Morgunblaðið - 13.01.2003, Síða 32

Morgunblaðið - 13.01.2003, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6, 8 og 10. DV Sýnd kl. 5.45. Yfir 55.000 áhorfendur Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i. 12. H.K. DV GH. VikanSK RadíóX SV. MBL GH. Kvimyndir.com Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.10. Robert DeNiro, Billy Crystal og LisaKudrow(Friends) eru mætt aftur í frábæru framhaldi af hinni geysi vinsælu gamanmynd Analyze This. Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. H.TH útv. Saga. HL MBL Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6. ísl tal. E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I DV Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI / / / ÁLFABAKKI AKUREYRI Sýnd kl.4, 6, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 8. / / / /                                                     ! "#$  % &#'(() *+  ,! -  !!. # !/ 0'#   # ! 12# ! 3    45!!  % 3    45!!  %  ,66( 1 78 3    45!!  % " '2 3.!# ,2  9#  # !/ 1  : ''! ; <  = ' '/(  => -/! -#( - ! ,/''#$ <' ,.# 2# ?  " . 1##( ,  " ! 1  ,!  ! 9!!'  # ( , 8 , 8 , 8 , ( )@  , ( )@  , 8 , ( )@  , 8 , 8 # ( = (:' , ( )@  , ( )@  , 8 , 8 , ( )@  , 8 , ( )@  , 8   ,@' '! (       3# . / 8 (!  :  '  +>A  '  , 8  #  '  <  2       MARGIR unnendur Hringadróttins- sögu hafa ugglaust velt því mjög fyrir sér hvort lengri útgáfa eigi eftir að koma út af Tveggja turna tali á mynd- diski líkt og Föru- neyti hringsins. Svarið er að svo mun vera. Peter Jackson leikstjóri myndanna lýsti því yfir í viðtali á dögunum og sagði sérstaka mynd- diskaútgáfu, sem kemur út í nóvember, verða góðum hálftíma lengri en sú útgáfa sem nú er sýnd í bíó. „Þar á meðal eru nokkur mögnuð atriði. Eitt er með Káti, Pípin og Trjáskeggi, nokkur með Gollri sem voru mjög nærri því að enda í aðal- útgáfunni.“ Bardagaatriðin eiga þar að auki eftir að verða ítarlegri og um leið afdráttarlausari. „Við klipptum atriðin til fyrir bíóútgáfuna svo mynd- in félli innan ramma PG-13 aldurstak- marksins (bönnuð börnum yngri en 13 ára). En atriðin sem við tókum voru mun grófari, hausar og útlimir fjúka og blóðið streymir. Þetta eru at- riði sem við tókum út fyrir bíóútgáf- una en verður aftur bætt inn fyrir mynddisksútgáfuna, enda verður R stimpill á henni (bönnuð börnum yngri en 17 ára nema í viðurvist full- orðinna).“ Biðin hefst núna. Turnarnir lengj- ast á mynddiski Hausar munu fjúka á mynd- diskaútgáfu Turnanna. ÞRIÐJA myndin í röð hinna geysivinsælu gamanmynda um Austin Powers hefur verið sölu- hæsti mynddiskurinn síðustu tvær vikurnar. Þarf það vart að koma á óvart því myndböndin um njósnarann illtennta hafa selst óvenjuvel enda eru myndirnar þess eðlis að þeir sem á annað borð kunna að meta þær geta horft á þær aftur og aftur. Menn í svörtu, önnur mynd, seldist næstmest síðustu vikuna en þar fer vönduð útgáfa smekk- full af aukaefni. Sjónvarpsþættirnir um Vinina hafa gengið vel á mynddiskum og koma þrisvar við sögu á lista vik- unnar, enda njóta þættirnir því- líkra vinsælda að margir unnend- ur þeirra eru ekki í rónni fyrr en þeir hafa eignast þá alla. Svo er athyglisvert mjög að sjá þrjá íslenska mynddiska á listan- um, Sódómu Reykjavík, Með allt á hreinu, og Engla alheimsins, en allar eiga þær líka sameiginlegt að vera meðal þeirra íslensku mynda sem mesta aðsókn hafa fengið í bíó. Reuters Austin Powers og Foxxy Cleopatra þurfa að glíma við óþokka frá Niðurlöndum í Goldmember. Austin Powers með gullið ÞÓTT lítið hafi borið á þessum fyrrverandi myndbandaleigu- starfsmanni þá er alls ekki svo langt síðan allt hring- snerist í kringum Quentin Tarant- ino, og um hann var rætt sem bjargvætt kvikmynda- listarinnar. En svo lét hann sig hverfa, næstum sporlaust, og und- anfarið fjögur ár höfum við lítið ann- að haft upp úr krafsinu en misvís- andi og -langsóttar getgátur um hver verði hans næstu skref og þá í hvaða átt þau verða. Nú loksins síðla þessa árs kom það svo á daginn að hann stefndi í austurátt því næsta mynd hans Kill Bill, sem frumsýnd verður í október á þessu ári, mun gerast að stórum hluta í austurvegi og vera einhvers konar óður til gömlu kung-fu myndanna. Myndin mun skarta fríðum hópi leikara en í þeim helstu verða Uma Thurman, David Carradine, Daryl Hannah og Michael Madsen. Það fer vel á að nú þegar Tarant- ino er að vakna á ný til lífs að minnt sé á snilli kauða og það rækilega. Þannig hefur Miramax tekið sig til og gefið út tvær síðustu myndir hans, hinar margrómuðu Jackie Brown og Pulp Fiction á mynddiski, í sérstökum tveggja diska „safnara- útgáfum“. Útgáfa þessi hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir vegleg- heit og vandaðan frágang og hafa báðar myndir sést á listum yfir fram- bærilegust mynddiskaútgáfu síðasta árs. Enda ekki nema von því auk myndanna sjálfra – sem þarf vart að mæra enn fremur en þegar hefur verið gert – þá er aukaefnið nær óþrjótandi og þar að auki með fróð- legra móti. Svo er það náttúrlega allt saman alveg ofursvalt og móðins rétt eins og Tarantino og myndirnar hans. Auk upplýsandi heimildarmynda eru það vafalítið klipptu atriðin sem mesta forvitni vekja, þær senur sem Tarantino lét flakka. Má þar nefna mun lengra atriði með Vincent (John Travolta) og dópsalanum (Eric Stoltz), viðtal sem Mia (Uma Thur- man) tekur upp við Vincent og varp- ar skýrara ljósi það sem gerist seinna í myndinni, atriði með Dick Miller sem Monster Joe, rulla sem alfarið var klippt út. Í Jackie Brown er m.a. að finna auglýsinguna óborg- anlegu Chicks With Guns í fullri lengd en afgangsefnið á báðum út- gáfum er vel yfir 30 mínútur að lengd. Þótt finna megi á diskunum viðtöl við Tarantino um gerð myndanna þá innihalda þeir ekki hinar hefð- bundnu skýringar á hverju atriði fyrir sig, eins og algengt er orðið. Í staðinn er hægt að velja með mynd- unum skýringartexta sem birtist á meðan horft er á þær og gerir grein fyrir öllu mögulegu og mismikilvægu sem fyrir sjónir ber. Um miðbik síðasta árs kom síðan út 10 ára afmælisútgáfa af Reservoir Dogs, sem kannski ekki hefur verið látið eins vel með, en er þó samt fylli- lega þess virði að bæta í safnið, þó að ekki væri nema fyrir myndina sjálfa sem hefur hvergi nærri tapað þýð- ingu sinni. Fyrst Tarantino er til umfjöllunar er ekki úr vegi að geta þess að nýver- ið kom einnig út safnaraútgáfa af From Dusk Till Dawn, blóðslettu- myndinni sem hann skrifaði og lék í á móti George Clooney og vinur hans Robert Rodriguez leikstýrði. Á þeim myndiski er að finna allt þetta hefð- bundna; heimildarmyndir, þ.á m. eina um blóðslettumyndir almennt og samband þeirra við Hollywood, auk hellings af afgangssenum. Með Jackie Brown blés Tarantino nýju lífi í feril gömlu götumynda- leikkonunnar Pam Grier. Tarantino-veisla á mynddiskum Reyfarakaup Skarphéðinn Guðmundsson Safnaraútgáfur af Pulp Fiction, Jackie Brown og From Dusk Till Dawn eru komnar í verslanir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.