Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Hauksson, spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, sagðist í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær ekki hafa fengið í hendur skýrslu Deloitte & Touche um verðmæti Frjálsa fjár- festingarbankans, en þar er komist að þeirri niðurstöðu að SPRON hafi keypt bankann á of háu verði. Þessi skýrsla var samin að beiðni Búnað- arbankans fyrir fimmmenningana sem gerðu tilboð í stofnfé SPRON í fyrrasumar og var sagt frá henni í Morgunblaðinu í gær. Guðmundur segist af þessum sök- um ekki vera í aðstöðu til að dæma um einstök atriði í matinu sjálfu. Þó sé ljóst að ákveðnar forsendur mats- ins séu mjög hæpnar. Þannig sé verðbilið 2,2 til 4,8 milljarðar króna, verðið sveiflist um 120%, og þar af leiðandi sé ekki um ýkja nákvæm vísindi að ræða. Hann gefi því ekki mikið fyrir skýrsl- una eftir því sem hann geti lesið út úr frétt Morgunblaðsins um hana. Guðmundur segir að SPRON hafi fram- kvæmt útreikninga á verðmæti Frjálsa fjár- festingarbankans, bæði þegar hann hafi verið keyptur á sínum tíma, sem var í lok september í fyrra, og síðan hafi verið fylgst með því hver þróunin hafi verið. Hún hafi verið með þeim hætti að hún styðji fullkomlega það verð sem greitt hafi verið fyrir bankann. Guðmundur segir að samkvæmt áætlaðri af- komu fjármálafyrir- tækjanna á síðasta ári og markaðsvirði þeirra í lok árs komi í ljós að Frjálsi fjárfestingar- bankinn sé arðbærari en hinir bankarnir. Ef rétt sé, sem fram komi í skýrslu Deloitte & Touche, að svona fjár- málafyrirtæki skili 13,32% arðsemi, þá sé Frjálsi fjárfestingar- bankinn eina fjármála- fyrirtækið sem sé ná- lægt því að ná því. Guðmundur segir að Pétur H. Blöndal, einn fimmmenninganna, hafi í samtali við Morgunblaðið í gær reynt að gera það tortryggilegt að Guðmundur gegndi trúnaðarstörf- um bæði í SPRON og Kaupþingi, þar sem Guðmundur er stjórnarformað- ur, og sé þar af leiðandi beggja vegna borðs. Þetta sé rangt, fullt til- lit hafi verið tekið til þessa og hann hafi sjálfur hvergi komið nálægt samningum um viðskiptin með Frjálsa fjárfestingarbankann. Fjár- málaeftirlitið hafi fengið til sín öll gögn eftir að því hafi verið gerð grein fyrir kaupunum eins og beri að gera vegna þess að sparisjóðurinn hafi þurft að fá staðfestingu Fjár- málaeftirlitsins á því að hann mætti eiga ráðandi hlut í Frjálsa fjárfest- ingarbankanum. Athugasemdalaus staðfesting hafi fengist á því hjá Fjármálaeftirlitinu. Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri um verðmatsskýrslu Deloitte & Touche Forsendur matsins hæpnar Guðmundur Hauksson SAMNINGSTÍMI Landsvirkjunar, Fjarðaáls, sem er að fullu í eigu Alcoa, og Alcoa er 40 ár en orkuverðið verð- ur endurskoðað eftir tuttugu ár. Þetta kom fram í máli Friðriks Sophusson- ar, forstjóra Landsvirkjunar, á fundi Verslunarráðs um virkjunarfram- kvæmdir og álverssamninga í gær. Hann segir að í samningum sé harðræðisákvæði eins og í öðrum samningum sem Landsvirkjun hefur staðið að. Alcoa ábyrgist greiðslu á 85% af orkunni í 40 ár algjörlega óháð því hvort fyrirtækið nýtir orkuna eða ekki. Það er takmarkaður framsals- réttur á rafmagnssamningnum þann- ig að ef Alcoa selur verksmiðjuna þá kemur Landsvirkjun að því máli. Samningurinn lýtur íslenskum lögum og gerðardómur verður í Stokkhólmi og það þarf að vera samráð á rekstr- artímanum eins og eðlilegt er. Það er takmarkaður ráðstöfunarréttur Fjarðaáls á samningsbundnu raf- magni þannig að ef þeir nýta ekki raf- magnið þá er ekki sjálfsagt að þeir geti selt það öðrum nema síður sé,“ að sögn Friðriks. Rólegt tímabil framundan Jake Siewert, aðaltalsmaður Alcoa, ræddi meðal annars um reynslu Alcoa af samskiptum við íslenska aðila, bæði stjórnvöld og aðra. Siewert sagði reynsluna hér á landi afar góða. Ís- lendingar hefðu haft frumkvæði og unnið stærstan hluta af undirbúningi álversframkvæmdanna. Hann sagði hlutina ganga mun hraðar fyrir sig en fyrirtækið ætti að venjast víðast hvar. Þar að auki væri víða erfitt að afla upplýsinga en hér á landi væru engin leyndarmál. Siewert sagði Alcoa hafa fundið fyrir miklum áhuga og miklum vænt- ingum hér á landi. Hann lagði þó áherslu á að þótt hlutirnir hefðu gengið hratt fyrir sig frá því fyrirtæk- ið kom að málinu í apríl á síðasta ári væri ekki komið að því að það færi að ráða starfsmenn eða verktaka hér á landi. Nú tæki við rólegt tímabil og hönnunarvinna, en það væri fyrst árið 2005 og 2006 sem starfsemin hæfist af krafti hér á landi. Siewert kom einnig inn á þá gagn- rýni sem verið hefði á þessar fram- kvæmdir hér á landi. Hann sagði að samkvæmt könnunum nytu þær stuðnings um 2⁄3 hluta þjóðarinnar, en að Alcoa vildi beita sér fyrir auknum stuðningi og vinna andstæðinga yfir á sitt band. Þótt sigur hefði unnist í málinu vildi fyrirtækið koma vel fram við þá sem biðu lægri hlut og eiga góð samskipti við alla og leitast við að sannfæra þá um að vel yrði að málum staðið og að framkvæmdirnar ættu rétt á sér. Frestun opinberra framkvæmda Bolli Þór Bollason frá fjármála- ráðuneytinu sagði að ef kæmi til þeirra álvers- og virkjunafram- kvæmda sem fyrirhugaðar eru á næstu árum yrði hið opinbera að beita virkri hagstjórn til að stemma stigu við þenslu. Helsta aðgerðin yrði frest- un á opinberum framkvæmdum þar til að niðursveiflu kæmi aftur. Hann sagði að miðað við framreikning ráðu- neytisins, sem þó væri rétt að gera fyrirvara við vegna mikillar óvissu, væri gert ráð fyrir að hagvöxtur færi upp í 5–6% á árunum 2005–2006 en eftir það kæmi niðursveifla. Bolli sagði að tímasetning framkvæmda eins og þessara gæti ekki verið betri. Mikil eftirspurn yrði hins vegar eftir vinnuafli og aukinn viðskiptahalli. Fundur Verslunarráðs um virkjunarframkvæmdir og álverssamninga Morgunblaðið/Kristinn Jake Siewert, aðaltalsmaður Alcoa, og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, stinga saman nefjum á fund- inum í gær, en þeir voru frummælendur á fundinum. Lengst til hægri er Bogi Pálsson, formaður Verslunarráðs. Ráðstöfunarréttur Fjarða- áls bundinn skilyrðum FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, gerði málflutn- ing umhverfissinna að umfjöll- unarefni á fund Verslunarráðs. „Ég geri mér grein fyrir því að fólk mun berjast gegn þessari virkjun og því raski sem hún mun óneitanlega hafa í för með sér. Við því er ekkert að segja, það eru margir sem segja að það séu meiri verðmæti að halda nátt- úrunni eins og hún er. Við hin höfum hins vegar haldið því fram að við verðum að lifa í þessu landi. Það sé ekki nóg að eiga heima erlendis en eiga kost á því að fljúga með álflugvélum til út- landa og koma hingað heim þeg- ar þeim sýnist. Segja síðan við okkur að við eigum ekki að vera að byggja úreltar verksmiðjur sem framleiða það ál sem þeir kjósa að ferðast í. Heldur kjósa þeir að hafa allt eins og það var. Þannig að við getum staðið í sauðskinnsskónum og sýnt þeim hvernig landið var, full af róm- antískum tilfinningum sem fólk hefur til lands og þjóðar. Við því er ekkert að segja en við hin sem ætlum okkur að búa hérna vitum að við þurfum að lifa við sömu lífsskilyrði og nágrann- arnir. Til þess þurfum við að nota okkar náttúruauðlindir, aðrar auðlindir og þekkingu til þess að gera landið lífvænlegt,“ sagði Friðrik á fundi Verslunarráðs. Gagnrýni á um- hverfis- sinna EKKERT hefur spurst til 31 árs konu sem lögreglan í Reykjavík hefur lýst eftir frá 30. desember sl. Samkvæmt farþegaskrám Flugleiða fór hún til Danmerkur 29. desem- ber en kom ekki til baka með flugi sem hún átti bókað far með. Óskað hefur verið eftir því við dönsk lögregluyfirvöld að þau lýsi eftir henni í dönskum fjölmiðlum. Jónas Hallsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík segir að í gær hafi átt að birtast auglýsing með mynd í dagblaðinu B.T. Ekkert spurst til 31 árs konu LANDSBÓKASAFN Íslands, Há- skólabókasafn, er með skilti við inn- ganginn sem segir að aðgangur sé bannaður þeim sem eru yngri en 18 ára. Í húsreglum bókasafnsins má sjá staðfestingu þar á, en þar segir: „Safnið er öllum opið, átján ára og eldri,“ og jafnframt er tekið fram að þeir sem yngri eru hafi aðgang í fylgd með fullorðnum. Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir, landsbókavörður, sagði við Morg- unblaðið í gær að bókasafnið hafi neyðst til að setja upp þessar reglur þar sem framhaldsskólanemar trufluðu endurtekið háskólastúd- enta sem læra þar fyrir próf. „Ástæðan fyrir því að við þurftum að takmarka aðgang er sá að safnið er ekki nægjanlega stórt til að taka við öllum framhalds- og grunn- skólanemendum. Við erum að reyna að halda þessu sem rannsókn- arsafni og fyrir þá sem vilja vera í friði,“ sagði Sigrún og bætti því við að til stæði að gera skiltin þannig að þau kæmu viðskiptavinum jákvæð- ar fyrir sjónir. „Við verðum fyrst og fremst að passa upp á þá sem virkilega þurfa á þjónustu okkar að halda,“ sagði Sigrún. Hún sagði jafnframt að lág- marksaldur hafi verið hækkaður í fyrravetur þar sem hávaði á próf- lestrartíma var óviðunandi ásamt því að framhaldsskólanemar hafi orðið uppvísir að hrekkjum. „Einn dag hringdu vekjaraklukkur um allt hús, annan dag var fugli sleppt um húsið. Við vitum ekki hvað lá að baki þessum hrekkjum, hvort verið var að mótmæla einhverju. Þetta er náttúrulega ólíðandi fyrir háskóla- bókasafn,“ sagði Sigrún og tók fram að nemendum yngri en 18 ára sé ekki bannaður aðgangur sýni þeir fram á að þeir hafi löggilt er- indi á safnið. „Ef yngri nemendur eru að vinna verkefni á vegum síns skóla og eru með beiðni frá kennara er þeim að sjálfsögðu ekki vísað frá. Þetta var aðallega sett upp vegna þeirrar reynslu sem við höfum af framhaldsskólanemum, en hún er afleit,“ sagði Sigrún og bætti við að varúðarráðstafanir verði teknar í gagnið í vor. „Ég býst við því að neyðarvörn hjá okkur fyrir vorpróf verði að við setjum verði í dyrnar sem biðja um nafnskírteini nem- enda,“ sagði Sigrún. Hún sagði tölu- vert vera um að framhaldsskóla- nemendur kæmu inn til að hlaða farsíma sína og spjalla og væru þar af leiðandi ekki velkomnir. „Þetta eru bara litlir hópar sem skemma fyrir heildinni. Það hefur aldrei verið ætlunin að loka hér en þegar framhaldsskólanemendur sitja hér með skólabækur sínar við lestur og teppa hér öll borð og háskólastúd- entarnir fá ekkert pláss, þá verður óhjákvæmilega núningur.“ Að sögn Sigrúnar leita börn á grunnskólaaldri lítið til safnsins nema þegar skipulagðir hópar koma í heimsókn ásamt kennara sínum og sagði Sigrún slíka hópa velkomna. Morgunblaðið/Kristinn Þessi skilaboð blasa við gestum Þjóðarbókhlöðunnar. Framhaldsskólanemar ekki velkomnir í Þjóðarbókhlöðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.