Morgunblaðið - 03.12.2002, Síða 18
Frá ferð FERLIR á Garðaflötum á dögunum. Í forgrunni má sjá hluta tóft-
anna en það eru Dóra Hlín Ingólfsdóttir, Jóhann Davíðsson og Eyjólfur Sæ-
mundsson sem sitja í bakgrunni. Það var Ómar Smári sem tók myndina.
FERÐAHÓPUR rannsóknardeildar
Lögreglunnar í Reykjavík (FERL-
IR) fann á dögunum fimm tóftir,
sem ekki hefur verið vitað um fyrr á
Garðaflötum við Búrfell. Hópurinn
telur tóftirnar styðja frásagnir í
Gráskinnu hinni meiri.
Ómar Smári Ármannsson yfirlög-
regluþjónn er í hópnum en hann
bendir á að í Gráskinnu sé sagt frá
því að Garðar og Garðakirkja hafi
eitt sinn verið á Garðaflötum en hafi
verið flutt þegar hraun rann þar yf-
ir. Þá segir einnig í Gráskinnu að
merki sé að finna um að byggð hafi
verið á Garðaflötum.: „Þat eru
garðahleðslur miklar, og víða sjást
húsarústir og sumar mjög stórar um
sig. Hlaðinn brunnur kvað og hafa
sést til skamms tíma,“ segir þar.
„Við vorum einfaldlega að rekja
söguna og það virðast vera tóftir á
þessum stað,“ segir Ómar. „Hvað
það er veit enginn en það var ekki
vitað til að þarna væru tóftir.“
Hann segir að ein tóftanna hafi
verið garður auk þess sem ein
þeirra var stærri en hinar. „Svo
gæti náttúrulega verið meira á
svæðinu sem enn á eftir að skoða.
Það hafa verið sel frá Görðum í Búr-
fellsgjánni og Garðaflatir voru not-
aðar þegar réttað var í Gjáarrétt-
inni. Hins vegar eru þessar tóftir
þannig að þær eru mjög jarðlægar,
sem bendir til þess að þær séu gaml-
ar.“
Að sögn Ómars hefur FERLIR
verið að skoða Reykjanesið í þrjú ár
með útgangspunkt í sögunni. „Þetta
eru gamlar sagnir, munnmæli, til-
vitnanir, lýsingar í gömlum ritum,
frásagnir gamalla manna og við höf-
um rakið okkur eftir því. Raunin er
sú að í langflestum tilvika er einhver
fótur fyrir sögunum. Meira að segja
þjóðsögurnar, sem hafa gerst á
Reykjanesinu, hafa tilvísun í staði
þar sem ákveðin ummerki er að
finna.“
Í hópnum eru sem fyrr segir
reykvískir rannsóknarlögreglumenn
en yfirleitt eru þeir 5–15 talsins í
hverri ferð. Að auki er áhugasömu
fólki um söguna gjarnan boðið með.
„Það býr yfirleitt líka yfir vitneskju
sem kemur okkur til góða og svo
fáum við tækifæri til að sýna því
hvað við höfum séð,“ segir Ómar.
Inntur eftir framhaldi málsins
segir hann að þegar hópurinn hafi
gert svona uppgötvun snúi hann sér
yfirleitt að næsta verkefni og í sjálfu
sér reyni hann ekkert sérstaklega
að koma fundunum á framfæri við
þar til bæra aðila. Fyrst og fremst
sé hópurinn að gera þetta sér til
skemmtunar.
En nýtast rannsóknarhæfileikar
lögreglumannanna ekki vel við leit
af þessu tagi? „Það er mjög gott að
nota þetta til að skerpa á þeim en
markmiðið er útivist og hreyfing.
Það má segja að með því að gera
þetta svona hafi hver ferð einhvern
tilgang auk hreyfingarinnar.“
Rannsóknarlög-
reglumenn finna
tóftir á Garðaflötum
= > ? 1 @ >
>+
$
A
%
!
Garðabær
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði arkitekta
og tæknifræðinga og ALVÍB
!"# #" !"$%&'! ( )* (+ ,+
-( " . )#++ / ' " ((0", ). ,)!" )"
1((0", ,+ *#" * *
2" 3",&( +' 45 , +
-( "6
" ".# *) ,
(777
()
2"*#"
.#+ )./ *" ) 8988
SJOÐUR
LIFEYRIS-
arkitekta og
tæknifræðinga
:,+ ";
+)' (
<
=,+ ,>?,((",4? +@(A/
= )* (+,)# ,)' " ((0",
). ,)!" )",$1!"$%&
B,) (
C ,DD(3" >777
(/'
:,+ ";
+)' (
;
8
=,+ ,>?,((",4? +@(A/
= )* (+,)# ,)' " ((0",
). ,)!" )",$1!"$%&
B,) (
C ,DD(3" >777
(
ÍBÚAR í Helgafellslandinu í Mos-
fellsbæ krefjast þess að undirgöng
verði gerð undir Vesturlandsveginn
fyrir gangandi umferð úr hverfinu á
skóla- og íþróttasvæði hinum megin
við veginn. Undirskriftalistar þar að
lútandi verða afhentir bæjaryfir-
völdum í vikunni en alls söfnuðust
1.238 undirskriftir á þeim 5 dögum
sem undirskriftarlistar lágu frammi.
Stutt er síðan alvarlegt slys varð á
Vesturlandsveginum þegar 13 ára
stúlka varð fyrir bíl þar sem hún var
að fara yfir Vesturlandsveg við Ás-
land. Að sögn Ásgeirs Sverrissonar,
talsmanns íbúanna, hafa börn úr
Helgafellshverfi sótt í að stytta sér
leið og hlaupa yfir Vesturlandsveg-
inn og þaðan yfir göngubrú yfir
Varmá í átt að skólanum og íþrótta-
svæðinu. „Krafa okkar íbúanna er að
það verði gerð undirgöng undir veg-
inn,“ segir hann. „Við fórum með
undirskriftalista í stofnanir og fyr-
irtæki og dreifðum þessu í hverfin og
ég held að það sé alveg augljóst að
allir bæjarbúar styðja okkur í
þessu.“
Hann segir langt síðan að íbúar
settu fram kröfu um undirgöng og
hún hafi fengið góðan hljómgrunn í
aðdraganda sveitarstjórnarkosning-
arnar í vor. Hins vegar hafi ekkert
gerst í málinu síðan.
Brúin verði aftur sett upp í vor
Í kjölfar slyssins á dögunum fóru
íbúar fram á að göngubrúin yfir ána
yrði fjarlægð og var það gert en að
sögn bæjaryfirvalda verður brúin
sett upp að nýju í vor. „Tilgangurinn
með þessari brú var að krakkarnir
kæmust úr skólanum yfir í íþrótta-
svæðið fyrir neðan. Hins vegar not-
uðu þau hana til að hlaupa yfir veg-
inn og yfir brúna í skólann því þetta
er mikið styttri leið. Brúin er líka
tenging við Tungubakka sem er
mjög stórt íþróttasvæði og það er
ekki nóg að skipuleggja íþróttasvæði
hinum megin við veginn ef krakk-
arnir komast ekki þangað með góðu
móti. Nú þurfa þau að fara alla leið
að botni Varmárinnar, undir Vest-
urlandsveginn og aftur til baka. Það
gera krakkar bara ekki heldur fara
þau stystu leið.“
Þá bendir Ásgeir á að starfsemin á
skóla- og íþróttasvæðunum fari vax-
andi samhliða því sem íbúum ofan
við Helgafellshverfið fari fjölgandi.
Að auki hafi umferð stóraukist á
Vesturlandsveginum og nýverið hafi
hámarkshraðinn á Vesturlandsveg-
inum verið aukinn úr 60 km/klst. í 70
á umræddum kafla. Loks séu gatna-
mótin við Ásland óupplýst.
Íbúarnir hittust á fundi í gærkvöld
þar sem farið var yfir málið og tekið
saman hversu margar undirskriftir
hefðu safnast en til stendur að af-
henda þær í vikunni. Ásgeir segir
ljóst að íbúar vilji ekki fleiri slys á
þessum stað. „Það varð banaslys við
botn Varmárinnar á sínum tíma og
þá voru byggð undirgöng þar.“ Að
hans sögn virðist því miður vera sem
slys þurfi til að ráðist sé í úrbætur af
þessu tagi.
Íbúar í Helgafellshverfi safna 1.238 undirskriftum
Krefjast að undir-
göng verði gerð und-
ir Vesturlandsveginn Morgunblaðið/Kristinn
Frá fundinum í gærkvöld þar sem íbúar stilltu saman strengi sína og söfn-
uðu saman undirskriftalistum varðandi kröfu þeirra um undirgöng undir
Vesturlandsveginn við Ásland. Alls söfnuðust 1.238 undirskriftir. Mosfellsbær
FORMLEG opnun Baugshlíðar í
Mosfellsbæ fór fram í gær þegar
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæj-
arstjóri, og Stefán Friðfinnsson,
forstjóri Íslenskra aðalverktaka,
klipptu á borða við götuna. Með
nýju hringtorgi hefur verið opnað
fyrir umferð frá Baugshlíð upp á
Vesturlandsveg.
Í frétt frá bænum segir að um
mikla samgöngubót sé að ræða
fyrir Mosfellinga en með henni
styttist akstursleiðin milli Reykja-
víkur annars vegar og vesturbæj-
arins eða Höfða-, Hlíða- og Tanga-
hverfa hins vegar. Segir að mikið
uppbyggingarstarf eigi sér stað í
þessum hluta bæjarins en meðal
annars byggja Íslenskir aðal-
verktakar nú fjölbýlishúsahverfi
við Klapparhlíð.
Það var Mosfellsbær og Vega-
gerðin sem stóðu að framkvæmd-
unum en Íslenskir aðalverktakar
voru með verkið. Heildarkostnaður
við hringtorgið, vegtenginguna og
tengingu við Blikastaði er áætl-
aður um 180 milljónir króna.
Morgunblaðið/Sverrir
Klippt á borða
við Baugshlíð
Mosfellsbær