Morgunblaðið - 31.12.2002, Page 14
FRÉTTIR
14 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, segist
treysta Þórólfi Árnasyni full-
komlega fyrir stöðu borgarstjóra
en segir jafnframt að framsókn-
armenn hefðu getað hugsað sér
aðra niðurstöðu en að ópólitískur
aðili settist í stól borgarstjóra. „Við
töldum að það yrði að leysa málið
strax. Við teljum að þarna sé um
mjög hæfan einstakling að ræða
sem við treystum fullkomlega fyrir
þessu verkefni.“
Margir telja að það sé ekki góð
reynsla af því að hafa ópólitískan
borgarstjóra og benda á reynsluna
af meirihlutanum sem var við völd
á árunum 1978–1982?
„Ég tel að menn geti ekki sífellt
verið að líta til baka í þessu sam-
bandi, heldur ættu fyrst og fremst
að horfa fram á við. Þó að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir kæmi úr
stjórnmálum var hún oddviti allra
flokkanna sem standa að R-list-
anum. Hér er einnig um ein-
stakling að ræða sem kemur inn
sem fulltrúi allra flokkanna og
hans verkefni er að samræma sjón-
armið og leysa hinn daglegu mál.“
Halldór segir meirihlutaviðræður
við Sjálfstæðisflokk ekki hafa verið
komnar í gang. „Við litum á það
sem okkar aðalviðfangsefni að fá
það á hreint hvort þessir flokkar
gætu starfað saman. Ef það hefði
ekki tekist væri komin upp ný
staða sem yrði að taka á. Við litum
á það sem okkar skyldu, sem von-
andi aðrir gerðu líka, að leysa þá
úr því með einhverjum hætti en á
það reyndi ekki.“
Halldór segir Ingibjörgu sjálfa
hafa tekið þá ákvörðun að vinna
með Samfylkingunni af fullum
krafti og því ekki við aðra að sak-
ast hvernig fór. „Það var hennar
ákvörðun en ekki okkar. Mér
finnst að hún og Samfylkingin
verði fyrst og fremst að líta í eigin
barm. Eftir að þingframboð kom
upp litum við á málið sem hvert
annað viðfangsefni sem yrði að
leysa úr. Ég tel að framsókn-
armenn hafi lagt sig fram um að
finna lausn á málinu og að það sé
ekki síst vegna þeirrar vinnu sem
hún fékkst.“
Halldór segir R-listann hafa all-
ar forsendur til þess að starfa
áfram. „Ef menn einbeita sér að
framtíðinni og reyna að leggja hið
liðna að baki þá sé ég ekkert því til
fyrirstöðu.“
Framsókn
hefði getað
hugsað
sér aðra
niðurstöðu
„ÞAÐ er mér fagnaðarefni að óvissu
um stjórn borgarinnar hafi verið
eytt,“ segir Alfreð Þorsteinsson,
oddviti Framsóknarflokksins í borg-
arstjórn.
Alfreð segir að framsóknarmenn
hafi lagt hart að borgarstjóra að hún
hætti við framboð sitt til Alþingis í
vor og héldi áfram sem borgarstjóri.
„Það var okkar fyrsta ósk, en við
gerðum henni jafnframt grein fyrir
því að ef hún ætlaði að halda sínu
striki með það þýddi það óhjá-
kvæmilega að hún yrði að stíga upp
úr stóli borgarstjóra. Hún valdi þá
leið. Hún valdi það sem hún kallar
varamannssæti fyrir Samfylkinguna
frekar en borgarstjórastólinn og það
er hennar val. Ég hef skilning á því
vegna þess að það hefur legið í loft-
inu að hún ætlaði sér út í landsmálin.
Ég hefði þó hennar vegna kosið að
það hefði verið betur undirbúið en
raun varð á.“
Fyrir helgi lögðu framsókn-
armenn til að Árni Þór Sigurðsson,
oddviti Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs á Reykjavíkurlist-
anum, yrði borgarstjóri en Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir var því mótfallin
og R-listinn kom sér síðan saman
um mann utan borgarstjórnarflokks
Reykjavíkurlistans. Alfreð segir að
þegar litið sé til sveitarfélaga og
bæjarfélaga á Íslandi sé algengara
að framkvæmdastjóri sé sóttur utan
kjörinna fulltrúa og því þurfi, í þessu
sambandi, ekki að hafa áhyggjur af
tímabilinu 1978 til 1982, þegar
vinstri meirihlutinn í Reykjavík var
með ópólitískan borgarstjóra. „Þótt
reynslan frá 1978 til 1982 hefði mátt
vera betri er ekkert sem segir að
þessi leið geti ekki gengið upp.“
Spurður hvort R-listinn bjóði aft-
ur fram í Reykjavík í næstu sveit-
arstjórnarkosningum segir Alfreð:
„Ég sé ekkert annað í spilunum eins
og staðan er í dag.“
Samkvæmt samkomulagi flokk-
anna sem standa að Reykjavíkurlist-
anum er borgarstjóri formaður
borgarráðs og formennska í borg-
arstjórnarflokknum skiptist á milli
flokkanna þriggja á kjörtímabilinu.
Spurður hver verði talsmaður meiri-
hlutans segir Alfreð að viðræður við
Þórólf Árnason, verðandi borg-
arstjóra, séu rétt að hefjast og þar
sem hann taki ekki við fyrr en 1.
febrúar sé góður tími til stefnu til að
fara yfir skipan mála. „Ég held að
það verði engin vandamál í því sam-
bandi,“ segir hann og bætir við að
hann eigi ekki von á neinum eft-
irmálum vegna málsins því ekki sé
ágreiningur um málefni.
Alfreð Þorsteinsson
Fagnaðar-
efni að
óvissu
sé eytt
„ÉG held að við höfum komið öll-
um spekingum á óvart með því að
ná saman um þetta og sverja til
fóstbræðralags áfram,“ segir Stef-
án Jón Hafstein, oddviti Samfylk-
ingarinnar á Reykjavíkurlistanum,
um fyrirhuguð borgarstjóraskipti
og bendir á að ekki hafi verið rætt
um sérstakan pólitískan talsmann
Reykjavíkurlistans.
„Mér finnst það hryggileg nið-
urstaða að borgarstjóri skyldi
þurfa að fara, „nauðug viljug“,
eins og hún sagði, úr embætti sem
hún hafði gegnt svo glæsilega í
rúm átta ár og unnið þrjá stór-
kostlega kosningasigra,“ segir
Stefán Jón og bætir við að þar
sem hann hafi persónulega átt það
náið og gott samstarf við hana
hafi verið erfitt persónulega og
pólitískt að standi frammi fyrir
orðnum hlut. Hins vegar hafi
borgarstjóri sagt að þetta væri
nauðsynlegt til að bjarga Reykja-
víkurlistanum og því hafi orðið að
taka þessa ákvörðun. „Hún sýndi
þarna mikið stórlyndi og veglyndi
eins og hennar var von og vísa.“
Stefán Jón segir að undanfarnir
dagar hafi verið mjög erfiðir fyrir
Reykjavíkurlistann og reynt hafi á
þolrif allra. „Það sýndi sig, sér-
staklega á lokasprettinum í gær
[sunnudag], að menn vildu að
þetta samstarf héldi. Það voru
ekki veilur í þeim vilja og það boð-
ar gott fyrir framhaldið. Það má
segja að við höfum þó þennan
gríðarlega styrk sem ég held að
fáir stjórnmálaspekúlantar í land-
inu hafi talið fyrir fjórum eða
fimm dögum að við hefðum.“
Vinstri flokkarnir voru með
ópólitískan borgarstjóra 1978 til
1982. Stefán Jón segir að það hafi
ekki reynst vel vegna þess að
meirihlutinn hafi ekki verið nógu
samhentur og ekki kunnað á verk-
lagið með framkvæmdastjóra.
Fyrstu viðræður við verðandi
borgarstjóra bendi hins vegar til
að hægt verði að komast niður á
verklag og vinnulag sem dugi.
Ákveðna hluti þurfi samt að út-
færa mjög vandlega. „Borgarstjóri
talar fyrir hönd borgarinnar sem
framkvæmdastjóri borgarinnar,“
segir Stefán Jón og bætir við að
hann geri síðan ráð fyrir aukinni
ábyrgð nefndarformanna á sínum
málaflokkum, en það eigi eftir að
útfæra nánar. „Það er ekki í píp-
unum að skipa sérstakan pólitísk-
an talsmann meirihlutans.“ Hann
áréttar að breytt skipan kalli á
enn nánara samstarf innan borg-
arstjórnarflokksins og þekking og
reynsla Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur muni nýtast vel enda
verði hún áfram í borgarstjórn-
arflokknum.
Stefán Jón segir að áfram verði
ákveðinni jafnræðisreglu fylgt
varðandi skiptingu embætta en
aðalatriðið í allri þessari umræðu
hafi verið að bregðast ekki trausti
kjósenda.
„Ég veit ekkert um það,“ segir
hann aðspurður hvort R-listinn
bjóði fram í Reykjavík í næstu
sveitarstjórnarkosningum, „en við
lofuðum fólkinu að stjórna út
þetta kjörtímabil og það ætlum við
að gera.“
Stefán Jón Hafstein
Pólitískur
talsmaður
ekki í
pípunum
„ÉG er mjög feginn því að það náð-
ist að lokum niðurstaða í þessi mál
og að hún fól það í sér að Reykja-
víkurlistinn lifir þetta af og verður
áfram í meirihluta,“ segir Árni Þór
Sigurðsson, oddviti Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs á
Reykjavíkurlistanum, um ákvörðun
R-listans varðandi borgarstjóra-
skipti.
Ýmislegt hefur gengið á innan
Reykjavíkurlistans undanfarna
daga og Árni Þór er ekki viss um
hvort það hafi áhrif á samstarfið.
„Ég veit það ekki. Það á eftir að
koma í ljós. Okkur er öllum ljóst að
það hefur reynt mikið á þolrifin í
fólki og flokkum í þessum ágrein-
ingi sem kom upp og það eru vissir
brestir, bæði milli fólks og flokka,
en það er okkar verkefni að takast á
við það og reyna að berja það saman
aftur,“ segir hann. „Þótt komi upp
svona brestir þarf það ekki að hafa
þau áhrif að menn geti ekki komið
sér saman um áframhaldandi sam-
starf í næstu kosningum.“
Framsóknarmenn stungu upp á
Árna Þór sem borgarstjóra í stað
Ingibjargar Sólrúnar en hún hafn-
aði því. Árni Þór segir að það eigi
ekki að hafa nein eftirmál. Fram-
sóknarmenn hafi lagt fram tillögu
þessa efnis vegna þess að megin-
deilan hafi staðið milli þeirra og
borgarstjóra og Samfylkingarinnar
og því hafi það verið þeirra mat að
það gæti verið málamiðlun að borg-
arstjóri kæmi úr röðum VG. Hins
vegar hefði borgarstjóra ekki fund-
ist eðlilegt að fulltrúi annars hvors
samstarfsflokks Samfylkingarinnar
tæki við, burtséð frá því hvaða ein-
staklingar ættu í hlut. „Það var
hennar afstaða og mér finnst hún
alveg skiljanleg.“
Árni Þór segist hafa fulla trú á
því að Reykjavíkurlistanum takist
að vinna sig út úr þeirri stöðu sem
við blasi varðandi ráðningu á ópóli-
tískum borgarstjóra. „Það er ekkert
launungarmál að ég hafði vissar efa-
semdir um að ráða ópólitískan borg-
arstjóra og það á auðvitað eftir að
fara betur yfir það en hvernig unnið
verður úr því er hlutur sem við í
hinni pólitísku forystu í meirihlut-
anum þurfum að ræða við verðandi
borgarstjóra og erum reyndar að-
eins búin að gera nú þegar.“
Að sögn Árna Þórs verða næstu
dagar nýttir með verðandi borg-
arstjóra til að binda lausa enda. Í
því sambandi nefnir hann að eftir
eigi að taka ákvörðun um hvaða
hlutverk formaður borgarráðs fái
sem talsmaður og eins þurfi að
skoða hvort það hafi áhrif á önnur
embætti. Framhaldið að loknu kjör-
tímabilinu verði síðan að koma í ljós.
„Ég held að fyrst okkur tókst að
komast í gegnum þetta og landa því
sýni það að það sé töluvert líf í
þessu kosningasamstarfi þannig að
það ættu að vera allir möguleikar á
því að halda því áfram.“
Árni Þór Sigurðsson
R-listinn
lifir
þetta af
Halldór Ásgrímsson
„ÉG ER FYRST og fremst sáttur
við að náðst hefur niðurstaða í
málinu sem þýðir að samstarfið
um R-listann heldur áfram eins og
við lögðum áherslu á frá byrjun,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, um afsögn Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur sem
borgarstjóra.
Hann segist ekki sjá ástæðu til
að ætla annað en að R-lista-
samstarfið eigi sér framtíð þrátt
fyrir þessar breytingar. „Mér
finnst hafa gleymst í umræðunni
að þarna er prýðilega fram-
bærilegur hópur kjörinna borg-
arfulltrúa til staðar. Ég treysti því
ágæta fólki fullkomlega til að
vinna úr þessum málum. Mér
finnst hópurinn hafa vaxið í þess-
um erfiðleikum, t.d. Árni Þór Sig-
urðsson, sem hefur haldið ró sinni
og komið fram með málefnalegum
og yfirveguðum hætti og hefur
þannig styrkt stöðu sína veru-
lega.“
Steingrímur segist sáttur við þá
niðurstöðu að ráða ópólitískan
borgarstjóra úr því að samstaða
gat orðið um það. Hann telur að í
kjölfarið muni hið pólitíska for-
ystuhlutverk færast meira yfir á
herðar kjörinna forystumanna
flokkanna. Hann segir ástæðulaust
að óttast fordæmi um ópólitískan
borgarstjóra frá fyrri tíð.
„Af hverju ekki að horfa frekar
á tugi ef ekki hundruð fordæma úr
öðrum stórum sveitarfélögum en
Reykjavík þar sem hvort tveggja
hefur gengið ágætlega upp, þ.e. að
ráða framkvæmdastjóra og kjósa
pólitískan forystumann?“
Steingrímur undrast að Ingi-
björg Sólrún skuli hafa látið að því
liggja að forystumenn flokkanna á
landsvísu ættu þátt í því hvernig
fór og þrýst á flokksfélaga sína í
borgarstjórn. „Mér finnst hún í
fyrsta lagi gera með þeim hætti
lítið úr félögum sínum í borg-
arstjórnarflokknum, sem að sjálf-
sögðu réðu sínum viðbrögðum. Ég
hafna því alfarið að það hafi af
okkar hálfu verið settur þrýst-
ingur á þá. Ég hins vegar studdi
við þeirra viðbrögð.
Það er algjörlega útilokað fyrir
Ingibjörgu Sólrúnu að ætla að
kenna einhverjum öðrum um sínar
ófarir í þessu máli. Hún hefur þar
við engan annan en sig sjálfa að
sakast. Það er auðvitað miður að
sjá orðstír og trúverðugleika
stjórnmálamanns verða fyrir jafn-
miklu hnjaski. Það voru hún og
Össur Skarphéðinsson sem hrundu
þessari atburðarás af stað, þar
með er þetta heimatilbúinn vandi
hennar og Samfylkingarinnar,
hennar eigið sjálfskaparvíti.“
Sjálfskap-
arvíti Ingi-
bjargar
Steingrímur J.
Sigfússon
Morgunblaðið/Golli
Mikið mæddi á borgarfulltrúunum Alfreð Þorsteinssyni og Stefáni Jóni Hafstein í Ráðhúsinu á sunnudaginn.