Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 21
FYRSTA opnun árs-
ins hjá Listasafni
Reykjavíkur er sýn-
ingaröðin Kúlan í
Ásmundarsafni, þar
sem þrír listamenn
vinna verk inn í kúl-
una, sem er elsti
hluti byggingar Ás-
mundarsafns. Fyrst
í sýningaröðinni er
verk Tuma Magn-
ússonar en sýning
hans verður opnuð í
dag kl. 17 og stend-
ur til 16. febrúar.
Hinir listamennirnir tveir eru
Finnbogi Pétursson (27. febrúar
til 30. mars) og Eygló Harð-
ardóttir (10. apríl til 11. maí).
Sem sýningarrými á Kúlan sér
fáar hliðstæður. Markmið þess-
arar sýningaraðar er að kanna
möguleika rýmisins og hvetja til
endurskoðunar á hlutverki Ás-
mundarsafns í samfélaginu.
Vegna eðlis verkefnisins kem-
ur sýningarskrá út stuttu eftir
opnun síðustu sýningarinnar.
Sýningarstjórar eru Hanna
Styrmisdóttir og Pétur H. Ár-
mannsson.
Þessi sýning er sú fyrsta af níu
sem opnaðar verða í Listasafni
Reykjavíkur á tæplega þriggja
mánaða tímabili. Auk þeirra
verða áfram í boði þrjár fasta-
sýningar, í öllum húsunum; Hafn-
arhúsi, Ásmundarsafni og á Kjar-
valsstöðum.
Á morgun kl. 20 verður opnuð
á Kjarvalsstöðum samsýning
ungra, íslenskra og breskra lista-
manna og ber sýningin heitið
then ... hluti 4 – minni forma.
Sýningin stendur til 2. mars.
Hugarleiftur nefnist sýning sem
opnuð verður í Hafnarhúsinu 24.
janúar, Myndbönd og gjörningar
29. janúar og Lýsir 1. febrúar. Á
Kjarvalsstöðum verður opnuð 1.
mars, í miðrýminu, sýningin
Sveitungar – hausarnir að austan
eftir Kjarval og 7. mars verður
opnuð á sama stað sýning á nýj-
um verkum eftir Helga Þorgils
Friðjónsson, sem fagnar fimm-
tugsafmæli sínu á opnunardag-
inn. Þá verður Ilmur Stef-
ánsdóttir með sýninguna Mobiler
á Kjarvalsstöðum sem hefst 4.
apríl.
Í fræðsludagskrá safnsins er
boðið upp á leiðsögn, fyrirlestra
og málþing. Þá mun safnið taka
þátt í samstarfsverkefnum við at-
vinnulífið og hýsa stórmeist-
aramót í skák í febrúar. Um mán-
aðamótin febrúar-mars mun
Vetrarhátíð í Reykjavík hefja
innreið sína í safnið með fjöl-
breyttri dagskrá.
Morgunblaðið/Golli
Tumi Magnússon ásamt Hönnu Styrmisdóttur, en
hún er annar tveggja sýningarstjóra.
Verk unnin inn í kúlu
Ásmundarsafns
ANNAR flautukonsert Hauks Tóm-
assonar verður frumfluttur á tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
kvöld. Flautuleikurinn er í höndum
ungs, ísraelsks flautuleikara og ný-
bakaðrar móður, Sharon Bezaly, sem
hingað er komin til lands vegna
frumflutningsins. Auk þess verður
flutt á tónleikunum Divertimento
fyrir strengjasveit eftir Béla Bartók
og Fjórir hátíðisdagar á Nýja Eng-
landi eftir bandaríska tónskáldið
Charles Ives, þar sem Kór Lang-
holtskirkju syngur með hljómsveit-
inni, en Sinfóníuhljómsveit Íslands
var einmitt annar flytjenda á fyrstu
hljómplötunni sem gefin var út með
þessu verki árið 1962. Stjórnandi
hljómsveitarinnar í kvöld er landi
Bezaly, Ilan Volkov.
Krefjandi en spennandi
Tildrög flautukonserts Hauks sem
áheyrendur fá að kynnast í fyrsta
sinn í kvöld má rekja til Roberts von
Bahr hjá sænska útgáfufyrirtækinu
BIS. „Hann hafði samband við mig
og spurði hvort ég hefði áhuga á að
semja flautukonsert fyrir ungan
flautuleikara, Sharon Bezaly. Hann
sendi mér nokkra geisladiska með
leik hennar, sem mér leist mjög vel á,
svo ég ákvað að slá til. Það er líka
alltaf jákvætt að takast á við verkefni
eins og þetta, vitandi að það muni
hljóta dreifingu á geisladiski,“ segir
Haukur.
Konsertinn er í fimm köflum og er
skrifaður fyrir meðalstóra hljóm-
sveit, að slepptum kontrabössum og
hornum. Aðspurð segir Bezaly að sér
lítist sérlega vel á konsertinn. „Fyrst
og fremst er það mikill heiður fyrir
mig að tónskáld eins og Haukur skuli
tileinka mér þennan konsert. Auk
þess er alltaf mjög krefjandi en um
leið spennandi að taka þátt í frum-
flutningi nýs verks, þar sem tón-
skáldið er til staðar. Miðað við að
leika verk eftir látna höfunda þar
sem ekki kemur annað til greina en
að fylgja verkinu nákvæmlega eins
og það er skrifað, er frábært að geta
rætt við tónskáldið um flutninginn og
stemninguna í verkinu,“ segir hún.
Bezaly og Haukur höfðu ekki hist
fyrr en að þessu samstarfi þeirra
kom, en hún segist hafa þekkt til tón-
listar hans. „Verk Hauks eru svo
margslungin, og svo er einnig farið
með þetta verk. Hljómsveitarþáttur-
inn er viðamikill og því er nauðsyn-
legt að magna flautuna örlítið upp,
svo hún hafi í við hljómsveitina. Þessi
aðferð (amplified flute) er mikið not-
uð nú á tímum, en ég hef aldrei leikið
í þannig skrifuðu verki áður, svo það
er ný reynsla fyrir mig. Það sem er
áhugavert við það er að tónskáldinu
gefst þá kostur á að skrifa flóknari
hljómsveitarpart, án þess að hafa
áhyggjur af því að einleiksflautan
hverfi í hljóminn.“
Samsetning náinnar samvinnu
og stærra „apparats“
Haukur hóf smíði konsertsins á
árinu 2000 og lauk henni haustið
2001. Hefur verkið tekið einhverjum
breytingum síðan hann komst á svið?
„Nei, í raun er ekkert svigrúm fyrir
slíkt,“ svarar Haukur. „Eftir að
konsert er kominn í hendur flytjenda
hefur tónskáld yfirleitt ekki tækifæri
til mikilla breytinga. Hins vegar vinn
ég verk af þessu tagi oft í áföngum,
set ofan í skúffu og reyni að fá fjar-
lægð á verkið í einhvern tíma. Tek
það svo aftur fram og geri þá end-
anlega útgáfu.“
Til stendur að gefa konsertinn út
hjá BIS eins og fyrr segir, og er áætl-
aður upptökutími í júní á þessu ári.
Sinfóníuhljómsveit Íslands mun þá
leika ásamt Bezaly. „Það er kannski
helst þar til þá sem ég hef möguleika
á að eiga við konsertinn,“ segir
Haukur og kímir.
Þetta er annar flautukonsertinn
sem Haukur semur, en Flautukons-
ert hans nr. 1 var frumfluttur af Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og Áshildi
Haraldsdóttur í febrúar árið 2000.
Hvað er málið með Hauk og þver-
flautukonserta? „Ja, flautan er auð-
vitað afskaplega lipurt hljóðfæri, en
þar fyrir utan höfðar form einleiks-
konsertsins mjög til mín. Mér finnst
það skemmtileg samsetning af náinni
samvinnu – að skrifa fyrir einn hljóð-
færaleikara og vinna mjög náið með
honum – og því stóra „apparati“ sem
sinfóníuhljómsveit er, þar sem mað-
ur þarf líka að gæta vissrar var-
kárni.“
Ilan Volkov stjórnar hljómsveit-
inni í kvöld, en hann er 26 ára gamall
Ísraeli sem þrátt fyrir ungan aldur
hefur stjórnað mörgum þekktustu
hljómsveitum og einleikurum heims.
Tónskáldið og einleikarinn fara bæði
lofsamlegum orðum um hann. „Hann
er alveg ótrúlegur, mjög hæfileika-
ríkur,“ segja þau. Tónleikar kvölds-
ins leggjast vel í þau að sögn. „Frum-
flutningur er alltaf svolítið sérstakur
og honum fylgir mikil eftirvænting.
Ég efast ekki um að þetta verði mjög
gaman,“ segir Sharon Bezaly að lok-
um.
Einleikskonsertinn
í uppáhaldi
Morgunblaðið/Kristinn
Haukur Tómasson tónskáld og Sharon Bezaly flautuleikari ræða við
stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, Ilan Volkov, um Flautu-
konsert nr. 2 eftir Hauk, sem frumfluttur verður á tónleikum í kvöld.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari
opnar sýningu á Mokka kaffi. Á sýn-
ingunni, sem kallast Blátt og rautt,
gefur að líta sex ljósmyndir í stærð-
inni 50 x 60 cm.
Friðrik Tryggvason, f. 1979, útskrif-
aðist frá Lorenzo di Medici í Flórens
vorið 2002. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing hans en einnig hefur hann tekið
þátt í nokkrum samsýningum hér-
lendis og erlendis.
Sýningin stendur til 15. febrúar.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
„Námið í Rafiðnaðarskólanum hefur nýst mér
mjög vel, mun betur en ég átti von á. Í starfi mínu
hjá Umferðarstofu nýtist öll sú þekking og færni
sem ég öðlaðist hjá Rafiðnaðarskólanum.
Ég mæli hiklaust með þessu námi.“
Eva Gunnarsdóttir
nemandi í Tölvu- og rekstrarnámi 1999
Tölvu- og rekstrarnám hjá Rafiðnaðarskólanum
Fyrir þá sem vilja ná árangri
Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · www.raf.is
Bændaferðir
Ferðaalmanak 2003