Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDIR dálknum „Bréf til blaðsins“,
í Morgunblaðinu föstudaginn 10.
janúar sl., birtist grein undir fyrir-
sögninni „Þjónusta í Sporthúsinu“.
Þar er að finna ýmsar fullyrðingar
sem eiga sér ekki stoð í raunveru-
leikanum.
Höfundur greinarinnar, Sævar
Pétursson, framkvæmdastjóri
Sporthússins, fullyrðir m.a. í grein-
inni að Nautilus heilsuræktarstöðin í
Sundlaug Kópavogs fái „aðstoð frá
bæjarsjóði Kópavogs“. Í því sam-
bandi nefnir hann „ódýrt eða allt að
frítt vatn og rafmagn“, fullyrðingar
sem eru fjarri sanni.
Nautilus heilsuræktin starfar
samkvæmt samningi við Sundlaug
Kópavogs. Þar er skýrt kveðið á um
leigugreiðslur fyrirtækisins, fyrir
það rými sem það hefur til afnota.
Auk þess greiðir Nautilus aðgang að
Sundlaug Kópavogs fyrir alla þá
gesti sem kaupa sér kort í heilsu-
ræktarstöðina.
Einstaklingar, félagasamtök og
fyrirtæki, þ.m.t. samkeppnisaðilar
Nautilus, geta keypt aðgang að laug-
inni á sömu kjörum og Nautilus
hverju sinni, þ.e. samkvæmt gjald-
skrá Sundlaugar Kópavogs.
Fullyrðing framkvæmdastjóra
Sporthússins um að Nautilus njóti
aðstoðar frá bæjarsjóði Kópavogs er
því fjarri öllum sanni. Samningurinn
hefur verið til umfjöllunar hjá Sam-
keppnisstofnun, sem ekki hefur séð
ástæðu til athugasemda.
Nautilus rekur yfir 80 líkams-
ræktarstöðvar í Svíþjóð, Noregi,
Finnlandi, Danmörku, Póllandi og á
Bretlandseyjum. Rekstrarformið á
þessum stöðum er mismunandi.
Á mörgum stöðum er samstarf við
aðra, t.d. sundlaugar, á öðrum stöð-
um eru stöðvarnar reknar af Nau-
tilus eingöngu og í nokkrum tilfellum
eru Nautilus-stöðvar reknar með
leyfi Nautilus (license).
Á öllum þessum stöðum er boðið
upp á fría prufutíma undir leiðsögn
kennara, hvert svo sem rekstrar-
formið er. Það er hluti af þeirri hug-
myndafræði sem rekstur stöðvanna
byggist á.
Allir sem hefja iðkun hjá Nautilus
eða hafa hug á því, fá tíma með kenn-
ara, til þess að læra á tækin, eig-
inleika þeirra og stillingar. Þetta er
gert í þeim tilgangi að minnka slysa-
hættu við iðkunina og tryggja það að
iðkendur fái sem mest út úr líkams-
ræktinni.
KJARTAN MÁR
HALLKELSSON,
rekstrarstjóri Nautilus á Íslandi.
Sannleikur er
sagna bestur
Frá Kjartani Má Hallkelssyni:
Í ÁRAMÓTAÞÆTTINUM Krydd-
síld á Stöð 2 spurði Össur Skarphéð-
insson alþingismaður hann Davíð
Oddsson forsætisráðherra um, hvað-
an svörtu listarnir hefðu komið? Dav-
íð sagði, að svörtu listarnir hefðu
komið frá lögregluyfirvöldum víða um
heim. Það er greinilegt á öllu að það á
að halda ótrautt áfram að viðhafa
þessi ósannindi frammi fyrir alþjóð.
Þrátt fyrir að þeir hjá Interpol séu
fyrir löngu búnir að senda skýrslu og
svar við því, að svörtu listarnir hafa
ekki komið frá þeim þá reyna menn
samt sem áður að halda þessum
ósannindum á lofti. Hvernig var það,
bað dómsmálaráðuneytið um að fá
þessa lista? Hver er ástæðan fyrir því
að svörtu listarnir voru sendir til
landsins fyrir þessa heimsókn? Það
vita allir í Ástralíu hins vegar hvaðan
þessir svörtu listar komu, stjórnvöld
þar sögðu nei og aftur nei, þið getið
ekki ætlast til þess að þið getið komið
svona fram við okkur eins og þið kom-
uð fram við Íslendinga. Þannig að Ji-
ang Zemin forseti Kína varð takk fyr-
ir að ferðast um í rútu milli staða í
Ástralíu sár og reiður. Það hefði verið
skynsamlegra og betri lausn fyrir
okkur, en að þurfa að stöðva ferða-
menn til landsins og beita allri þessari
hörku í landi sem segist leyfa mót-
mæli og tjáningarfrelsi. Davíð sagði í
þættinum, að þetta yrði allt greitt og
bætt að fullu og engar áhyggjur af
því. Til hvers er verið að greiða fleiri
milljónir þar sem ríkisstjórnin fór
bæði að öllu með slíkum heiðarleika í
sinni framgöngu og löglega eins og
menn vilja vera láta? Voru einhver
mistök gerð af hálfu ríkisstjórnarinn-
ar í þessu sambandi? Því eru þá ekki
þessi mistök viðurkennd fyrir alþjóð
þar sem ríkið þarf að standa í þessum
greiðslum? Eða á framganga sem
þessi að skapa það traust sem Davíð
hefur verið að hamra á að sé svo mik-
ilvægt? Hvað var það sem herra Dav-
íð gat talað um mannréttindi á sínum
tíma við Jiang Zeming forseta Kína
en hefur ekki sagt okkur frá því? Dav-
íð sem var einn af þeim sem stóð fyrir
því að brjóta á mönnum mannréttindi
hér, þannig að Jiang Zeming hlýtur
að hafa haft gaman af Davíð og litið á
hann sem mjög góðan skemmtikraft
og samherja í verki. Ekki fengu Fal-
un Gong meðlimir viðtal við herra
Davíð þó að þeir hafi komið hér sér-
staklega til þess og óskað eftir því
hvað eftir annað en síðan er hægt að
sýna þeim dónaskap á Stöð 2 og líkja
þeim við fótboltabullur aftur og aftur.
Þetta er kannski allt saman eitthvað
sem Davíð á eftir skrifa um í næstu
bók, ef hann tekur ekki fyrst upp á því
gefa út bækur eins og t.d. Stolið frá
öryrkjum eða Stolið frá ellilífeyris-
þegum.
ÞORSTEINN SCH.
THORSTEINSSON,
Hrísrima, 112 Reykjavík.
Ósannindi um
svarta listann í
Kryddsíld á Stöð 2
Frá Þorsteini Sch. Thorsteinsson: