Morgunblaðið - 31.12.2002, Síða 51

Morgunblaðið - 31.12.2002, Síða 51
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 51 Restaurant Pizzeria Gallerí - Café Hádegistilboð alla daga og gott kaffi Cappuccino, Caffe latte og Espresso Hafnarstræti 15, sími 551 3340 Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu Föst 10. jan, kl 20, laus sæti, lau 18. jan, kl 20. Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Stóra svið SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT 2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, UPPSELT 3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4. sýn lau 18/1 græn kort, 5. sýn fö 24/1 blá kort SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau 4/1 kl 20, Su 19/1 kl 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 12/1 kl 14, Su 19/1 kl 14 Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Fö 10/1 kl 20 Síðasta sýning RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fö 3/1 kl. 20, UPPSELT Fö 10/1 kl 20 SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI MEÐ SÁLINNI HANS JÓNS MÍNS - FORSÖLU AÐGÖNGUMIÐA LÝKUR 31.DESEMBER - FORSÖLUVERÐ KR 2.800 - FULLT VERÐ 3.100. MIÐASALAN ER OPIN KL 10:00 - 12:00 Á GAMLÁRSDAG JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Fö 3/1 kl. 20Lau 11/1 kl 20 FÁAR SÝNINGAR EFTIR JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Su 5/1 kl 14 og 15 - Kr 500 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fim 9/1 kl 20, Lau 18/1 kl 20. Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Munið gjafakortin! Fös 3/1 kl. 21 Uppselt Sun 12/1 kl 21 Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM Gleðilegt nýtt ár! Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi 3. sýning laugardag 4. jan. kl 16.00 4. sýning sunnudag 5. jan. kl 16.00 Aðeins 10 sýningar Ath. syningarnar hefjast kl. 16.00 Miðalsala í Hafnarhúsin alla daga kl. 11-18. Sími 590 1200 Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz Leikstjóri: Vladimir Bouchler. fös. 3. jan. kl. 20 sun. 12. jan. kl. 15 Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum Vörðufélagar fá 25% afslátt gegn framvísun gulldebetkorts Miðasölusími sími 462 1400 www.leikfelag.is 5. jan. kl. 14 laus sæti 12. jan. kl. 14. örfá sæti 19. jan. kl. 14. örfá sæti 26. jan. kl. 14. laus sæti ÁRIÐ 2002 náðu Japanir loksins að leggja heiminn að fótum sér. Manga varð vinsælasta myndasöguformið um allan heim. Í Evrópu og Banda- ríkjunum tóku lesendur svart/hvítar, öfugsnúnar sápuóperusögur af hvers- dag japanskra ungmenna í smáu broti fram yfir innlenda framleiðslu. Love Hina, GTO og Marmelade Boy eru dæmi um manga sem hefur náð á vestrænan markað en heima fyrir bíða þúsundir titla þess að ráðast fram og sölsa undir sig þýðingar og landsvæði. Með þetta í huga kemur ekki á óvart að tvær af bestu mynda- sögum ársins skuli vera japanskar. Phoenix: A tale of the future eftir Osama Tezuka var fyrst gefin út í jap- an árið 1967. Tezuka er guðfaðir jap- anskra myndasagna og sá sem mestu skipti í þróun manga sem sjálfstæðr- ar hefðar í bókmenntum. A tale of the future er ein af tólf sögum sem Phoenix samanstendur af og í heild sinni mynda þessar bækur yfirlit um sögu mannkyns í fortíð, nútíð og framtíð. Á útgáfutímanum voru heimsmálinn að nálgast alkul og kjarnorkuhræðslan var hugarástand sem fólk þekkti allt of vel. Mitt í þessu kvíðakasti mannkyns lýsir Tezuka hugsjón sinni um frið og bræðralag allra manna af slíkri hlýju og mannúð að lesandinn verður ekki ósnortinn. Við fylgjumst með endalokum mann- kyns á jörðinni og upprisu lífs á ný í endalausri leit hins eilífa mannsanda að nýta það líf sem honum er gefið til góðs. Kreddulaus og sígildur boð- skapur. Cinderella er fyrsta bók Junko Mizuno sem kemur út á Vesturlönd- um. Bókin er stórkostlega súrrealísk útgáfa af Öskubuskusögunni klass- ísku. Cinderella er eins og barnaæv- intýri fyrir brjálæðinga þar sem upp- vakningar og afturgöngur koma í stað vondu stjúpmóðurinnar og stjúp- systranna. Sykursætur hryllingur og glassúrhjúpuð Lolituerótík gerir sög- una illskilgreinanlega; er hér um örg- ustu fullorðinsbókmenntir að ræða eða geta börn líka haft gaman af? Lýsir ekki skilningurinn á sögunni bara innræti lesandans? Tvímæla- laust nýstárlegasta saga ársins. New X-men eftir Grant Morrison eru í sérflokki í ofurhetjubransanum. Morrison hefur margoft sýnt fram á að hann er yfirburðarhöfundur í vest- rænum myndasögum í dag en með tölublaði 121 af New X-men hefur hann náð nýjum hæðum. Í samstarfi við teiknarann Frank Quitely skapar hann sögu sem fram fer algerlega án texta sem hækju fyrir lesendur. Vandmeðfarinn saga af hugsanaflutn- ingi verður deginum skýrari í þeirra öruggu höndum. Morrison kemur les- andanum sífellt á óvart með því að gera hluti í fyrsta skipti sem verða ekki gerðir betur í bráð. Hugmynda- auðgi á heimsmælikvarða. Brian Azzarello hefur hlotið mesta frægð fyrir harðsoðnar glæpasögur í 100 Bullets en á þessu ári var hans besta verk í Hellblazer framhaldssög- unni. Hinn sjarmerandi breski drullu- sokkur, John Constantine er í Banda- ríkjunum að gera út um óuppgerð mál í „rauðhnakkalandi“ Suðurríkjanna. Til að skilgreina færsluna yfir Atl- antshafið var bandaríkjamaðurinn Azarello fenginn vegna þekkingar sinnar á staðháttum. Þessi kafli í ævi- sögu Constantine kallast Highwater og þarf hann að kljást við bandaríska nýnastista með sínum vel þekkta masókisma. ,,Til hvers að pína aðrar ef þú getur fengið aðra til að pína þig“, gæti verið hans lífsmottó. Az- arello virðist skuggalega vel lesinn í heimspeki nýnasismans og rennur lesandanum kalt vatn milli skinns og hörunds þegar hann finnur fyrir lúmskum mikilfengleik nasistaáróð- ursins. Hrikalega þétt og grimm saga þar sem vonarglætan er nánast engin. Myndasögurnar hér á undan eru framúrskarandi dæmi um það sem út kom á síðasta ári og til marks um þró- un myndasögunnar í nýtt alþjóðlegt táknmál í bókmenntum. Höfundarnir á listanum eru breskir, bandarískir og japanskir en ekki má gleyma að fjöl- margir frábærir höfundar eru starf- andi um allan heim við að skapa sögur sem spanna allt litróf mannlegrar reynslu. Því til sönnunar get ég látið hér uppi að sú myndasaga sem mér þykir bera af öðrum á síðasta ári kem- ur frá jafn ólíklegum stað og frænd- þjóð okkar Norðmönnum. Hey, wait … eftir Jason kom reyndar fyrst út utan Noregs árið 2001 en hún barst ekki hingað til lands fyrr en á þessu ári þannig að hún telst með afla 2002. Hey, wait... er myndræn sálumessa þar sem bernskunni og fullorðinsár- unum er brugðið upp sem tveimur að- skildum heimum; öðrum björtum og áhyggjulausum en hinum dimmum og daufum þar sem fólk gengur um í full- komnum doða glataðra tækifæra. Sársauki persónanna verður ekki umflúinn og lesandinn er skilinn eftir í værukærri depurð sem mun heim- sækja hann aftur og aftur við ítrek- aðan lestur. Myndasaga ársins án nokkurs vafa. Myndasögur ársins 2002 Myndasaga ársins í þetta sinnið kemur frá Skandinavíu eins og lesa má um í uppgjöri Heimis Snorrasonar. Hey, wait … eftir Jason. „ÞAÐ er miklu meiri áhugi á þessu núna,“ segir Óskar Jón- asson, leikstjóri Áramótaskaups- ins. Ekki ætti það að koma á óvart í ljósi þess að Skaupið í fyrra þótti vel heppnað. Hreppti Óskar Edd- una fyrir besta leikna sjónvarps- verk ársins ásamt Hjálmari Hjálm- arssyni og Hallgrími Helgasyni. „Það var ákveðin undirbúnings- vinna frá því í fyrra, sem við þurftum ekki að endurtaka,“ segir Óskar og bætir við að samstarfið hafi gengið vel. „En þetta er allt annað ár og allt öðruvísi Skaup. Það er ekki verið að endursýna Skaupið frá því í fyrra,“ segir Óskar án þess að láta neitt uppi um innihaldið. Hann segir þetta afskaplega skemmtilegt form að vinna með. „Maður fylgist miklu betur með fréttum og reynir að sjá nýja fleti.“ Óskar segir að af nógu hafi ver- ið að taka. „Það eru þarna mál- efni, sem fá ekki að vera með vegna þrengsla,“ segir hann en er ósáttur við síðustu fréttir af frá- farandi borgarstjóra Reykavíkur. „Það var voða kvikindislegt af Ingibjörgu Sólrúnu að hætta svona rétt fyrir áramótin. Þetta gengur ekki. Hún gerir þetta ábyggilega bara til að sleppa við Skaupið. Þetta var eina gatið fyrir hana til þess.“ Áramótaskaupið er á dagskrá Sjónvarpsins klukkan 22.30 í kvöld. Algjör sveppur! Úr Áramótaskaupinu 2001. Áramótaskaupið 2002 Ósanngjarnt hjá Ingibjörgu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.