Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 32
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli minn-
ingargreina
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur
borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprent-
un að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer
höfundar og/eða sendanda (vinnusími og
heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er tak-
markað getur þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins tiltekna
frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um
hvern látinn einstakling birtist formáli og ein
aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og
votta virðingu án þess að það sé gert með
langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
MINNINGAR
32 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hjördís Geirdalfæddist á Ísafirði
16. nóvember árið
1930. Hún lést á líkn-
ardeild Landspítal-
ans í Kópavogi hinn
8. janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Vilhelmína
Steina Pétursdóttir
húsfreyja, f. á Felli í
Árneshreppi í
Strandasýslu 25. júní
1885, d. 25. des. 1939,
og Guðmundur Eyj-
ólfsson Geirdal,
skáld og hafnar-
gjaldkeri Ísafirði, f.
á Brekku í Gufudals-
hreppi í A-Barða-
strandarsýslu 2.
ágúst 1885, d. 16.
mars 1952. Hjördís
var næst yngst í hópi
sjö systkina: 1) Ing-
ólfur, f. 29. apríl
1915, 2) Pétur, f. 16.
ágúst 1916, d. 11.
apríl 1983, 3) Ólöf Ragnheiður, f.
31. júlí 1918, d. 17. ágúst 1943, 4)
Ingibjörg, f. 1. mars 1923, d. 31.
ágúst 1948, 5) Bragi, f. 7. apríl 1917,
d. 7. október 1994, 6) Hjördís, sem
hér er kvödd og 7) Erna, f. 2. mars
1932.
Hjördís giftist 2. nóvember 1952
Guðmundi Áka Lúðvígssyni við-
skiptafræðingi, framhaldsskóla-
kenna og leiðsögumanni, f. 24. mars
1931. Foreldrar hans voru Sigríður
Hallgrímsdóttir húsfreyja frá
Grímsstöðum á Mýrum, og Lúðvíg
Guðmundsson stofnandi og skóla-
stjóri Myndlista og handíðaskóla Ís-
lands. Dætur Hjördísar og Guð-
mundar eru: 1) Erna Steina
textílhönnuður, f. 12. mars 1953.
Maður hennar er Gestur R. Bárð-
arson efnaverkfræðingur, f. 26. maí
1953. Börn þeirra eru Tómas Áki, f.
29. júní 1976, Davíð Kjartan, f. 6.
febrúar 1983, Gestur Ari, f. 15. júní
1987, og Hjördís, f. 25. nóvember
1988. 2) Sigríður leiðsögumaður, f.
14. júlí 1960. Hún var gift Barbaro
Ortiz, f. á Kúbu 5. desember 1964.
Sonur þeirra er Theodór Ari, f. 10.
nóvember 2001. Hjördís lauk námi í
hárgreiðslu frá Iðnskólanum í
Reykjavík og starfaði við þá iðn
fyrri hluta ævinnar bæði sem sjálf-
stæður atvinnurekandi og í félagi
við aðra. Síðar vann hún mikið við
ýmis hjúkrunar- og ummönnunar-
störf. Útför Hjördísar verður gerð
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Mágkona mín, Hjördís Geirdal, er
látin eftir langa og erfiða sjúkdóms-
legu og langar mig að minnast hennar
í fáum orðum.
Ung að árum giftist Hjördís bróður
mínum, Guðmundi Áka Lúðvígssyni,
og áttu þau heimili í Reykjavík. Fljót-
lega stækkaði fjölskyldan og þau
eignuðust tvær dætur sem báðar lifa
móður sína og kveðja nú hinstu
kveðja. Þetta eru þær Erna Steina og
Sigríður.
Hjördís var falleg kona og smekk-
leg og bar heimili þeirra hjóna góðan
vott um listfengi hennar. Hún lærði
ung hárgreiðslu og var meistari í
þeirri iðngrein. Hún var vandvirk og
vinsæl og átti sinn fasta „kúnnahóp“.
Hjördís var frekar dul og flíkaði ekki
tilfinningum sínum. Hún var vel gefin
og hafði ákveðnar skoðanir á mönn-
um og málefnum. Og trúföst var
Hjördís og gafst ekki upp, þrátt fyrir
erfiðleika og mótlæti.
Ég kveð nú mágkonu mína, Hjör-
dísi, með þakklæti og söknuði. Dauð-
inn er bæði miskunnarlaus og afger-
andi, en þó er hann stundum líkn og
lausn og þannig var það nú.
Við Halldór og fjölskylda okkar
sendum Áka, dætrunum tveimur og
fjölskyldum þeirra og öðrum aðstand-
endum innilegar samúðarkveðjur.
Ingveldur Lúðvígsdóttir
Gröndal.
HJÖRDÍS GEIRDAL
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma,
ÞORBJÖRG ÞÓRARINSDÓTTIR
frá Brandsbæ í Hafnarfirði,
sem lést föstudaginn 10. janúar, verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
17. janúar kl. 10.30.
Þórunn Pálmadóttir, Þorsteinn Pálmar Einarsson,
Kristinn Bernhard Kristinsson,
Íris Björg Kristinsdóttir,
Pálmi Þór Kristinsson.
Hjartkær eiginmaður minn og elskulegur faðir
okkar,
FRIEDEL KÖTTERHEINRICH,
Túngötu 49,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 8. janúar verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 17. janúar kl. 10.30.
Ingibjörg Sveinsdóttir,
Kristín Luise Kötterheinrich,
Markús Sveinn Kötterheinrich.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
EIRÍKUR MARTEINSSON,
Ásgarðsvegi 22,
Húsavík,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 18. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Björk Breiðfjörð Helgadóttir,
Marteinn Steingrímsson,
Guðrún Eiríksdóttir, Jón Óli Sigfússon,
Hörður Eiríksson, Jóna Fríða Kristjánsdóttir.
Okkar ástkæra,
ANNA VILMUNDARDÓTTIR
frá Löndum,
Grindavík,
sem andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund þriðjudaginn 7. janúar, verður jarðsung-
in frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 18. janúar
kl. 14.00.
Steinólfur Jóhannesson,
Lúther Kristjánsson, Elín Káradóttir,
Halldór Kristjánsson, Guðný Guðjónsdóttir,
Ólafur Kristjánsson, Erla S. Ingólfsdóttir,
Anna Dóra Lúthersdóttir, Hreinn Líndal Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum hlýhug og vináttu við andlát og út-
för
GUÐRÚNAR ÁRMANNSDÓTTUR,
Sílalæk,
Aðaldal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga, heimahjúkrunarkvenna
og Kvenfélags Nessóknar.
Fjölskylda hinnar látnu.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVAVA ÞORGERÐUR
ÞÓRHALLSDÓTTIR JOHANSEN,
Sóltúni 2,
áður Kirkjusandi 1,
Reykjavík,
sem andaðist aðfaranótt miðvikudagsins
8. janúar, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 17. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Rolf Johansen, Kristín Johansen,
Bertha Ingibjörg Johansen, Hörður Sigurjónsson,
Kitty Johansen, Gunnar Ingimundarson,
Hulda Gerður Johansen, Steindór I. Ólafsson,
Þórhallur Dan Johansen, Anna Lilja Gunnarsdóttir,
Thulin Johansen, Sjöfn Har,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa, sonar og
bróður,
GYLFA HARÐARSONAR,
Vestmannabraut 33,
Vestmannaeyjum.
Gylfi Anton Gylfason, Linda Hrönn Ævarsdóttir,
Ólafur Þór Gylfason, Ingibjörg Arnarsdóttir,
Unnur Heiða Gylfadóttir, Þröstur Friðberg Gíslason,
Bjarki Týr Gylfason, Sigríður Reynisdóttir,
Unnur Jónsdóttir,
barnabörn og systkini hins látna.
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku-
legrar frænku minnar,
GUÐRÚNAR LÍNEYJAR VALGRÍMSDÓTTUR,
Skjóli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjóls fyrir góða
umönnun og hlýju í okkar garð.
Jóhanna Guðjónsdóttir
og aðrir aðstanendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
JÓSEFÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR BLÖNDAL
frá Seyðisfirði,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri
miðvikudaginn 8. janúar sl., verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju föstudaginn 17. janúar
kl. 15.00.
Svala Halldórsdóttir,
Ólavía D. Halldórsdóttir, Jón G. Gíslason,
Lárus Halldórsson, Stella Hálfdánardóttir,
Herbert Halldórsson, Guðmunda Þórðardóttir,
Kristín Halldórsdóttir, Jóhannes Steingrímsson
og ömmubörn.
Sambýlismaður minn, faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
VILMUNDUR HAFSTEINN REIMARSSON,
Hreggnasa,
Bolungarvík,
verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bolungarvík
laugardaginn 18. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á krabbameinsfélögin.
Sigfríður Hallgrímsdóttir,
Reimar H. Vilmundarson,
Guðrún H. Vilmundardóttir Sveinn Óðinn Ingimarsson,
Hallgrímur Þ. Björnsson, Herdís Tómasdóttir,
Ása María Björnsdóttir,
Kjartan Björnsson, Elín Granz,
Sigrún Sveinsdóttir, Hermann Dan Másson,
Jóhanna U. Reimarsdóttir, Jón Vagnsson,
Kristján K. Reimarsson, Birna Guðrún Einarsdóttir,
barnabörn og aðrir ættingjar.