Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 17
UMFJÖLLUN borgaryfirvalda á
veitingu byggingarleyfis fyrir fjöl-
býlishúsið í Suðurhlíð 38 var ekki
með þeim hætti sem gera verður
kröfu um. Þetta er álit embættis
borgarlögmanns. Segir að ekki hafi
verið gætt lagaskilyrða við útgáfu
leyfisins og því verði að líta svo á að
leyfið hafi verið ógildanlegt.
Álitsgerð borgarlögmanns var
lögð fram í skipulags- og bygging-
arnefnd borgarinnar í gær. Forsaga
málsins er sú að samkvæmt sam-
þykktu deiliskipulagi svæðisins
mátti húsið vera 12 metrar að hæð
en veitt var byggingaleyfi fyrir 12,4
metra hárri byggingu. Sömuleiðis er
húsið hærra í hallandi lóðinni en ráð
var fyrir gert og er heildarhæð þess í
landinu því um tveimur metrum
meiri en áætlað var.
Þegar athugasemdir bárust við
þetta var óskað eftir skýringum frá
hönnuðum hússins og segir í álits-
gerðinni að af bréfi þeirra megi ekki
annað ráða en að þeir hafi ákveðið
aðra hæðarsetningu hússins en
skýringaruppdráttur með deili-
skipulagi gerði ráð fyrir. Er bent á
að fyrir liggi nýir aðaluppdrættir að
húsinu sem sýni að það hafi í heild
verið lækkað um 0,45 metra. Þeir
hafi hins vegar ekki verið sam-
þykktir af skipulags- og bygg-
inganefnd og því sé ekki hægt að
taka tillit til þeirra í álitsgerðinni.
Ekki ólögmæt hagsmuna-
skerðing nágranna
Segir að ljóst megi vera að bygg-
ingin standi töluvert hærra en skýr-
ingamynd með deiliskipulagi gerði
ráð fyrir en hún var meðal þeirra
gagna sem hagsmunaaðilar, s.s. ná-
grannar, kynntu sér í aðdraganda
þess að deiliskipulagið var samþykkt.
Í þessu sambandi er bent á að í
deiliskipulaginu sé sérstaklega tekið
fram að við hönnun hússins skuli
reynt að setja það eins lágt í landið og
eðlilegt getur talist. Hins vegar segi í
reglugerð að slíkir skýringa-
uppdrættir séu ekki bindandi. Segir
að þrátt fyrir að einhver óveruleg frá-
vik frá gildandi deiliskipulagi kunni
að vera heimil verði að telja að ofan-
greind frávik geti raskað eða þrengt
að réttindum annarra. „Þar sem ekki
var gætt lagaskilyrða við útgáfu hins
umdeilda byggingarleyfis verður að
líta svo á að leyfið hafi verið ógild-
anlegt,“ segir í álitinu.
Bent er á að bygging Suðurhlíðar
38 sé svo langt komin að ljóst sé að
veruleg verðmætaröskun muni eiga
sér stað verði byggingarleyfishafa nú
gert að breyta byggingunni til sam-
ræmis við deiliskipulagið. Þar sem
húsið standi um 40 metrum frá Suð-
urhlíðarskóla, um 110 metrum frá
næstu íbúðarhúsum við Suðurhlíð og
sé talsvert neðar í landinu en önnur
hús við Suðurhlíð, verði nágrannar
hússins því tæplega fyrir birtuskerð-
ingu þrátt fyrir að það sé um tveimur
metrum hærra en ráð var fyrir gert.
Hagsmunaskerðing nágranna liggi
því fyrst og fremst í hugsanlegri út-
sýnisskerðingu umfram það sem þeir
máttu gera ráð fyrir miðað við deili-
skipulagið og skýringaruppdráttinn.
Í ljósi annarra dóma sem fallið hafi í
svipuðum málum sé ekki unnt að líta
svo á að hæð byggingarinnar feli í sér
slíka hagsmunaskerðingu að um
ólögmæta athöfn sé að ræða gagn-
vart nágrönnum hennar.
Verulegt athugunar-
leysi hönnuða
Borgarlögmaður bendir á að
hönnuðir beri ábyrgð á því að hönn-
un þeirra sé í samræmi við gildandi
deiliskipulag og sömuleiðis beri
byggingaryfirvöldum ávallt að gæta
þess að teikningar séu í samræmi við
skipulag viðkomandi svæðis. Hönn-
uðirnir hafi auk þess sjálfir gert um-
rætt deiliskipulag og hafi því gjör-
þekkt það. „Verður því að telja
framlagningu á aðaluppdráttum, þar
sem hæð hússins er umfram deili-
skipulag og hæðarafsetning er önn-
ur en ráða má af deiliskipulagi, sé
verulegt athugunarleysi af þeirra
hálfu.“ Hins vegar sé það skipulags-
og byggingarnefndar að meta hvort
brot hönnuðanna séu þannig að beita
skuli ákvæðum skipulags- og bygg-
ingarlaga sem kveða á um áminn-
ingu eða jafnvel leyfissviptingu.
Niðurstaða borgarlögmanns er
því sú að Suðurhlíð 38 hafi verið
byggð án þess að deiliskipulagi hafi
verið fylgt, teikningar hafi verið
samþykktar þar sem hæðarafsetn-
ing sé önnur en ráða megi af deili-
skipulagi og skýringaruppdrætti og
húsið sé hærra en deiliskipulag
heimilaði. „Það er skoðun embættis
borgarlögmanns að umfjöllun bygg-
ingaryfirvalda á máli þessu hafi ekki
verið með þeim hætti sem gera verð-
ur kröfu um.“
Röð mannlegra mistaka
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, for-
maður skipulags- og bygginga-
nefndar, segir að hún harmi þau mis-
tök sem hafi átt sér stað. „Nefndin
fékk á sínum tíma rangar upplýs-
ingar bæði frá hönnuðum og emb-
ættismönnum. Þarna er röð mistaka
sem hafa átt sér stað og kannski erf-
itt að kenna einhverjum einum um.
En ég viðurkenni fúslega að þarna
áttu sér stað mistök og við munum
fara yfir þau til að tryggja að þetta
gerist ekki aftur.“
Hún segir það matsatriði hvort
hagsmunir fólks hafi verið skertir
með hæð hússins. „Ef þessir aðilar
telja eitthvað á sér brotið verða þeir
að leita réttar síns og við verðum þá
einfaldlega að taka á því þegar þar
að kemur.“ Hún segir ómögulegt að
dæma um hvort skaðabótamál séu
líkleg í kjölfar álitsins. „Borg-
arlögmaður telur frekar vafasamt að
við séum bótaskyld því þarna séu
engir þeir hagsmunir sem kalli á það
og ég hlýt að halda mig við þá af-
stöðu þar til annað kemur í ljós.“
Í bókun sjálfstæðismanna í skipu-
lags- og bygginganefnd í gær segir
að pólitísk ábyrgð Reykjavíkurlist-
ans sé mikil í málinu. Að sögn Stein-
unnar Valdísar er af og frá að
Reykjavíkurlistinn hafi vísvitandi
blekkt íbúa í þessu máli. „Það eru
einfaldlega mannleg mistök sem
hafa átt sér þarna stað,“ segir hún.
Setur spurningar við
vinnuferli borgarinnar
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
fulltrúi sjálfstæðismanna í skipu-
lags- og byggingarnefnd, segist líta
málið alvarlegum augum. „Íbúar og
aðrir hagsmunaaðilar verða að geta
treyst því að þau gögn sem frá
skipulagsyfirvöldum koma séu rétt
og skýr. Svo var ekki í þessu tilviki
og að mínu mati er það sérstaklega
slæmt vegna þess að þessi bygging
var mjög umdeild á sínum tíma.“
Hún segir málið jafnframt setja
spurningar við vinnuferli borg-
arinnar þar sem sömu aðilar deili-
skipuleggja svæði og byggja húsin
sem þar eiga að vera. „Þetta mál er
enn eitt dæmið um það hversu illa er
staðið að samráði við íbúa varðandi
skipulagsmál í Reykjavík. Við sjálf-
stæðismenn gerðum þá kröfu á fund-
inum að staða þessa máls og álit
borgarlögmanns yrði kynnt íbúun-
um og öðrum hagsmunaaðilum sem
allra fyrst. Í framhaldinu verður að
koma í ljós hvort einhverjir íbúar
leiti réttar síns og hvernig þau mál
fara.“
Borgarlögmaður gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar vegna byggingar umdeilds fjölbýlishúss
Morgunblaðið/Kristinn
Bygging Suðurhlíðar 38 er það langt komin að borgarlögmaður telur að veruleg verðmætaröskun muni eiga sér
stað verði byggingarleyfishafa gert að breyta byggingunni til samræmis við samþykkt deiliskipulag.
Suðurhlíðar
Ekki gætt laga-
skilyrða við útgáfu
byggingarleyfis
TILKYNNT verður um nafn
nýja strandhverfisins í Arn-
arnesvogi í Garðabæ í dag auk
nafna á götum og torgi sem
þar verða. Nafngiftirnar munu
vísa til sögunnar og sjálfstæð-
isbaráttu Íslendinga en Hall-
grímur Helgason rithöfundur
átti hugmyndina að nöfnunum.
Í fréttatilkynningu frá Garða-
bæ segir að hornsteinn verði
lagður að nýja hverfinu í dag
um leið og skrifað verður und-
ir samstarfssamning um upp-
byggingu hverfisins en það
eru fyrirtækin Björgun ehf. og
Bygg ehf. sem sjá um hönnun
og skipulagningu svæðisins.
Gert er ráð fyrir að 760
íbúðir verði í hverfinu full-
byggðu, þar af 200 íbúðir fyrir
eldri borgara. Arkitekt hverf-
isins er Björn Ólafs. Fram-
kvæmdir hefjast í vestasta
hluta hverfisins og er stefnt
að því að fyrstu íbúðirnar
verði tilbúnar á vormánuðum
2004.
Gatnanöfn
vísa í sjálf-
stæðis-
baráttuna
Arnarnesvogur