Morgunblaðið - 03.12.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR Hallvarðsson, for-
maður samgöngunefndar Alþingis,
gerði fyrirhugaða Sundabraut að
umtalsefni í fyr-
irspurnartíma á
Alþingi í gær og
spurði sam-
gönguráðherra,
Sturlu Böðvars-
son, að því hvað
liði undirbúningi
að lagningu
brautarinnar.
Eins og kunnugt
er er Sundabraut
fyrirhuguð vegtenging milli Voga-
hverfis og Gufuness yfir Kleppsvík
og áfram norður fyrir Geldinganes.
Um þjóðveg yrði að ræða og því
yrði kostnaður greiddur af vegafé.
Samgönguráðherra svaraði því
m.a. til að verið væri að skoða þá
kosti sem til greina kæmu, t.d.
hvort byggja ætti brú á umræddri
leið, vegfyllingu eða jarðgöng. Ráð-
herra sagði að ekki væri búið að
taka ákvarðanir um þessa kosti en í
máli hans kom fram að þær ákvarð-
anir myndu liggja fyrir áður en
langt um liði. „Við höfum enn nokk-
urn tíma til að undirbúa Sunda-
brautina,“ sagði hann. Tók hann
fram að ekki væri um neitt neyðar-
ástand að ræða vegna þess að ekki
væri búið að leggja Sundabrautina.
Guðmundur Hallvarðsson var
ekki á sama máli og sagði að um-
ferðarþunginn færi vaxandi t.d. á
Miklubraut og Kringlumýrarbraut.
„Það er vaxandi hætta á umferð-
arslysum í þessu ástandi eins og
það er,“ sagði hann. Tók hann einn-
ig fram að borgarbúar undruðust
hve hægt miðaði í þá átt að gera
umræddar samgöngubætur. Lagði
hann áherslu á að framkvæmdum
yrði hraðað.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður
samgöngunefndar Alþingis
Framkvæmdum
við Sundabraut
verði hraðað
Guðmundur
Hallvarðsson
ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30
í dag. Að loknum atkvæða-
greiðslum verða eftirfarandi
mál á dagskrá:
1. Breyting á XV. viðauka við
EES-samninginn.
2. Breyting á VII. viðauka við
EES-samninginn.
3. Samningur milli Fríversl-
unarsamtaka Evrópu og
Singapúr.
4. Verkefni Umhverfisstofn-
unar.
5. Vernd, friðun og veiðar á
villtum fuglum og spendýr-
um.
6. Réttindi sjúklinga.
7. Húsaleigubætur.
8. Vatnalög.
9. Breiðbandsvæðing lands-
ins.
10. Strandsiglingar.
11. Samgöngur milli lands og
Vestmannaeyja.
GÍSLI S. Einarsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, gagnrýndi
Halldór Blöndal, forseta Alþingis,
á þingfundi í gær fyrir að gefa sér
ekki færi á að koma að munnlegri
fyrirspurn til ráðherra um Sem-
entsverksmiðjuna á Akranesi. „Ég
mótmæli því að fá ekki að koma
hér að fyrirspurn sem varðar Sem-
entsverksmiðju ríkisins,“ sagði
Gísli en áður höfðu fyrirspurnir til
ráðherra verið á dagskrá þing-
fundar. Gísli sagðist hafa lagt inn
umrædda fyrirspurn fyrr um
morguninn, kl. 10.45. „Og þetta er
ekki í fyrsta skipti sem virðulegur
forseti misbeitir valdi sínu gagn-
vart þeim sem hér stendur, bæði í
málflutningi og í ræðum. Ég mót-
mæli þessu.“
Halldór Blöndal svaraði ekki
gagnrýni þingmannsins heldur
stóð upp og kynnti ný þingmál.
Gísli gekk þá fram og kallaði:
„Þetta er ótrúlegur ruddaskap-
ur...“ Þingforseti sló þá í bjölluna
og bað þingmanninn um að stilla
skap sitt. „Ég vil óska þess að
háttvirtur þingmaður, Gísli S. Ein-
arsson, stilli skap sitt,“ sagði hann.
Gagnrýnir
framgöngu
forseta þingsins
Gísli S. Einarsson Halldór Blöndal
LAGT var fram á Alþingi í gær
frumvarp til laga sem miðar að því
að lækka hlutfall tekna sem koma til
frádráttar tekjutryggingarauka frá
Tryggingastofnun ríkisins úr 67% í
45%. Frumvarpið er lagt fram af rík-
isstjórninni og er liður í því sam-
komulagi sem ríkisstjórnin og
Landssamband eldri borgara gerðu
með sér í lok nóvember sl. Lögin
eiga að öðlist gildi 1. janúar nk.
Í fylgiskjali með frumvarpinu seg-
ir að þessi liður fyrrgreinds sam-
komulags kosti ríkissjóð um 250
milljónir kr. á næsta ári en miðað er
við að breytingin nái til ellilífeyr-
isþega og öryrkja. Í samkomulaginu
var einnig gert ráð fyrir hækkun
tekjutryggingar og tekjutrygging-
arauka, en sú hækkun kemur til
framkvæmda með reglugerð sem
hefur stoð í lögum um almanna-
tryggingar, að því er segir í at-
hugasemdum frumvarpsins.
Skerðingar-
hlutfall lækkar
♦ ♦ ♦
GREIDD voru at-
kvæði um lista Sam-
fylkingarinnar í Norð-
vesturkjördæmi á
kjördæmisþingi
flokksins á Hólmavík á
laugardag. Kosið var á
milli alþingismann-
anna Gísla S. Einars-
sonar og Karls V.
Matthíassonar um
þriðja sætið. Gísli
sigraði í kosningunni
með 46 atkvæðum
gegn 41. Auðir og
ógildir seðlar voru 5.
Að sögn Jóhanns
Ársælssonar alþingis-
manns sem leiðir listann í kjördæm-
inu var að öðru leyti góð sátt um
hann.
Listinn er eftirfarandi:
1. Jóhann Ársælsson alþingismað-
ur Akranesi
2. Anna Kristín Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri Norðurlandi
vestra.
3. Gísli S. Einarsson alþingismaður
Akranesi.
4. Sigríður Ragnarsdóttir skóla-
stjóri Ísafirði.
5. Eiríkur Jónsson lögmaður Akra-
nesi.
6. Sigurður Pétursson sagnfræð-
ingur Ísafirði
7. Dóra Líndal Hjartardóttir tón-
listarkennari Borgarfirði
8. Jón Marz Eiríksson nemi
Skagafirði
9. Davíð Sveinsson trésmiður
Stykkishólmi
10. Guðjón Vilhjálmsson fiskverk-
andi Drangsnesi
11. Guðrún Konný
Pálmadóttir hús-
móðir Búðardal
12. Sigurður E. Thor-
oddsen sjómaður
Vesturbyggð
13. Tinna Magnúsdóttir
háskólanemi
Sveinsstaðahreppi.
14. Ástríður Andrés-
dóttir fulltrúi Akra-
nesi
15. Karl Jóhann Jó-
hannsson sjómaður
Grundarfirði
16. Margrét Fanney
Sigurðardóttir hús-
móðir Vesturbyggð
17. Oddur Sigurðarson rafeindavirki
Húnaþingi vestra
18. Karvel Pálmason fyrrv. alþing-
ismaður Bolungarvík
19. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
fyrrv. alþingismaður Reykhóla-
hreppi
20. Skúli Alexandersson fyrrv. al-
þingismaður Snæfellsbæ
Pólitísk fortíð til trafala
„Ég hefði kosið listann öðruvísi
og mér hefur fundist mínir stuðn-
ingsmenn vera frekar óhressir,“
segir Karl V. Matthíasson, þing-
maður Samfylkingarinnar á Vest-
fjörðum, sem er ekki á lista flokks-
ins í Norðvestur kjördæmi eftir að
greidd voru atkvæði um hann á
laugardag.
Karl segir að fram hafi komið á
fundinum þung áhersla þess efnis
að nauðsynlegt væri að hafa mann
úr Alþýðuflokknum inni á listanum.
„Ég tel að pólitísk fortíð mín hafi
verið mér til trafala í þessu efni þar
eð ég kem ekki úr Alþýðuflokknum
inn í Samfylkinguna. Það er ekki
spurning að það setur strik í reikn-
inginn.“ Hann segir að hann muni
að sjálfsögðu una niðurstöðunni.
Karl hefur gegnt embætti sókn-
arprests í Setbergsprestakalli frá
árinu 1995 en er í eins árs leyfi frá
prestsstörfum fram í september á
næsta ári. Hann segir óákveðið
hvað taki við hjá sér.
„Maður veit náttúrlega aldrei
hvað daganir bera í skauti sér. Fyr-
ir nákvæmlega fjórum árum vissi ég
varla að ég ætti eftir að fara í þessa
ferð sem ég fór.
Ég er ekkert hættur að hugsa um
pólitík. Ég byrjaði á því mjög ungur
og það breytist ekkert og áhugi
minn fyrir stjórnmálum hefur ekk-
ert minnkað við þetta. Svo sjáum
við bara hvað gerist. Ég ætlað að
jafna mig áður en ég tek einhverjar
ákvarðanir um svoleiðis.“
Hann segist þakklátur fyrir þann
stuðning sem fólk hafi sýnt honum
og bendir á að úrslitin hafi komið
mörgum á óvart.
„Ég er samt ekki að upplifa ein-
hverja meiriháttar tragedíu.“
Kosið um 3. sæti Sam-
fylkingar í NV-kjördæmi
Karl V. Matthíasson
BJÖRGUNARSVEITIN Ársæll
hefur viðurkennt dómgreindarleysi
liðsmanna sinna er þeir unnu
skemmdir á vegaslóðanum upp í
Tindfjöll upp af Fljótshlíð um síð-
ustu helgi. Mun sveitin senda
menn í viðgerðaferð nú um helgina
og aftur í vor til að ljúka fulln-
aðarviðgerð. 20 manna hópur var á
ferðinni um síðustu helgi og var
farið á 4 öxla MAN-trukk sem skar
djúp hjólför í blautan veginn, en
hlýtt var í veðri og mikil rigning.
Einnig voru þeir á tveimur létt-
ari Land Rover-jeppum sem ollu
ekki skemmdum. Stjórn björgunar-
sveitarinnar mun taka málið upp
innan sveitarinnar og gera öllum
ljóst að framkoma sem þessi verði
ekki liðin.
Í Tindfjöllum eru þrír skálar,
þar af tveir mest notaðir af fjalla-
fólki. Slóðinn frá Fljótshlíð er
nokkurra km langur. Einn skál-
anna er í einkaeign og annar í eigu
Íslenska alpaklúbbsins. Eigendur
þessara skála, sem lagt hafa í mik-
inn kostnað vegna viðhalds veg-
slóðans, kvörtuðu yfir umgengni
björgunarsveitarmannanna og
vöktu athygli á því að sveitin hefði
ekki verið þarna á ferð í björg-
unaraðgerðum. Að auki hefði verið
unnt að flytja hópinn á Land Rov-
er-jeppunum með því að fara eina
aukaferð.
Björgunarsveitin Ársæll veldur
vegaskemmdum í Tindfjöllum
Dómgreindar-
leysi um að kenna
Guðjón Ólafur Jónsson hefur lýst
því yfir að hann bjóði sig fram í 2.
sæti á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi suður. Guð-
jón Ólafur sem er 34 ára gamall
lögmaður, er jafnframt formaður
kjördæmisráðs flokksins í kjör-
dæminu.
Alls hafa 15 manns gefið kost á
sér í sæti 1–10 á lista Framsókn-
arflokksins í Norðausturkjördæmi.
Kosið verður á aukakjördæmaþingi
á Akureyri 11. janúar nk. Þessir
gefa kost á sér:
Arngrímur V. Ásgeirsson íþrótta-
kennari, Austur-Héraði,
Birkir Jón Jónsson, aðstoðarmaður
ráðherra, Siglufirði,
Björn Ármann Ólafsson bæj-
arfulltrúi, Austur-Héraði,
Dagný Jónsdóttir, formaður SUF,
Reykjavík,
Daníel U. Árnason varaþingmaður,
Reykjavík,
Ingólfur Friðriksson skrif-
stofumaður, Austur-Héraði,
Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra, Egilsstöðum,
Katrín Ásgrímsdóttir garð-
yrkjubóndi, Austur-Héraði,
Kristín Thorberg hjúkrunarfræð-
ingur, Akureyri,
Ólafur Níels Eiríksson vélsmiður,
Fáskrúðsfirði,
Sigfús Karlsson framkvæmdstjóri,
Akureyri,
Skafti Ingimarsson, formaður
FUFAN, Akureyri,
Svanhvít Aradóttir þroskaþjálfi,
Fjarðarbyggð,
Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra, Grýtubakkahreppi,
Þórarinn E. Sveinsson for-
stöðumaður, Kópavogi.
Í DAG
Í MORGUNBLAÐINU hinn 1.
desember 2002 var grein á blaðsíðu
4 „Fyrsta lyfið sem eykur bein-
þéttni kannað hér“. Aventis á Ís-
landi og Farmasía ehf. vilja gera
eftirfarandi athugasemd við þessi
greinaskrif: Rangt var farið með
staðreyndir bæði í fyrirsögn og í
texta greinarinnar. Eftirfarandi
fullyrðing var sett fram: „Fyrsta
lyfið sem eykur beinþéttni“ (fyr-
irsögn) og „… þar sem þau bein-
þynningarlyf sem nú séu á mark-
aðnum miði einungis að því að
hægja á eða stöðva beinþynningu“.
Við viljum benda á texta sem sam-
þykktir eru af Lyfjastofnun, en þar
kemur skýrt fram að tvö lyf í flokki
bísfosfónata auka beinmassa. Til
eru margar klínískar rannsóknir
þar sem sýnt er fram á að meðferð
með bífosfónötum eykur marktækt
beinþéttni borið saman við lyf-
leysu. Sú fullyrðing sem fram kem-
ur í greininni, um að þetta sé eina
lyfið sem auki beinþéttni, getur
valdið því að sjúklingar sem þegar
eru á bífosfónat meðferð telji þau
lyf vera gagnslaus. Við gagnrýnum
þetta harðlega og höfum sent at-
hugasemdir til Lyfjastofnunar, þar
sem farið er fram á að fullyrðing-
arnar verði dregnar til baka.
Aths. ritstj.
Umrædd frétt er byggð á frétta-
tilkynningu frá lyfjafyrirtækinu
Lilly. Eins og fram kemur hér að
ofan, er málið nú til skoðunar hjá
Lyfjastofnun.
Athugasemd vegna
fréttatilkynningar
OPINBER heimsókn forsætis-
ráðherra Rúmeníu, hr. Adrian
Nastase, hefst í dag þriðjudag-
inn 3. desember.
Í för með honum verða m.a.
eiginkona hans, frú Daniela
Nastase, og fjórir ráðherrar í
ríkisstjórn Rúmeníu. Í heim-
sókninni mun forsætisráð-
herrann m.a. eiga viðræður við
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, heimsækja Alþingi, Ráð-
hús Reykjavíkur og Háskóla
Íslands.
Opinber
heimsókn for-
sætisráðherra
Rúmeníu