Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 35
Morgunblaðið/Jón Svavarsson STARFSMENN Skeljungs fagna því að 75 ár eru liðin frá því að Hf.Shell á Íslandi, forveri Skelj- ungs hf., var stofnað árið 1928. Á afmælisdaginn bauð Skeljungur starfsmönnum og mökum þeirra til hátíðar í Borgarleikhúsinu þar sem m.a. voru veittar starfsald- ursviðurkenningar. Meðal þeirra sem heiðraðir voru var Þórdís Sig- tryggsdóttir sem starfað hefur hjá Skeljungi í 45 ár. Á myndinni tek- ur Þórdís við verðlaunum úr hendi Kristinns Björnssonar forstjóra. Í tilefni tímamótanna efnir Skeljungur til sérstakrar afmæl- isviku á Shell-stöðvunum dagana 14.–19. janúar þar sem við- skiptavinum bjóðast margvísleg afmælistilboð sem fela í sér af- slætti frá venjulegu verði. Þeir Fagna 75 ára af- mæli Shell sem kaupa eldsneyti taka þátt í skafmiðahappdrætti þar sem 7.500 vinningar verða í boði, þar á með- al veglegur ferðavinningur, segir í fréttatilkynningu. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 35 Verð kr: 9.900.- Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-58145% staðgreiðsluafsláttur -Gæðavara! Verð kr: 8.900.- Verð kr: 7.900.- Verð kr: 6.200.- Verð kr: 4.900.- Verð kr: 7.300.- Verð kr: 10.500.- Verð kr: 11.500.- Verð kr: 12.500.- Snyrtitaska BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 • FAX: 562 3025 E-MAIL: holt@holt.is • http://www.holt.is F I S K I D A G A R Verð aðeins: 2.600 kr. Matreiðslumeistarar á Holtinu töfra fram veislumáltíð úr íslensku sjávarfangi, fersku hráefni sem á sér enga hliðstæðu að gæðum. Þríréttaður sjávarmatseðill Njótið þess besta sem íslensk náttúra og íslensk matargerðarlist hafa að bjóða - í hlýlegu umhverfi á Hótel Holti. Borðapantanir í síma 552 5700. SJÁVARFANG Í HÁDEGINU ÚT JANÚAR Þorrablót Kvæðamannafélagsins Iðunnar verður haldið í félagsheim- ili Valsmanna að Hlíðarenda laug- ardaginn 18. janúar kl. 20. Hagyrð- ingar félagsins leiða saman hesta sína og kvæðamenn kveða gömul rímnalög, Hallgerður Gísladóttir fjallar um matinn sem gestum verð- ur boðið uppá. Steindór Andersen kveður rímnalög við undirleik Mon- iku Abendroth á írska hörpu. Heið- ursgestur kvöldsins er Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætis- ráðherra. Guðmundur Haukur leik- ur fyrir dansi. Veislustjóri og kynnir er Guðmundur Andri Thorsson. Þeir sem áhuga hafa fyrir gamalli menn- ingararfleifð eru boðnir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Slitgigtarnámskeið hjá Gigt- arfélagi Íslands er að hefjast þar sem áhersla er lögð á þætti sem tengjast því að lifa með slitgigt. Um er að ræða þrjú kvöld, einu sinni í viku og byrjar námskeiðið þriðju- daginn 21. janúar kl. 20 og er haldið í húsnæði félagsins í Ármúla 5, ann- arri hæð. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um sjúkdóminn, einkenni hans, meðferðarmöguleika og áhrif á daglegt líf, mikilvægi þjálfunar, slökun. Leiðbeinendur á námskeið- inu verða Helgi Jónsson gigtarsér- fræðingur, Erna Jóna Arnþórsdóttir sjúkraþjálfari, Svala Björgvinsdóttir félagsráðgjafi og Anna Ólöf Svein- björnsdóttir iðjuþjálfi. Upplýsingar og skráning á námskeiðið er á skrif- stofu félagsins. Á NÆSTUNNI Norðurgröf á Kjalarnesi Rangt var farið með bæjarnafn í frétt af hrossaskít á jörð í grennd við Leirvogsá í blaðinu í gær. Heitir bærinn sem um ræðir Norðurgröf og tilheyrir jörðin Kjalarnesi en ekki Mosfellsbæ eins og staðhæft var í fréttinni. Er beðist velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð í Norðausturkjördæmi opnar fyrstu kosningaskrifstofu sína í dag, fimmtudaginn 16. janúar, kl. 20 í Hafnarstræti 94 (Sporthúsinu) á Akureyri. Af því tilefni verður gestum boðið upp á veitingar og létta dagskrá. Þingmennirnir Stein- grímur J. Sigfússon og Þuríður Backman verða viðstödd opnunina. Einnig verður opnuð ljós- myndasýningin ,,Landið sem hverf- ur“ eftir þá Jóhann Ísberg og Frið- þjóf Helgason. Sýningin stendur yfir í þrjár vikur og verður opin virka daga kl. 16–18 og um helgar kl. 11–14. Laugardaginn 18. janúar kl. 11 verður fyrsti laugardagsfundur VG í Norðausturkjördæmi. Sigurbjörg Árnadóttir, ráðgjafi og leið- sögumaður, hefur framsögu og kynnir græna ferðaþjónustu. Allir velkomnir. Landsþing Ungra jafnaðarmanna verður haldið helgina 24.–26. jan- úar nk. á Selfossi. Landsþing Ungra jafnaðarmanna fer með æðsta vald í málefnum ungliða- hreyfingar Samfylkingarinnar og hafa félagsmenn aðildarfélaga sam- takanna rétt til að sitja lands- þingið. Frekari upplýsingar um landsþingið má nálgast á vefriti Ungra jafnaðarmanna, politik.is. STJÓRNMÁL ALLAR götur frá því að Hafskip hf. var lýst gjaldþrota árið 1985 hafa fyrrverandi starfsmenn skipafélags- ins sáluga komið saman í upphafi nýs árs til að rifja upp gamlar minningar frá dögum félagsins og fagna nýju ári. Þrátt fyrir að árin séu orðin 18, frá því að Hafskip hætti að sigla um heimsins höf fyrir íslensku þjóðina, þá halda fyrrverandi starfsmenn enn hópinn. Samkoman í ár verður haldin föstudaginn 17. janúar n.k. í Geirsbúð Naustsins og hefst klukkan 17:00. Allir fyrrverandi starfsmenn Haf- skips, til sjós og lands, eru hvattir til að fjölmenna á árshófið. Fyrrverandi starfsfólk Hafskips fagnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.