Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 11 Snarlækkað verð – 100% lán! Kynntu þér alla þá fyrsta flokks bíla sem þér bjóðast á einstökum kjörum – 100% lán – í aðeins fjóra daga. Komdu svo til okkar og kláraðu dæmið. Mundu að fyrstur kemur, fyrstur fær! Snarlækkað verð! Fimmtudag .............................. kl. 9–19 Föstudag ................................. kl. 9–19 Laugardag ............................. kl. 10–16 Sunnudag.............................. kl. 12–16 Umboðsaðilar: Reykjanesbær • Selfoss • Reyðarfjörður • Akureyri • Borgarnes Kynntu þér 100% lán á notuðum bíl frá Bílaþingi HEKLU. 100% lán Við höfum opið lengur næstu fjóra daga: A B X / S ÍA 9 0 3 0 0 4 2 Gott á bilathing.is Laugavegi 170–174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is GUÐNI Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að ef Framsóknarflokkurinn fái hastar- lega útreið í kosningunum í vor og tapi fjórum til sex þingmönnum, verði hann að víkja af vellinum. Framsóknarflokkur með 10% fylgi sé ekki þátttakandi í ríkisstjórn. Hann segir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ekki vera forsætisráð- herraefni Framsóknarflokksins. „Við getum haldið ró okkar“ Guðni segir fylgiskannanir að undanförnu segja það eitt að Fram- sóknarflokkurinn sé núna í svipaðri stöðu og hann var 1999 og Samfylk- ingin sé einnig í sams konar stöðu og árið 1999. „Skoðanakannanir eru ekki að segja mikið enda neita 30– 35% þjóðarinnar að gefa upp hvaða flokk þeir ætla að kjósa. Þar sem ég fer um og hitti fólk finn ég að Fram- sóknarflokkurinn á allsterka stöðu í komandi kosningum,“ segir Guðni og bendir m.a. á að Framsóknarflokk- urinn sé núna að landa sínu erfiðasta verkefni í ríkisstjórninni, byggingu Kárahnjúkavirkjunar og samning- um um álver, sem hafi mikil áhrif á lífskjör Íslendinga á næstu árum. „Þessi staða segir mér að við get- um haldið ró okkar. Við þurfum auð- vitað að vinna úr okkar málum. Framsóknarflokkurinn er annað for- ystuaflið í þessu þjóðfélagi. Hitt er Sjálfstæðisflokkurinn. Stundum eru þessir flokkar andstæðingar en við erum andstæðan við Sjálfstæðisflokkinn, þótt við vinnum með honum og tökum höndum saman með honum um erfið verk- efni. Þessir flokkar virða hvor annan. Ég trúi því að þegar fólk fer að gera upp sinn hug eigi Framsókn- arflokkurinn væn- lega stöðu í kosning- unum.“ Guðni gagnrýnir harðlega atburði síð- ustu vikna í pólitík- inni, sem tröllriðið hafi öllum fjöl- miðlum, þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttur hafi verið stillt upp sem forsætisráðherraefni. „Ég spyr; for- sætiráðherraefni fyrir hvern? Hún getur verið það fyrir Samfylkinguna, en hún er ekki forsætisráðherraefni Framsóknarflokksins. Hverjir ætla að gera hana að forsætisráðherra ef Framsóknarflokkurinn og Vinstri- grænir fara illa út úr kosningunum?“ – Ertu að útiloka stjórnarsamstarf undir forystu Ingibjargar Sólrúnar? „Framsóknarflokkurinn gengur eins og vant er á sínum málefna- grunni til kosninga en ef Framsókn- arflokkurinn fer að tapa helmingi at- kvæða og fjórum, fimm eða sex þingmönnum, þá hefur honum verið hafnað. Það yrði mjög merkileg nið- urstaða ef Framsóknarflokknum er hafnað eftir að hafa farið með atvinnumálin und- anfarin átta ár í ríkis- stjórn og miðað við stöðu þjóðfélagsins. Ríkis- stjórnarflokkarnir hafa samhentir sveigt framhjá öllum vandamálum og ráðið að mestu við öll óveðurský sem hafa kom- ið upp á himininn og bætt lífskjör Íslendinga. Þannig að ef Framsókn- arflokkurinn fær hastar- lega útreið í þeim kosn- ingum sem eru fram undan, þá verður hann auðvitað að víkja af vellinum og fara í naflaskoðun. Framsóknarflokkurinn með 10% fylgi er ekki þátttakandi í ríkisstjórn en með 18–22% fylgi er Framsóknarflokkurinn í sinni stöðu í ríkisstjórn og eitt af forystuöflum þessa þjóðfélags,“ segir hann. Hjartakóngur eða laufagosi? Guðni segir atburði að undanförnu innan Samfylkingarinnar ekki eiga sér neina hliðstæðu í íslenskum stjórnmálum. „Hjartakóngurinn, eins og Össur Skarphéðinsson hefur verið síðustu vikur og mánuði, er allt í einu orðinn laufagosi eða þaðan af verra í spilunum. Hann er ekki tals- maður flokksins lengur. Það er búið að tilnefna nýtt forsætisráð- herraefni, sem situr á varamanna- bekk úti í bæ.“ – Hefur þú þá ekki áhuga undir þessum kringumstæðum að taka þátt í myndun vinstri stjórnar? ,,Ég hef engan áhuga á því ef Framsóknarflokkurinn fer illa út úr kosningum að hann gangi haltur inn í eitthvert samstarf. Framsóknar- flokkurinn verður að vera sterkur í næstu kosningum til þess að hann geti myndað ríkisstjórn, hvort sem það er framhald þessarar stjórnar sem hann situr í eða í vinstri stjórn. Það liggur fyrir að hafi verið mynd- aðar ríkisstjórnir á Íslandi á vinstri vængnum, þá hefur Framsóknar- flokkurinn verið þar forystuafl.“ – Þér hugnast þá ekki stjórnar- samstarf undir forystu Samfylking- arinnar og með Ingibjörgu Sólrúnu í embætti forsætisráðherra? „Ingibjörg Sólrún var fram- kvæmdastjóri fyrir sameignarfélag Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem heitir R-listi. Hún lofaði þjóðinni og Reykvíkingum því sérstaklega, bæði fyrir og eftir kosn- ingar og síðast í haust, að hún yrði borgarstjóri Reykvíkinga og fram- kvæmdastjóri þessara stjórnmála- flokka út kjörtímabilið sem borgar- stjóri í Reykjavík. Hún hefur brugðist því trausti. Ef hún og Sam- fylkingin ganga fram til þess að nið- urlægja Framsóknarflokkinn og Vinstri græna þá sjá það allir að það er ekkert samstarf á þessum bæj- um,“ segir Guðni. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra gagnrýnir Samfylkinguna Ingibjörg ekki forsætis- ráðherraefni Framsóknar Guðni Ágústsson UM fjórðungur svarenda í skoðanakönnun Fréttablaðs- ins, eða 26%, segjist vilja sækja um aðild að Evrópusamband- inu. 46% eru andvíg aðild og 28% eru óákveðin í afstöðu sinni. Ef niðurstöður könnunarinn- ar eru greindar á milli kynja kemur í ljós að 28% karla vilja að sótt verði um aðild að banda- laginu en 51% er andvígt aðild- arumsókn. 25% kvenna vilja sækja um aðild og 35% eru á móti. Fram kom í könnuninni að stuðningur við aðildarumsókn er mestur á meðal kjósenda Samfylkingarinnar. Ef teknir eru þeir sem tóku afstöðu með eða á móti aðildarumsókn, sem er 70% úrtaksins, voru 36,4% fylgjandi umsókn en 63,6% andvíg. Úrtakið var 600 manns, en könnunin fór fram á laug- ardag. Fjórðungur vill sækja um ESB-aðild FJÓRTÁN árekstrar urðu í Reykjavík í gær milli kl. 8 og 16:40, sem er óvenjumikið mið- að við 11 árekstra að meðaltali daglega í borginni. M.a. rákust saman fólksbifreið og strætis- vagn á Höfðabakka en engin slys hlutust þó af og sömu sögu var að segja um hina árekstr- ana, þótt nokkurt eignatjón hefði hlotist af þeim. 14 árekstrar í borginni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.