Morgunblaðið - 03.12.2002, Page 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 23
BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur og félagar halda
sína árlegu aðventutónleika undir heitinu Kvöldlokkur
á jólaföstu í Kristskirkju í kvöld kl. 20.
Komin er yfir 20 ára hefð á þessa tónleika þar sem
heyra má blásaraserenöður frá klassíska tímabilinu. Að
þessu sinni verða leiknar serenöður eða kvöldlokkur
eftir Haydn og Mozart auk tilbrigða við menúett úr
óperu Mozarts Don Giovanni eftir samtímamann
tónskáldsins, óbóleikarann Joseph Triebensee.
Þeir sem koma fram eru: Daði Kolbeinsson og Peter
Tompkins, óbó; Einar Jóhannesson og Sigurður I.
Snorrason, klarínett; Jósef Ognibene og Þorkell Jóels-
son, horn; og Hafsteinn Guðmundsson, Rúnar Vilbergs-
son og Brjánn Ingason, fagott. Tónleikarnir taka u.þ.b.
eina klukkustund og aðgöngumiðar eru seldir í safn-
aðarheimilinu við hlið kirkjunnar á undan tónleikunum.
Morgunblaðið/ÞorkellBlásarakvintett Reykjavíkur og félagar leika í Kristskirkju í kvöld kl. 20.
Kvöldlokkur á jólaföstu
EINIR eftirtektarverðustu tón-
leikar á listahátíð í vor voru tón-
leikar Sigurðar Flosasonar og Pét-
urs Grétarssonar er þeir fluttu verk
sitt, Raddir þjóðar, þar sem þeir
spunnu nokkuð fastmótað við hljóð-
ritanir kvæðasöngs og frásagna
fjölda Íslendinga sem varðveittar
eru á Stofnun Árna Magnússonar og
í Þjóðminjasafni Íslands. Þeir end-
urtóku gjörninginn á tónlistarhátíð-
inni á Kirkjubæjarklaustri í sumar
og er haldið var uppá fimmtíu ára af-
mæli Norðurlandaráðs í Helsinki
nýverið voru þeir félagar mættir
með bæði Dúðadurt og Upp upp mín
sál og allt mitt geð. Var því sjón-
varpað beint um Norðurlönd og bar
af öðru á þeirri samkomu. Á dög-
unum héldu þeir félagar tónleika í
Tjarnarbíói til að halda upp á útgáfu
geisladisks með verkinu. Í hvert
sinn er þeir flytja verkið lifnar það
að nýju en að sjálfsögðu mynda
hljóðritin fastan ramma sem þeir
fylgja. Þó er röð hnikað og sólóar
lengdir eða styttir, nýjum lagboðum
bætt inní eða felldir burtu og mynd-
breytist verkið þá í sífellu. Ef ég
man rétt þá blés Sigurður Ár vas
alda í upphafi Listahátíðartón-
leikanna en í Tjarnarbíói var Ég lít í
anda liðna tíð upphafsstefið áður en
Björg Björnsdóttir frá Lóni í Keldu-
hverfi tók að kveða Við skulum ekki
hafa hátt, en sá útburðarkafli, með
Móðir mín í kví kví í öndvegi, var
upphafskafli beggja tónleikanna.
Aftur á móti blés Sigurður Kalda-
lóns í lok Listahátíðartónleika.
Geisladiskurinn er rúmar 46 mínút-
ur en tónleikar þeirra félaga taka vel
á annan tíma – gefur því augaleið að
þar láta þeir gamminn geisa í spuna
sem ekki finnst á disknum. Sér í lagi
minnist ég mikils rýþmablúsblásturs
Sigurðar í tenórsaxófón á Listahátíð
í lok kostulegrar spítalafrásagnar
Páls Þorgilssonar frá Svínafelli í
Öræfum. Kannski var það samkynja
blástur og í Bakkusi í Tjarnarbúð og
á disknum sem minnir á Charlie
Ventura í tríói Gene Krupa og Pétur
þá í hlutverki Krupa sjálfs.
Diskur þeirra félaga er einhver
skemmtilegasti gripur er mér hefur
borist í hendur lengi – og ekki er
kveðandi íslenskrar alþýðu síðri en
leikur þeirra Sigurðar og Péturs.
Með fullri virðingu fyrir Sigur Rós
og Steinari Andersen held ég að
þarna sé komið nær þjóðarkvikunni.
Auðvelt hefði verið að klúðra þessari
útgáfu en þeir félagar klikka ekki
þar. Hvers einasta alþýðumanns er
getið og hvað hann flytur og ekki
gleyma þeir að þakka Rósu Þor-
steinsdóttur hjá Árnastofnun er að-
stoðaði þá við valið og hefur tekist
einstaklega vel að velja hin fjöl-
breytilegustu kvæðalög.
Disknum er skipt í ellefu þætti
þar sem hin aðskiljanlegustu efni
ráða ríkjum. Af þeim þáttum sem
ekki hefur verið minnst á verður að
nefna Lærakjóa þar sem blandað er
saman listilega jafnt sem lystilega
hljóðfæraleik þeirra félaga og klám-
vísum, réttarsöng og sérstæðri
kveðandi Páls Árnasonar að Hurð-
arbaki í Flóa: Nú er hann dauður
hann Linnet minn í Firðinum. Pétur
slær á væminn upphafsskala einsog
Hampton í Midnight Sun og Sigurð-
ur blúsar á tenórinn við klámvísurn-
ar. Svo er Sigurður frábær á sópr-
anínósaxinn í Víst ertu Jesú kóngur
klár í lokakaflanum þar sem Sigríð-
ur Benediktsdóttir á Hvoli í Saurbæ
raular.
Diskur sem er ekki síðri fyrir unn-
endur þjóðlegs fróðleiks en frjáls
spuna.
Lifandi
þjóðararfur
DJASS
Tónleikar/Geisladiskur
Sigurður Flosason sópranínó-, tenór- og
barítonsaxófóna, bassaklarinett, pikk-
aló- og altflautur og rödd. Pétur Grét-
arsson loddaratól, tyrkjatrommur, vatns-
held smágjöll, gjallpáku, vatnsfyllta
soðnaglagígju, bifhörpu, krótölu, álgjöll,
kongatrommur, reiðgjöll, austurlensk
vindgjöll, pákur, málmgjöll, dragspil,
hljóðgervil, trommur, rafræna hljóðsmölu
og rödd. Tjarnarbíó þriðjudagskvöldið
19.11. 2002. Geisladiskur: Ómi Jazz 010
– 2002.
RADDIR ÞJÓÐAR
Morgunblaðið/Jim Smart
Pétur Grétarsson og Sigurður
Flosason.
Vernharður Linnet
NÝLEGA kom út bókin Líf með
þunglyndi eftir dr. Robert Buckman
og Anne Charlish. Bókin er nú til
sölu hjá Geðhjálp, Túngötu 7 og
rennur ágóði til félagsins. „Þung-
lyndi er einn algengasti sjúkdómur í
heimi og talið að einn af hverjum
fjórum þjáist af honum á ævinni.
Samt hefur hann löngum verið sveip-
aður skilningsleysi og fordómum,“
segir í kynningu.
Ágóði bókar-
sölu til styrktar
Geðhjálp
JESSICA Kingsley-útgáfan í Lond-
on hefur keypt útgáfuréttinn á bók-
inni Ráðgjöf í skólum eftir Guðrúnu
Helgu Sederholm og kom bókin út á
dögunum. Bókin kom út hjá Há-
skólaútgáfunni árið 1998 en enska
útgáfan er mikið aukin. Bókina
þýddi Anna Yates á ensku. Enskur
titill er Counselling Young People in
School. Bókin er einnig komin út í
Bandaríkjunum.
Íslenskt fagrit
kemur út í
Bretlandi
♦ ♦ ♦
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060
Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862
Stærðir 40-52
Kringlunni 8-12 - www.olympia.is - sími 553 3600
Þú velur aðeins
það besta
næst þér
Glæsilegt úrval
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is
Banki 0139-26-4700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101