Morgunblaðið - 03.12.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom til
Straumsvíkur í gær.
Lómur kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Sam-
söngur kl. 14, stjórn-
andi Kári Friðriksson.
Jólahlaðborð verður
föstud. 6. des. húsið
opnað kl. 17.Miða þarf
að sækja í síðasta lagi
fimmtud. 5. des. Skrán-
ing í afgreiðslu. Síðasta
verslunarferð fyrir jól á
morgun 4. des. farið kl.
10 frá Aflagranda.
Skráning í afgreiðslu.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans, kl.
9.30–10.30 Íslandsbanki
á staðnum, kl. 10.30
leikfimi, kl. 13–16.30
opnar handavinnu- og
smíðastofur.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11.30 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14–
15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið er
opið mánu- og fimmtu-
daga.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 aðstoð við
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 10 sam-
verustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Aðventu-
skemmtunin verður
haldin fimmtud. 5. des.
kl. 20. Veislustjóri Ólaf-
ur H. Jóhannsson,
Furugerðiskórinn syng-
ur undir stjórn Ing-
unnar Guðmundsdóttur,
Rannveig Jóhannsdóttir
les jólasögu, Signý Sæ-
mundsdóttir syngur við
undirleik Þóru Fríðu
Sæmundsdóttur og jóla-
hugvekju flytur sr. Guð-
laug Helga Ásgeirs-
dóttir. Veitingar. Allir
velkomnir.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 13.15–13.45
bókabíllinn, hár-
greiðslustofan opin 9–
14. Jólahlaðborð föstud.
6. des. kl. 18.30.
Kynslóðir mætast 19.
des. á jólaballi. Hljóm-
sveit Hjördísar Geirs
leikur Jólasveinn kemur
og verður á ballinu.
Sönghópurinn Dísurnar
syngja jólalögin.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Ferð á Nesja-
velli 10. des. kl. 12.30 í
boði sýslumannsins í
Hafnarfirði og lögregl-
unnar í Garðabæ. kl.
10.30 upplestur úr nýj-
um bókum í Bókasafni
Garðabæjar, kl. 11.40
leikfimi karla, kl. 13
málun kl. 13.30 tré-
skurður.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Handa-
vinna, brids og pútt í
Hraunseli kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
opnuð kl. 10. Morg-
unkaffi, blöðin og matur
í hádegi. Þriðjud: Skák
kl. 13 og alkort kl. 13.30.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12 sími. 588-
2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia. All-
ar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 glerlist, handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 þriðju-
dagsganga og boccia, kl.
16. 15 og kl. 17.15 kín-
versk leikfimi. Hand-
verksmarkaður verður í
Gjábakka fimmtud. 5.
des frá kl. 13–16.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, leiðbeinandi á
staðnum, kl. 17 línu-
dans, kl. 19 gömlu dans-
arnir. Afmælis- og að-
ventufagnaður verður í
Gullsmára miðvikud. 4.
des. og hefst með dag-
skrá kl. 14. Hörður
Torfason syngur nokk-
ur lög af nýjum geisla-
diski sínum. Jólaund-
irbúningur í fjarlægum
löndum, Anceloca
Cantu Davilla frá
Mexíkó og Thuy Ngo
frá Víetnam. Aðalheiður
Magnúsdóttir syngur
nokkur lög. Hátíð-
arhlaðborð óvænt uppá-
koma. Allir velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun og gler-
skurður, kl. 10 boccia,
kl. 11, leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist og hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og boccia, kl. 13
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð-
ir hársnyrting. Kl. 14.30
þjónusta frá Lyf og
heilsu. Allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9. 15–16
bútasaumur og postu-
línsmálun. kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 13–16 frjáls spila-
mennska. Fimmtud. 5.
des. verður þjónustu-
miðstöðin lokuð frá kl.
13 vegna undirbúnings
jólafagnaðar. sem hefst
kl. 17, vinsamlega sækið
aðgöngumiðana fyrir 3.
des.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Vatnsleikfimi í Graf-
arvogslaug á þriðjud. kl.
9.45 og föstud. kl. 9.30.
Uppl. í s. 5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 14–15 jóga.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leikfimi,
kl. 13 handmennt m.a.
mosaik, kl. 14 fé-
lagsvist.
Háteigskirkja eldri
borgara á morgun
miðvikud. kl. 11 sam-
vera, fyrirbænastund
og stutt messa í kirkj-
unni, allir velkomnir,
súpa í Setrinu kl. 12,
spil kl. 13.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
Karlakórinn Kátir
karlar, æfingar á
þriðjud. kl. 13 í Félags-
og þjónustumiðstöðinni
Árskógum 4. Söngstjóri
Úlrik Ólason. Tekið við
pöntunum í söng í
s.553 5979 Jón,
s.551 8857 Guðjón eða s.
553 2725 Stefán.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
ITC deildin Fífa í Kópa-
vogi fundur á morgun
miðvikud. kl. 20.15, í
Safnaðarheimili Hjalla-
kirkju, Álfaheiði 17
Kópavogi. Allir vel-
komnir. Uppl. í s.
554 2045.
Hallgrímskirkja eldri
borgarar, opið hús 4.
des. kl. 14.
Kvenfélag Langholts-
sóknar, jólafundurinn
verður í safnaðarheim-
ilinu þriðjud. 3. des. og
hefst klukkan 20. Veit-
ingar og skemmtiatriði
verða með aðventu og
jól í huga og skipst
verður á jólapökkum.
Makar, félagar í Safn-
aðarfélagi Langholts-
kirkju og aðrir gestir
velkomnir.
Kvenfélagið Hring-
urinn. Jólafundurinn
verður haldinn í Ársöl-
um á Hótel Sögu á
morgun miðvikud. 4.
des. kl. 19. Köldverður.
FAAS félag aðstand-
enda Alzheim-
erssjúklinga verður
með aðventufund í safn-
aðarheimili Áskirkju
þriðjud. 3. des. kl. 20.
Í dag er þriðjudagur, 3. desember,
337. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Þetta býð ég yður, að þér elskið
hver annan.
(Jóh. 15, 17.)
K r o s s g á t a
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er einn af þeim semfylgst hafa með hinum stórgóðu
þáttum um Soprano-fjölskylduna í
New Jersey frá upphafi og vill helst
ekki missa af þætti. Það reynist hins
vegar stundum erfitt sökum þess hve
seint þættirnir eru nú á dagskrá. Þeir
byrja ekki fyrr en rétt fyrir klukkan
ellefu og klukkan er því langt gengin í
tólf þegar þeim lýkur. Hvernig stend-
ur á því að þessir vinsælu þættir eru
sýndir þetta seint? Ber ríkisrekna
sjónvarpsstöðin enga virðingu fyrir
nætursvefni landsmanna?
x x x
EITTHVERT vinsælasta um-ræðuefni flestra þjóða er veðrið
og er Ísland þar engin undantekning.
Hins vegar eru stöðugar umræður
um verðlag líklega hvergi jafnalgeng-
ar og hér. Líklega er skýringin sú að
á fáum stöðum í hinum vestrænum
heimi hafa menn jafnríkar ástæður til
að kvarta yfir verðlagi og á Íslandi.
Þótt það sé kannski að bera í
bakkafullan lækinn ætlar Víkverji að
kvarta aðeins yfir verðlagningu.
Það kemur fyrir að hann leyfi sér
þá tilbreytingu að fara út á veitinga-
hús og fá sér mat. Oftar en ekki
blöskrar honum hins vegar verðið
sem finna má á mat- og vínseðlum ís-
lenskra veitingahúsa. Síðastliðinn
vetur varð mikil hækkun á verði og
var hún yfirleitt skýrð með vísun í
óhagstæða gengisþróun þótt Víkverji
eigi erfitt með að átta sig á því hvað
gengi komi verði á til dæmis íslensku
lambakjöti við. Fyrir einu til tveimur
árum var algengt verð á lambakjöts-
réttum á betri veitingahúsum í kring-
um þrjú þúsund krónur. Það kom
varla fyrir að réttir sæust á seðlum,
sem kostuðu meira en fjögur þúsund
krónur. Það var helst að dýrustu
hreindýrasteikur næðu að komast í
þann flokk. Nú virðist það hins vegar
vera regla fremur en undantekning
að kjötréttir kosti í kringum fjögur
þúsund krónur á betri veitingastöð-
um þótt Víkverji fái ekki séð að verð á
hráefni hafi hækkað jafnmikið í þeim
stórmörkuðum þar sem hann kaupir
inn að jafnaði.
Þetta gerist á sama tíma og mikil
niðursveifla hefur verið í þjóðfélaginu
og fólk heldur vel um budduna. Eru
veitingamenn ekki að skjóta sig í fót-
inn með hækkunum sem þessum?
Væri ekki nær að reyna að halda
verði í botni til að fá fólk inn á veit-
ingahúsin?
Enn óskiljanlegri er verðlagning á
víni. Meginreglan virðist vera sú að
hækka verð vínflöskunnar um 300–
400% frá því sem hún kostar í Ríkinu.
Hvert er vitið í þessu? Halda veit-
ingamenn að fólk átti sig ekki á þessu
og hugsi sitt?
x x x
ÞAÐ SEM Víkverja sýnist vera aðgerast er að matargerð er að
færast í stöðugt vaxandi mæli inn á
heimilin. Í stað þess að fólk fari út að
borða þá býður það fólki í mat. Mat-
arklúbbar virðast blómstra sem aldr-
ei fyrr og margir hafa náð það mikilli
færni í eldhúsinu að matarboðin
standast fyllilega samanburð við
veislumáltíðir á veitingahúsum. Vík-
verji er sannfærður um að hið háa
verðlag á veitingahúsum eigi sinn
þátt í þessu. Þrátt fyrir að ekkert sé
sparað í mat og víni er „reikningur-
inn“ mun lægri en á veitingahúsi.
Er svigrúmið
loksins komið?
EF mig minnir rétt hafa
skattar á fyrirtæki lækkað
verulega á síðustu misser-
um.
Verulega, skrifa ég, því
að lækkun úr 50% í 18% á
stuttum tíma tel ég gífur-
leg viðbrigði. Svo er það
líka veruleg breyting er
vextir lækka eins mikið og
á þessu ári.
Ég er ekki alveg viss um
prósentutöluna þar en hún
er þó nokkur. Þessi tvö at-
riði gera það að verkum að
hagur fyrirtækja hefur
heldur betur vænkast og
má með sanni segja að
þarna hafi orðið gjörbylt-
ing. Einmitt þessi atriði
urðu þess valdandi að at-
vinnurekendur voru væl-
andi í nær hverjum einasta
fréttatíma síðasta áratug-
inn og sögðu að háir vextir
og skattar væru helsti
þröskuldurinn fyrir svig-
rúmi til launahækkana.
Ég spyr. Er ekki komið
nægjanlegt svigrúm til
launahækkana nú eða á að
fara að væla í fleiri ár út af
einhverri annarri forsendu
sem hefur aldrei verið
nefnd áður? En eitt er nú
nokkuð ljóst og það er sú
staðreynd að atvinnurek-
endur hækka ekki laun af
sjálfsdáðum.
Því segi ég, vakna nú
verkalýður, nú er lag. Í
þessu samhengi kýs ég að
nefna ekki verkalýðsfor-
ystuna því það er rang-
nefni og heyrir sögunni til
fyrir löngu.
Tökum höndum saman,
verkalýður, tækifæri okk-
ar bíður.
Verkamaður.
Hún er sú besta
SÚ rödd var svo fögur svo
hugljúf og hrein. Þessa
rödd á Elín Hirst.
Eins og kennitalan mín
ber með sér er ég nokkuð
roskinn, sem kallað er.
Löngu hættur að vinna en
ver tímanum í lestur og
hlustun á útvarpi og sjón-
varpi. Ég reyni að fylgjast
með því sem er að gerast í
veröldinni og til þess að
svo megi verða elti ég allar
fréttir, bæði í útvarpi og
sjónvarpi. Því miður er
heyrnin farin að gefa sig
enda nota ég heyrnartæki.
Bið ég ráðamenn í sjón-
varpinu að láta Elínu
Hirst sem oftast lesa frétt-
irnar, þá nýt ég þeirra
best.
Kt: 160205-4589.
SDS-smyrslið
ÉG vil byrja á því að
þakka þessu indæla fólki
fyrir góð meðmæli á SDS-
smyrslinu sem ég fram-
leiði. Ég er því innilega
sammála um að varan er
ekkert auglýst en ég mun
bæta úr því á næstunni
með auglýsingu í Morgun-
blaðinu.
Athygli skal vakin á því
að ekki stendur allt utan á
SDS-smyrsltúpunni sem
smyrslið hefur reynst vel
fyrir en ég mun reyna að
bæta úr því á næstunni
með því að setja límmiða á
túpurnar.
Með kærri kveðju og
þökk.
SDS-smyrsl,
Esjumel 7, R.
Sigríður Einarsdóttir.
Sammála Öldu
ÉG get ekki orða bundist
og tek undir með Öldu
Karlsdóttur sem skrifaði í
Velvakanda 29. nóv. um
sóðaskap í Víkurskálanum
í Vík í Mýrdal. Ég ferðast
mikið út á land og það er
sérstaklega sóðalegt í Vík-
urskálanum miðað við
aðra staði við þjóðveginn
úti á landi. Ég t.d. veigra
mér við að stoppa þarna og
stoppa frekar á Klaustri
en þar er bæði þrifalegra
og betri þjónusta. Það er
með ólíkindum að þetta
þurfi að vera svona í Vík
eins og umferðin er mikil á
þessum stað.
Steinvör Þorleifsdóttir.
Tapað/fundið
Eyrnalokkur
týndist
Hvítagullseyrnalokkur
tapaðist við Sörlaskjól fyr-
ir rúmri viku. Lokkurinn
er með bláum safírsteini í
miðjunni og demöntum í
kring. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 551 3192.
Hjólkoppur týndist
STÓR (42 cm) sléttur silf-
urlitaður hjólkoppur tap-
aðist á Reykjavíkur-Hafn-
arfjarðarsvæði. Fimm
litlir hringir eru í miðju
koppsins. Skilvís finnandi
er beðinn að hringja í síma
698 8277.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
MÉR finnst mjög skrýtið
hvað fólk er alltaf með
mikið stress fyrir jólin!
Jólin eru hátíð ljóss og
friðar! Burt með allt
þetta endalausa stress
og vesen! Þó að eitthvað
bjáti á, þá finnst mér al-
gjör óþarfi að gera eitt-
hvert mál úr því! Sumt
fullorðið fólk verður
bara að læra að slaka á
svona stundum. Pæliði í
okkur unglingunum! Við
förum í öll prófin rétt
eftir jól en við reynum
samt alveg að slaka á
og njóta jólanna! Hafið
það öll frábært um jólin
og njótið þess að vera
til. Gleðileg jól!
Nemandi í 9. bekk.
Stress um jólin
LÁRÉTT:
1 efnilegur maður, 8
pyngju, 9 hillingar, 10
verkfæri, 11 mál, 13 eld-
stæði, 15 sorgar, 18 hand-
leggjum, 21 hreysi, 22
girnd, 23 eyddur, 24
borginmennska.
LÓÐRÉTT:
2 gömul, 3 tudda, 4 kirtla,
5 nef, 6 ábætir, 7 heyið,
12 tannstæði, 14 kyrr, 15
kjöt, 16 róta, 17 húð, 18
duglegur, 19 átt við, 20
túla.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 orsök, 4 bitur, 7 makar, 8 ólman, 9 tær, 11
rösk, 13 gata, 14 ásinn, 15 tómt, 17 álma, 20 agn, 22 góð-
ur, 23 angan, 24 urrar, 25 niður.
Lóðrétt: 1 ormur, 2 sekks, 3 kort, 4 bjór, 5 temja, 6
renna, 10 æfing, 12 kát, 13 Gná, 15 tuggu, 16 móður, 18
logið, 19 asnar, 20 arar, 21 nafn.