Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
2003 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
UPPSÖGNIN KOM KEVIN GRANDBERG MJÖG Á ÓVART / C3
Óánægður með
skipulagsleysi HM
„STAÐAN er fullkomlega óþolandi, ég hef sjald-
an eða aldrei lent í öðru eins,“ segir Morten Stig
Christiansen, íþróttafréttastjóri dönsku sjón-
varpsstöðvarinnar TV2 um þá staðreynd að ekki
hefur enn verið raðað niður og tímasettir leikir í
milliriðlum heimsmeistaramótsins í handknatt-
leik. „Það er innan við vika í að mótið hefjist og
við höfum aðeins tímasetningar á leikjum í riðla-
keppninni,“ segir Christiansen, en stöð hans hef-
ur sýningarrétt frá leikjum heimsmeistaramóts-
ins í Danmörku. Christiansen segir stöðuna vera
óþolandi því það verði að raða niður dagskrá
stöðvarinnar og það sé útilokað að vera að
hringla með hana fram á síðustu stundu. Þá sé
staðan ekki síður óþolandi gagnvart auglýsend-
um. „Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu, þetta er
hreinlega fyrir neðan allar hellur því þarna er á
ferð heimsmeistarakeppni.“
ÓLAFUR Ingi Skúlason knatt-
spyrnumaður sem er á mála hjá
enska meistaraliðinu Arsenal, er
kominn til Noregs þar sem hann er
til reynslu hjá norska úrvalsdeild-
arliðinu Sogndal.
Ólafur Ingi verður við æfingar
hjá Sogndal í vikutíma og er ráð-
gert að hann spili með liðinu æf-
ingaleik á móti Brann um næstu
helgi. Sogndal hafnaði í fjórða
neðsta sæti í norsku úrvalsdeildinni
á síðustu leiktíð en liðið hefur rokk-
að á milli úrvalsdeildarinnar og
þeirrar fyrstu undanfarin ár.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
segist reiðubúinn að lána Ólaf Inga
sem geti þannig öðlast reynslu með
því að spila í aðalliði.
Arsenal keypti Ólaf Inga frá
Fylki árið 2001. Hann lék fyrst með
unglingaliðinu og varð enskur
meistari með því í fyrra, en færðist
upp í varaliðið í haust og skoraði
m.a. mark þess í 1:1 jafntefli á móti
Watford í nóvember síðastliðnum.
ÓVÆNT úrslit urðu í 2. umferð á
opna ástralska meistaramótinu í
tennis í fyrrinótt þegar Rússinn
Jevgeni Kafelnikov, sigurvegari frá
árinu 1999, tapaði fyrir lítt þekktum
Finna, Jarkko Nieminen. Finninn
vann tvö fyrstu settin 6:3 en þá
hrökk Kafelnikov í gang og vann tvö
næstu, 3:6 og 4:6. Flestir reiknuðu
með því að þar með væri Finninn all-
ur en svo reyndist ekki vera. Niem-
inen vann síðasta settið, 6:1, og
tryggði sér þar með sæti í 3. umferð-
inni en þetta er í annað sinn sem
hann tekur þátt í ástralska mótinu.
Kafelnikov var í hópi þeirra tenn-
isleikara sem taldir voru eiga mögu-
leika á sigri á mótinu en hann varð
eins og áður segir meistari 1999 og í
öðru sæti árið eftir.
Karlpeningurinn sem fylgist með
mótinu varð fyrir áfalli þegar rúss-
neska kynbomban Anna Kournikova
var slegin út í 2. umferð. Kourni-
kova, sem réð sér ekki fyrir kæti
þegar henni tókst loks að komast
áfram úr 1. umferðinni á stórmóti,
steinlá fyrir Justine Henin-Har-
denne, 6:0 og 6:1.
Venus Williams, sem í öðru sæti á
styrkleikalista mótsins á eftir Ser-
enu, átti ekki í vandræðum með
löndu sína, Ansley Cargill, og sigraði
í tveimur settum, 6:3 og 6:0.
Reuters
Bandaríska stúlkan Venus Williams fagnar sigri á Ansley Car-
gill í annarri umferð opna ástralska meistaramótsins í tennis.
Lítt þekktur Finni
stal senunni
Grænlendingar hafa tilkynnt 16 manna landsliðsitt sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í
Portúgal sem hefst í næstu viku, en Grænlend-
ingar eru m.a. í riðli með Íslendingum og mætast
þjóðirnar í keppninni næstkomandi þriðjudag.
Sjö leikmenn grænlenska liðsins leika með
dönskum félagsliðum, sjö með liðum í heimaland-
inu, einn spilar í Noregi og einn með þýska ann-
arrar deildarliðinu Gelnhausen, Hans Peter Motz-
feldt, sem í eina tíð lék með FH-ingum.
Landslið Grænlendinga er skipað eftirtöldum
leikmönnum, landsleikir þeirra eru innan sviga;
markverðir eru Ulrich Winther-Hansen, Heimdal
í Noregi (46), Niels Davidsen, Nagdlunguak á
Grænland (23), Ivik Ostermann, NuK á Grænlandi
(8).
Aðrir leikmenn: Rasmus Larsen, GOG í Dan-
mörku (53), Jakob Larsen, GOG í Danmörku (47),
Siverth Johansen, Ikast í Danmörku (17), Niels
Poulsen, Ikast í Danmörku (24), Piitaraq Rosbach,
HF Odense í Danmörku (17), Hans Knudsen,
K-1933 á Grænlandi, (34), Ingo Hansen, HF
Odense í Danmörku (19), Peter Sikemsen, HF
Odense í Danmörku (46), Finn Nielsen, NuK á
Grænlandi, (45), Carsten Olsen, SAK á Græn-
landi, (43), Peter Frederik Olsen, Nagdlunguak á
Grænlandi (27), Kim Hougaard, SAK á Grænlandi
(42), Hans Peter Motzfeldt, Gelnhausen í Þýska-
landi (49). Landsliðsþjálfari Grænlendinga er
Daninn Sören Hildebrandt.
Níu leika utan Grænlands
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu er í 61. sæti á nýjum styrk-
leikalista Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins sem gefinn var út í
gær. Íslendingar hafa fallið niður
um þrjú sæti en þeir voru í 58. sæti í
síðasta mánuði.
Staðan á toppnum hefur lítið
breyst og sex efstu þjóðirnar á list-
anum eru þær sömu og fyrir mán-
uði. Brasilía er í efsta sæti og á eftir
koma Frakkland, Spánn, Þýska-
land, Argentína og Holland. Tyrk-
land fer upp um tvö sæti og er í sjö-
unda sæti á listanum, England í
áttunda, Mexíkó í níunda sæti og
Bandaríkin í því tíunda.
Danir eru í tólfta sæti og eru efst-
ir af Norðurlandaþjóðunum, Svíar
skipa 24. sæti, Norðmenn 25. sæti,
Finnar 43. sæti og Færeyingar eru í
116. sæti.
Afganistan, sem lék sinn fyrsta
landsleik í 20 ár, skipar síðasta sæt-
ið á styrkleikalistanum – er í 204.
sæti.
Ísland
fellur um
þrjú sæti
SKÍÐASTÖKKVARAR frá Þýska-
landi, Finnlandi, Póllandi, Japan og
Noregi hafa hótað því að mæta ekki
til leiks í næstu heimsbikarkeppnir
þar sem þeir hafa enn ekki fengið að
nota sams konar keppnisbúninga og
landslið Austurríkis hefur notað í
vetur. Búningur Austurríkismanna
þykir einstakur hvað varðar loftafls-
fræðilega hönnum og hefur skilað
þeim sem hann nota miklum árangri.
Búningurinn er hins vegar illfáan-
legur og Austurríkismenn hafa ekki
verið viljugir til þess að gefa upp
„leyndarmálið“ á bak við hönnunina.
Forsvarsmenn keppenda frá áður-
nefndum þjóðum eru ekki sáttir við
stöðu mála og hafa hótað því að að-
eins keppendur frá Austurríki taki
þátt í næstu keppnum.
Í reglugerðum Alþjóðaskíðasam-
bandsins, FIS, kveður hins vegar á
um það að allir keppendur hafi sama
rétt til þess að nota nýjasta búnaðinn
hverju sinni. Næsta keppni fer fram
um næstu helgi og hefur FIS verið
tjáð að gera út um málið fyrir þann
tíma, því annars verði fámennt í
þeirri keppni.
Skíða-
stökkvarar
í verkfall?
Ólafur Ingi
til reynslu
hjá Sogndal
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
STÓRIÐJA AFLABRÖGÐ FISKVEIÐAR
Sitt hefur sýnst hverjum
í umræðunni um arð-
semi væntanlegrar
Kárahnjúkavirkjunar.
Krókaaflamarksbátarnir
hafa veitt vel það sem
af er þessu fiskveiðiári,
alls 15.509 tonn.
Arngrímur Brynjólfsson,
skipstjóri á Vilhelm,
hefur verið fengsæll á
loðnunni nú í janúar.
ÁHÖLD/6 AUKINN/8 STEFNUM/12
LÍFEYRISSJÓÐIR heimsins töpuðu
1.400 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta
ári, eða sem svarar til um 112.000 milljarða
íslenskra króna, samkvæmt rannsókn ráð-
gjafarfyrirtækisins Watson Wyatt. Í Fin-
ancial Times kemur fram að sumir sjóðanna
séu afar illa staddir vegna tapsins, sem staf-
ar af verðlækkun á mörkuðum heimsins. Líf-
eyrissjóðirnir hafa lækkað síðustu þrjú árin
og samanlögð lækkun hefur numið jafnvirði
um 216.000 milljarða króna. Lækkunin í
fyrra var 11%, 7% árið 2001 og 3% árið 2000.
Haft er eftir yfirmanni hjá Watson Wyatt
að eignarýrnun sjóðanna á síðasta ári sé
meiri en nokkru sinni fyrr. Þessi lækkun,
ásamt auknum skuldbindingum sjóðanna,
ylli því að skuldbindingar umfram eignir
næmu nú 200.000 milljörðum króna.
Þegar lífeyrissjóðirnir náðu hámarki árið
1999 voru eignir þeirra metnar á um
1.080.000 milljarða króna og höfðu þá tvö-
faldast á sjö árum. Í lok síðasta árs voru um
864.000 milljarðar í lífeyrissjóðum heimsins.
F J Á R M Á L
Lífeyrissjóð-
ir heimsins
stórtapa
BANDARÍSKA lágvöruverslunarkeðjan
Kmart, sem fékk greiðslustöðvun fyrir ári,
mun segja allt að 35 þúsund starfsmönnum
upp á næstunni og loka 326 verslunum.
Stjórnendur fyrirtækisins vilja með þessa
reyna að koma í veg fyrir gjaldþrot þess.
Greint var frá þessu á vefriti BBC í gær.
BBC segir að hörð samkeppni frá keppi-
nautunum Wal-Mart og Target hafi dregið
úr möguleikum Kmart á að bæta rekstur-
inn, og sumir greinendur á markaði telji að
það muni ekki takast. Sala fyrirtækisins í
desembermánuði síðastliðinum hafi verið
5,7% minni en í sama mánuði árið áður.
Þá kemur fram hjá BBC að Kmart verði
væntanlega tekið til rannsóknar vegna
gruns um að stjórnendur hafi dregið sér
milljónir Bandaríkjadala áður en sótt var
um greiðslustöðvun.
Í mars 2002 var 22 þúsund starfsmönnum
Kmart sagt upp og 283 verslunum lokað.
Kmart segir upp
35 þúsund
starfsmönnum
HAGNAÐUR hjá stærstu fyr-
irtækjum Kauphallar Íslands
dregst saman um 35%–42% á milli
áranna 2002 og 2003 samkvæmt
spám greiningardeilda Búnaðar-
bankans, Íslandsbanka og Kaup-
þings um afkomu fyrirtækjanna
þessi ár.
Búnaðarbankinn spáir fyrir um
afkomu 25 fyrirtækja og sam-
kvæmt spám bankans verður
hagnaður þeirra 44,6 milljarðar
króna á síðasta ári en 27,7 millj-
arðar króna á þessu ári, sem er
38% lækkun milli ára.
Spá Íslandsbanka nær til 26 fyr-
irtækja og samkvæmt henni
minnkar hagnaður þeirra úr 45
milljörðum króna í 26 milljarða
króna milli ára, eða um 42%.
Í spá Kaupþings eru 23 fyrir-
tæki og lækkar hagnaðurinn úr
42,8 milljörðum króna í 27,9 millj-
arða króna milli ára, eða um 35%.
Verðlagning markaðarins
Þessi lækkun hagnaðar sem spáð
er að verði milli ára stafar aðallega
af töluverðum gengis- og sölu-
hagnaði á síðasta ári. Þannig segir
greiningardeild Búnaðarbankans
að gengishagnaður fyrirtækjanna
25 í fyrra sé áætlaður um 14 millj-
arðar króna, söluhagnaður Baugs
vegna sölu á hlut í Arcadia hafi
verið 8 milljarðar króna og sölu-
hagnaður Landsbankans vegna
sölu á hlut í Vátryggingafélagi Ís-
lands hafi verið 1 milljarður króna.
Greining Íslandsbanka gerir
ráð fyrir að framlegð aukist úr
9,5% í 10,5% á milli ára og að
hækkunin skýrist annars vegar af
því að rekstrareiningar með háa
framlegð, sem aðeins hafi gætt að
hluta í fyrra, komi að fullu fram á
þessu ári. Í því sambandi er bent á
að Delta er komið inn í samstæðu
Pharmaco og að sjávarútvegsstoð
hefur orðið til innan Eimskipa-
félagsins. Hins vegar skýrist
hækkunin af því að vænst sé tals-
verðs bata á milli ára eftir afar
slæmt ár í fyrra og eru fyrirtækin
Baugur og Marel nefnd í því sam-
bandi. Þegar leiðrétt hafi verið
fyrir þessum þáttum megi sjá að í
nokkrum tilfellum sé gert ráð fyrir
að framlegð versni eða standi í
stað milli ára.
Greiningardeild Búnaðarbank-
ans telur að fyrirtæki á íslenskum
hlutabréfamarkaði séu almennt
tiltölulega lágt verðlögð. Við matið
á verðlagningu á markaðnum er
reiknuð svokölluð innri ávöxtunar-
krafa fyrirtækjanna og hún borin
saman við fyrri ár og ávöxtunar-
kröfu á skuldabréfamarkaði.
Greining Íslandsbanka segir að
almennt sé ekki að vænta veru-
legrar hækkunar á verði hluta-
bréfa í Kauphöllinni á næstu mán-
uðum. Ávöxtun verði tæplega
svipuð því sem var á síðasta ári,
þegar Úrvalsvísitalan hækkaði um
tæp 17%, og spáð er um 10%
ávöxtun á íslenska hlutabréfa-
markaðnum á árinu.
Greining Íslandsbanka segir
ennfremur að ólíkt því sem verið
hafi í upphafi síðasta árs séu nú fá
áberandi góð kauptækifæri á
hlutabréfamarkaðnum. Þó beri að
líta til þess að framundan sé nokk-
urra ára samfellt hagvaxtarskeið
ef af stóriðjuframkvæmdum verði
og að reynslan sýni að slíkar að-
stæður séu til þess fallnar að ýta
undir verð hlutabréfa auk þess
sem aðgangur að fjármagni til ým-
iss konar útrásar- og umbreyting-
arverkefna verði auðveldari. Hag-
stæðari markaðsaðstæður gætu
jafnvel haft í för með sér að ný fé-
lög veltu fyrir sér skráningu í
Kauphöll Íslands.
Sameiningar
í fjármálageira
Fjármálafyrirtæki, bankar og
tryggingafélög vega þyngst í Úr-
valsvístölu Kauphallar Íslands.
Greiningardeild Búnaðarbankans
telur líklegt að ytra umhverfi
bankanna verði stöðugt á þessu ári
ólíkt því sem verið hafi undanfarin
ár og að ekki sé óvarlegt að áætla
að einhverjar breytingar verði í
rekstri Landsbanka og Búnaðar-
banka í kjölfar einkavæðingar
þeirra. Greining Íslandsbanka tel-
ur líklegt að viðskiptabankarnir
muni skila ávöxtun umfram mark-
aðinn, en það fari helst eftir þeirri
stefnu sem framfylgt verði eftir
einkavæðingu bankanna tveggja.
Greiningardeild Kaupþings seg-
ir að vegna einkavæðingarinnar
megi búast við að landslagið í fjár-
málageiranum verði nokkuð annað
en verið hafi og að mikið sé rætt
um hugsanlegar sameiningar inn-
an hans.
Hagnaður dregst saman
um 35%–42% milli ára
Skýringin á minni hagnaði er aðallega mikill gengis- og söluhagnaður á síðasta ári
Morgunblaðið/Ómar
Framlegð fyrirtækja mun aukast milli ára samkvæmt spá Íslandsbanka.
Miðopna: Áhöld um arðsemi og áhættu
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 28
Erlent 14/16 Minningar 29/32
Höfuðborgin 17 Brids 33
Akureyri 18 Bréf 36
Suðurnes 19 Kirkjustarf 37
Landið 19 Dagbók 38/39
Neytendur 20 Fólk 40/45
Listir 21/22 Bíó 42/45
Umræðan 23/29 Ljósvakamiðlar 46
Forystugrein 24 Veður 47
* * *
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
FULLTRÚAR Landsvirkjunar og þrír hagfræð-
ingar sátu fyrir svörum á fundi með öllum borg-
arfulltrúum Reykjavíkur á fundi í Ráðhúsinu í gær.
Rætt var um umhverfismál, arðsemi og ábyrgðir
sem Reykjavíkurborg þarf að gangast undir.
Á fundinum voru Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, og nánir samstarfsmenn hans,
Sigurður Ármann Snævarr borgarhagfræðingur
auk hagfræðinganna Þorsteins Siglaugssonar og
Þórólfs Matthíassonar.
Strax að fundinum loknum hófst aukafundur
borgarráðs þar sem beiðni Landsvirkjunar, um að
Reykjavíkurborg gangist í ábyrgðir vegna lána fyr-
ir Kárahnjúkavirkjun, var vísað til borgarstjórn-
arfundar sem hefst klukkan 14 í dag. Í gær gerði
Steinunn Valdís Óskarsdóttir grein fyrir afstöðu
sinni til ábyrgðarinnar. Þar með er afstaða allra
borgarfulltrúanna ljós.
Of mikil óvissa
„Ég ætla mér ekki að samþykkja þetta,“ sagði
Steinunn Valdís í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég er búin að fara mjög rækilega yfir þetta mál og
sannfærðist í rauninni endanlega um þetta í dag [í
gær] eftir fundinn með fulltrúum Landsvirkjunar
og hagfræðingunum.“ Að hennar mati ríkir of mikil
óvissa um margt varðandi arðsemi Kárahnjúka-
virkjunar. Í svokallaðri eigendaskýrslu sé t.d. ekki
lagt mat á líkurnar á að álverð lækki og að stofn-
kostnaðurinn hækki. Telur Steinunn Valdís veru-
legar líkur á að áætlanir um stofnkostnað standist
ekki. Máli sínu til stuðnings bendir hún á að um-
fangsmiklar samgönguframkvæmdir í Noregi hafi
að meðaltali farið um 33% fram úr áætlun. Í skýrsl-
unni sé heldur ekki lagt mat á líkurnar á því að
stofnkostnaður virkjunarinnar fari fram úr áætlun.
Hún hafi auk þess áhyggjur af því að draga verði
verulega úr opinberum framkvæmdum þegar
framkvæmdir við virkjunina hefjast af fullum
krafti. Óhjákvæmilega verði að slá á frest
ákveðnum stórverkefnum í Reykjavík, t.d. Sunda-
braut sem sé mikið hagsmunamál Reykvíkinga og
þjóðarinnar allrar. Aðspurð hvort umhverfissjón-
armið hafi haft áhrif á afstöðu hennar segir Stein-
unn Valdís: „Sem einstaklingur er ég í hjarta mínu
á móti þessu út frá umhverfissjónarmiðum. En í
borgarstjórninni á morgun tek ég ekki afstöðu til
umhverfisþáttanna því Reykjavíkurborg er að
ábyrgjast þetta sem eigandi. Ég er umhverfis-
verndarsinni í hjarta mínu en það ræður ekki að
öllu leyti för í þessu tilviki.“
Níu–fimm
Steinunn varð síðust borgarfulltrúa til að gera
opinbera afstöðu sína til ábyrgðanna. Liggur nú
fyrir að níu borgarfulltrúar eru því fylgjandi að
Reykjavíkurborg gangist í ábyrgðir, þrír fulltrúar
Reykjavíkurlistans og sex fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins. Andvígir eru fimm, fjórir fulltrúar R-
listans auk fulltrúa F-lista. Einn borgarfulltrúi R-
listans situr hjá.
Ákvörðun um ábyrgðir
tekin í borgarstjórn í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi og Friðrik Sophusson forstjóri við upphaf fundar í gær.
ARNAR Guðmundsson, skólastjóri
Lögregluskóla ríkisins, staðfesti við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að skóla-
vist nýnemans Svavars Vignissonar
hefði verið afturkölluð vegna handar-
brots, sem hann hlaut í handknattleik
síðastliðinn föstudag. Arnar segir
ekki um brottvikningu úr skólanum
að ræða enda hafi Svavar ekki brotið
af sér í námi á neinn hátt. Ákvörðun
sín sé byggð á því að Svavar geti ekki
tekið þátt í starfi skólans handarbrot-
inn. Í umræddum leik braut Svavar
þrjú handarbaksbein, fór úr lið á fjór-
um fingrum og reif liðbönd í hand-
arbaki. Þannig útleikinn getur hann
ekki verið með í náminu að sögn Arn-
ars, enda þurfa nemendur að leysa
verkefni daglega sem krefjast góðs
líkamlegs ástands. Meiðslin hafi upp-
götvast fyrsta kennsludag skólans og
hafi þá orðið ljóst að Svavar uppfyllti
ekki skilyrði um líkamlegt ástand.
Aðspurður sagði Arnar það ekki hafa
komið til greina að Svavar færi í veik-
indaleyfi, enda lögregluskólinn ólaun-
aður skóli. Próf hæfust eftir fjóra
mánuði og fyrirséð að Svavar yrði í
gifsi svo vikum skipti. Því hafi ekki
verið um annað að ræða en að aft-
urkalla skólavistina.
Svavar vildi ekki tjá sig um málið
þegar Morgunblaðið leitaði eftir því
við hann í gær.
Skólavistin aft-
urkölluð vegna
handarbrots
SKARFAR eru algengastir á lágum hólmum eða eyjum
í Breiðafirði en þeir eru líka gjarnan við Faxaflóa og
þessir undu sér vel á skeri við Hafnarfjörð í gær. Fyrir
áhugamenn má geta þess að toppskarfur er nokkru
minni og grennri en dílaskarfur en fullorðinn díla-
skarfur í varpbúningi er með hvíta kverk og vanga.
Morgunblaðið/Ómar
Rólegir skarfar á skeri
KJÚKLINGABÚIÐ Móar hf.
fer fram á að greiðslustöðvun
fyrirtækisins verði framlengd
um þrjá mánuði. Beiðnin
verður tekin fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag.
Móar fengu upphaflega
greiðslustöðvun 27. desember
sl. og rennur hún út í dag.
Kristinn Gylfi Jónsson,
stjórnarformaður Móa, segir
að samkvæmt venju sé
greiðslustöðvun fyrst veitt til
þriggja eða fjögurra vikna en
síðan framlengd. Tímann eigi
að nota til að ná nauðasamn-
ingum við lánardrottna og
afla nýs hlutafjár.
Fyrirtækið skuldar rúm-
lega 1,44 milljarða en bók-
færðar eignir eru 1,09 millj-
arðar.
Vilja
lengri
greiðslu-
stöðvun
VIRKJUN MÓTMÆLT
Fullt var út úr dyrum á borg-
arafundi sem haldinn var í Borg-
arleikhúsinu í Reykjavík í gærkvöldi
undir yfirskriftinni „Leggjum ekki
landið undir – það tapa allir á Kára-
hnjúkavirkjun“. Fyrr um daginn
efndu virkjanaandstæðingar til mót-
mælastöðu við Lagarfljótsbrú og
einnig var mótmælt við Alþing-
ishúsið í Reykjavík. Í dag tekur
borgarstjórn Reykjavíkur ákvörðun
um þær ábyrgðir sem Reykjavík-
urborg þarf að gangast undir vegna
lána fyrir Kárahnjúkavirkjun.
Lyfin dýrari á Íslandi
Verulegur munur er á lyfjaverði
hér á landi og í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð. Hefur hækkun lyfja-
verðs og aukin notkun lyfja valdið
37% hækkun á lyfjakostnaði Lands-
spítala – háskólasjúkrahúss en út-
gjöld spítalans vegna lyfjakaupa
voru um 2,3 milljarðar króna í fyrra.
Borgaryfirvöld gagnrýnd
Embætti borgarlögmanns segir
að ekki hafi verið gætt lagaskilyrða
við útgáfu byggingarleyfis fyrir fjöl-
býlishúsið í Suðurhlíð 38. Embættið
gagnrýnir umfjöllun borgaryf-
irvalda um málið en þau veittu leyfi
fyrir hærra húsi en samþykkt deili-
skipulag heimilaði.
Rússar vilja eldflaugavarnir
Rússar hafa áhuga á að þróa eld-
flaugavarnarkerfi eins og Banda-
ríkjamenn. Sergei Ívanov, varn-
armálaráðherra Rússlands, segir þó
ljóst að verkefnið muni taka mið af
efnahagsaðstæðum í landinu.
Minni hagnaður
Hagnaður hjá stærstu fyrirtækj-
um Kauphallar Íslands dregst sam-
an um 35%–42% á milli áranna 2002
og 2003 samkvæmt spám greining-
ardeilda Búnaðarbanka, Íslands-
banka og Kaupþings. Skýrist þetta
aðallega af miklum gengis- og sölu-
hagnaði á síðasta ári.
Áhugi fyrir EXPO
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir áhuga fyrir hendi hjá íslensk-
um stjórnvöldum að taka þátt í
heimssýningunni EXPO 2005 en hún
verður haldin í Japan. Það þyrfti þó
helst að gerast í samvinnu við hin
Norðurlöndin og eru viðræður nú í
gangi um þetta efni.