Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Það fylgdi landstjórnartignJörundar Jörundarsonar áÍslandi, að hann myndiganga að eiga innfæddakonu. Í Íslandsdagbók sinni frá 1810 segir Henry Holland af dansleik í Reykjavík og segir þá m.a.: „Ein af fegurstu stúlkum Reykjavík- ur er ungfrú Jónsen, sem var heit- mey Jörgensens og hefði gifzt hon- um, ef hann hefði haldið völdum sem landstjóri á Íslandi.“ Til skýringar segir þýðandinn, Steindór Steindórs- son frá Hlöðum; „Sennilega átt við Guðrúnu Einarsdóttur sem kölluð var hundadagadrottning og síðan var í tygjum við Savignac.“ Andrew Wawn, sem bjó frásögn Holland til útgáfu, getur sérstaklega um Guðrúnu í formála og nefnir hana lagskonu Jörundar, sem eftir það samband hafi átt mjög svo meló- dramatískt lífshlaup. Wawn hefur einnig skrifað grein í Sögu, tímarit Sögufélagsins; „Hundadagadrottn- ingin – Bréf frá Íslandi: Guðrún Johnsen og Stanleyfjölskyldan frá Cheshire, 1814–16.“ Þar lýsir hann Guðrúnu sem hugrakkri, úrræða- góðri og tápmikilli og segir, að eftir aðskilnaðinn við Jörund hafi hún orð- ið um sinn „femme fatale“ Reykjavík- ur. Jón Þorkelsson nefnir Guðrúnu að- eins í neðanmálsgrein í Sögu Jörund- ar hundadagakóngs: „Þegar Jörund- ur var á Íslandi fylgdi honum Guðrún dóttir >Dúks-Einars, og var síðan kölluð hundadagadrottning; … Dúks-Guðrún var síðar í tygjum við Savignac.“ Veigamestu skrifin um hunda- dagadrottninguna, sem ég hef rekizt á, er grein Önnu Agnarsdóttur: „Hundadagadrottningin heldur út í heim 1812–1814,“ sem birtist í Kvennaslóðum; Riti til heiðurs Sig- ríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi. En áður en lífshlaup Guðrúnar verður rakið eftir spjöldum sögunn- ar, skal hér vikið að tveimur, reyndar þremur, leikritum, sem íslenzk skáld skrifuðu um Jörund hundadagakon- ung, þar sem Guðrún skipar veglegan sess. Indriði Einarsson skrifaði Síðasta víkinginn, sem var sýnt hjá Leik- félagi Reykjavíkur 1936. Þar er per- sónan „Guðrún á Dúki, ástmey Jör- undar“, sem hann kallar frelsis- gyðjuna og svífur rómantísk þjóðerniskennd yfir sambandi þeirra. Í greininni í Sögu fjallar Andrew Wawn m.a. um leikrit Indriða og seg- ir að hugrekkið, fjörið og úrræðasem- in, sem stöðugt má greina í bréfum Guðrúnar til Stanley-fjölskyldunnar, gefi til kynna að Indriði hafi í það minnsta þekkt hluta sannleikans: „Hetjuskapur „Guðrúnar á Dúki“ er annað og meira en viðkvæmnishug- smíð þjóðernissinaðs leikskálds.“ Þegar ég rakti í greinarkorni, sem birtist í Morgunblaðinu 21. apríl 2002, og fjallaði um Jörund og skrif honum tengd, urðu mér á þau mistök að geta í engu um leikrit Agnars Þórðarsonar. Agnar samdi fram- haldsleikritið Hæstráðandi til sjós og lands, sem var flutt í ríkisútvarpinu veturinn 1965–1966 og vann síðan upp úr því sviðsverk; Hundadaga- kóngurinn. Í stuttri greinargerð með Hundadagakónginum segir Agnar að framhaldsleikritið hafi verið í tólf þáttum og tekið röskar tíu klukku- stundir í flutningi. Hann varð því að sleppa talsverðu efni þaðan, þegar til sviðsverksins kom, m.a. fyrstu þátt- unum, sem gerðust að mestu leyti í Englandi. Þá er niðurlag leikritsins að nokkru frábrugðið því sem var í framhaldsleikritinu. Hjá Agnari heitir Guðrún „Gunna í Dúkskoti“ og er snöggtum léttari kvenpersóna, en Guðrún á Dúki. Jör- undur kallar Gunnu sína Íslandíu og ástir þeirra eru brokkgengar, þar til undir lokin að Agnar lætur Gunnu í afbrýðikasti út í jungfrú Vídelínus leysa Trampe greifa úr haldi og þar með steypa landstjórninni og öllu saman undan Jörundi. En aftur á náðir sagnfræðinganna. Guðrún var elzta dóttir Málfríðar Einarsdóttur úr Eyjafirði og Einars Jónssonar tómthúsmanns frá Dúki í Skagafirði. Benda heimildir til að Guðrún hafi fæðzt árið 1789, en á að- fangadag það ár komst faðir hennar á blað fyrir að hafa dauðadrukkinn reynt að ryðjast inn í tugthúsið. Guð- rún var fermd á annan í hvítasunnu 1803 í dómkirkjunni í Reykjavík; skráð 14 ára. Þá bjó fjölskyldan í Götuhúsum. Guðrún var enn skráð í foreldrahúsum 1812, árið sem hún fór til Englands, en þá var fjölskyldan flutt í Þingholt. Í manntali 1816 er Guðrún aftur komin heim og skráð sem vinnukona í Klúbbnum, öðru nafni Scheelshús, en Klúbburinn var drykkjustofa; miðstöð skemmtana og samkvæmishalds í Reykjavík. Má vera að þar hafi Guðrún verið byrjuð að vinna áður en hún fór til Englands og fundum hennar og útlendra gesta því borið saman. Samband Guðrúnar og Jörundar fór út um þúfur með landstjórn hans og eftir að Jörundur hvarf í burtu af Íslandi gerðist Guðrún þerna James Savignac, sem varð eftir í Reykjavík sem verzlunarstjóri Phelps sápu- kaupmanns. En Guðrún undi ekki lengi við Savignac, heldur féll fyrir Gísla Símonarsyni, faktor, en þau sinnaskipti leiddu til þess að Savig- nac skoraði Gísla á hólm. Ekkert varð af einvíginu, þar sem Geir biskup Vídalín gekk í millum og fékk því af- stýrt. Sumarið 1810 kom brezkur vís- indaleiðangur til Íslands og þar í ung- ur læknanemi; Henry Holland. Af kynnum hans og Guðrúnar fer ekki sögum, en þau skrifuðust á eftir að Holland kom aftur heim til Englands og skiptust á gjöfum, sem af hans hálfu voru „til vitnis um ljúfar minn- ingar mínar“. En Guðrún Einarsdóttir Jónsson fann sér nýjan vin í konsúl Breta á Ís- landi; John Parke, sem kom til Ís- lands í júlí 1811. Jón Espólín segir að ekki hafi liðið á löngu áður en Guðrún var til Parke komin og barst mjög á með gulli og silkiklæðum. Haustið 1812 fara þau af Íslandi og til Englands; Parke, Guðrún og Sav- ignac. Í íslenzkum heimildum er Guð- rún nefnd þerna Parke, en Jörundur kallar hana konu Savignac. Jörundur taldi Savignac hafa tælt Guðrúnu frá Íslandi, þar sem hann átti konu og tvö börn á Englandi. Skömmu eftir Englandskomuna var Savignac handtekinn og hnepptur í far með haustskipi til Íslands. Enn skrifaði Jörundur bréf til Bank og vildi koma Guðrúnu burt frá London og Savignac. Svo fór, að Guð- rún hafði vetursetu hjá Stanley-hjón- unum á óðalssetri þeirra í Cheshire, en Stanley-fjölskyldan var nágranni fjölskyldu Henry Holland; kunningja og pennavinar Guðrúnar. Með Guðrúnu og Stanley-fjöl- skyldunni tókust góð kynni og vin- átta, eins og sjá af bréfum, sem Guð- rún skrifaði fjölskyldunni frá Íslandi á árunum 1814, 15 og 16. Guðrún komst sem sé aftur heim til Íslands haustið 1814 mest fyrir til- stilli Samuel Whitbread, þingmanns, og er ekki annað að sjá af ummælum enskra, en hún hafi á lokasprettinum þar í landi unnið hug og hjörtu manna. Anna Agnarsdóttir fylgir Guðrúnu Einarsdóttur Jónsen lengra en aftur til Íslands. Guðrún komst aftur til útlanda: til Kaupmannahafnar, en þar er ekkert um hana vitað, fyrr en hún skrifaði Finni Magnússyni, leyndarskjala- verði í Kaupmannahöfn, 1845. Hún átti þá dóttur, Málfríði, og lifðu þær við þröngan kost. Í öðru bréfi til Finns kemur fram, að Guðrún á þá ekki fyrir mat. Anna Agnarsdóttir lýkur ritgerð sinni í Kvennaslóðum svo: „Hvað varð að lokum um Guðrúnu? Hún hefur verið komin yfir fimmtugt þeg- ar hún þjáðist af hungri í Kaup- mannahöfn. Sennilega hefur hún bor- ið beinin þar, þótt áratugirnir í Kaupmannahöfn séu með öllu órann- sakaðir. Margar eyður eru í lífi henn- ar, en ekki vonlaust um að heimildir um afdrif hennar leynist í erlendum skjalasöfnum. Óhætt er að segja að Guðrún hafi ekki verið dæmigerð ís- lensk stúlka á öndverðri 19. öld. And- rew Wawn kallar hana „hugrakka“, „úrræðagóða“ og „tápmikla“. Þessi rúmlega tvítuga stúlka hefur verið sérstaklega aðlaðandi og komið einkar vel fyrir hjá fína fólkinu í Eng- landi. Guðrún þráði að bæta stöðu sína í lífinu. Að eigin sögn var hún eina konan sem hafði farið að skoða Geysi og Strokk að undantekinni biskupsfrúnni í Skálholti. Eftir heim- komuna fór hún að læra hollensku, að tefla og spila á langspil. Var hún að Reykjavík 1810. Myndin er upphaflega úr Íslandsferðabók George Mackenzie. Jörundur Jörundarson; mál- verk eftir Christoffer Wilhelm Ecksberg. Drottning, mær og njósnari Myndir eru fengnar úr bók Dan Sprod; The Usurper. Við Oatlands. Jörundur og Nóra bjuggu um skeið í húsinu til vinstri. Teikning Jörundar af dans- leik í Klúbbnum. Í þessari útgáfu er parið á gólfinu Alexander Jones skip- herra og frú Vancouver og maðurinn næst hljóðfæraleikurunum líklegast Jörundur Jörundarson. Má þá ímynda sér, að konan, sem Jörundur stend- ur hjá, sé Guðrún Ein- arsdóttir Jónsson; drottningarefni hunda- dagakonungsins.              skuldafangelsi. Parke reyndi að not- færa sér bága stöðu Guðrúnar og ná henni til sín nýjan leik, en hún hafn- aði tilboði hans og lá henni illt orð til hans eftir það. Ekki liggur fyrir, hvernig Guðrún varði vetrinum 1812–13, en vorið 1813 heimsótti hún Íslandsvininn Joseph Banks og sumarið dvaldi hún hjá hjónum í Finchley og gætti barna þeirra. Á sama tíma reyndist Jörundi syndin lævís og lipur. Spilafíkn og drykkja urðu til þess, að 1813 var hann hnepptur í skuldafangelsi og varð þar klefanautur einskis manns annars en Savignac. Guðrún, sem eft- ir sumarið leigði ódýrt húsnæði á næstu grösum fór að venja komur sínar í fangelsið til Savignac, og þarna hittist þá aftur þessi sérkenni- legi þríhyrningur af Íslandi, en nú voru valdastólarnir fjarri. Jörundur sá aumur á sínu fyrra drottningarefni og brá á það ráð að skrifa Joseph Bank og biðja hann að hlutast til um að Guðrún komist aftur heim til Íslands. Banks brást vel við og lagði Guðrúnu aftur lið, en mál skipuðust svo, að Guðrún fékk ekki SJÁ SÍÐU 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.