Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 39
fræga frönskuvarnar biskup
sem eins og oft áður kemst
aldrei í gagnið. 18. …Dc7 19.
Dh6+ Kg8 20. He5 Hf7 21.
f4! De7 22. Hf3 Hh7 23.
Hxg5+ Kh8 24. Dg6 Df7 25.
Dd3 Bd7 26. Hfg3 Hf8 27.
De3 Hh6? 28. De5+ Df6 29.
Hh5 og svartur gafst upp
enda fátt til varnar.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4
4. e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6.
bxc3 c5 7. Dg4 0-0 8. Bd3
Rbc6 9. Dh5 Rg6 10. Rh3
Rce7 11. 0-0 Da5 12. Bg5 f6
13. exf6 gxf6
Staðan kom upp á
Rilton Cup sem lauk
fyrir skömmu í Stokk-
hólmi. Hannes Hlífar
Stefánsson (2.566)
hafði hvítt gegn Erik
Hedman (2.336). 14.
Rf4! fxg5 15. Rxg6
hxg6 16. Bxg6 Rxg6
17. Dxg6+ Kh8 18.
Hae1! Þótt sókn hvíts
sé hægfara kemst
hún nú samt á leiðar-
enda og er það ekki
síst að þakka hinum
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 39
DAGBÓK Kristín Gunda Vigfúsdóttir,
sjúkraþjálfari, B.Sc., MTc
hefur hafið störf hjá Hreyfigreiningu ehf.
við greiningu og meðferð háls- og
bakvandamála.
Höfðabakka 9, 110 Rvík, sími 511 1575
20% afsláttur
af silfuhúðun á gömlum munum
og silfurhúðuðum antikmunum til 20. febrúar
Sérfræðingar í gömlum munum síðan 1969
Silfurhúðun, Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim. • www.silfurhudun.is
Útsala
50-70%
afsláttur
Opnunartími
miðvikudag kl. 14-18 • fimmtudag kl. 14-18 og 20-22
föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14
Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi • sími 577 4949
Næs
Laugavegi 54, sími 552 5201
Smart
í ræktina
Buxur frá 2.490
Jakkar frá 2.490
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú gengur hreint til verks
og það kunna menn að meta,
þótt sumum þyki framkoma
þín fullharkaleg.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér hættir til þess að hlaða
of miklu á dagskrána og
stendur svo uppi með svikin
loforð. Láttu ekki hugfallast
heldur gerðu það sem þarf til
að koma skipulagi á líf þitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú grípur til aðgerða, sér-
staklega sem kosta einhver
fjárútlát. Nú skiptir öllu máli
að halda þétt utan um budd-
una ef ekki á illa að fara.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert í þeirri góðu stöðu að
geta aukið umsvif þín. Það
þýðir þó alls ekki að þú eigir
að slá af kröfunum um vand-
virkni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Tjáðu skoðanir þínar um-
búðalaust og láttu engan
velkjast í vafa um, hvað þér
finnst um menn og málefni.
En sýndu þolinmæði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Rómantíkin ræður ríkjum
þessa dagana og þú ert í sjö-
unda himni því allt virðist
ætla að ganga upp hjá þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú ert ekki ánægður með
verk annarra skaltu bara
taka þau að þér sjálfur.
Láttu ekki tilfinningarnar
blinda þér sýn í ágreiningi
þínum við aðra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu ekki að fylgja ein-
hverri stífri áætlun því
stundum er það bara ekki
hægt. Reyndu frekar að
koma eigin málum í lag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu engan ræna þig af-
rakstri vinnu þinnar, þvert á
móti skaltu bera höfuðið hátt
yfir árangri dagsins.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ýmsir erfiðleikar í einkalíf-
inu eiga hug þinn allan.
Gefðu þér tíma til að ræða
málin.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhverjir hnökrar koma
upp á vinnustað og þú þarft
að taka á honum stóra þínum
til þess að samstarfið endi
ekki með ósköpum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vandaðu vel mál þitt svo að
ekki þurfi að koma upp mis-
skilningur að ástæðulausu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér berast upplýsingar frá
stórri stofnun eða fyrirtæki,
jafnvel stjórnvöldum, í dag.
Þú gætir átt von á óvæntum
tíðindum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 16.
janúar, er sjötugur Ásgeir
Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Námsgangastofn-
unar og áður skólastjóri
Hlíðaskóla í Reykjavík, Ein-
arsnesi 30, Reykjavík. Eig-
inkona hans er Sigríður
Jónsdóttir, kennari og fyrr-
verandi námsstjóri í
menntamálaráðuneytinu.
Þau eru að heiman í dag.
SUÐUR þarf ekki að
skoða spilin sín lengi til að
átta sig á því að hann er
með alslemmuefni í hönd-
unum. En makker þarf þó
að stoppa upp í nokkur
göt:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 874
♥ 3
♦ ÁK1054
♣D964
Vestur Austur
♠ KG109 ♠ D653
♥ G76 ♥ 984
♦ G63 ♦ D9872
♣1032 ♣8
Suður
♠ Á2
♥ ÁKD1052
♦ –
♣ÁKG75
Spilið kom upp 9. um-
ferð Reykjavíkurmótsins
á sunnudaginn og tíu pör
af sextán enduðu á réttum
stað, í sjö laufum. Það
gildir um alslemmur eins
og Rómaborg að leiðirnar
þangað eru margar. Guð-
mundur Baldursson og
Hallgrímur Hallgrímsson
fóru þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
– Pass Pass 2 lauf
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 3 grönd Pass 4 lauf
Pass 4 hjörtu Pass 5 lauf
Pass 6 lauf Pass 7 lauf
Pass Pass Pass
Guðmundur var í suður
og vakti á alkröfu, en í
framhaldinu nota þeir út-
færslu gamla Reykjavík-
urkerfisins, sem kennd er
við Árna Matt. Svar Hall-
gríms á þremur tíglum
sýndi tígulásinn og þrjú
hjörtu Guðmundar spurði
um lengd í litnum. Þrjú
grönd sögðu frá engu eða
einu hjarta. Fjögur lauf
var spurning um háspil í
laufi og Hallgrímur sýndi
drottninguna með fjórum
hjörtum. Fimm lauf var
enn spurning, nú um
lengd í laufinu, og svarið á
sex laufum lofaði fjórlit.
Þar með var málið af-
greitt og Guðmundur gat
hækkað í sjö lauf af ör-
yggi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
HEILRÆÐAVÍSUR
Ungum er það allra bezt
að óttast guð, sinn herra.
Þeim mun vizkan veitast mest
og virðing aldrei þverra.
Hafðu hvorki háð né spott,
hugsa um ræðu mína,
elska guð og gerðu gott,
geym vel æru þína.
– – –
Hallgrímur Pétursson
Skugginn/Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. ágúst 2002 í
Laugarneskirkju af sr.
Bjarna Karlssyni þau
Sigríður Ólafsdóttir og
Matthías Sveinbjörnsson.
Skugginn/Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 21. september 2002 í
Dómkirkjunni af sr. Bjarna
Karlssyni þau Harpa Hjart-
ardóttir og Huginn Egils-
son.
Skugginn/Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 13. júlí 2002 í Há-
teigskirkju af sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur þau
Harpa K. Einarsdóttir og
Baldur Sæmundsson.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík