Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 22
LISTIR 22 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 25. janúar Auglýsendur! Laugardaginn 25. janúar fylgir Morgun- blaðinu tímarit um heilbrigði og lífsstíl í 55.000 eintökum. Í tímaritinu verður fjallað um það sem viðkemur heil- brigðu líferni og hraustum líkama. Tímaritið er prentað á 60 g pappír og skorið í stærðinni 26,5 x 39,8 sm. Skilatími Fullunnar auglýsingar kl. 16.00 þriðjudaginn 21. janúar Auglýsingar í vinnslu kl. 16.00 mánudaginn 20. janúar Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða í gegnum netfangið augl@mbl.is Sólgult Ívar Valgarðsson myndlistarmað- ur hefur verið kenndur við ljóðræna naumhyggju byggða á hugmyndal- ist, en sú tegund listar er held ég al- íslensk sérgrein. Hann hefur á und- anförnum árum unnið fjölmörg verk með íslenskri húsamálningu og kennt verkin við heiti litanna. Þannig er einnig um verkin sem sjá má í Ás- mundarsal ASÍ, en þar er um að ræða þrjú verk. Tvo málaða fern- inga, annan gerðan með einni umferð af Sólgulu frá Hörpu, hinn með tveimur umferðum. Þriðja verkið er svo myndbandsverk, Þurrktími, en því er varpað á vegg þannig að myndflöturinn er í svipaðri stærð og hin verkin tvö. Eins og kemur fram í titli sýnir myndbandið málninguna þorna og er 50 mínútur að lengd. Heiti litarins er án efa ástæða fyrir vali Ívars á honum, ég get ímyndað mér að hann hafi valið hann með til- liti til myrkasta árstímans, til að minna okkur á sumar og sól, eða kannski alveg öfugt, til að leggja áherslu á það hversu óralangt er milli sólargeisla og verksmiðjufram- leiddrar málningar, milli náttúru og menningar? Ívar hefur lagt áherslu á að verk hans séu aðeins það sem við sjáum og forðast það sem hann nefnir per- sónulega tjáningu. Notkun hans á rýminu miðast við að áhorfandinn og verkin séu hluti af sama raunveru- leikanum, verkin eru ekki sett á stall. Það er því athyglisvert að sjá verk Ívars, Þurrktíma, sem í raun brýtur sig út úr þessum ramma. Myndband hans er ekki hluti af okkar efnislega raunveruleika, þótt kvikmynd sé eins og breski kvikmyndagerðarmaður- inn Derek Jarman orðaði það svo fal- lega, samruni efnis og ljóss. Verk Ív- ars, Þurrktími, minnir meira að segja dálítið á mynd Jarmans, Blátt, kvikmynd í fullri lengd sem sýnir að- eins bláan lit. Myndbandsverk Ívars felur í sér hugleiðsluþátt sem vegg- málverkin gera ekki, það virkar eins og gluggi – inn eða út, hinir óefn- iskenndu eiginleikar þess skapa nýja vídd í rýminu. Einn þáttur í verkinu vinnur þó gegn þessu en það er nær- vera áhorfandans sem birtist sem skuggi á verkinu ef hann kemur ná- lægt því og færir verkið um leið inn í rýmið. Verk Ívars má skilgreina sem inn- setningar í anda naumhyggjustefn- unnar, en það hvernig hann leitast við að birta séríslenska liti tengist þeim anga hugmyndalistarinnar sem leit á listamanninn sem mannfræð- ing (Joseph Kosuth) eða þjóðhátta- fræðing (Hal Foster). Það má líka líta á Ívar sem strangflatamálara, og rekja rætur verka hans til dæmis aft- ur til málara eins og Malevich. Eða hugsa um Bauhaus og de Stijl með tilliti til áherslu þeirra á samruna myndlistar og arkitektúrs. Með ein- földum verkum sínum kemur Ívar Valgarðsson þannig inn á marga þætti innan myndlistarinnar. Sýning Ívars er í boði Þórodds Bjarnasonar sem er einn af okkar at- hyglisverðari myndlistarmönnum af yngri kynslóðinni. Verk hans eru ein- föld og jafnan í samfélagslegu sam- hengi. Í verkum sem unnin eru í sam- hengi við umhverfið eða samfélagið dregur listamaðurinn persónu sína í hlé, hann skapar ekki verk sem er miðpunkturinn heldur gerir um- hverfið eða áhorfandann sjálfan að miðpunkti. Verk Þórodds í ASÍ felst í því að bjóða Ívari að sýna í stað þess að sýna sjálfur. Sköpunarmöguleikar myndlistarinnar eru margir – að koma list annarra á framfæri er einn þeirra. Á sama tíma vill hann vekja athygli á því að myndlist er ævinlega fjármögnuð, stórar sýningar fjár- magnaðar, listamenn og listaverk ganga kaupum og sölum. Þetta er þekkt staðreynd en líklega nokkuð sem á það til að gleymast. Í arinstofu ASÍ má svo sjá verk eftir fimm næfa listamenn úr safni ASÍ og skapa þau skemmtilegt mót- vægi við sýningar Þórodds og Ívars. „Hugbirtingar“ Sýning Færeyinganna átta í Hafn- arborg er á gjörólíkum nótum. Meiri- hluti þessa hóps hefur sýnt áður hér- lendis, bæði í höfuðborginni og á landsbyggðinni, sumir áður í Hafn- arborg, 2001. Þegar sýningin í Hafn- arborg er skoðuð kemur aldur lista- mannanna dálítið á óvart, verkin eru flest unnin í anda listastefna sem voru efst á baugi fyrir nokkrum ára- tugum en listamennirnir eru milli þrítugs og fimmtugs. Eyðun af Reyni og Kári Svensson sýna óhlutbundin málverk sem þó eiga fyrirmyndir sínar í náttúrunni, litum hennar og formum og í verkum þeirra skynjar maður sterkt eyjalandslagið, hafið og brimið en báðir eru færir málarar á sínu sviði. Anker Mortensen er á svipuðum slóðum í seríu sinni, Vind- urin blæsur hvar sem hann vil. Astri Luihn sýnir dúkristur þar sem svart og hvítt eru yfirgnæfandi litir, verkin vísa einnig sterkt til náttúrunnar. Hansina Iversen sýnir óhlutbundin málverk í afar sterkum litum, hún sker sig frá hinum í því að vísa ekki til náttúrunnar í myndum sínum. Sigrun Gunnarsdóttir Niclasen mál- ar fígúratíf verk, og myndröð hennar af gömlu konunni og bókinni/Biblí- unni er bæði sígild og nútímaleg og gleymist ekki. Grafíkverk Hanni Bjartalíð eru kraftmikil, sérstaklega þau sem búa yfir fleiri en einni mynd, og eru unnin í nokkrum lögum. Það er svo Hans Pauli Olsen sem brýtur upp tvívíða sýningu með höggmynd- um, eftirmyndum af kvenlíkama í fullri stærð unnar í gylltar glertrefj- ar. Þessir færeysku listamenn eru allir hæfir á sínu sviði og verkin ná að mynda einhverja óskilgreinda heild þó ólík séu, kannski er það sameig- inlegur bakgrunnur listamannanna sem skapar þá tilfinningu. Þrátt fyrir að hér sé um ágæt verk að ræða kem- ur þó á óvart hversu hefðbundin þau eru. Það er vissulega ekki eftirsókn- arvert að hlaupa í sífellu eftir nýjustu stefnum og straumum – enda hef ég aldrei hitt nokkurn listamann sem eyðir tíma sínum og orku í slíkt – en tæpast er frjórra að leita í stefnur liðinna tíma sem hinn eina sannleika. Tré á röngunni Listamaðurinn á neðri hæð Hafn- arborgar, Joan Backes, sækir beint í náttúruna við gerð verka sinna. Hún takmarkar sig ekki við einn miðil heldur gengur til verks líkt og vís- indamaður við rannsóknir og birtir myndrænar niðurstöður sínar á fjöl- breyttan hátt. Sýning hennar lætur ekki mikið yfir sér en á henni koma fram margir ólíkir þættir. Það er áhugavert hvernig hún nálgast nátt- úruna jafnt á vísindalegan sem ljóð- rænan hátt, hlutlaust tekur hún afrit af náttúrunni en gefur líka ímynd- unarafli sínu lausan tauminn. Nátt- úran er endalaus uppspretta vanga- veltna um okkur sjálf, um krafta lífsins og um það hvernig maðurinn umgengst náttúruna. Joan er fær málari og málverk hennar af trjá- berki ná að verða bæði óhlutbundin og raunsæ í senn. Lamíneruð lauf- blöð tengja heimsálfur þar sem þekkja má íslensk laufblöð innan um önnur framandlegri um leið og nú- tímatækni hjúpar þau og varðveitir á næstum óhugnanlegan hátt líkt og smurð lík. Joan Backes notfærir sér nýja tækni og gamla jöfnum höndum við útfærslu verka sinna, líkt og svo margir listamenn í dag einskorðar hún sig ekki við eitt tjáningarform eða eina listastefnu heldur rannsak- ar umhverfi sitt með opnum hug og líflegu ímyndunarafli. Það er áhugavert að sjá hvernig þessar þrjár ólíku sýningar sækja til náttúrunnar hver á sinn hátt. Í dag er engin ein stefna sem öllu ræður, listamenn njóta þessa frelsis sem ný öld býður upp á. Vonandi gera áhorf- endur, þeir sem á endanum skapa myndlistina, gefa henni líf og tilgang, varðveita hana í minninu, njóta henn- ar og gera hana að hluta af lífi sínu, það líka. Birtingarmyndir náttúrunnar Ívar Valgarðsson, Ein umferð Sólgult, Hörpumálning, Listasafn ASÍ. MYNDLIST Listasafn ASÍ við Freyjugötu Hafnarborg Listasafn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14–18. Til 26. janúar. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðju- daga frá kl. 11–17. Til 27. janúar. BLÖNDUÐ TÆKNI, ÞÓRODDUR BJARNA- SON OG ÍVAR VALGARÐSSON FIMM ALÞÝÐULISTAMENN, MYNDIR ÚR SAFNI ASÍ BLÖNDUÐ TÆKNI, ÁTTA FÆREYSKIR LISTAMENN BLÖNDUÐ TÆKNI, JOAN BACKES Ragna Sigurðardóttir Hugbirtingar, Kári Svensson, Hafnarborg. Verk Þórodds Bjarnasonar, Listasafni ASÍ. EKKI hefur verið ákveðið hvenær fimmta bókin í bókaflokknum um galdrastrákinn Harry Potter verð- ur gefin út á Íslandi en vonast er til að það verði á þessu ári. Snæbjörn Arngrímsson, útgáfustjóri bókaút- gáfunnar Bjarts, segir það hins vegar geta sett strik í reikninginn að útgefendur geti ekki fengið handrit bókarinnar, sem nefnist Harry Potter og Fönixreglan, í hendur fyrr en 21. júní vegna gíf- urlegra öryggisráðstafana. „Ég myndi treysta mér til að gefa hana út í nóvember en við er- um í samstarfi við aðra evrópska útgefendur Harry Potters og ég veit ekki hvað þeir treysta sér til að vera fljótir að þessu,“ segir hann. Þá segir hann að sameig- inlegur útgáfudagur verði senni- lega ákveðinn á fundi evrópsku út- gefendanna í mars og í framhaldi af því verði ákveðið hvenær bókin komi út hér á landi. „Ég veit að það eru allir mjög áhuga- samir um að bók- in komi út á árinu enda er það mikið hags- munamál fyrir marga,“ segir hann. Þá segist hann finna fyrir ótrúleg- um þrýstingi frá lesendum sem vilji fá bókina sem fyrst í hendur. Snæbjörn segir að bókin verði 580 síður í íslenskri útgáfu, þar sem hún verði í öðru broti en breska og bandaríska útgáfan, og því sé hugsanlegt að þýða hana á fjórum mánuðum, sitji menn stíft við. Það eigi hins vegar eftir að koma í ljós hvort sú leið verði far- in. Breska útgáfu- og fjölmiðlafyr- irtækið Bloomsbury tilkynnti í gær að bókin kæmi út í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada og Ástr- alíu 21. júní, en tæp þrjú ár eru lið- in frá því breski rithöfundurinn J.K. Rowling sendi frá sér fjórðu bókina um Harry Potter. Harry Potter og Fönixreglan Óvíst með útgáfudag hér á landi J.K. Rowling

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.