Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 31
Ástkær bróðir okkar og frændi, KARL GEORG GUÐMUNDSSON frá Svarthamri, verður jarðsunginn frá Súðavíkurkirkju laugar- daginn 18. janúar kl. 14.00. Stella Guðmundsdóttir, Andrea Guðmundsdóttir, Kristinn Jónsson, Ingimar Guðmundsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Róbert Sigurjónsson, Ásta Guðmundsdóttir, Viktoría Guðmundsdóttir og frændsystkin. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 31 ✝ Kristjana Gunn-arsdóttir fæddist í Reykjavík 30. apríl 1938. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi við Hringbraut 6. jan- úar. Foreldar Krist- jönu voru Gunnar Leó Þorsteinsson, málarameistari frá Ólafsvík, f. 31.7. 1907, d. 7.7. 1989, og Guðmunda Sveinsdóttir, hús- móðir frá Hafnar- firði, f. 5.12. 1908, d. 7.8. 1996. Kristjana giftist 2.8. 1957 Guð- mundi Sigurðssyni leigubíl- stjóra, f. 28.5. 1929, d. 9.9. 1990. Börn Kristjönu og Guðmundar Sigurðssonar eru: 1) Örn Leó Guðmundsson, f. 25.6. 1956, starfar við sölu- og markaðsmál, kvæntur Elísabetu M. Þorsteins- dóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvær dæt- ur, Rakel Kristjönu og Leu Margréti. 2) Guðmundur Leó Guðmundsson, f. 7.5. 1959, húsasmið- ur, sambýliskona hans er Milla Gunn- arsdóttir, fulltrúi á skrifstofu, og börn þeirra eru Gunnar Jökull Guðmunds- son og Silja Jenný Guðmundsdóttir, af fyrra hjónabandi á hann tvær dætur, þær Lindu Karen og Evu Maren Guðmundsdætur. 3) Geir Leó Guðmundsson, f. 24.12. 1968, sölumaður, börn hans eru Eðvarð Leó og Líney Lea. Seinni maður Kristjönu er Guðmundur G. Pétursson öku- kennari, f. 12.8. 1925. Útför Kristjönu fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku mamma, í dag kveðjum við þig og göngum með þér hinsta spöl- inn. Það er með miklum söknuði að við setjum hér á blað hugsanir okkar við ótímabært andlát þitt. Við rifjum upp góða tíma þegar við bræðurnir vorum litlir drengir. Við fórum á sumrin suður í Hafnir að Kalmanstjörn til dvalar yfir helgi eða lengur. Þá var pabbi með í för með vindilinn sinn og góða skapið. Þetta voru skemmtilegir tímar sem við áttum með ykkur. Það er einnig mjög minnisvert þegar við fluttum af Njálsgötunni upp í Hraunbæ, þú varst svo glöð að komast úr litlu íbúðinni í þessa fínu íbúð í Árbænum. Föðurhúsin í Kjósinni voru alltaf mjög ofarlega í huga þínum enda voru foreldrar þínir búsettir þar. Þær voru ófáar ferðirnar sem þú og pabbi fóruð með okkur strákana í heimsókn til afa og ömmu á Tind- stöðum. Á þessum tíma varst þú byrjuð að finna til veikinda sem áttu eftir að aukast og verða þér erfið til æviloka. En þú barst þig alltaf vel og við mun- um alltaf dást að styrk þínum. Þú áttir svo marga góða eiginleika og hæfileika sem við fengum að njóta. Allt sem þú bjóst til var fallegt og voru jólaskreytingarnar þínar sann- kölluð listaverk. Það má segja að við bræðurnir vorum þínar ær og kýr. Ef einhver okkar kom ekki eða hringdi nánast daglega þá varst þú orðin óróleg og með áhyggjur hvort ekki væri allt í lagi hjá okkur. Svo þegar ömmu- börnin fóru að fæðast tóku þau við. Þó að þú værir sárlasin var alltaf það fyrsta sem þú spurðir hvort ekki væri allt í lagi með börnin. Og þú vildir vita hvernig gengi, áhugi þinn fyrir velferð barnanna var okkur svo dýrmætur. Það er einhvern veginn tómarúm í hjörtum okkar allra eftir að þú ert farin, elsku mamma. Við biðjum Guð að blessa Guðmund Pét- ursson, sem var ekki bara eiginmað- ur þinn heldur líka þinn besti vinur og félagi. Þið gátuð talað saman um heima og geima og var hann þín stoð og stytta í veikindum þínum allt þar til yfir lauk. Fyrir það erum við þakk- lát. Við söknum þín öll, elsku mamma, og geymum minninguna um þig í hjörtum okkar. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. (Úr 23. Davíðsálmi.) Örn, Guðmundur, Geir og fjölskyldur. KRISTJANA GUNNARSDÓTTIR Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Látið minninguna lifa um ókomna tíð á gardur.is! upplýsingar í síma 585 2700 eða hjá útfararstjórum. gardur.is Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐBJÖRN ÞÓRHALLSSON, Kirkjugötu 3, Hofsósi, verður jarðsunginn frá Hofsósskirkju laugar- daginn 18. janúar kl. 14.00. Svanhildur Guðjónsdóttir, Ingi Friðbjörnsson, Rósa Eiríksdóttir, Helga Friðbjörnsdóttir, Páll Dagbjartsson, Fanney Friðbjörnsdóttir, Árni J. Geirsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir, Ingibjörg R. Friðbjörnsdóttir, Ingimar Jónsson, Anna Lilja Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HÓLMFRÍÐUR HILDIMUNDARDÓTTIR, Dvalarheimilinu Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 18. janúar kl. 14.00. Kristinn B. Gestsson, Ingveldur Sigurðardóttir, Ingibjörg Gestsdóttir, Gísli Birgir Jónsson, Þórhildur Halldórsdóttir, Jónas Gestsson, Elín S. Ólafsdóttir, Ólafía S. Gestsdóttir, Þórður Á. Þórðarson, Hulda Gestsdóttir, Brynja Gestsdóttir, Ævar Gestsson, Alma Diego, Júlíana K. Gestsdóttir, Hermann Bragason, Hrafnhildur Gestsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær móðir mín, amma og langamma, AÐALHEIÐUR ÁRNADÓTTIR, Hjallabraut 5, Hafnarfirði, lést mánudaginn 13. janúar. Jónhildur Guðmundsdóttir, Guðmundur Helgi Önundarson, Íris Ósk Kristjánsdóttir, Aðalheiður Rut Önundardóttir, Örvar Karlsson, Sverrir Stefán Sigurjónsson og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÞORLEIFSDÓTTIR, Hátúni 7, Keflavík, er látin. Ólafur Eyjólfsson, Bergþóra Jóhannsdóttir, Geir Eyjólfsson, Sigríður Ingólfsdóttir, Margrét Eyjólfsdóttir, Daníel Eyjólfsson, Hugrún Eyjólfsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Helga Hildur Snorradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg frænka mín og systir okkar, LOVÍSA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Hlíðarenda, Ísafirði, Frakkastíg 23, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 17. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Félag nýrnasjúkra, sími 561 9244. Þorgerður Arnórsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Ásta Jónsdóttir og aðstandendur. AFMÆLIS- og minningargrein- um er hægt að skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir minningar- greinar er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birt- ist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetr- ar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan út- förin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Þar sem pláss er tak- markað getur þurft að fresta birt- ingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.