Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 20
Veist þú … … hvað bókin eftir Robert Louis Stevenson heitir, sem teiknimyndin Gullplánetan er byggð á? Nöfnin eru svolítið lík … Svar: Gulleyjan! Hér sérðu lítinn engil á flugi, og taktu eftir, í hon- um leynist lítil þraut. Ef þú ferð inn í geislabauginn með blýantsoddinum þínum, áttu að geta ratað rétta leið niður undan kyrtilfaldinum. Í gegnum geislabauginn Jólagjöfin mín! Einu sinni fékk ég í jólagjöf: Ullarsokka frá ömmu, stóran bíl frá mömmu, pleimódót frá pabba, geisladisk frá Dadda, sundgleraugu frá afa svo æft mig gæti að kafa, buxur frá Stínu, apa frá Bínu, á kortunum voru skrautlegir stafir og þetta voru fallegar gjafir. Hann Finnbogi Arnar sem er 10 ára og býr að Hof- stöðum, Reykholti, sendi okkur aldeilis fínt jólaefni og fær að launum bókina Harry og hrukkudýrin. Hér fyrir neðan er jóla- ljóðið „Jólagjöfin mín“, en fyrst er að svara þessum jólaspurningum með þjóðlegu ívafi. Svörin eru neðst, bannað að kíkja! 1. Hver af jólasveinunum hefur stærsta nefið? 2. Hvaða árstími er næst á undan vetrinum? 3. Hvað heitir mamma jólasveinanna? 4. Á hvaða árstíma eru jólin? 5. Hvort lokar Hurðaskellir dyrunum eða hurðinni? 6. Hvort fæddist Jesús á aðfangadag eða jóladag? 7. Í hvaða borg fæddist Jesús? 8. Hvað nefnist karlkyns önd? 9. Hvaða titil bera allir prestar? 10. Hver orti Heilræðavísur? 1 1. Hver orti þjóðsöng Íslendinga? 12. Hvað eru jólasveinarnir margir? Svör: 1. Gáttaþefur. 2. Haust. 3. Grýla. 4. Veturna. 5. Hann skellir hurðinni. 6. Jóladag. 7. Betlehem. 8. Steggur. 9. Séra. 10. Hall- grímur Pétursson. 11. Matthías Jochumsson. 12. Þrettán. Jólaspurningar Allt frá æsku hefur Jens Hansson dreymt um að upplifa spennandi ævintýri á skipi úti í geimi. Og dag einn kemur heldur furðuleg- ur maður inn á krá mömmu hans, og felur honum furðulega kúlu og segir honum að gæta hennar vel. Kúlan reynist kort af Gullplánet- unni þar sem falinn er mikill fjár- sjóður, og ásamt Dalbert Kopp- dal félaga sínum skipuleggja þeir leiðangur út í geim til að finna fjársjóðinn. Vilt þú komast í áhöfnina? Það gæti reynst erfitt. En ef þú finnur þá hluti sem til þarf í leið- angurinn, og skrifar á lausnamið- ann hér fyrir neðan hvar þú finn- ur þá, er möguleiki fyrir þig að komist í áhöfnina og eignast um leið nytsama tösku, úr, minnis- blokk og límmiða eða segulmynd- ir og almanak fyrir árið 2003. Hvernig líst þér á? Mikilvæg vísbending! Allir hlutirnir leynast á síðunum Fólk í fréttum í hinum blaðhluta Morg- unblaðsins í dag. Ertu til? Hvar er kortið að fjársjóðnum? Það er algerlega tilgangslaust að leggja af stað í leið- angur án þess að hafa kortið með sér! Ekki satt? En þegar þú ert búin/n að finna það verður þú að gæta þess mjög vel. Líttu í kringum þig! Það er ekki hægt að segja að vinur þinn Dalbert Koppdal sé sérlega mikill mannþekkjari. Nokkrir áhafnar- meðlimir eru býsna skuggalegir náungar. Hvað með rafmennið sem kallar sig Silfra? Hvernig líst þér á hann? Best er að finna kapt- ein Amelíu strax, því hún getur geymt kortið á góðum stað. Hvar er kapteinn Amelía? Nú er kortið komið á góðan stað og þið Jens og Koppdal getið lagt örugg/ir úr geim- höfn í átt til stjarnanna, þar ein- hvers staðar í miðjum himin- geimnum leynist Gullplánetan. En eitthvað verðurðu að starfa á skipinu, þýðir ekkert að góna út í loftið og láta vindinn leika í hárinu! Aðrir áhafnarmeðlimir líta þig illu auga, en þó er lítil bleik furðuvera sem skoppar um loftið alltaf ljúf og greinilega þess virði að eignast sem vin. Þetta er hamskiptingurinn Morfi, sem getur breytt sér í allra kviknda líki. Kannski er hann sjóhattur eða kind í augnablikinu er gerðu allt til að finna þennan nýja vin þinn. Hvar er Morfi hamskiptingur? Þú finnur á þér að allt mun síður en svo verða átakalaust á leið- inni til Gullplánet- unnar. En þú ákveður að þetta er það sem þú vilt. Þú ætlar að hætta lífi þínu og lim- um til að upplifa stórkostlegt æv- intýri í geimnum, og jafnvel verða forrík/ur! Margir vilja halda því fram að fjársjóðurinn sé bara gömul þjóðsaga, en þú lætur þig dreyma um gull og gimsteina. Vonandi rætast draumar þínir – gangi þér vel! Hvar eru gull og gimsteinar? Upplifir þú geimævintýri? Gullplánetan ekki svo fjarri! Geimskipið flýgur af stað úr geimhöfninni. Kapteinn Amelía og Koppdal. Rafmennið Silfri ásamt Morfa, Jens og vini hans Ben. Einu sinni var jólasveinn sem hét Sveinki. Hann var rosalega góður við öll börnin. Álfarnir unnu fyrir Sveinka svo hann gæti komið gjöfunum til barnanna á réttum tíma. Dag einn bilaði vélin þar sem dótið var búið til. Álfarnir vissu ekki neitt hvað þeir áttu til bragðs að taka. Þeir vissu ekki galdurinn eða þuluna sem þeir áttu að kunna til að koma vélinni af stað. En þeir voru með síma svo þeir gætu hringt í Sveinka. Sveinki sagði þeim að töfraþulan væri „jóla-jóla- sveinn“ og bað þá að læra hana utan að til ör- yggis. Álfarnir voru ákveðnir í að muna þetta. Þrátt fyrir það komu þeir vélinni ekki í gang þeir sögðu þuluna aftur og aftur en allt kom fyr- ir ekki. Krakkarnir biðu eftir pökkunum frá jólasveininum en ekkert bólaði á þeim. Álfarnir hringdu aftur í Sveinka. Sveinki sagði: „Ó,ó,æ“ hann hafði nefnilega sagt þeim vitlausa þulu. Þessi þula var notuð til að koma sleðanum í gang. Álfarnir voru glaðir að heyra þetta. Rétta þulan var svona „Jól, jól koma brátt“. Álfarnir lærðu hana utan að og sögðu hana svo. Vélin fór þá loks- ins í gang. Álf- arnir voru mjög glaðir. Og Sveinki gat útbýtt gjöfunum til barnanna og jólin gengu nú í garð eins og ekkert hefði í skorist. Eins gott að þetta gerist ekki í alvöru! Höfundur þessarar spennandi jóla- sögu er Anna Guðný Sig- urðardóttir, 11 ára, úr Tungubakka 11 í Reykjavík. Einsog Finnbogi Arnar og margir fleiri krakkar lang- ar hana í Harry og hrukku- dýrin. Hafdís Tinna Pétursdóttir nem- andi í Langholtsskóla og Ívar Kristinsson úr Rimaskóla eru bæði 12 ára. Um daginn fóru þau að sjá nýjustu Disney teiknimyndina „Gullplánetuna“ sem frumsýnd verður á annan í jólum eða 26. des- ember. Og voru þau bæði ánægð með myndina. „Myndin var mjög vel gerð og skemmtileg lögin í henni,“ segir Hafdís. „Og líka mjög spennandi, sér- staklega undir lokin,“ bætir hún við og Ívar er alveg sammála henni: „Já, mér fannst hún skemmtileg og spennandi.“ Myndin er uppfull af skemmtilegum persónum og eru bara Jens og mamma hans mennsk. Ívari fannst margar þeirra ansi skemmtilegar. „Strákurinn Jens var flottastur,“ segir Ívar en efast um að hann myndi sjálfur þora að fá sér far með geimræn- ingjaskipi. „Ég bjóst við að Dalbert yrði leiðilegur en hann var bara fyndinn og skemmtilegur,“ segir Haf- dís. „Vélmennið Ben talaði kannski aðeins of mikið!“ bætir hún við. Þau segja myndina stundum fyndna, en hún eigi samt ekkert endilega að vera mjög fyndin. „Mér fannst t.d mjög sorglegt hvernig fór fyrir Örvari og þegar pabbinn fór,“ segir Hafdís sem mælir með myndinni fyrir allan aldur og Ívar tekur heilshugar undir það. Krakkarýni: Gullplánetan Hafdís Tinna Ívar Skemmtileg og spennandi Og þú getur unnið þér inn ein af 40 stór- glæsilegum Gullplánetu-vinningum, eins- og leiðangurstösku, tæknilegt tölvuúr, minnisblokk og límmiða eða almanak og segulmyndir. En þú verður að svara rétt! Kortið að fjársjóðnum er á bls:_____ Kapteinn Amelía er á bls:__________ Hamskiptingurinn Morfi er á bls:___ Gull og gimsteinar eru á bls:________ Sendu okkur þennan lausnamiða fyrir fimmtudaginn 2. janúar en þann dag verða áhafnarmeðlimir dregnir úr hópi umsækjenda. Nafn: _________________________ Aldur:_________________________ Heimilsfang:___________________ Staður:________________________ Barnablað Moggans – Gullkeppnin mikla - Kringlan 1 103 Reykjavík Jólasveinaþulan Gullkeppnin mikla Lausnamiði Morgunblaðið/Kristinn barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.