Morgunblaðið - 22.12.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 22.12.2002, Síða 24
24 B SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ bíó lega endurtaka allir leikarar hlutverk sín sem komu við sögu í fyrstu myndinni, enda myndirnar, sem fyrr segir, teknar upp í einni tveggja ára langri atrennu á heimaslóðum Peters Jackson. Jackson, sem skrifaði handritið að Turnunum tveimur ásamt samstarfs- manni sínum til fjölda ára Fran Walsh, Philippu Boyens sérfræðingi í fræðum höfundarins J.R.R. Tolkiens og Stephen Sinclair, segir að lögð hafði verið höfuð- áhersla á að í myndinni yrði sérstaklega undirstrikaður meginboðskapurinn sem Tolkien vildi koma á framfæri; barátta milli góðs og ills, milli náttúrunnar og iðn- aðarins og milli vináttu og siðspillingar. „Við vorum vel meðvituð um að við gæt- um aldrei fært á filmu nákvæmlega allt það sem bókstafur þessa 1000 blaðsíðna ritverks segði og því reyndum við að leggja áherslu á það sem Tolkien var helst annt um í sögunni, boðskapinn.“ Meira af Miðgarði Í annarri myndinni fáum við líka miklu betri innsýn í Miðgarð, fáum að sjá hluti, staði og verur sem fram að því hafði ein- ungis verið rætt um, eins og Mordor og Róhan. Mæddi því enn frekar á fjölskip- uðu tækniliðinu sem beitti hinni stafrænu tölvutækni til hins ítrasta til þess að skapa sjónhverfingar sem aldrei fyrr hafa sést á hvíta tjaldinu. Þannig var 10 þúsund manna her Saurons sem ósjaldan er í mynd, allur eins og hann leggur sig, búinn til með hjálp tölvuvæddra sjón- hverfinga. En til þess að koma öllu í því í verk sem hugarfóstur Jacksons krafðist þurfti her, „alvöru“ 2.400 manna her hæfileikafólks á öllum sviðum kvik- myndagerðarinnar, en einir átta herfor- ingjar hafa nú þegar tekið við Óskars- verðlaun fyrir hönd sinna herdeilda, vegna vinnunnar við fyrstu myndina. Vígalegur Viggó Í annarri myndinni er föruneytið sem fyrr segir splundrað og þurfa liðsmenn þess að heyja baráttu gegn hinum illu öfl- um á ólíkum vígstöðvum. Turnarnir tveir eru í reynd ein allsherjar stríðsmynd þar sem fyrri hluti myndarinnar er aðdrag- andinn að styrjöldinni miklu og seinni hlutinn greinir frá upphafi hennar. Af þeim sökum stíga fram í forgrunninn stíga sem aldrei fyrr hinar vígreifu hetjur Aragorn og Legolas. Þeir eru leiknir af danskættaða Bandaríkjamanninum Viggo Mortensen og Bretanum efnilega Orlando Bloom. Viggo var ráðinn síðastur allra leikara Ö NNUR MYNDIN verður í flesta staði miklu áhugaverð- ari en sú fyrsta. Þá er kynn- ingu á Miðgarði og söguper- sónum líka lokið og framvindan farin af stað fyrir alvöru, Fróði kominn á sporið til Mordor og stríðið hafið um Hringinn eina og framtíð mannsins og Miðgarðs. Ég held að Turn- arnir tveir eigi eftir að höfða til fleiri en Föruneyti hringsins.“ Þessi orð mælti leikstjórinn Peter Jackson á blaðamanna- fundi í Cannes á síðasta ári, áður en Föru- neytið var frumsýnd. Og nú eftir viðþols- lausa bið í heila 12 mánuði, 52 vikur og 365 daga er að koma í ljós hvort Jackson hafi lög að mæla. Turnarnir tveir var frumsýnd um gervallan heiminn á mið- vikudag og annan í jólum hefjast almenn- ar sýningar á myndinni hérlendis. Föru- neyti hringsins sló rækilega í gegn eins og flestir vita og hefur skipað sér meðal allra farsælustu kvikmynda sögunnar. Velgengni myndarinnar þýðir líka að tekjurnar af henni nægðu til að greiða framleiðslkostnað á öllum myndunum þremur, sem gerðar voru samtímis, og ekki nóg með það heldur rándýrar mark- aðsherferðir fyrir þær líka. Þannig mun svo gott sem öll innkoman af tveimur seinni myndunum fara beina leið í vasa framleiðenda og annarra sem sett hafa fjármagn og traust á þetta verkefni, verk- efni sem æði margir, þar á meðal stóru Hollywood-stúdíóin, höfðu fyrir talið allt- of stórt vöxtum. Sundrað föruneyti Í Turnunum tveimur er þráðurinn tek- inn upp það sem frá var horfið. Föruneyt- ið hefur splundrast, Fróði og Sómi halda áfram leið sinni til Mordor með Hringinn, Boromír er fallinn, maðurinn Aragorn, álfurinn Legolas og dvergurinn Gimli leggja Róhan-þjóðflokknnum mennska lið í stríðum við her Saurons um Turnana tvo; Orþanka, virki Sarúmans og vígið Mínas Morgúl, sem lokar hinni leyndu leið inn í Mordor, Pípinn og Kátur hafa verið numdir á brott af Uruk-hai ill- skeyttum bandamanni Saurons og Gan- dalfur hinn grái horfinn yfir móðuna miklu. Svo virtist allavega vera er fyrstu myndinni lauk en vitanlega fara hlutir á annan veg en á horfir og til sögunnar koma nýjar persónur og furðufyrirbæri eins og elstu verur Miðgarðs, Trjáskegg- ur, sem er talandi tré, Grímur Ormstunga njósnari fyrir Sauron í hirð Þjóðan kon- ungs Róhan-þjóðflokksins, Fararmír bróðir Boromír og margir fleiri. Vitan- til verksins og nokkrir höfðu verið reynd- ir í hlutverk Aragorns áður en hann mætti á svæðið og eignaði sér það sam- stundis. „Ég hafði svo gott sem engan tíma til að undirbúa mig fyrir hlutverkið, hafði ekki lesið bækurnar og vissi ekki einu sinni út á hvað sagan gengi. En ég gerði hvað ég gat, las handritið og blaðaði í bók- unum á löngu ferðalaginu til Nýja-Sjá- lands Þá rann upp fyrir mér að verkið var byggt á minnum sem ég var velkunnug- ur, Norrænni goðafræði og keltneskum sögnum,“ segir Mortensen lágróma og yfirvegaðri röddu þar sem hann er stadd- ur í Miðjarðarhafssólinni í Cannes. Mortensen fæddist í New York, banda- rískri móður og dönskum föður. Þar nam hann leiklist og steig sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu sem ungur Amish-bóndi í Vitninu eftir Peter Weir. Síðan þá hefur hann komið fram í meira en 30 myndum og farið með margbreytileg hlutverk, í myndum á borð við Carlito’s Way eftir Brian DePalma og Indian Runner eftir Sean Penn, sem oftast nær hafa fært hon- um mikið lof gagnrýnenda. Mortensen er margt til lista lagt því auk þess að vera leikari þá er hann ljóðskáld, ljósmyndari og listmálari Eftir hann liggja tvær ljóða- bækur og sú þriðja á leiðinni og hann hef- ur haldið margar einkasýningar á ljós- myndum og málverkum í kunnum listasöfnum víða um heim eins og Track 16 Gallery í Los Angeles, Deste Founda- tion nútímalistasafninu í Aþenu og Ro- bert Mann Gallery í New York. Leikið mót loftinu „Það hjálpaði heilmikið að vera svo fjarri alfaraleið við tökur,“ segir Morten- sen. „Það og sýn Jacksons, en hún var alltaf svo skýr og ákveðin, sem var eins gott því við hin höfðum ekki glóru hvað var í gangi og hvað kæmi næst.“ Ein helsta áskorun kvikmyndaleikara sem leika í tæknivæddum stórmyndum á þessum síðustu stafrænu tímum er að þurfa að vinna í nokkurs konar tómarúmi, leika gjarnan á móti loftinu, í myndveri, framan við bláan bakgrunn. Leikarar í Hringadróttinssögu komust sannarlega ekki hjá þessu hjá þessu vandasama verklagi og allra síst í tökunum fyrir Turnana tvo. „Þar reyndi mjög á frásagnargáfu Jacksons og leiðsögn hans. Einnig var undir okkur komið að hafa nægilegt ímyndunarafl til þess að geta gert trúan- legan bardaga við klósettrúllu á priki sem síðan var breytt í tröll eða orka,“ segir Álfurinn Legolas: Breska nýstirnið Orlando Bloom var ekki einu sinni útskrifaður úr leiklistarskól- anum þegar kallið kom frá Nýja-Sjálandi um að hann hefði fengið hlutverk í Hringadróttinssögu. Mannskepnan Aragorn: Hinn danskættaði Viggo Mortensen er 42 ára gamall fjöllistamaður með meiru. Þegar hann er ekki að leika þá málar hann, myndar og yrkir. Tilurð Turnanna Annar hluti Hringadróttinssögu,Turnarnir tveir, var kvikmyndaður um sama leyti og sá fyrsti, Föruneyti hringsins, sem farið hefur sigurför um heim allan. Peter Jackson leik- stjóri segir nýju myndina í flesta staði betrung forverans, í senn æsilegri, tilkomumeiri og dramatískari. Skarphéðinn Guðmundsson hætti sér á ný inn í mið stríðsátök í Miðgarði og hitti fyrir vígamennina Aragorn og Legolas.  Þegar Fróði og Sómi eru á gangi og Sómi segist aldrei hafa verið fjarri heimahögunum þá sést eitt augnablik, hægra megin á rammanum, í sólarljós sem klárlega er endurskin frá einhverju farartæki.  Þegar Fróði liggur rúmfastur eftir átökin í Rofadal sést fyrst í geirvörtu hans, svo er klippt á Gandalf, aftur á Fróða og viti menn, geirvartan komin í hvarf.  Þegar Fróði dregur Sóma upp úr ánni sést greinilega að hann er ekki með gervið á vinstri fætinum.  Þegar Aragorn vippar Fróða upp á hest Arven sést eitt augnablik að undir hettunni er ungur drengur sem haldið er á.  Í sjálfu sér engin mistök en takið eftir þegar Hobbitarnir koma til bæjarins Brý, þá birtist í örskamma stund mynd af Peter Jackson nagandi gulrót. Má maðurinn vera með, hann ræður nú!  Þegar Gandalfur og Sauron ræðast við í turninum Isengard standa þeir á móti hvor öðrum framan við glugga. Hið und- arlega er að sólin skín innum báða gluggana. Miðgarður hlýt- ur sannarlega að vera af öðrum heimi. Hringavitleysa Mistök í Föruneyti hringsins TENGLAR ........................................................................ www.nitpickers.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.