Morgunblaðið - 31.12.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GAGNRÝNIR FRAMSÓKN
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir í viðtali við Morgun-
blaðið í dag að síðustu daga hafi hún
séð hvernig menn beiti valdi sínu í
stjórnmálaflokkunum á ógeðfelldan
hátt og kveðst fyrst og fremst hafa
séð þetta í Framsóknarflokknum.
Hún telur þó ekki að líkur á vinstri-
stjórn hafi dvínað eftir uppnámið í
R-listanum.
Gagnkvæmir hagsmunir
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir í áramótagrein í Morgun-
blaðinu í dag að varnarstöð á Íslandi
lúti sömu lögmálum og annars stað-
ar gerist. Varnarþörf hljóti að verða
metin út frá gagnkvæmum hags-
munum. Í greininni vekur Davíð
einnig máls á þeirri hugmynd að sett
verði á fót þverpólitísk nefnd til að
fjalla um Evrópumál.
Komið í veg fyrir stórtjón
Talsvert tjón varð á húsi Fisk-
markaðar Suðurnesja í Sandgerði
þegar eldur kom upp í kerum og
veiðarfærum á sunnudagskvöld.
Slökkviliðinu tókst að koma í veg
fyrir enn meira tjón, meðal annars
að eldurinn bærist í olíutank við hús-
ið.
Þriðja samdráttarárið í röð
DOW Jones-hlutabréfavísitalan í
Bandaríkjunum hefur lækkað um
17% í ár og er þetta þriðja árið í röð
sem vísitalan lækkar á milli ára.
Hefur það ekki gerst frá kreppunni
miklu sem hófst 1929.
Söguleg stjórnarskipti
Um milljón Kenýamanna safn-
aðist saman í miðborg Nairobi í gær
til að fagna Mwai Kibaki þegar hann
sór embættiseið forseta eftir að hafa
sigrað forsetaefni flokksins KANU
sem hafði verið við völd í Kenýa frá
því að landið hlaut sjálfstæði 1963.
Kibaki hét því að koma á víðtækum
umbótum og uppræta spillingu.
Fundu sprengju við flugvöll
Starfsmaður í farangursafgreiðslu
á Charles de Gaulle-flugvelli í París
var handtekinn um helgina eftir að
vopnabúr, m.a. öflug sprengja sem
var tilbúin til notkunar, fannst í far-
angursgeymslu bifreiðar hans.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Þriðjudagur
31. desember 2002
2002 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
MAGDEBURG STÖÐVAÐI SIGURGÖNGU LEMGO / B4
„ÉG væri meira en til í að fara til
Stoke. Sjálfur hef ég hins vegar
ekkert heyrt frá liðinu en það getur
vel verið að þetta geti komið upp á
borðið,“ sagði Arnar Gunnlaugsson
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Arnar, sem er á mála hjá Dundee
United í Skotlandi, hefur á und-
anförnum dögum verið orðaður við
Stoke þar sem hann þekkir vel til
en Skagamaðurinn hefur í tvígang
gengið í raðir félagsins og spilað
með því við góðan orðstír. „Mér
skilst að Stoke ætli að reyna að fá
nýja leikmenn þegar markaðurinn
opnast núna í janúar og þar sem ég
er í algjöri frosti hjá Dundee Unit-
ed og á enga framtíð hjá því félagi
þætti mér spennandi kostur að fara
til Stoke. Ég þekki vel til hjá félag-
inu og eins og staðan lítur út hjá
mér í dag er ég mjög áhugasamur
um að fara til liðsins,“ sagði Arnar
ennfremur.
Meira en til í að
fara til Stoke
SLÆLEGT gengi spænska stór-
liðsins Barcelona í deildakeppninni
í heimalandi þess hefur valdið titr-
ingi í herbúðum liðsins og ekki síst
hjá stuðningsmönnum liðsins sem
hafa margir hverjir krafist þess að
hollenski þjálfarinn Louis van Gaal
hverfi á braut frá liðinu. Hinsvegar
hefur gengi liðsins í Meistaradeild
Evrópu verið með eindæmum gott,
en þar hefur liðið enn ekki lotið í
gras í átta leikjum sínum í riðla-
keppnunum tveimur. Sá árangur
hefur eflaust haft sitt að segja að
stjórnendur liðsins hafa enn ekki
sagt van Gaal upp störfum.
Leikmenn liðsins hafa ekki slopp-
ið við gagnrýni vegna slakrar
frammistöðu í spænsku deildinni en
liðið er í 10 sæti deildarinnar, 16
stigum á eftir toppliðinu, Real Soc-
iedad. Nú hafa þeir sent frá sér
formlega stuðningsyfirlýsingu við
störf þjálfarans.
„Hann er besti kosturinn fyrir
okkur,“ segir varnarmaðurinn Carl-
os Puyol sem kom fram fyrir hönd
leikmannahópsins um jólahátíðina á
Spáni. „Við styðjum van Gaal og
það er okkar mat að hann sé sá
maður sem eigi að stýra þessu liði í
framhaldinu,“ sagði Puyol við
spænska dagblaðið Mundo Deport-
ivo. Fjölmiðlar á Spáni hafa leitt að
því líkum að van Gaal sé með snör-
una um hálsinn og nú þegar sé búið
að finna eftirmann hans, en það ku
vera Argentínumaðurinn Carlos
Bianchi.
Styðja
við bakið
á van
Gaal
„ÞAÐ er verið að skoða málið. Við
höfum ekki enn pantað flugmiða fyrir
Duranona frá Þýskalandi,“ sagði Ein-
ar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
HSÍ, í gær þegar hann var spurður
hvort kallað hafi verið á Julian Róbert
Duranona, leikmann Wetzlar í Þýska-
landi, inn í íslenska landsliðið í hand-
knattleik sem nú býr sig undir heims-
meistaramótið í handknattleik sem
hefst eftir þrjár vikur. Þegar Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, tilkynnti val
sitt á landsliðinu á dögunum var
Duranona ekki inni í þeim hópi enda
ekki á mála hjá neinu félagi. Síðan
hafa forsendur breyst og Duranona
komist á samning hjá Wetzlar. Hefur
hann leikið tvo síðustu leiki með félag-
inu í þýsku 1. deildinni, staðið sig vel
og verið markahæstur leikmanna
liðsins í þeim báðum.
„Það er ekki hægt að útiloka það al-
gjörlega. Það fer eftir því hvað gerist
á næstu vikum,“ sagði Guðmundur í
samtali við Morgunblaðið á dögunum
þegar hann var spurður að því hvort
það kæmi til greina að kalla á leik-
menn til viðbótar í þennan hóp ef
ástæða þætti til. Ekki náðist í Guð-
mund landsliðþjálfara í gær þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir.
Morgunblaðið/GolliJulian Róvert Duranona í
leik gegn Portúgal á HM í
Frakklandi 2001. Kallað á
Duranona?
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Viðskipti 16/18 Minningar 38/40
Erlent 20/21 Bréf 44
Höfuðborgin 22 Messur 45
Akureyri 23 Dagbók 46
Suðurnes 24 Skák 50
Landið 24 Fólk 51/57
Neytendur 25 Bíó 54/57
Listir 26/29 Ljósvakar 48/49/
58
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
ÁRIÐ sem er að líða er eitt hið hlýjasta á síðari
áratugum samkvæmt bráðabirgðayfirliti Veður-
stofu Íslands. Hitamet voru slegin í janúar og júní
og stefnir í einn hlýjasta desembermánuð sem vit-
að er um. Meðalhiti í Reykjavík var 5,4 stig á
árinu og er ásamt árinu 1987 hið hlýjasta frá 1964.
Öfgar voru nokkrar í veðri á árinu og nokkur
veðurmet voru slegin. Fyrstu og síðustu vikur árs-
ins eru meðal hinna allra snjóléttustu á þeim árs-
tíma. Þá hefur aldrei mælst eins mikil sólar-
hringsúrkoma hérlendis en á Kvískerjum í
Öræfum 10. janúar, þegar úrkoman mældist 293,3
mm. Þá hefur aldrei mælst meira frost í október-
mánuði en á þessu ári þegar frostið fór í 22,3 stig
28. október í Neslandstanga við Mývatn. Sama dag
mældist 22 stiga frost í Möðrudal. Gamla október-
kuldametið var frá Möðrudal árið 1957, 21,6 stiga
frost. Þá fór hiti eitt sinn í 10,6 stig í janúar í
Reykjavík á þessu ári, sem er nýtt met. Hefur hiti
í janúar í Reykjavík aðeins einu sinni komist í 10
stig, árið 1940.
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 1.366 á
árinu og er það 100 stundum umfram meðallag, á
Akureyri mældust 893 sólskinsstundir sem er 150
stundum undir meðallagi.
Febrúar var sá kaldasti frá 1930 og sá kaldasti á
Akureyri frá 1973.
Júníhitamet voru slegin víða um land á árinu og
komst hitinn í 22,4 stig í Reykjavík sem er mesti
hiti frá stofnun Veðurstofunnar árið 1920.
Desember, sem nú er að líða, stefnir í að verða
sá hlýjasti eða næsthlýjasti sem vitað er um hér-
lendis, en það er þó mismunandi eftir lands-
hlutum. Óvenu snjólétt hefur verið um land allt og
varla dæmi um minni snjó til fjalla um sunnan- og
vestanvert landið á þessum árstíma.
Miklar öfgar voru í veðrinu á árinu sem er að líða
Árið 2002 var eitt hið
hlýjasta um áratugaskeið
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir úr
Skíðafélagi Akureyrar var í gær
kjörin íþróttamaður Akureyrar
2002, en hún varð Íslandsmeistari
bæði í svigi og stórsvigi síðast-
liðið vor. Í árlegu hófi Íþrótta-
bandalags Akureyrar í gær voru
allir Íslandsmeistarar bæjarins á
árinu heiðraðir, en þeir voru alls
239. Einn þeirra var Katrín Krist-
jánsdóttir úr KA, sem varð Ís-
landsmeistari í júdó í flokki 11 til
12 ára. Hún er hér ásamt Dag-
nýju Lindu, stóru systur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fræknar systur
Dagný Linda/23
ÞREMUR línubyssum, sem hættu-
legar eru í höndum óþjálfaðra, var
stolið í innbroti í björgunarbátinn
Gunnar Friðriksson, sem liggur við
bryggju í Sundahöfn á Ísafirði. Talið
er að brotist hafi verið inn í bátinn í
fyrrinótt auk fleiri báta um helgina.
Lögreglan á Ísafirði hefur tekið til
rannsóknar innbrot í alls fjóra báta.
Pálmi Stefánsson, skipstjóri á Gunn-
ari Friðrikssyni, segir línubyssurnar
kraftmiklar og mjög skaðlegar ef
ókunnugir fara að fikta í þeim.
Krafturinn í þeim sé slíkur að skot-
hleðslan getur dregið 250 metra
langa línu á enda. Séu byssurnar
settar saman á rangan hátt getur
hlotist af stórslys. Mjög alvarlegt
væri ef þýfið yrði skilið eftir á glám-
bekk þar sem börn kæmust í það.
Ýmsum öðrum búnaði, svo sem dýr-
um tölvuskjá af gerðinni Mermaid,
var einnig stolið ásamt handverk-
færum. Pálmi telur heildartjónið um
300 þúsund krónur, en þetta er í
þriðja skipti sem brotist er inn í
björgunarbát í eigu Björgunarfélags
Ísafjarðar.
Þá var brotist inn í þrjá aðra báta
sem lágu í Sundahöfn á Ísafirði. Lög-
reglan telur að þau innbrot hafi verið
framin aðfaranótt 29. desember. Úr
bátunum var m.a. stolið verkfærum.
Lögreglan á Ísafirði biður alla þá
sem hafa vitneskju um innbrotin að
hafa samband.
Mikið hefur verið um innbrot í báta á Ísafirði
Hættulegum línubyssum
stolið úr björgunarbáti
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Stolið var fyrir um 300 þúsund krónur úr björgunarbátnum Gunnari Frið-
rikssyni, þar á meðal þremur línubyssum. Lögreglan rannsakar málið.
TUGIR gramma af hassi og talsvert
af amfetamíni fannst á refsifanga á
Litla-Hrauni í fyrradag. Fanginn
var nýbúinn að fá heimsókn þegar
fangaverðir leituðu á honum og
fundu fíkniefnin. Málið er í rann-
sókn.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
hefur verið lagt hald á talsvert magn
fíkniefna sem gestir ætluðu með inn í
fangelsið. Lögreglan vill að svo
stöddu ekki gefa upp um hversu mik-
ið af eiturlyfjum þar er um að ræða
enda sé málunum ekki lokið.
Fangi á Litla-Hrauni
Með hass og
amfetamín
eftir heimsókn
KJARANEFND hefur ákveðið að
laun þeirra embættismanna sem
heyra undir nefndina skuli hækka um
7% frá 1. janúar 2003. Laun þeirra
hækkuðu síðast í sumar um 3%.
Ríkisendurskoðandi, hæstaréttar-
dómarar, biskup Íslands, saksóknar-
ar, sýslumenn, lögreglumenn, toll-
verðir, forstöðumenn ríkisstofnana,
héraðslæknar og héraðsdýralæknar
eru meðal þeirra sem heyra undir
nefndina.
Í úrskurði kjaranefndar kemur
fram að laun embættismanna sem
heyra undir nefndina frá 2. ársfjórð-
ungi 1999 til 1. ársfjórðungs 2002 hafi
hækkað um 10% minna en launavísi-
tala á sama tíma. Ef laun þeirra séu
borin saman við laun opinberra
starfsmanna og bankamanna á sama
tíma sé munurinn enn meiri eða 16%.
Með úrskurði kjaranefndar í sumar
hafi verið stigið skref til að minnka
þennan mun. Þrátt fyrir það hafi enn
munað um 7% ef miðað er við launa-
vísitölu. Þá vísar kjaranefnd til þess
að kjaradómur hafi hækkað laun
æðstu embættismanna um 7% frá 1.
janúar nk. en nefndin skuli gæta að
því að samræmi sé í launum þeirra
sem heyra undir nefndina og þeirra
sem fá greidd laun skv. ákvörðun
kjaradóms. Þá hækki laun á almenn-
um vinnumarkaði og hjá opinberum
starfsmönnum um 3% um áramótin.
Kjaranefnd hefur einnig ákveðið að
laun prófessora hækki um 3% frá og
með 1. janúar.
Laun emb-
ættismanna
hækka
um 7%
FJÖGURRA ára drengur slasaðist
alvarlega í hörðum árekstri tveggja
bifreiða á brúnni yfir Stóru-Laxá í
Hreppum á laugardag. Sex manns
voru fluttir með þremur sjúkrabif-
reiðum frá Selfossi á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi í Reykja-
vík.
Drengurinn hlaut innvortis meiðsl
og gekkst undir aðgerð á spítalanum
og var hafður í öndunarvél um tíma,
en er nú laus úr henni og er á bata-
vegi á gjörgæsludeild. Aðrir úr slys-
inu slösuðust minna.
Tveir fullorðnir voru í annarri bif-
reiðinni en tvö börn og tvö fullorðin í
hinni. Þau voru öll flutt á Heilsu-
gæslustöðina á Selfossi og þaðan á
slysadeild í Reykjavík.
Brúin yfir Stóru-Laxá er einbreið
og skullu bílarnir saman nánast á
miðri brúnni.
Á batavegi
eftir harðan
árekstur
ÁTTA ára drengur varð fyrir bif-
reið á Hamarstíg á Akureyri í gær.
Hann hlaut höfuðhögg og var flutt-
ur með sjúkrabifreið á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Áverkar
hans reyndust ekki alvarlegir en
hann var lagður inn á barnadeild
sjúkrahússins til eftirlits. Talsverð
hálka var á götunni þegar slysið
varð.
8 ára drengur
fyrir bíl
LÖGREGLAN í
Reykjavík lýsir
eftir Guðrúnu
Björgu Svan-
björnsdóttur.
Guðrún er 31
árs gömul, um
172 sentimetrar á
hæð, mjög grann-
vaxin, stuttklippt
með dökkbrúnt
hár. Síðast þegar
hún sást var hún í bláum goretex-
jakka, bláum gallabuxum og vín-
rauðum, uppháum skóm. Hún var
með bláan bakpoka á baki og notar
gleraugu.
Í gærkvöldi hafði ekkert heyrst til
Guðrúnar frá því á sunnudagskvöld.
Þeir sem búa yfir einhverjum upp-
lýsingum um ferðir hennar síðan þá
eru vinsamlegast beðnir um að hafa
samband við lögregluna í Reykjavík í
síma 569-9012.
Lögreglan lýs-
ir eftir konu
Guðrún Björg
Svanbjörnsdóttir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦