Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 61

Morgunblaðið - 21.11.2002, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2002 61 FYRIR réttum tveimur árum kom út safnplatan Klístur sem hafði að geyma lög frá hinum ýmsu rokk- sveitum sem starf- ræktar eru á Aust- fjörðum og voru þær allar í hrárri kantinum – bíl- skúrsrokk ef þið viljið. Þessi plata fylgir sömu lögmálum. Platan rúllar áfram á einfaldan hátt, hver sveit fær hámark tvö lög og fylgjast þau að, líkt og um tónleika væri að ræða. Castor ríða á vaðið og eiga jafn- framt eitt burðugasta framlag plöt- unnar. Hrá nýbylgja, ágætlega hug- myndarík og borin uppi af skemmtilega rifnum gítar. Auk þess stíga Castor hressilega út fyrir þá þungarokkslínu sem einhverra hluta vegna fylgir ætíð austfirsku rokki af þessu tagi. S.H.A.P.E. áttu miður skemmti- legt innlegg á Klístri og þeim hefur ekki farið vitund fram síðan. Fá þó þumal fyrir glúrna útsetningu á gamla Grafíklaginu „Tangó“. Og þar með erum við komin í þungarokkslendur dauðans. Bensín- tittir dauðans (humm...) leika milli- þungt bárujárnsrokk af gamla skól- anum og sama má segja um Metal Magnússon. Sæmilega útfærðar Pantera-þreifingar en ansi rislitlar. Önd eiga svo menntaskólaþunga- rokkslagið „Komdu í Kakó“. Ha ha ha eða þannig. Spindlar sýna ögn meiri metnað í lagasmíðum sínum og keyra rokkið áfram af öryggi. Haglegar lagasmíð- ar og spilamennskan fín. Remus leika melódískt léttþunga- rokk; þar sem hljóðfæraleikararnir fá að skína. Einkum þó gítarleikar- inn með tilheyrandi einleiksköflum. Söngurinn er því miður afleitur og það á reyndar við um fleiri sveitir hér. Rufuz leika þá órætt rokk sem fer hvorki lönd né strönd. Snillingarnir í Hroðmör eiga loka- lagið, „Dauði á brauði“. Þeir klikka sem betur fer ekki frekar en fyrri daginn. Drengurmaður er verðug skoðun á rokklíferninu fyrir austan og heils- ast mönnum misjafnlega eins og lesa má. Umslagið er sérlega vandað og fengur að upplýsingabæklingi hvar finna má myndir, nöfn og aðrar gagnlegar upplýsingar. Fleiri byggðarlög ættu að taka sér þessa plötu til fyrirmyndar enda heimilda- gildi plötunnar ótvírætt. Ég sendi vinum mínum og nýfengnum óvinum á Austfjörðum bestu rokkkveðjur! Tónlist Austfjarða- rokk Ýmsir Drengurmaður Stúdíó Hljóðlist Drengurmaður. Safnplata nokkurra aust- firskra rokksveita. Lög eiga hljómsveit- irnar Castor, S.H.A.P.E., Bensíntittir dauðans, Metal Magnússon, Önd, Spindl- ar, Remus, Rufuz og Hroðmør. Upp- tökustjórn var í höndum Óla Rúnars Jóns- sonar, um hljóðblöndun sáu Óli og Kristján Edelstein. Jón Skuggi hljómjafn- aði. Umsjón með útgáfu höfðu Magnús Bjarni Helgason, Óli Rúnar Jónsson, Kristján Orri Magnússon og Logi Helgu. Arnar Eggert Thoroddsen Árni Geir úr Castor. Sveitin á burð- ugasta framlagið á Drengurmaður.  Ó.H.T. Rás2 1/2 SV. MBL Frábær grínhasar með hinum eina sanna Jackie Chan. Frá framleiðendum Men in Black og Gladiator Sjáið Jackie Chan í banastuði Þegar tveir ólíkir menn deila getur allt gerst. 8 Eddu verðlaun. Yfir 49.000 áhorfendur Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8. Vit 461 ÁLFABAKKI E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P kl. 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 480. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 479 Sýnd kl. 8 og 10. Vit 479 ÁLFABAKKI AKUREYRI AKUREYRI  Kvikmyndir.isStundum er það sem að þú leitar að.. þar sem þú skildir það eftir. Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs. ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 474 Sýnd kl. 6 og 10. Vit 474 SV Mbl RadíóX Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 10.10. B.i. 12. Vit 444 Sýnd kl. 8. Vit 455 Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 433 ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 4 og 6. Vit 441. ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI KEFLAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.