á hverjum degi að maður situr inn í
miðri sinfóníuhljómsveit. Það eru
allt önnur lögmál í gangi þar,“ seg-
ir hann. „Við erum allir að koma til
og farnir að vera við sjálfir. Hljóm-
sveitirnar eru farnar að blandast
meira og spila sig saman.“
Sálin hefur æft daglega fyrir
tónleikana að undanförnu og síðan
hafa æfingar með Sinfóníunni stað-
ið yfir alla vikuna.
Guðmundur er ekkert hræddur
um að Sálarmenn týnist inni á milli
tuga hljóðfæraleikara Sinfóníu-
hljómsveitarinnar. „Við erum með
rafmagnshljóðfæri þannig að við
getum bara hækkað með einum
takka og leyst málið,“ grínast Guð-
mundur.
Í alvöru segir hann að eitt mest
krefjandi verkefnið við tónleikana
sé frekar að hafa ekki of hátt. „Við
erum að berjast við að vera nógu
lágir. Það er aðalmálið. Þannig fá
báðar hljómsveitirnar að njóta
sín.“
Guðmundur segir að hljómsveit-
armeðlimir hafi ekki þurft að
hugsa sig um þegar beiðnin barst
Sálin á nýjum stað
Sálin hefur æft daglega ásamt Sinfóníunni síðustu daga.
frá Sinfóníuhljómsveitinni um að
poppa aðeins upp dagskrána.
„Okkur þótti þetta rosalega spenn-
andi en við ætluðum aldrei að eyða
þessu ári í að gera plötu. Við höfð-
um því alveg tíma fyrir þetta og
vorum búnir að semja það mikið af
tónlist, sem við vorum ánægðir
með,“ útskýrir hann.
Sveitin tók sér frí fyrri hluta árs-
ins og vinnur nú að söngleiknum
Sól & Mána, sem frumsýndur verð-
ur á nýju ári í Borgarleikhúsinu.
Ljóst er að hljómsveitin hefur
tekið sér margt fyrir hendur á
löngum ferli. „Það er mjög
skemmtilegt að fá svona tækifæri
til að finna fleiri fleti til að koma
tónlistinni á framfæri. Við erum
búnir að vera það lengi að á ís-
lenskan mælikvarða, 14 ár,“ segir
Guðmundur.
Þeir sem fá ekki miða á tón-
leikana þurfa ekki að örvænta því
stefnt er á að gefa tónleikana út á
diski ef vel tekst til.
Sálin með tónleika ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands
ingarun@mbl.is
Sálin hans Jóns míns og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands leika saman á
tónleikum í Háskólabíói á fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardags-
kvöld.
Sálin hans Jóns míns
virðist óhrædd við að
takast á við ný verkefni.
Inga Rún Sigurð-
ardóttir ræddi við
Guðmund Jónsson
gítarleikara.
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 5.50. Síðasta sýning.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Mögnuð mynd
sem hefur fengið
einróma lof
gagnrýnenda.
Robin Williams
aldrei betri"
- USA Today
Missið ekki
af þessar Kvikmyndir.com
DV
HJ. MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
i
i l
i illi
l i i
-
i i i
Hann er með 1000
andlit...en veit
ekkert í sinn haus!
Dana Carvey fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd sem
er framleidd af
Adam Sandler.
Sýnd kl. 4. með ísl. tali
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Allra s
íðustu
sýnin
gar!
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.B. i. 16.
5, 7.30 og 10.
1/2Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
RadíóX
ÓHT Rás 2
Munið
M-12 tilboð
- 2 fyrir 1 -
HÆTT A TELJA
FYRRI hluti tónleikanna verður
helgaður verkum tveggja for-
vígismanna minimalismans í
tónlist, Bandaríkjamönnunum
John Adams og Philip Glass.
Spurður um nafn verks síns,
„Short Ride in a Fast Machine“,
sagði John Adams eitt sinn: „Þú
veist hvernig það er þegar ein-
hver býður þér í bíltúr í glæsi-
lega sportbílnum sínum, en þeg-
ar haldið er af stað óskarðu
þess að hafa ekki farið.“
Þetta hraðfara en stutta verk
var samið 1986 fyrir opnunar-
tónleika Great Woods-tónlist-
arhátíðarinnar í Massachusetts.
Una Sveinbjarnardóttir verð-
ur einleikari í Fiðlukonsert
Philips Glass, en konsertinn
hefur notið gríðarlegra vin-
sælda. Hann var frumfluttur í
New York 5. apríl 1987 og ein-
leikari þá var enginn annar en
Paul Zukofsky, fyrrum stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar æsk-
unnar, en Una lék einmitt undir
stjórn Zukofskys í þeirri hljóm-
sveit.
Glass hafði náið samráð við
Zukofsky meðan á smíði verks-
ins stóð, niðurlag konsertsins er
til dæmis eins og Zukofsky ósk-
aði eftir, hægt og íhugult.
Una leikur ennfremur einleik
á fiðlu í einu laga Sálarinnar.
Tvískiptir tónleikar
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930