Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 28
UMRÆÐAN 28 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ H efðbundin valda- kerfi í heiminum voru sett saman af körlum. Þau eiga sér steinrunnar stoðir sem ekki verða felldar á einni nóttu. Jafnvel þótt konur brjóti sér leið í hópum inn í stjórnmál eða í stjórnir fyrir- tækja, haggast valdakerfið lítt, það var ekki reist á sandi. Konur virðast því við fyrstu sýn einungis hafa um eitt að velja: Að leigja sér herbergi í valdapýramídanum. Valdapýramídinn er rammgerð smíð, líkt og sjöunda undur ver- aldar; hver steinn er vandlega lagður og verður ekki færður úr stað nema með sameiginlegu átaki. Samlík- ing valdanna við pýramíd- anna í Egyptalandi er ekki til- viljun. Þeir hafa staðist mikla landskjálfta og hrikalegar jarðhræringar. Karlar meitluðu steinana í valdapýramídann og fannst verk- ið harla gott, því það er einhvern veginn meira virði en sérhver ein- staklingur. En hvert er þá val kvenna gagnvart þessu kerfi? Aldrei hafa fleiri konur setið á Alþingi Íslendinga og frá 1999, og aldrei svo margar setið sem ráð- herrar; Sólveig Pétursdóttir, Val- gerður Sverrisdóttir, Siv Frið- leifsdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir. Tuttugu og þrjár konur eru nú á þingi eða rúmlega þriðjungur þingmanna. Í kosningunum 1999 ríkti nokk- ur bjartsýni í þjóðfélaginu og virtust flokkarnir og kjósendur reiðubúnir að velja konur til starfa á þingi. Undanfarið hefur himinninn yfir pýramídanum ver- ið þungbúinn; atvinnuleysi meðal ungs fólks vakið ugg og sam- dráttur ríkt í efnahagslífnu. Einn- ig er líkt og nýja kjördæmaskip- anin geri körlum ærinn usla, sem hefur m.a. birst í harðri baráttu karla allra flokka um „öruggt“ sæti. Hjördís Hjartardóttir vara- þingmaður VG á Norðurlandi vestra skrifar t.d. í Morgunblaðið 14.12. sl. „Listarnir enda þannig að það er best að byrja að leita rétt ofan við miðju ef maður ætlar að finna konu, hreinir karla- hlunkalistar, að Samfylkingunni undanskilinni.“ Valdapýramídinn hefur m.ö.o. staðist innrás kvenna árið 1999, og karlar sem berjast um sætin láta nú skína í (víg)tennurnar. Konur í stjórnmálum sem sjá að þær verða að taka sér sæti ein- hvers staðar í pýramídanum missa oft áhugann og ákveða að hætta þessu striti. Ef til vill er það ástæðan fyrir því að þær berjast oft ekki eins grimmt fyrir öruggu sæti á lista og karlarnir, og þeim finnst þetta einfaldlega ekki þess virði. Kvenréttindafélag Íslands gaf út mjög athyglisverða bók fyrir síðustu kosningar, sem heitir Gegnum glerþakið – valda- handbók fyrir konur, eftir sænsk- ar blaðakonur. Þær tóku viðtöl við hóp kvenna í stjórnmálum á Norðurlöndunum og gerðu grein- ingu á valdinu. Stöðu kvenna í stjórnmálum er lýst svo: „Það er glerþak yfir þeim og kviksyndi undir þeim.“ (bls. 39.) Þær segja alls ekki nóg að fjölga konum í stjórnmálum ef þær neyðast til að aðlagast kerf- inu og styrkja það í sessi í stað þess að breyta því. Jafnaðar- mannaflokkurinn í Svíþjóð tók það til bragðs á síðasta áratug að búa til svokallaða fléttulista þann- ig að kona og karl skipuðu ávallt sæti á framboðslistum til skiptis. Þetta var mikilvægt, en í ljós kom að konurnar urðu fyrir von- brigðum því árangurinn lét á sér standa. Karlarnir reyndust ekki reiðubúnir til að vinna á jafnrétt- isgrundvelli og fundu stöðugt nýj- ar leiðir til að sneiða hjá konunum við mikilvægar ákvarðanir. Ætl- ast var til að þær myndu aðlagast vinnuaðferðum þeirra, en ekki að þeir kæmu til móts við þær. Svo sögðu þeir: „Þarna sjáið þið, fjölgun kvenna í stjórnmálum skiptir ekki máli.“ Valdapýramíd- inn hrynur ekki nema bæði kynin vilji í raun fjarlægja hornsteinana og byggja aðra blandaða eða „tví- kynjaða“ byggingu. Margir eygðu von um umbreyt- ingu valdsins, eftir að formlegum hindrunum fyrir starfi kvenna í stjórnmálum var rutt úr vegi og konum fjölgaði á þessum vett- vangi. Gallinn var að óformlegar og duldar hindranir fylltu jafn- harðan í skarðið. Þær eru m.a. eftirfarandi: 1. Konur eru ekki teknar alvarlega (dæmi: karlar hlusta ekki á tillögur kvenna). 2. „Hlegið“ er að konum (niðurlægj- andi orð notuð um þær; elskan mín ...). 3. Farið er á bak við kon- ur (karlar taka ákvarðanir fyrir fundi eða boða konurnar ekki á fundinn). 4. Konum er ekki hrós- að (verða fyrir harðari gagnrýni en karlar). 5. Alið á sektarkennd kvenna (þær standi sig hvorki heima né í vinnunni). Þannig við- helst skipulag pýramídans, og það fælir konur frá, því valdið var hannað af körlum sem sinntu ekki fjölskyldunni og virtu ekki einka- lífið. Konur virðast m.ö.o. ekki mega ógna karlveldinu of mikið; ef þær gera það verða þær fyrir óvæg- inni gagnrýni og lúmskum árás- um; útlit þeirra er undir smásjá, persóna, móðurhlutverk, og ef þær verða reiðar eru þær sagðar á túr eða að eitthvað sé að heima hjá þeim. Stefni einhver þeirra of hátt upp í valdapýramídann telst það jafnvel „afbrigðilegt“ mark- mið í augum karla og kvenna sem hafa komið sér fyrir í valdapýra- mídanum og þekkja vistarverur hans vel. Fall konunnar getur þvíorðið hátt og sárt. Meginmálið er að valdakarlar eru ekki nógu viljugir til að takast á við verk- efnið með konum: Að breyta kerf- inu – ennþá virðast þeir fremur vilja finna leiðir til að sneiða hjá konum og málefnum sem þær berjast næstum fyrir. Hættan er sú að þær sem ekki vilja aðlagast kerfinu, vilji heldur ekki fórna of miklu fyrir „vonlausa“ baráttu og dragi sig í hlé. Þess vegna mun konum sennilega fækka aftur á Alþingi Íslendinga í vor. Konur og stjórnmál I Karlar meitluðu steinana í valdapýra- mídann og fannst verkið harla gott. En hvert er val kvenna gagnvart þessu kerfi? Líkur eru á að færri konur sitji á Alþingi eftir kosningar 2003 en nú. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is Á HAUSTÞINGI Alþingis birtist svar samgönguráðherra við fyrir- spurn varaþingmanns Samfylking- arinnar á Norðurlandi eystra um mögulega styttingu þjóðvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur. Í svari við fyrirspurninni er bent á þrjár einstakar framkvæmdir sem myndu stytta þessa vegalengd um alls 20 km með áætluðum kostnaði um 2.800 milljónir króna. Um er að ræða þverun Grunnafjarðar sem kostar um 1.400 milljónir, stytting 1 km. Færsla hringvegar um Blönduós sunnar, með Svínavatni og yfir Blöndu nálægt Finnstungu. Áætlaður kostnaður 900 milljónir, stytting um 15 km. Loks færsla hringvegar sunnan við Varmahlíð í Skagafirði, áætlaður kostnaður um 500 milljónir, stytting vegalengdar um 3,5 km. Fyrir Alþingi liggur tillaga til þingsályktunar um langtímaáætlun í vegagerð til 12 ára. Engin þessara framkvæmda er í þeirri tillögu og ef litið er til fjölmargra aðkallandi vegaframkvæmda í Norðvestur- kjördæmi verður ekki séð að svo verði. Í þessu sambandi þarf að hafa heildarsýn yfir fjölmargar nauðsyn- legar framkvæmdir í kjördæminu. Í tillögunni um langtímaáætlun eru ýmsar aðkallandi vegaframkvæmd- ir í Norðvesturkjördæmi. Eitt mik- ilvægasta verkefni í samgöngu- málum kjördæmisins er að tengja byggðarlög á Vestfjörðum með uppbyggðum vegum og bundnu slitlagi við hringveginn, enda er eitt markmið vegaáætlana að tengja þéttbýlisstaði með bundnu slitlagi við hringveginn. Það er óviðunandi fyrir Vestfirðinga og í reynd landsmenn alla að sam- kvæmt fyrirliggjandi tillögu um langtímaáætlun í vegagerð verður ekki lokið við að tengja þéttbýlis- staðina á Vestfjörðum hringvegin- um með bundnu slitlagi á áætl- unartímabilinu. Þetta verða menn að hafa í huga þegar rætt er um hugmyndir um styttingu vega- lengda, ekki síst um styttingu vega sem nú þegar eru með bundnu slit- lagi. Við hljótum að líta á það sem forgangsverkefni að koma bílaum- ferð til og frá mörgum þéttbýlis- stöðum upp úr drullu og holum og á uppbyggða vegi með bundnu slit- lagi. Það er einfaldlega lágmarks- krafa á nýhafinni öld. Stytting hringvegarins við Blönduós og Varmahlíð eru verk- efni sem ekki er líklegt að verði á vegaáætlun í næstu framtíð. Hins vegar hefur umræðan um þau vald- ið aðilum á þessum svæðum áhyggjum og varðar áform um upp- byggingu ferðaþjónustu. Lega leið- arinnar um Blönduós skiptir miklu fyrir atvinnustarfsemi og mannlíf á staðnum og hefur umræðan komið illa við marga þar. Í því felast byggðasjónarmið og þau hljóta að vega mjög þungt í þessari umræðu. Að öllu samandregnu er ljóst að ef á annað borð kemur til í framtíð- inni að þessar tilgreindu fram- kvæmdir við styttingu hringvegar- ins komist á umræðustig, þá er langt í land að þær komist til fram- kvæmda. Áður en til þess kemur er forgangsverkefni að ljúka þeim verkefnum sem nú þegar liggja fyr- ir og gefin hafa verið fyrirheit um. Til dæmis að umferð til og frá þétt- býlisstöðum á Vestfjörðum, Snæ- fellsnesi og Dölum komist um upp- byggða vegi með bundnu slitlagi og tengist þannig megin vegakerfi landsins á sama hátt og á við um flesta aðra staði á landinu. Einnig má nefna breikkun brúa og fjöl- margar aðrar aðkallandi fram- kvæmdir sem fólk hefur nú þegar beðið eftir í fjöldamörg ár. Um styttingu hringvegarins Eftir Magnús Stefánsson „Í tillögunni um lang- tímaáætlun eru ýmsar aðkallandi vegaframkvæmdir í Norðvesturkjördæmi.“ Höfundur er alþingismaður Framsóknarflokks. TENGSL okkar við hin hulda heim eiga sér djúpar rætur í menn- ingarsögulegu tilliti hjá okkur Ís- lendingum, allt frá tímum landnáms. Vættir landsins buðu Ingólf og hinar manneskjurnar sem settust hér að velkomnar og gagnkvæm virðing var á milli okkar heima. Við höfum virt þessi tengsl við vætti og huldufólk þó svo að finna megi að þau séu að rofna. Ég kem frá fjölskyldu sem ekki aðeins trúir á tilvist huldufólks, við vitum að þau eru til. Þessar stór- kostlegu verur hafa bæði sýnt og minnt á sig og við höfum alltaf borið virðingu fyrir heimi þeirra, þó svo að við skiljum hann ekki til hlítar. Ástæðan að ég er að festa þessar hugrenningar á blað eru þau regin- mistök og stórslys sem verið er að reyna að hrinda í framkvæmd við Kárahnjúka. Ég bjó um stund í Fljótsdalnum og þvældist oft á tíðum inn í Norðurdal. Fjallalengja sú sem á að bora í 5 jarðgöng er með merk- ari fjöllum sem ég hef hitt. Það er ekki endilega eins stórbrotið af feg- urð og Herðubreið eða önnur fræg fjöll, en í þessu fjalli býr vættur sem er engu minni en sumir okkar frægu vætta eins og tildæmis Bárður sem býr í Snæfellsjökli. Ég eyddi mörg- um stundum í að horfa á þetta fjall og fann einhver tengsl sem ég get ekki lýst með orðum. Ég veit það að uppi í þessu fjalli er eldgamall skóg- ur sem lítur út fyrir að vera hríslur en þegar maður gengur upp fjallið er þar stórkostlegur skógur sem minn- ir mann á ævintýri og lífríkið þar, smáblóm og gróður engu líkt. Ég fann sterklega fyrir nálægð huldu- fólks þegar ég var á þessu rölti mínu um Fljótsdalinn. Mér var sagt frá því seinna að stærsta byggð huldu- fólks á Íslandi væri á þessu svæði. Mér finnst mikilvægt að minna okk- ur á að forfeður okkar gerðu alls konar samninga við hinn hulda heim og segir mér svo hugur að við séum búin að þverbrjóta þessa samninga en sjaldan höfum við gengið eins nærri að rjúfa þessi tengsl og nú. Ég hef ekki komið að Kárahnjúk- um en dreymt um það í mörg ár. Þetta er einn af þessum stöðum sem ég hef bent fjölda vina minna frá öðr- um löndum á að þeir verði að heim- sækja. Við höfum oftast verið afar stolt af sögu okkar og menningar- legri arfleifð. Sú saga er tengd hin- um hulda heimi. Það kann kannski að hljóma sem að ég sé ekki alveg með öllum mjalla að vera að tala um huldufólk og vætti sem þau séu til, en ég vil minna á að forfeður okkar og -mæður sem við svo mjög virðum áttu mun sterkari tengsl við þennan hulda heim en ég og ekki þætti mér ólíklegt að margur haugurinn með beinum þeirra sé á stöðugri hreyf- ingu, vegna þess að þeir snúa sér svo oft við í gröfinni vegna skammsýni og græðgihyggju samtímafólks míns. Það er alveg á hreinu að það að byggja álver á Reyðarfirði mun ekki leysa byggðarvandann svokallaða. Kannski er það bara ágætt að sem flestir flytji til Stór-Reykjavíkur. Þetta er sú þróun sem átt hefur sér stað um allan heim. Fólk sækist í stórborgir út af miklu fleiri ástæðum en betri atvinnu. Það er einfaldlegra meira og betra framboð af öllu þar. Unga fólkið mun ekki ílendast á Austfjörðum vegna álvers. Það hefur áhuga á að mennta sig og skemmta sér. Ekki vinna í einhverju álveri. Það er líka sorglegt til þess að hugsa að Austfirðingum hefur verið haldið í gíslingu gylliboða um einhverja lausn með álveri. Á meðan hefur þessi landshluti verið svo gott sem lamaður og ferðamannaiðnaði þarna eystra haldið í fjárhagslegu svelti. Það er reyndar skringilegt ef við leggjum mikla áherslu á að mennta þjóð okkar að hafa svo ekkert betra að bjóða æsku landsins úti á landi en vinnu við álver. Ég held að það væri bara ágætt ef við myndum gera restina af Íslandi að þjóðgarði og þeir sem nenna að vera þarna í fásinninu eins og borg- arbörnin núverandi og tilvonandi sjá það, geta unnið sem þjóðgarðsverðir. Þarna geta verið alls konar menn- ingarsetur og hægt er að ná í þjóð- argersemarnar til Reykjavíkur og setja þær á sína upprunalegu staði og þá höfum við lifandi þjóðmenn- ingarsöfn úti um land allt. Það er ekki hægt að lifa af því að vera bóndi á Íslandi og brátt munum við hafa veitt allan fiskinn úr sjónum eða hann verður svo gegnsósa af meng- un að hann er ekki ætur lengur. Þannig að það væri hægt að hafa út- gerðir við stærstu byggðarlögin eða alfarið úti á sjó. Trillukarlar gætu unnið við að bjóða útlendingum og borgarbúum að prófa að veiða á línu og fá miklu meiri peninga fyrir vikið en þeir fá núna. Ég hef búið vítt og breitt um landið og leyfi mér að full- yrða að það er ekkert sem heldur í ungt fólk að vera áfram úti á landi nema þeir örfáu sem upplifa sterk tengsl til landsins og það fólk væri tilvalið sem þjóðgarðsverðir. Þetta myndi að sjálfsögðu vekja heimsat- hygli og við myndum fá fjölmarga ferðamenn út á þetta og síðast en ekki síst væri náttúru okkar og tengsl við vætti og huldufólk borgið um einhverja hríð. Að endingu langar mig að benda fólki á að kynna sér þær lausnir sem fólk eins og Jakob Frímann Magn- ússon og Kolbrún Halldórsdóttir hafa verið að viðra og glugga í grein- ar sem fjalla um Kárahnjúka og virkjun þeirra á http://www.raddir.is Gerum gjörvallt Ísland að þjóðgarði! Eftir Birgittu Jónsdóttur „Það er al- veg á hreinu að það að byggja álver á Reyðarfirði mun ekki leysa byggð- arvandann svokallaða.“ Höfundur er útgefandi og skáld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.