Morgunblaðið - 31.12.2002, Síða 23
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 23
ÞAÐ var mikið fjör á jólaballi sem Hetjurnar, félag langveikra barna á Ak-
ureyri, efndu til á sunnudag. Fjölmargir voru þar mættir og stemmningin
eins og best gerist á slíkum jólaböllum. Að sjálfsögðu kom jólasveinn í
heimsókn og gladdi börnin með nærveru sinni.
Ljósmynd/Rut Sverrisdóttir
Jólasveinninn heimsótti Hetjurnar, eins og vera ber á jólaballi.
Hetjur á jólaballi
KOMIÐ hefur fram sú hugmynd
að stofna sérstaka húsverndar-
deild innan Minjasafnsins á Ak-
ureyri og einnig fornleifadeild í
nánu samráði við minjavörð
Norðurlands eystra. Þetta kem-
ur fram í úttekt á safnamálum í
Eyjafirði, sem Sögusmiðjan vann
fyrir Héraðsnefnd Eyjafjarðar.
Eitt af því sem sérkennir Ak-
ureyri er mikill fjöldi gamalla
húsa sem prýðir bæinn, segir í
skýrslunni. Víða eru heildstæðar
þyrpingar slíkra húsa. Má full-
yrða að staðurinn sé einstæður á
landsvísu að þessu leyti og því
liggur mikið við að varðveitt séu
og vernduð sem flest af þeim
húsum sem byggð eru um og
fyrir aldamótin 1900. Skýrslu-
höfundar mæla sérstaklega með
því að þessi hugmynd um hús-
verndardeild verði skoðuð ofan í
kjölinn.
Slík deild myndi starfa í nánu
samráði við forstöðumann Húsa-
friðunarnefndar og væri kjörinn
vettvangur til að miðla þekkingu
á aðferðum og vinnubrögðum við
uppgerð og viðhald gamalla húsa
til komandi kynslóða. Einnig
muni þetta styrkja þátttöku
Minjasafnsins í hinum ýmsu
verkefnum.
Fornleifadeild innan Minja-
safnsins gæti tekið að sér að
sinna lögbundnum verkefnum á
sviði fornleifaskráningar og
rannsókna fyrir sveitarfélögin
við Eyjafjörð, auk þess að ein-
beita sé að rannsóknarverkefn-
um að Gásum.
Minjasafnið á Akureyri er
stærsta safnið í Eyjafirði og
gegnir forystuhlutverki á sviði
safnamála og sýningarhalds.
Safnið var stofnað 1962 og að því
stóðu Kaupfélag Eyfirðinga, Ak-
ureyrarbær og Héraðsnefnd
Eyjafjarðar.
Árið 1999 var safnið gert að
sjálfseignarstofnun sem rekin er
af Héraðsnefnd og öll sveitar-
félög í Eyjafirði eru aðilar að.
Safnið hefur verið í sama hús-
næði frá upphafi, Kirkjuhvoli við
Aðalstræti á Akureyri.
Fjölga þarf gestum um
helming á næstu 5 árum
Fram kemur í úttekt Sögu-
smiðjunnar að aðsókn að sýn-
ingum Minjasafnsins mætti
gjarnan vera meiri, miðað við
gæði sýninganna og fjölda ferða-
manna sem fer um Akureyri,
sem áætlaður er 150 þúsund á
ári. Menn vildu gjarnan sjá tölur
eins og 15 þúsund gesti á ári í
stað 5–8 þúsund. Vinna þarf að
breytingu á þessu með öllum til-
tækum ráðum á næstu árin og
setja stefnuna á að hækka gesta-
fjöldann upp í 15 þúsund á
næstu 5 árum, segir ennfremur í
skýrslunni.
Skýringarnar á því að Minja-
safnið er ekki jafn fjölsótt og
það ætti að vera liggja að
nokkru leyti í staðsetningu þess
en húsið er talsvert langt frá
miðbænum og falið í trjánum í
Minjasafnsgarðinum fyrir fram-
an húsið.
Með markvissri markaðssetn-
ingu á safninu ætti að vera hægt
að breyta þessu, að mati
skýrsluhöfunda.
Minjasafnið á Akureyri
Hugmyndir
um tvær
nýjar deildir
Árlegt Nýárstrimm verður í
Kjarnaskógi á morgun, nýársdag.
Það hefst kl. 9 og stendur til kl. 20
um kvöldið. Nýárstrimm hefur verið
haldið í Kjarnaskógi síðastliðin 20 ár
og stendur jafnan yfir allan daginn.
Síðast tóku um 270 manns þátt í
trimminu, en fólk sem gengur eða
hleypur sér til heilsubótar í skóg-
inum er beðið um að skrifa nafn sitt í
gestabók sem liggur frammi í
Kjarnakoti. Oft hefur fólk brugðið
undir sig gönguskíðum í Nýárs-
trimminu en slíku verður ekki að
heilsa nú, þegar jörð er marauð.
Á MORGUN
Árlegt nýársskákmót Skákfélags
Akureyrar verður haldið á morgun,
nýársdag, og hefst það kl. 14. Þátt-
taka er öllum opin.
Jón Garðar Viðarsson sneri heim til
Akureyrar nú um hátíðarnar og
tókst að fagna sigri á Jólaskákmóti
Akureyrar eftir mjög jafna og
spennandi keppni. Þeir Jón og Guð-
mundur Gíslason urðu jafnir og efst-
ir í mótinu með 13,5 vinninga úr 16
skákum en þriðji varð Halldór
Brynjar Halldórsson með 13 vinn-
inga.
KYNDILGANGA var farin á vegum
Norðurlandsdeildar Samtaka her-
stöðvaandstæðinga á Þorláksmessu-
kvöld og var þátttaka góð að því er
fram kemur í frétt frá deildinni. Að
friðargöngu lokinni var efnt til fund-
ar gegn stríði þar sem flutt var
ávarp, ljóð lesin og lög flutt.
Í ályktun frá fundinum er lýst ein-
dreginni andstöðu „við árásarstríð
það gegn Írak sem nú er í uppsigl-
ingu undir forystu Bandaríkjanna“
eins og þar segir. Stefnubreytingum
hjá NATO síðustu misseri er einnig
mótmælt, þar sem bandalagið sé að
breytast í árásarbandalag sem leyfi
sér að standa í stríðsrekstri utan síns
hefðbundna svæðis. „Ennfremur
lýsir fundurinn fullkominni andstöðu
við aðild Íslands að hinum áformaða
stríðsrekstri með loftflutningum eða
á nokkurn annan hátt.“
Mótmæla
árásarstríði
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir var í
gær kjörin íþróttamaður Akureyr-
ar 2002. Niðurstaðan var tilkynnt í
árlegu hófi Íþróttabandalags Ak-
ureyrar, þar sem m.a. allir Íslands-
meistarar bæjarins á árinu eru
heiðraðir, en að þessu sinni urðu
alls 239 Akureyringar Íslands-
meistarar í 83 íþróttagreinum.
Fimm efstu í kjörinu eru í réttri röð
á myndinni, frá vinstri: Dagný
Linda varð Íslandsmeistari bæði í
svigi og stórsvigi á síðasta vetri, og
keppti á Ólympíuleikunum í Salt
Lake City. Annar í kjörinu í gær
varð Sigurpáll Geir Sveinsson, Golf-
klúbbi Akureyrar, en hann varð Ís-
landsmeistari í golfi. Þriðji var Ein-
ar Birgisson, Bílaklúbbi Akureyrar,
sem varð Íslandsmeistari í kvart-
mílu, fjórða Sigrún Benediktsdóttir
úr Sundfélaginu Óðni, sem m.a.
varð í fjórða sæti á Norðurlanda-
móti, og fimmta Ásta Árnadóttir
knattspyrnukona úr Þór, sem m.a.
lék með landsliði 21 árs og yngri.
Í hófinu í gær voru þrír íþrótta-
frömuðir heiðraðir sérstaklega fyr-
ir óeigingjörn störf að íþrótta-,
æskulýðs- og félagsmálum; þeir
Stefán Gunnlaugsson, KA, Þór Val-
týsson, Skákfélagi Akureyrar, og
Aðalsteinn Sigurgeirsson, Þór.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dagný Linda íþróttamaður Akureyrar
Alltaf á þriðjudögum
♦ ♦ ♦