Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.01.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2003 33 Roger Ebert Kvikmyndir.is HL MBL E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I Hún var flottasta pían í bænum Sýnd kl. 5 Ísl. tal. / Sýnd kl. 6 og 9.15 enskt tal. / Sýnd kl. 5 Ísl. tal. Vit 468  1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 5, 7, 8, 9 og 11. / Sýnd kl. 10. / Sýnd kl. 8 . / Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 / 7, 9, 10.10 og 11.15. / Sýnd kl. 8 og 10. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.45, 8 og 10.15. B. I. 16. Robert DeNiro, BillyCrystalog LisaKudrow(Friends) eru mætt aftur í frábæru framhaldi af hinni geysivinsælu gamanmynd AnalyzeThis. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI Sýnd kl. 3.45 íslenskt tal. / Sýnd kl. 4, 5 og 6 íslenskt tal. / Sýnd kl. 6 íslenskt tal. ÁLFABAKKI AKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI / KEFLAVÍK Á laugardagskvöldið var haldin sannkölluð dansveisla á Broadway á vegum sjónvarpsþáttarins The Lick sem sýndur er á MTV-sjónvarps- stöðinni. Kynnir þáttarins og stjórn- andi veislunnar var Trevor Nelson sem hélt uppi fjörinu ásamt skífu- þeytunum DJ Dodgeand og DJ Hani. Fyrir hönd Íslands komu fram tví- burasysturnar Brynja og Drífa sem skipa hljómsveitina Real Flavaz og síðan XXX Rottweilerhundar. Búið var að lofa óvæntum gesti og var hann hljómsveit sem kallar sig Des- ert Eagle Disc og er frá Bretlandi. Fæstir könnuðust við þessa hljóm- sveit en það hafði engin áhrif á mannskapinn og var henni vel fagn- að. Eftir að hljómsveitirnar höfðu lokið sér af tóku plötusnúðar völdin og dansað var fram á rauða nótt. Morgunblaðið/Árni Torfason Eins og hér sést var stemmningin góð á Broadway á laugardag. Trevor Nelson sá um að halda uppi fjörinu. Hann er jafnframt þáttar- stjórnandi The Lick. Morgunblaðið/Árni Torfason Real Flavaz-tvíburasysturnar voru flottar á sviðinu á laugardaginn. The Lick-dansveisla á Broadway SAMTÖKIN Bíó Reykjavík stóðu fyrir kvikmyndamaraþoni í Loftkast- alanum um helgina. Sýndar voru allar myndir leikstjórans Stanley Kubrick en hann hefur gert stórmyndir á borð við A Clockwork Orange og The Shin- ing. Veislan hófst klukkan 22 á föstudag og með sýningu þriggja stuttmynda meistarans sem eru mjög sjaldan sýndar. Í beinu framhaldi var sýnd myndin Fear and Desire sem er fyrsta mynd Kubrick í fullri lengd. Sú mynd var týnd í marga áratugi sökum þess að Kubrick lét brenna öll nær eintök af myndinni vegna fullkomn- unaráráttu sinnar. Maraþonið stóð yf- ir í rúmar 33 klukkustundir og lauk snemma morguns á sunnudag. Hætta þurfti við nokkrar myndir sem sýna átti vegna þess að ekki fékkst leyfi til sýninga. Aðstandendur létu það þó ekki á sig fá og hófst maraþonið á til- settum tíma að viðstöddu fjölmenni. Morgunblaðið/Árni Torfason Slakað á milli mynda. Fólk á öllum aldri mætti á maraþonið í Loftkast- alanum, margir með svefnpoka. Kubrick í Loft- kastalanum BRESKA rokkstjarnan Pete Townshend, gítarleikari The Who, hefur játað að hafa greitt fyrir að- gang að barnaklámi á Netinu en seg- ir það hafa verið í þágu herferðar gegn barnaklámi. Townshend harð- neitar því að hann sé barnaníðingur. Townshend segist hafa verið liðs- maður herferðar gegn barnaklámi á Netinu sem hafi fjarað út. Blaðið Daily Mail skýrði frá því á laugar- dag að bandarísk lög- regla hefði í framhaldi af því að hafa upprætt hring sem seldi barna- klám á Netinu afhent breskri lögreglu lista með 7.000 manns sem orðið hefðu sér úti um barnaklám á Netinu og hlaðið myndum niður á tölvur sínar. Þar á með- al væri heimsþekktur breskur tónlistarmaður. Með nafnalistanum fylgdu kreditkortanúmer tölvupóst- föng og aðrar upplýsingar. Townshend, sem er 57 ára og kvæntur tveggja barna faðir sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið sem birt var í heild sinni á fréttavef BBC í gær. Í henni viðurkennir Towns- hend að hafa einu sinni notað kred- itkort til að greiða fyrir aðgang að barnaklámi á Netinu. „Ég gerði það eingöngu til að sjá hvað á henni væri. Ég ræddi við lögmann eftir á og greindi honum frá því sem ég sá.“ Townshend segist ennfremur hafa gert grein fyrir þessum athugunum á heimasíðu sinni á Netinu auk þess sem hann hefði gert lögreglu viðvart. „Mér finnst ég hafa verið beittur kynferðislegu ofbeldi sem barn og ég var að gera rannsóknir því tengdar. Ég hef verið að rita ævisögu mína og rannsóknin var í þágu bókargerðar- innar,“ bætir hann við. Í fréttum BBC í gær var greint frá því að athæfi Townshend lýsti dómgreindarleysi „í besta falli“ að mati „The Internet Watch Foundation,“ samtaka sem berjast gegn út- breiðslu barnakláms á Netinu. Segja þau að bæði yfirvöld og fjöldi samtaka berjist gegn barnaklámi. Það sé ekki til stuðnings þeirri baráttu að ein- staklingar taki málin í sínar hendur og brjóti lög. Townsend telur sig hins vegar hafa gert þetta í þágu samtaka eins og IWF. Breska lögreglan sinnir nú um- fangsmestu rannsókn sinni á barna- klám og barnaníði á Netinu, undir heitinu „Aðgerðin málmgrýti.“ Til þessa hafa um 1.300 manns verið handtekin í tengslum við rannsókn- ina, þar á meðal dómarar, lögfræð- ingar, tannlæknar, læknar og að- stoðarskólastjóri. Ennfremur hafa 50 breskir lögreglumenn flækst í netið og átta þeirra þegar verið ákærðir. Townshend segist ekki vera barnaníðingur Pete Townshend

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.