Morgunblaðið - 31.12.2002, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 29
VARLA þarfnast það lengur út-
skýringar hvað felst í hugtakinu
akvarella, um að ræða alþjóðlega
skilgreiningu á hinu sígilda vatns-
litamálverki. Á síðari tímum eru
komnar svo margar tegundir af
vatnsblönduðum litum á markað-
inn, til hinnar aðskiljanlegustu og
almennustu notkunar úti sem inni
að heilbrigðast er að jarðtengja
sérheitið íslenzkunni. Fer vel í
málinu og forðar misskilningi, auð-
veldar alla umfjöllun sem skara
hin sígildu tæknibrögð, um leið er
vatnslitamálverkið jafn rétthátt við
hlið hins, úreldist aldrei. Um að
ræða sérstaka tegund gagnsærra
lita sem hafa þá eiginleika helsta,
að þeir tapa auðveldlega uppruna-
legum ferskleika og lífsmagni við
lagskipta yfirmálun. Tæknin í
hæsta máta vandmeðfarin og
krefjandi eins og berlega kemur
fram í Hornarfjarðarmyndum Ás-
gríms Jónssonar, sem einnig búa
yfir öllum þeim tærleika sem helst
má prýða vinnuferlið. Hér áralöng
þjálfun að baki, útheimtir að auk
mikla þrautseigju og þolinmæði af
iðkendum sínum, þótt einnig sé op-
ið að beita frjálsum óformlegum
vinnubrögðum, en slík innibera
oftar en ekki mikla þjálfun.
Þótt vatnslitamálverkið hafi
snemma haslað sér völl hérlendis
eru samtök iðkenda þess fárra ára
gömul, árin ei heldur mörg að baki
norrænu samtakanna, en þau hafa
starfað af miklum dugnaði og kom-
ið sér upp safni í nágrenni Gauta-
borgar. Þá var fimmti akvarellu-
tvíæringurinn í Antwerpen haldinn
frá 5. – 26. maí nú í ár og veit ég
ekki um aðra slíka í Evrópu, þann-
ig einungis tíu ár frá hinum fyrsta.
Öllum má þannig vera ljóst að
þessi geiri myndlistar hefur gengið
í endurnýjaða lífdaga og því til
sönnunar er ein vegleg katalóga
(sýningarskrá) og nýútkomin bók
um akvarellumálverkið, sögu þess
og tækni. Báðar þessar bækur
hafa borist upp í hendur mínar til
umsagnar, helst í tilefni þess að
hér eru Íslendingar loks sýnilegir
á alþjóðavettvangi eins og vera
ber. Tvíæringurinn er ávöxtur 25
ára starfsemi afmarkaðs hóps iðk-
enda og velunnara vatnslitamál-
verksins í Belgíu sem hafa komið á
reglubundnum sýningum og listhá-
tíðum í þorpinu Mol í norðurhluta
landsins og alþjóðlegum listhá-
tíðum í Antwerpen. Og þróunin
hefur leitt til stofnunar Evrópu-
sambands: „European Confedera-
tion of Water-colour Societies“
(ECWS). Af myndunum í katalóg-
unni að dæma virðist þetta nokkuð
íhaldsöm stofnun, en þó eru und-
antekningar og þá helst frá Norð-
urlöndum. Af átta þátttakendum
þaðan sker fulltrúi Íslands, sem að
þessu sinni er Hafsteinn Aust-
mann, sig tvímælalaust úr um
hrein og framsækin vinnubrögð.
Að öðru leyti ekki á mínu færi að
dæma um sýningu af katalógunni
einni.
Sænska bókin um akvarellumál-
verkið er hins vegar hin fróðleg-
asta og verðskuldaði að vera þýdd
á íslenzku, þar víða komið við hvað
tæknibrögðin snertir. Tileinkun
tæknigrunnsins í sjálfum sér
ásamt þjálfun skynfæranna, hefur
aldrei skaðað nokkurn mann og
hér eru þeir á heimavelli sem
lengst hafa náð, allt frá Girtin,
Constable, Turner, Rodin, yfir
John Marin og til hinna mörgu nú-
listarmanna sem á nýrri tímum
hafa tekið tæknina í þjónustu sína.
Við sáum gott dæmi þess í mynd-
um þýðverjans Bernds Koberlings
í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar-
húsi. Auk hvers konar ritaðra upp-
lýsinga er í bókinni mergð skýr-
ingamynda er varða tæknina
ásamt litmyndum af verkum
þekktra norrænna sem heims-
kunnra listamanna. Hér hefur Ís-
land ei heldur gleymst því sagt er
frá þrem listamönnum, þeim Ás-
grími Jónsyni föður íslenzku
akvarellunnar, Hafsteini Aust-
mann og Karólínu Lárusdóttur.
Fylgja myndir af einkennandi
verkum tveggja hinna síðasttöldu
og yfirskriftin er „Kraft och poesi“
(kraftur og ljóðræna). Verk beggja
sóma sér vel á síðum bókarinnar
og þátttaka þeirra í ritinu tengir
þennan íslenzka geira tæknibragð-
anna hinu athyglisverðara sem
gert hefur verið í norrænni akva-
rellu frá upphafi, sem er að sjálf-
sögðu frábært.
Þetta gerist einmitt þegar ís-
lenzk myndlist nær að verða sýni-
leg erlendis og má hér þakka hinu
unga félagi akvarellumálara og nú
er bara að fylgja eftir af dug og
metnaði í öðrum geirum myndlist-
ar.
Þetta er í alla staði falleg og
vönduð bók, 23,5 x 24 sm. á hvorn
veginn og 148 síður, litgreining
virðist hafa tekist mjög vel, pappír,
framsetning efnis og útlitshönnun
með því ágætasta sem gerist um
slíkar bækur.
Akva-
rellan
blífur
Bragi Ásgeirsson
BÆKUR
Akvarellumálverkið
Tülla Grünberger, Anders Wallen. Útgef-
andi er ICA bokförlag 721 85 Västerås,
www. forlaget.ica.se/bok. Grafísk form-
un: Teres Vesterlund Eftirprentun: Scar-
ena. Prentun: Abildgaard Grafisk, Dan-
mörku 2002.
AKVARELLMÅLERI – HISTORIA OCH
TEKNIK
Verk eftir Karólínu Lárusdóttur: Bakaríið. Verk eftir Hafstein Austmann: Tónverk.