Morgunblaðið - 31.12.2002, Side 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTHAFSRÆKJUSTOFNINN er á
hægri uppleið og hlutfall stórrækju
hefur aukist. Þetta er niðurstaða
stofnmælingar Hafrannsóknastofn-
unarinnar á úthafsrækju.
Úthafsrækjustofninn náði sögu-
legu lágmarki árið 2000 en stækkaði
nokkuð árin 2001 og 2002. Stofnvísi-
tala hefur staðið í stað við Norður-
land, en minnkað við Norðaustur- og
Austurland samfara auknum göng-
um þorsks fyrir austan árin 2001 og
2002, að því er fram kemur í nið-
urstöðum Hafrannsóknastofnunar-
innar. Samkvæmt útreikningum
stofnunarinnar hefur dánartala
rækju stjórnast mjög af þorskgengd
á Norður- og Austurmiðum en einn-
ig aflanum sem tekinn er ár hvert úr
veiðistofninum. Veiðistofn rækju er
talinn hafa stækkað nokkuð frá árinu
2000 og er stærð stofnins svipuð og á
árunum 1991–1992 þegar veidd voru
24–31 þúsund tonn á ári.
Niðurstöður benda til að stofn út-
hafsrækju sé á hægri uppleið. Þótt
afli á sóknareiningu hafi nú minnkað
um 10%, hefur hlutfall stórrækju
aukist um 46%, en kvendýravísitala
hefur staðið í stað frá árinu 2001 til
2002. Nýliðun er nokkuð undir með-
altali en svipuð árin 2001 og 2002.
Eins og fram hefur komið leggur
Hafrannsóknastofnunin til að afli úr
úthafrækjustofninum fari ekki yfir
30 þúsund tonn fiskveiðiárið 2002/
2003. Miðað við óbreytta þorsk-
gengd á rækjumiðunum ætti það að
leiða til hóflegrar sóknar í rækju-
stofninn en ef þorskgengd á rækju-
miðunum breytist verulega þarf að
endurskoða þessar tillögur. Hvort
slíkrar endurskoðunar er þörf mun
liggja fyrir að lokinni stofnmælingu
botnfiska í mars 2003.
Úthafsrækja
á hægri
uppleið
&
6776
879
:( 5
;9
<9
=9
>9
?9
@9
69
9
BANDARÍSK tollyfirvöld hafa tekið
upp nýjar og hertar reglur fyrir vöru í
innflutningi til Bandaríkjanna. Nú
stendur yfir mat á áhrifum þessara
breytinga og má reikna með talsverð-
um áhrifum af þessum reglum á ferli
vöru til útflutnings frá Íslandi til
Bandaríkjanna. Breytingarnar má
rekja til viðbragða bandarískra yfir-
valda við vaxandi hryðjuverkaógn eft-
ir atburðina 11. september í fyrra.
Breyttar reglur þýða m.a. að skipa-
félög verða að skila endanlegri
farmskrá til bandarískra tollyfirvalda
fyrir allar sendingar um borð í þeim
skipum sem eiga viðkomu í banda-
rískum höfnum. Samkvæmt reglun-
um má skipafélag ekki hefja lestun
skips í höfnum utan Bandaríkjanna
fyrr en 24 tímum eftir að farmskrá
hefur verið send bandarískum tollyf-
irvöldum. Þá hafa bandarísk tollyfir-
völd heimild til að banna lestun á
ákveðnum vörum og kalla eftir nánari
skýringum frá sendanda. Reglugerð-
in tók gildi 2. desember en bandarísk
yfirvöld hafa þó gefið 60 daga aðlög-
unartíma fyrir skipafélög og ekki síst
sendendur vöru til að undirbúa ný
vinnubrögð.
Kallar á breytt vinnubrögð
Breytingarnar þýða að fyrir brott-
för skips frá Íslandi 31. janúar 2003
verða öll ferli að vera í samræmi við
nýjar reglur. Jóhann Þór Jónsson,
forstöðumaður markaðsdeildar Eim-
skips, segir ljóst að reglurnar kalli á
ný og breytt vinnubrögð. Skoðað
verði með viðskiptavinum hvaða áhrif
þetta hefur á þeirra ferla og vinnu-
brögð. Sömuleiðis þurfi að innleiða
nýja lokatíma fyrir vöru á Ameríku-
leið en Eimskip hefur ákveðið að
fyrsta skip sem falli undir nýjar regl-
ur verði Skógafoss sem siglir frá
Reykjavík föstudaginn 3. janúar.
Reglurnar kalla á talsvert nákvæm-
ari farmskrárupplýsingar en áður og
þarf því að taka fram nánari vörulýs-
ingu en áður, fullt nafn og heimilis-
fang sendanda og móttakanda, gáma-
og innsiglisnúmer. Jóhann segir áríð-
andi að útflytjendur aðlagi sig hratt
þessum reglum enda þýði þær að
lokatímar fyrir farmskrárfyrirmæli
og móttöku vöru breytist umtalsvert.
Hann segir að bandarískum tollayfir-
völdum muni taka hart á nýjum regl-
unum. „Minnstu misbrestir geta þýtt
langar tafir á uppskipun í Bandaríkj-
unum og því munum við ekki tefla á
tvær hættur í þeim efnum, enda mik-
ilvægt að áætlanir skipanna haldist og
þjónusta við þá sem skiluðu upplýs-
ingum á réttum tíma standist. Eim-
skip mun því fylgja því mjög ákveðið
eftir að vara sem ekki hefur verið
skráð í farmskrá fyrir tilgreindan
lokatíma verði ekki lestuð.
Þessar nýju reglur setja vissulega
mikla pressu á allt útflutningsferlið
og höfum við átt gott samstarf við við-
skiptavini okkar í að endurskoða það
og greina hvernig þessum nýju
reglum verður best fullnægt. Það er
hins vegar alveg ljóst að bandarísk yf-
irvöld leyfa ekkert frávik og reglun-
um verður að hlíta í einu og öllu,“ seg-
ir Jóhann.
Hertar reglur vegna inn-
flutnings til Bandaríkjanna
nota olíu í stað rafmagns meðan
svona á stendur. Vonir standa til að
með því verði hægt að láta þá orku
sem nú er hægt að framleiða duga
fram til vors. Þegar snjórinn í fjöll-
unum fer að bráðna og uppistöðulón
að fyllast á ný ætti að vera hægt að
auka framleiðsluna.
Skortur á vætu og þar með raf-
orku hefur haft minnst áhrif í Finn-
landi en þar koma einungis ríflega
20% rafmagns frá virkjunum fall-
vatna. Finnar nýta fleiri orkugjafa
eins og kjarnorku og vindorku til
framleiðslu rafmagns. Verð á raf-
orku hefur því lítið breyst í Finn-
landi.
Að mati blaðamanns WSJ taka
Norðmenn áhættu með því að styðj-
ast einungis við eina orkuuppsrettu
til framleiðslu rafmagns því með því
séu þeir algerlega háðir veðri og
vindum í orkumálum. Segir hann að
þrátt fyrir aukinn kostnað sem því
fylgi að bæta við orkugjöfum ætti
það að borga sig fyrir Noreg til að
komast hjá áföllum sem þessum.
VERÐ á raforku í Noregi og Svíþjóð
hefur hækkað á árinu vegna orku-
skorts. Óvenjulítil væta hefur verið á
Norðurlöndunum í sumar og haust
og vatnsaflsvirkjanir í Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi ganga aðeins á um
hálfum afköstum. Frá þessu greinir í
The Wall Street Journal. Orkuskort-
urinn hefur haft mest áhrif í Noregi
því þar byggist öll rafmagnsfram-
leiðsla á því að nýta orku fallvatna.
Svíar standa frammi fyrir svipuð-
um vanda, en þó minni því Svíar nýta
einnig kjarnorku til framleiðslu raf-
magns. Um 55% raforku í Svíþjóð
koma frá fallvötnum og hefur verð á
rafmagni hækkað líkt og í Noregi. Í
grein WSJ er sagt frá því að Svíar
hafi gert samning við pólskt orkufyr-
irtæki um innflutning á raforku til
Svíþjóðar fram í apríl á næsta ári.
Norsk yfirvöld hafa ekki farið þá
leið að flytja inn rafmagn þótt tækni-
lega sé það mögulegt. Í staðinn hafa
yfirmenn orkumála í Noregi beðið
landsmenn að reyna að hita hús sín
með því að kveikja upp í arninum eða
Lítil úrkoma veld-
ur háu orkuverði
SKIP Haraldar Böðvarssonar hf. á
Akranesi veiddu samtals um
166.540 tonn á árinu sem nú er að
líða og hafa skip félagsins aldrei
borið jafn mikinn afla að landi.
Loðnan vegur þyngst í heildarafla
skipanna en alls veiddu þau um 102
þúsund tonn af loðnu. Botnfiskafli
skipanna var rúmlega 22 þúsund
tonn. Heildaraflaverðmæti skip-
anna var rúmlega 3,6 milljarðar
króna sem er um 850 milljónum
króna meira en á árinu 2001 en þá
voru sjómenn í verkfalli í u.þ.b. sex
vikur. Frystitogari HB, Höfrungur
III AK, veiddi um 7.403 tonn á
árinu. Þetta er mesti afli skipsins á
einu ári og er það á meðal afla-
hæstu bolfisktogara landsins. Verð-
mæti aflans nam um 933 milljónum
króna (FOB). Frystitogarinn Helga
María AK hefur einnig aflað vel á
árinu eða um 5.974 tonn og var afla-
verðmætið um 800 milljónir króna.
Fjölveiðiskipið Ingunn AK hefur
landað tæpum 79 þúsund tonnum á
árinu að verðmæti 673 milljónir
króna. Þetta er mesta magn sem
skip Haraldar Böðvarssonar hefur
borið að landi á einu ári. Víkingur
AK hefur fiskað um 46 þúsund tonn
á árinu og nemur verðmæti aflans
um 380 milljónum króna.
Aflaverðmæti frystitogarans Höfrungs III AK var um 933 milljónir króna á árinu.
Metafli hjá skipum HB á árinu