Morgunblaðið - 13.01.2003, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.01.2003, Qupperneq 21
kvaddi tóku karlarnir þéttingsfast um hrammana á honum. Konurnar horfðu í augu hans. Hann átti at- kvæði þeirra. Það fór ekki fram hjá mér. Tvö ein í bílnum á bakaleiðinni, oft seint á kvöldin, sat hann þögull og yrti ekki á mig. Hann svaraði ef ég spurði, en ég vildi ekki trufla hann of mikið. Var hann virkilega enn feim- inn við mig? Kosninganóttin er ógleymanleg. Gestir og gangandi streymdu inn í húsið okkar við Sund- stræti. Um það leyti sem sólin var að brjóta sér leið inn í stofuna og rækjubátarnir óðu hóstandi út fjörð- inn lágu úrslitin fyrir. Hannibal flaug inn á þing við annan mann. Það er ekki að spyrja að Vestfirðingum, þegar þeir taka sig til. Karvel, þessi elska, fylgdi með í kaupbæti. Hann náði vart andanum af spenningi fyrstu mínúturnar. En ég man ekki til þess, að Hannibal hafi sýnt nokk- ur viðbrögð. Hann var hvorki glaður né hryggur. Hann leyfði sér ekki þann munað að brosa til okkar hinna. Kannski var hann pínulítið hræddur innst inni. Hvernig ætlaði hann að launa þingsætið? Ég er ekki viss um, að hann hafi haft hugmynd um það á þessu augnabliki. Aftur fór Hannibal í hefðbundna vinstristjórn undir forystu Fram- sóknar og með Alþýðubandalaginu, sem hann hafði stofnað samtökin til að gera upp við. Sú stjórn tórði að- eins í þrjú ár. Hún fékk líka svipleg- an endi eins og sú fyrri. Ég hitti hann aldrei á þessum tíma. Árið 1974 var hann kallaður vest- ur til þess að taka við stjórn gagn- fræðaskólans á Ísafirði. Þá fannst mér hann orðinn gamall og þreyttur. Kannski líka vonsvikinn. Elli kerling var að ná tökum á honum. Mig lang- aði til þess, að börnin mín kynntust gömlu hjónunum, og bauð þeim oft heim. Það voru stundum erfið kvöld, því að ekki var margt sagt. Sólveig, tengdamóðir mín, var þó alltaf létt og kát, og átti gott með að halda uppi samræðum. Árið 1986 fagnaði Alþýðuflokkur- inn sjötíu ára afmæli sínu. Í tilefni þess tók ég viðtöl við Hannibal og fleiri, sem höfðu komið við sögu flokksins. Þessi viðtöl voru gefin út á myndbandi á afmælisárinu. Mér er það minnisstætt, að þegar kom að því að segja frá formannstíð Hannibals í Alþýðuflokknum brast gamli maðurinn í grát. Auðvitað var hann, þegar hér var komið sögu, far- inn að kröftum, lasinn og veikburða. En engu að síður með hýrri há, hafði enn skýra hugsun og mundi allt. „Ég var rekinn úr flokknum. Þeir út- hýstu mér, fordæmdu mig.“ Tárin streymdu, og hann barðist við að láta ekki tilfinningarnar bera sig of- urliði. Mig langaði líka til að gráta. Var þetta svona sárt, jafnvel eftir allan þennan tíma? Fyrir mér var þetta opinberun. Eitt andartak hafði ég fengið að skyggnast inn í sálar- kima tengdaföður míns. Ég hafði séð hann gefa sig tilfinningunum á vald, gráta eins og barn. Mér þótti vænna um hann fyrir vikið. Maðurinn, sem hafði bara tekið ofan og síðan látið sig hverfa, varð að víkja fyrir hinum, sem þorði að tjá tilfinningar sínar í stað þess að byrgja þær inni. Skömmu seinna sagðist hann vera þreyttur og vildi ekki tala lengur. Þau fátæklegu orð, sem hér eru fest á blað, eru svo sannarlega engin tilraun til að kveða upp neinn Salómonsdóm um stjórnmálamann- inn Hannibal, feril hans eða árangur í starfi. Þetta eru fáeinar svipmyndir af persónulegum samskiptum okkar frá seinni hluta æviskeiðs hans, eftir að leiðir okkar lágu saman um hríð fyrir hönd forlaganna. Kannski er þetta tilraun til að komast nær manninum sjálfum, sem hélt þó flestum sínum nánustu svo fjarri. Þessi upprifjun minnir mig á, að pólitíkin er harður húsbóndi. Rétt- irðu henni litla fingurinn gleypir hún þig alla. „Það sem þitt þrek hefur grætt – það hefur viðkvæmnin misst.“ Umdeildur stjórnmálamaður í fremstu röð, sem á í löngu og tví- sýnu stríði, verður að koma sér upp skráp, hörðum skráp, til þess að lifa af. Og hann verður að færa sínar fórnir möglunarlaust. Sú hamingja, sem flestir leita að, og sumir finna í faðmi fjölskyldu og vina, getur reynst utan seilingar, sem og sann- girni í dómum og velvild samferða- manna. Góðir stjórnmálamenn eru oftast nær dauðir stjórnmálamenn. Það leyndist held ég engum, sem kynntist Hannibal, að hann var at- gervismaður. Hann var einhver um- deildasti stjórnmálamaður á sinni tíð og löngum borinn þungum sökum af andstæðingum sínum. Samt held ég, að enginn hafi efast um, að það sem knúði hann til dáða var einlæg rétt- lætiskennd og vilji til að verða þeim að liði, sem stóðu höllum fæti í lífs- baráttunni á erfiðum tímum. Hann var einlægur jafnaðarmaður allt sitt líf, „allt hitt voru bara gárur á yf- irborðinu“ – eins og hann sagði sjálf- ur. Hjartað var gott, sem undir sló. Svo er annarra að dæma. Helsinki, Bryndís Schram. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 21 Ástkær eiginmaður minn, ÓLAFUR BERGMANN ELÍMUNDARSON frá Hellissandi, til heimilis í Stóragerði 7, Reykjavík, varð bráðkvaddur sunnudaginn 5. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 14. janúar kl. 13.30. Fyrir mína hönd, systkina og annarra vandamanna, Viktoría Daníelsdóttir. ✝ Gunnar Stur-laugsson Fjeld- sted fæddist í Reykjavík 18. febr- úar 1930. Hann and- aðist á Sjúkrahúsi Akraness 6. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Sturlaugur Lárusson Fjeldsted og Sigríður Jóna Gunnlaugsdótt- ir. Gunnar kvæntist Guðbjörgu Erlends- dóttur 1978. Þau slitu samvistum. Börn Gunnars eru: Þráinn, f. 4.12. 1950; Eygló, f. 20.2. 1952; Grétar, f. 5.3. 1970. Gunnar fór ungur til móðurafa og ömmu sinnar að Stúfholti í Holtum, þeirra Sigurlaugar og Gunlaugs. Gunnar stundaði mest sjómennsku og þá sem kokkur á fiskiskipum og far- skipum en síðari ár í landi. Útför Gunnars verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Gunni afi, við munum geyma minningu þína vel. Takk fyr- ir tímann sem við áttum saman. Máni og Húni Hilmarssynir. Elsku Gunni. Nú ertu farinn á betri stað. Við vorum búin að búa okkur vel undir för þína en samt er erfitt að kveðja þig að eilífu. Við eig- um svo margar góðar minningar um þig og þú munt alltaf lifa í huga okk- ar þar til við hittumst á ný. Elsku Gunni, megi guð geyma þig í ljósinu og hlýjunni og við kveðjum þig á þessari sorgarstundu. Óli, Björk og Hugi. Kæri vinur, það sem er nú einu sinni þannig þegar maður sest niður svo stuttu eftir að þú ert farinn er erfitt að setja niður á blað kveðjuorð til þín, það er erfitt að sætta sig við að sjá þig ekki hlæjandi með stríðn- isglampa í augunum og segja sögur á þinn hátt sem ekki er öðrum gefið. Það eru margar minningarnar sem við eigum hér á Langárfossi. Þú hafðir yndi af öllum dýrum þó hest- arnir hafi ávallt verið þitt mesta áhugamál og margan gæðinginn hafir þú átt og sýndir þú okkur oft hve óhræddur þú varst í nálægð þeirra. Nú finn ég angan löngu bleikra blóma, borgina hrundu sé við himin ljóma, og heyri aftur fagra, forna hljóma, finn um mig yl úr brjósti þínu streyma. Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu. Brosin þín mig að betri manni gjörðu. Brjóst þitt mér ennþá hvíld og gleði veldur. Þú varst mitt blóm, mín borg, mín harpa og eldur. (Davíð Stef.) Kæri Gunni, við þökkum þér fyrir allt á liðnum árum. Þökkum þér hversu duglegur þú varst í veikind- um þínum og starfsfólki E-deildar sjúkrahúss Akraness fyrir sérstaka umönnun. Hilmar og fjölskylda, Langárfossi. Margir gráta bliknuð blóm. Beygja sorgir flesta. Án þess nokkur heyri hljóm, hjartans strengir bresta. Valta fleyið vaggar sér votum hafs á bárum. Einatt mæna eftir þér augun, stokkin tárum. Enginn getur meinað mér minning þína að geyma. Kring um höll, sem hrunin er, hugann læt ég sveima. Það er ótrúlega erfitt að kveðja þig, elsku vinur, en þú ert ekki far- inn þótt líkaminn fari. Ég veit að þú ert hjá mér. En minningarnar geymi ég alla mína ævi í hjarta mínu. Guð blessi þig. Þín Sjöfn Hilmarsdóttir. Tendrast sól í sálu mér, sút í burtu strýkur. Ætíð mun ég þakklát þér, þar til yfir lýkur. Allar stundir okkar hér, er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér, fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Kæri Gunnar. Það er alltaf erfitt að horfa á eftir góðum vini. En minningin hverfur aldrei úr hjarta mínu og allt sem þú sagðir mér geymi ég vel og hugsa mikið um. Elsku Gunni, takk fyrir árin sem ég fékk að þekkja þig, þú fékkst mann alltaf til að brosa og lífsgleð- ina vantaði ekki. Ester Magnúsdóttir. GUNNAR STURLAUGSSON FJELDSTED Eiginmaður minn, faðir og afi, JÓN GUNNARSSON, lést á Landspítalanum föstudaginn 3. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey. Kristín Gunnlaug Friðriksdóttir, Margrét Jónsdóttir og barnabörn. ALDARMINNING Kveðja frá Inner- wheel, Akureyri Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. GUÐBJÖRG SIGURGEIRSDÓTTIR ✝ Guðbjörg Sigur-geirsdóttir fædd- ist í Reykjavík 7. febrúar 1924. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð á Akureyri 28. desember síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Ak- ureyrarkirkju 9. jan- úar. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Með þessu ljóði kveðjum við Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur en hún var einn af stofn- endum Inner-wheel- klúbbsins á Akureyri sem stofnaður var 7. október 1975. Með henni er horfin ein af þeim konum sem mótuðu okkar fé- lagsstarf. Hún var góður og dyggur liðsmaður og alltaf gott að leita til hennar í sambandi við þau störf sem klúbburinn sinnti. Við kveðjum elskulega vinkonu okkar með söknuði og þökkum henni vel unnin störf í þágu klúbbsins. Aðstandendum öllum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Guðbjargar Sigurgeirsdóttur. Inner-wheel-konur á Akureyri. Kvæðiskorn þetta fannst í fórum Sigríðar Valdemars- dóttur, sem lést fyrir rúmu ári; hafði verið skrifað aftan á síðu úr sendibréfi, sem Hannibal skrifaði móður sinni og systur, er hann dvaldi við nám í Johnstrup Statsseminarium á árunum 1924–27. Erindin eru augljóslega ort undir áhrifum hins vinsæla kvæðis Blessuð sértu sveitin mín og þótt þau muni ekki sæta tíðindum í bók- menntasögunni bera þau fagurt vitni einlægu sonarþeli til móð- ur og kærleik til systurinnar, sem sér um að halda sambandi yfir hafið, til hins unga sveins, sem við fátækleg efni er að reyna að brjótast áfram til mennta. Einnig sýna þau aðra hlið á hinum vígreifa pólitíska bardagamanni, en þá sem flestir þekktu, meðan hann stóð í orr- ustunni miðri. Mér þótti því vel til fundið að bjóða Morgun- blaðinu erindi þessi lítil tvö til birtingar á þessum degi. Ólafur Hannibalsson. Elskulega mamma mín meinabót, þá klökk er lundin, er að hugsa heim til þín, hugraun öll og sorg þá dvín. Þú ert stjarnan stærsta mín, er stend ég hér í efa bundinn. Elskulega mamma mín mjer á jörðu kærsta hrundin. Elsku Sigga systir mín sannar þakkir alla daga. Mörgu báru bréfin þín boð að heiman út til mín. Og þau hrestu eins og vín alla þá er harmar naga. Elsku Sigga systir mín sannar þakkir alla daga. Hanni. Til móður og systur AFMÆLIS- og minningar- greinum er hægt að skila í tölvu- pósti (netfangið er minn- ing@mbl.is), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða send- anda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minningar- greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.