Morgunblaðið - 13.01.2003, Page 22

Morgunblaðið - 13.01.2003, Page 22
MINNINGAR 22 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurður FriðrikJónsson fæddist á Grund í Svarfaðar- dal 12. október 1914. Hann lést á elliheimilinu Grund í Reykjavík 3. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Jón Þor- steinsson bóndi á Fagranesi á Langa- nesi en síðar á Syðri-Grund í Svarf- aðardal, f. 29. ágúst 1889, og Sigrún Sig- urðardóttir hús- freyja, f. í Tjarnargarðshorni í Svarfaðardal 12. júní 1891. Systk- ini Sigurðar eru Þorsteinn, f. 20. júní 1916, d. 2. júní 1993, Kristinn Karl, f. 22. febrúar 1918, Anna Jónína, f. 20. janúar 1920, Þor- björg Friðrikka, f. 13. september 1921, Sigríður Dagmar, f. 6. des- ember 1922, d. 5. maí 1983, og Júlía, f. 29. maí 1924. Hinn 17. október 1942 kvæntist Sigurður Magnhildi Sigurðardótt- ur, f. í Efstadal í Laugardal 4. desember 1922, en þau slitu sam- vistum 1971. Foreldrar hennar voru hjónin frá Efstadal Sigurður son, f. 18. febrúar 1950. Börn hennar eru Jóhann Pétur, Snorri, Birkir og Hlynur. 5) Jón bygging- artæknifræðingur, f. 8. desember 1957, kvæntur Jónínu Arnardótt- ur ljósmóður. Börn þeirra eru Heiða Rún og Ásta María. Börn hans eru Karen og Daði Rúnar. 6) Hilmar Steinar, viðskiptafræðing- ur og framkvæmdastjóri, búsettur á Seltjarnarnesi, f. 1. apríl 1963, kvæntur Þórdísi Sigurðardóttur flugumferðarstjóra, f. 20. nóvem- ber 1965. Börn þeirra eru Guð- björg, Jóhannes og Hildur Sif. Sigurður ólst upp í foreldrahús- um en lauk vélstjóraprófi á Ak- ureyri 1932 og búfræðiprófi frá Hólum í Hjaltadal 1938. Hann flutti til Reykjavíkur 1941 og vann meðal annars hjá breska hernámsliðinu þar til hann hóf nám við lögregluskólann í Reykjavík og lauk því 1942. Hann starfaði sem lögregluþjónn í Reykjavík frá 1. febrúar 1942, flokksstjóri frá 1. ágúst 1964 og lauk störfum þann 1. febrúar 1985. Sigurður starfaði eftir það í nokkur ár sem vaktmaður í Stjórnarráðinu. Sigurður dvaldi á elliheimilinu Grund í nokkur ár þar sem hann undi hag sínum ágætlega. Hann tók þátt í ýmsu félagsstarfi á Grund, t.d. kórsöng o.fl. Útför Sigurðar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Sigurðsson, f. 14. jan- úar 1879, d. 17. mars 1946, og Jórunn Ás- mundsdóttir, f. 5. október 1880, d. 11. júní 1970. Sigurður og Magnhildur eiga sex börn: 1) Júlíus pípulagningameistari, búsettur í Kópavogi, f. 5. febrúar 1943, kvæntur Jóhönnu Elly Sigurðardóttur verslunarmanni, f. 24. júlí 1943. Börn þeirra eru Ásgeir, Hildur, Júlíus og Davíð. 2) Sigurður verkfræðingur, búsettur í Garðabæ, f. 16. mars 1945, kvæntur Guðríði Einarsdóttur lyfsala, f. 2. nóvember 1948. Börn þeirra eru Svala Rún, Elísabet og Egill Ragnar. 3) Jórunn, SOS assistent hjúkrunarfræðingur, f. 22 janúar 1951, búsett í Kaup- mannahöfn, gift Sigurði K. Egg- ertssyni húsasmíðameistara, f. 20. febrúar 1949. Börn þeirra eru Sigurmundur, Steinunn Hildur og Sigurður Friðrik. 4) Sigrún hjúkr- unarfræðingur, f. 22. mars 1955, búsett í Bandaríkjunum, sambýlis- maður hennar er Gísli Már Gísla- Faðir minn Sigurður Friðrik Jóns- son lést á elliheimilinu Grund hinn 3. janúar sl. 88 ára gamall. Þrátt fyrir að þessi hrausti maður hefði staðið bærilega af sér allar þrautir ellinnar fram til þessa varð hann smátt og smátt að láta í minni pokann. Hann bar sig vel og talaði gjarnan eins og hann væri sjálfur ekki svona gamall og sannaði mál sitt er hann dreif sig síðastliðið sumar upp í flugvél eins og hver annar unglingur og flaug til Kaupmannahafnar til að heimsækja Unu dóttur sína og fjölskyldu henn- ar. Hann kom hress og kátur til baka eftir góða ferð. Hann fæddist á Grund í Svarfaðardal en ólst upp í föðurhúsum meðal annars á Syðri- Grund í Svarfaðardal, en þangað flutti fjölskyldan þegar hann var 14 ára gamall. Fjölskyldan hafði þá meðal annars búið á Blikalóni á Sléttu, Þórshöfn á Langanesi, Akur- eyri og nokkur ár á Fagranesi á Langanesi en flutti þaðan þegar aðr- ir ábúendur á Fagranesi brugðu búi og fluttu brott. Faðir minn undi hag sínum vel á æskustöðvum sínum í Svarfaðardal. Árið 1927 hafði fjölskyldan flutt að Blakksgerði í Svarfaðardal en sú jörð var við hliðina á Grund þar sem Sigurður Halldórsson, móðurlangafi minn, hafði búið. Í jarðskjálftanum 1934 eyðilögðust öll húsin í Blakks- gerði en fjölskyldan byggði strax ný hús rétt við hliðina neðan við veginn og var nýja húsið kallað Syðri- Grund. Jón bóndi afi minn stundaði sjó- mennsku með búinu þannig að þessi stóra fjölskylda hefði nóg. Faðir minn fylgdi fordæmi hans og tók vél- stjórapróf fyrir mótorbáta 18 ára gamall og stundaði sjómennsku með sveitastörfunum eftir það. Hann réð sig á ýmsa báta fyrir norðan en vegna ungs aldurs þurfti hann jafnan að fá undanþágu. Nokkrum árum síðar fór hann í búfræðinám í Hóla- skóla þar sem hann útskrifaðist 1938 með fyrstu einkunn sem búfræðing- ur. Miklar minningar tengdust Hóla- skóla og eignaðist faðir minn marga góða félaga meðan á náminu stóð. Fjöldi félaga hans við skólann skráði þakkir sínar um góðar samveru- stundir í bundnu og óbundnu máli í sérstaka minningabók hjá föður mín- um þegar skólagöngunni lauk 1938. Í þessa minningabók skrifaði meðal annars einn góður skólabróðir hans: Vel þér gangi vinur minn vina skaltu njóta, alltaf vertu umvafinn örmum fríðra snóta. Guð þig leiði um gæfustig góða líðan njóttu, blíður drottinn blessi þig bæði dag og nóttu. Til Reykjavíkur kom hann 1941 og hóf fyrst störf hjá Bretanum en gekk stuttu síðar í lögregluna í Reykjavík þar sem hann starfaði yfir 40 ár. Mikil vinna var og urðu mikil um- skipti hjá fólki eins og föður mínum sem kom bláfátækt úr sveitum landsins til að vinna sér inn peninga. Sigurður kynntist móður minni Magnhildi stuttu síðar og giftu þau sig hinn 17. október 1942. Gífurlegur húsnæðisskortur var í Reykjavík á þessum tíma og bjuggu þau hjón á nokkrum stöðum í bænum við mikil þrengsli þar til þau eignuðust loks íbúð á Snorrabraut 35. Þetta var ný íbúð í íbúðablokk sem lögreglumenn byggðu saman. Börnin, sem urðu alls sex, komu eitt af öðru og fjölskyldan stækkaði og 1954 var enn flutt í nýtt og stærra húsnæði í Skaftahlíð 29 sem faðir minn byggði einnig í sam- starfi við félaga sína í lögreglunni. Launin í lögreglunni voru lág og varð fólkið að vinna myrkranna á milli til að láta enda ná saman. Mennirnir unnu mikið sjálfir að byggingu húsa sinna og húsmæðurn- ar saumuðu fötin heima á börnin og allt var sparað til heimilisins. Með ýtrustu sparsemi og mikilli nýtni gat fjölskyldan komið upp mjög vænlegu húsi yfir höfuðið þrátt fyrir hin þröngu kjör Sigurðar í lögreglunni. Faðir minn gerði sér sjaldan daga- mun þar sem mest af tímanum fór í að vinna. Hann gaf sér þó tíma til að koma upp litlu sumarhúsi í Kópavogi um 1950 þar sem ég og eldri bróðir minn áttum góða daga við leik úti í náttúrunni. Ég fór oft einn með föð- ur mínum þegar hann var að vinna við þetta sumarhús og var annað- hvort farið á reiðhjóli frá Snorra- braut 35 eða labbað á Miklatorg og tekinn Hafnarfjarðarstrætó suður í Kópavog og síðan gengið frá Hafn- arfjarðarveginum suður Kársnesið. Um þetta litla sumarhús eru mjög góðar minningar um samverustund- ir okkar fjölskyldunnar. Einstaka sinnum var einnig farið með fjöl- skylduna í smáferðir út úr bænum, til dæmis í berjamó eða að heim- sækja ættingja í sveitinni, og var ferðinni þá yfirleitt heitið austur í Laugardal þar sem voru æskustöðv- ar móður minnar. Faðir minn og Sig- urður bóndi voru ágætir mátar og þótti föður mínum gott að komast í sveitina þar sem hann gat rifjað upp ýmislegt frá árum sínum í Svarfað- ardalnum og bændaskólanum á Hól- um í Hjaltadal. Það var ekki fyrr en seinna sem ég áttaði mig á því hvað hann varð innilega afslappaður í sveitinni og sýndi öllum sveita- umsvifunum mikinn áhuga. Þarna átti hann greinilega heima. Ég man sérstaklega eftir þegar hann tók heljarmikinn heyvagn hjá Sigurði bónda og lagfærði eitthvað eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Hann hafði einnig gaman af því að veiða og fór einstaka rjúpnaveiði- ferðir með félögum úr lögreglunni auk þess sem ég og bróðir minn fór- um einnig eitt sinn með honum. Þetta voru góðir tímar til að spjalla og gönguferðirnar voru afslappandi. En lífið á mölinni virtust vera þau ör- lög sem honum voru ætluð. Hann saknaði lögreglustarfanna eftir að hann fór á eftirlaun og fór oft að hitta gamla kunningja og fá sér að borða hjá lögreglunni. Þegar hann var kominn á elliheim- ilið Grund átti hann það til að ræða um gamla tíma og voru frásagnirnar þá yfirleitt um sjóferðir hans á vél- bátum frá Dalvík eða Akureyri. Nokkrum sinnum kom það fyrir að bátar sem hann átti að fara með fóru án hans af einhverjum ástæðum en síðan lentu þessir bátar í hrakning- um eða sukku. Þetta var honum sér- staklega minnisstætt og sagði hann meðal annars frá einu þessara atvika í viðtali við Heimilisblaðið á Grund þar sem hann sagði einnig frá reynslu sinni af jarðskjálftanum á Dalvík 1934. Þetta sjóslys var sama árið og jarðskjálftinn á Dalvík og varð þegar danska skipið Dronning Alexandrine sigldi niður bátinn Brúna frá Akureyri. Í því slysi drukknaði Júlíus frændi okkar og minntist faðir minn oft á Júlíus í gegnum lífið auk þess sem hann hafði ætíð mynd af Júlíusi frænda uppi á vegg. Þeir félagar á elliheim- ilinu Grund héldu hópinn stundum er ferðinni var heitið á söngæfingu og létu vita með einföldum skilaboðum ef einhver hafði ekki skilað sér. Ég sá eitt sinn umslag hjá honum þar sem einn félagi hans þar hafði skilið eftir skilaboð til hans: „Ég er uppi að syngja, Siggi.“ Þegar hann varð 85 ára var haldið kvöldverðarboð hjá Hilmari bróður þar sem föður mín- um og Þorbjörgu systur hans var boðið til að gera sér smádagamun í tilefni dagsins. Þar tók hann lagið fyrir okkur og söng eins og Svarf- dælingum einum er lagið. Ljóðið og söngurinn lifðu því með honum eins lengi og heilsan leyfði. Minningin um góðar stundir lifir og lífið sjálft er oft ekki annað en minning um dásamlega tíma og sam- verustundir við vini og vandamenn sem falla til hér og þar. Megi Guð fylgja þér til nýrra heima og hafðu miklar þakkir fyrir allar samveru- stundirnar. Sigurður Sigurðsson. SIGURÐUR FRIÐRIK JÓNSSON ✝ Jóhanna GuðrúnDavíðsdóttir fæddist á Patreks- firði 3. september 1920. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 4. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Sesselja Sveins- dóttir, f. 25. september 1892, d. 11. maí 1985, og Dav- íð Friðlaugsson, f. 20. ágúst 1885, d. 15. júlí 1934. Bræður Jó- hönnu eru: Kristján, f. 1917, kona hans er Svanhildur Björnsdóttir, og Sveinn, f. 1927, kona hans er Guðrún Björnsdóttir. Hinn 7. október 1942 kvæntist Jóhanna Pétri Hafliða Ólafssyni sjómanni, f. 10. febrúar 1920. Pét- ur er ættaður frá Svefneyjum á Breiðafirði. Jóhanna og Pétur 2.2) Jóhanna Ágústa, h.m. Jóhann Tómasson, þeirra dætur Hulda Hanna, Andrea og Thelma Lind. 3.2) Ásdís, h.m. Sigurbjörn Ófeigur Hallgrímsson, þeirra synir Eiður Aron, Theodór og Marteinn. 4.2) Erla. 3) Hafliði, f. 22. júní 1945, d. 2. des. 1982, k.h. var Vigdís Sigurð- ardóttir, þeirra dætur; 1.3) Jónína Sigríður, h.m. Cody Hammond, 2.3) Berglind, h.m. Jón Freyr Eg- ilsson. 4) Hugrún, f. 29. okt.1950, h.m. Marteinn Geirsson, þeirra börn; 1.4) Margrét, h.m. Brynjólfur Hilmarsson og eiga þau dótturina Rakel. 2.4.) Pétur Hafliði, k.h. Unnur Anna Valdimarsdóttir. 3.4) Íris Dögg. 5) Pétur Kúld, f. 28. febrúar 1953, k.h. Anna S. Einars- dóttir, þeirra dætur; 1.5.) Ásdís Björk, h.m. Jóhann Þórarinsson og eiga þau dótturina Fanneyju Lind. 2.5) Dagmar. 6) Ólína Björk, f. 13. desember 1956, hennar synir; 1.6.) Hafliði Þór, 2.6.) Davíð Ágúst, 3.6.) Ólafur Alex. Jóhanna bjó nú síðast á Hrafn- istu í Reykjavík. Útför Jóhönnu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Davíð, f. 14. sept. 1940, d. 24. des. 1973, k.h. var Hrefna Guðmunds- dóttir, hún er látin, þeirra synir: 1.1) Guð- mundur Árni, k.h. Gígja Harðardóttir og eiga þau tvær dætur, Hrefnu og Petru. Fyr- ir átti Guðmundur synina Davíð sem á einn son, Ólaf Árna, og Agnar Má. 2.1) Sig- urður, k.h. Ingunn Viðarsdóttir; börn Pétur Hafliði, Davíð, Viðar og Silja Sif. Einnig átti Davíð fósturdóttur, Helgu Magnúsdóttur. 2) Hrefna, f. 2. okt. 1943, m.h. var Sveinjón Björnsson. Þeirra börn eru: 1.2) Hafþór, k.h. Elsa Jensdóttir, þeirra dætur Tinna María og Alexandra, einnig á Hafþór soninn Kristján. Elsku besta amma mín. Þú varst svo falleg kona, ekki bara að utan heldur varstu líka með svo fallegt hjarta og þú vildir hreinlega öllum vel. Samt sem áður varstu ákveðin og hreinskilnari manneskju held ég að ég hafi bara aldrei kynnst. Ég er svo þakklát fyrir allar þær stundir sem ég hef átt með þér, þá sérstaklega síðastliðna fimm mánuði þar sem ég fékk að kynnast þér svo vel, og sjá hvað þú varst rosalega sterkur persónuleiki og alltaf jákvæð. Ég hef lært svo margt af þér. Bæði það sem þú kenndir mér meðvitað og síðan einnig það sem þú kenndir mér ómeðvitað og því mun ég aldrei gleyma, enda tel ég að þú hafir kennt mér að verða að betri manneskju. Það er mjög sárt að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að hittast aftur og spjalla saman og gera eitt af því sem þér þótti svo kært, það er að segja að hlusta á útvarpið og þá helst á klassíska tónlist. Elsku amma mín, ég sakna þín svo sárt og það er svo tómlegt hérna án þín, það hjálpar þó að vita að þér líður vel og þú ert komin til Sellu ömmu og hefur fengið að hitta drengina þína aftur sem þú hefur saknað svo mikið, þá Davíð og Hafliða. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér, það er svo margt. Elska þig svo mikið. Sofðu rótt, þar til við hittumst á ný. Þín Íris Dögg. Elsku Hanna amma, eins og við barnabörnin kölluðum þig. Núna ert þú hjá Sellu ömmu, Davíð og Halla og ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér. En elsku amma, þegar ég horfi til baka til þess þegar ég var barn og unglingur var ég mikið hjá þér og afa og á ég þér mikið að þakka, minningar sem ég geymi í hjarta mínu. Guð geymi þig og varðveiti, elsku amma mín. Þinn Hafþór. Langamma mín var mjög góð kona. Hún var góð við alla sem voru í kringum hana og öllum leið vel hjá henni. Ég sakna Hönnu ömmu minn- ar mjög mikið og vildi að hún væri hjá mér. Það er sorglegt að hún dó en ég veit að henni líður vel, því hún er núna hjá Guði. Ég held að hann passi fólkið í Nangíala eins og í bókinni Bróðir minn Ljónshjarta. Þegar mamma og pabbi sögðu mér að Hanna amma væri dáin um miðja nótt sagði ég að hún hefði örugglega vaknað í Kirsuberjadal í Nangíala undir fallegu tré með blóm allt í kringum sig og að þar væri hún búin að hitta mömmu sína og pabba og drengina sína sem dóu. Rakel Brynjólfsdóttir. JÓHANNA G. DAVÍÐSDÓTTIR Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN E. KRISTJÁNSSON kaupmaður, Skólagerði 6, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu- daginn 13. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Hulda Klein Kristjánsson, Sóphus Klein Jóhannsson, Áslaug Ingólfsdóttir, Ottó R. Jóhannsson, Elín M. Jóhannsdóttir, Bergrún Sigurðardóttir, Brynja Jóhannsdóttir, Rúnar Gíslason, Pálmey Jóhannsdóttir, Niels Krogh Andersen, Hjördís Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.