Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 26
AKUREYRI 26 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÞAÐ eru engir peningar til, eru svörin sem við fáum,“ segir þeir Er- lingur Örn Óðinsson og Sveinn Sæv- ar Frímannsson nemar á 2. ári í framreiðslu. Þeir starfa á Hótel KEA og voru á leið suður í skóla, í hótel- og veitingadeild Menntaskól- ans í Kópavogi. Þeir fréttu í gær að vegna fjárskorts væri búið að skera námið niður. Báðir eru þeir fjölskyldumenn og höfðu gert ráðstafanir, fundið íbúðir, vinnu og annað sem þarf í kjölfar bú- ferlaflutninga sem til stóðu um ára- mót. „Við vorum búnir að miða allar okkar áætlanir út frá þessu,“ sögðu þeir. „Þetta er ansi hastarlegt og fyrirvarinn er enginn. Það hefði kannski verið í lagi ef við hefðum verið látnir vita fyrr, því við erum búnir að skipuleggja þetta í marga mánuði, en því var ekki að heilsa.“ Þá kváðust þeir einnig hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þess að námið verður ekki í boði nú eftir áramót. Þeir sögðu að alls væru 5 nemar á öðru ári sem hefðu ætlað í skólann eftir áramót, þar af þeir tveir frá Ak- ureyri. „Þetta nám er ekki í boði hér í bænum, þannig að maður neyðist til að flytja suður,“ segja þeir Erlingur og Sveinn. Þeir eru afar óánægðir með þess- ar málalyktir en segja að forsvars- menn skólans reyni hvað þeir geti að draga úr skaðanum. Þeir eru sam- mála um að illa sé búið að iðnnemum á Íslandi, launin séu smánarleg og í raun megi „fara með þá eins og tusk- ur“, eins og Erlingur orðar það. Þeir sögðust vona að yfirvöld mennta- mála myndu sjá að sér og sýna verk- menntun meiri virðingu. „Ef ekkert breytist þá er eins gott að snúa sér að einhverju öðru,“ sögðu þeir. Ekki boðið upp á námið vegna peningaskorts Hastarlegt og enginn fyrirvari Erlingur Örn Óðinsson, t.v., og Sveinn Sævar Frímannsson á vinnustað sínum Hótel KEA. Morgunblaðið/Kristján STEINDUR gluggi eftir Leif Breiðfjörð glerlistamann verður formlega afhentur við hátíð- armessu á 10 ára vígsluafmæli Glerárkirkju á sunnudag, 8. des- ember. Kvenfélagið Baldursbrá hefur safnað fyrir þessum glugga síðustu 8 ár. Af þessu tilefni mun Leifur Breiðfjörð opna sýningu á verkum sínum í Glerárkirku á laugardag og er yfirskrift hennar Sigur lífs- ins. Hún samanstendur af 15 nýj- um verkum frá þessu ári, unnum með vatnslitum og pastellitum. Þá flytur Pétur Pétursson prófessor erindi sem nefnist Trúin og listin. Nýtt húsnæði í suðurálmu kirkj- unnar verður einnig tekið í notk- un á sunnudag, en þar verður nú þjónustuálma. Sr. Karl Sigur- björnsson biskup mun vígja kap- ellu í Glerárkirkju og predika við hátíðarmessu. Morgunblaðið/Kristján Séra Gunnlaugur Garðarsson og Leifur Breiðfjörð fyrir framan gluggann. Steindur gluggi í Glerárkirkju BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að fela bæjar- stjóra að hefja undirbúningsviðræð- ur við Flóttamannaráð Íslands vegna komu 25 flóttamanna sem rík- isstjórnin hefur samþykkt að taka á móti á næsta ári. Bæjarstjóri skal svo leggja fyrir bæjarráð tillögur um hvernig undirbúningi á móttöku flóttamannanna verði háttað. Fé- lagsmálaráðuneytið óskaði eftir við- ræðum við Akureyrarbæ um verk- efnið. Oddur Helgi Halldórsson, bæjar- fulltrúi L-listans, óskaði bókað að hann sæti hjá við afgreiðslu málsins. Oddur sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann væri ekki hlynntur því að hingað kæmu flóttamenn. „Ég hef ekkert á móti þessu fólki en mér finnst ekki að þetta eigi að vera for- gangsmál hjá okkur á þessum tíma- punkti.“ Oddur sagði atvinnu- ástandið viðkvæmt, auk þess sem húsnæðisskortur væri í bænum. Hann sagði að nota ætti þetta sem úrræði fyrir minni sveitarfélög, þar sem margar íbúðir væru á lausu, auk þess sem ríkið borgaði allan kostnað fyrstu þrjú árin. Viðræður um komu flóttamanna TVÖ ár eru á sunnudag, 8. desem- ber, frá því athvarfið Lautin var formlega opnað. Í tilefni afmælisins verður opið hús frá kl. 13 til 17 í Þingvallastræti 32, þar sem athvarf- ið er til húsa. Einnig verður kynning á starfseminni og kökusala á Gler- ártorgi eftir hádegi á laugardag. Að- standendur og vinir þeirra sem eiga við geðröskun að stríða eru sérstak- lega hvattir til að kynna sér starf- semi Lautarinnar, segir í frétt frá at- hvarfinu. Athvarfið Laut er félagslegt úr- ræði fyrir fólk með geðfötlun og er það rekið af Akureyrardeild Rauða kross Íslands í samstarfi við Geð- verndarfélag Akureyrar og Akur- eyrarbæ. Markmið starfseminnar er að rjúfa einangrun, hamla gegn for- dómum og stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum, m.a. með kynningum. Þau tvö ár sem liðin eru frá því starf- semin hófst hefur hún aukist og koma í athvarfið nú að jafnaði 12 gestir á dag, alla virka daga. Það er því ljóst að mikil þörf hefur verið fyr- ir athvarfið, en alls hafa um 100 manns nýtt sér þjónustuna. Opið hús og starf- semin kynnt Laut tveggja ára ♦ ♦ ♦ Menntasmiðjan á Akureyri Opið hús verður í , Glerárgötu 28, 3. hæð, á morgun, laugardaginn 7. desember og stendur það frá kl. 13 til 17. Þar getur að líta afurðir námsmeyja, handverk, skáldverk og söng- og danssýningar, auk þess sem kaffi og meðlæti verður fram borið. Námið í Menntasmiðju kvenna er heildrænt lífsleikninám og skiptist í þrjá þætti; hagnýtt nám, sjálfs- styrkjandi og skapandi. Eyþór Ingi Jónsson organisti heldur hádegistónleika í Akureyr- arkirkju á morgun, laugardaginn. 7. desember kl. 12. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Emil Sjögren, Olivier Messiaën og Stephen Ingham. Lesari á tónleikunum er Heiðdís Norðfjörð. Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis og eru allir vel- komnir. Á MORGUN www.islandia.is/~heilsuhorn Í dagsins önn Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum og C-vítamíni í jurtabelgjum PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Akureyrarbær auglýsir tillögu að deiliskipulagi Orlofshús í Búðargili Með vísan til 25. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. auglýsir Akureyrarbær hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir ofangreint svæði, sem er sunnan lóðar Fjórðungssjúkrahússins og nær frá botni Búðargils upp að Þórunnarstræti. Tillagan gerir ráð fyrir því að svæðið allt verði ein lóð, um 2,3 ha að stærð. Á gilbrúninni og vestan hennar verði byggð 22 orlofshús ásamt þjónustuhús- um, með aðkomu norðan lóðarinnar um götu út úr Þórunnarstræti, sem jafnframt verði tenging við lóð FSA. Á þeim hluta orlofshúsalóðarinnar sem er niðri í gilinu er skipulagningu frestað þar til ákvarðanir liggja fyrir um framtíðarlegu Lækjargötu. Tillöguuppdrættir munu liggja frammi í þjónustu- anddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstu- dagsins 17. janúar 2003, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemd- ir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/ undir: Auglýsingar og um- sóknir/Skipulagstillögur. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 föstudaginn 17. janúar 2003 og skal at- hugasemdum skilað til Umhverfisdeildar Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar. Akureyrarbær auglýsir Tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga neðangreindar tillögur að breytingum á aðalskipu- lagi Akureyrar 1998—2018, og skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga neðangreinda tillögu að breytingu á deiliskipulagi. 1. Við Helgamagrastræti og við Þing- vallastræti/Víðilund Tvíþætt tillaga að breytingum á aðalskipulagi: A) Austasti hluti iðnaðarsvæðis við Þingvallastræti þar sem spennistöð Norðurorku stendur breytist í íbúðarsvæði og leggst við lóð íbúða nr. 20-24 við Víðilund. Lóðarstækkunin verði nýtt til að stækka bílastæði við þjónustumiðstöð og íbúðir aldraðra. B) Reitur milli Helgamagrastrætis og Þórunnarstrætis, þar sem áður var gæsluvöllur, breytist úr stofnana- svæði og óbyggðu svæði í íbúðarsvæði. 2. Ákvæði um næturklúbba Tillaga um nýtt ákvæði í aðalskipulagi, þess efnis að rekstur næturklúbba sé óheimill nema þar sem gert sé ráð fyrir honum í deiliskipulagi. 3. Víðilundur, breyting á deiliskipulagi Breytingin felst í því að lóð nr. 20-24 stækkar til norð- urs, sbr. lið 1. Á lóðarstækkuninni komi bílastæði. Tillöguuppdrættir og önnur gögn munu liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsing- ar, þ.e. til föstudagsins 17. janúar 2003, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/ undir: Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar renn- ur út kl. 16.00 föstudaginn 17. janúar 2003 og skal at- hugasemdum skilað til Umhverfisdeildar Aku- reyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.