Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 38
DAGBÓK
38 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ilya
Erenburg
kemur í dag. Dettifoss,
Helgafell og Garibaldi
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Stígandi kom í gær,
Geysir fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Hjúkr-
unarfræðingurinn verð-
ur í dag kl. 11.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13
bókband, kl. 14–15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Fimmtudagur: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13
verslunin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9.30 danskennsla, kl. 14.
söngstund, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–16.45
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Furugerði
1. Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður og leirmuna-
gerð. Kl. 13.30 boccia. Á
morgun, 17. janúar
messa kl. 14, prestur sr.
Ólafur Jóhannsson,
Furugerðiskórinn syng-
ur undir stjórn Ingunnar
Guðmundsdóttur. Kaffi-
veitingar eftir messu.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9 morgun-
kaffi, kl. 9–12 baðþjón-
usta, kl. 9 glerskurður,
kl. 10 leikfimi, kl. 13.30
söngtími, kl. 15.15 dans
hjá Sigvalda. Hár-
greiðslustofan opin kl. 9–
14.
Korpúlfar, Grafarvogi,
samtök eldri borgara,
hittast á fimmtudögum
kl. 10, aðra hverja viku er
púttað á Korpúlfsstöðum
en hina vikuna er keila í
Keilu í Mjódd. Nýir fé-
lagar velkomnir.
Upplýsingar gefur Þrá-
inn í síma 545 4500.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 11 búta-
saumur, kl. 13 leikfimi
karla, bútasaumur og
málun.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fóta-
aðgerð, kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 11.30 hádegis-
verður, kl. 13 föndur og
handavinna, kl 14.30
kaffiveitingar.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt kl.
10, bingó kl. 13.30.
Leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið fimmtud. 6. febr-
úar að sjá leikritið „Halti
Billi“. Skráning og upp-
lýsingar í Hraunseli í
síma 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in kl. 10–13 virka daga.
Morgunkaffi, blöðin og
matur í hádegi. Fimmtu-
dagur: Brids kl. 13.
Bridsnámskeið fyrir
byrjendur hefst í kvöld
kl. 19.30, leiðbeinandi
Ólafur Lárusson, skrán-
ing á skrifstofu félagsins.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, sími
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund í
umsjá Lilju G. Hall-
grímsdóttur djákna í
Fella- og Hólakirkju.
Frá hádegi spilasalur og
vinnustofur opnar, á
morgun kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Leikhúsferð í
Þjóðleikhúsið verður far-
in fimmtudaginn 23. jan-
úar á leikritið „Halti
Billi“, skráning hafin.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–15, kl. 9.05 og 9.50
leikfimi, kl. 9.30 klippi-
myndir, kl. 12.30 vefn-
aður, kl. 13 gler- og
postulínsmálun, kl. 15
enska, kl. 17 myndlist, kl.
20 gömlu dansarnir, kl.
21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 10 ganga, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 13 brids.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og perlu-
saumur, og hjúkrunar-
fræðingur á staðnum, kl.
10 boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur, kl.
10 boccia, kl.13 handa-
vinna, 13.30 félagsvist.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10.30
messa , kl. 13–16.45 leir,
kl. 10–11 ganga.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykjanesbæ.
Fyrirhugað er að bjóða
upp á línudans ef næg
þátttaka fæst. Fundur
verður haldinn í Selinu
fimmtudaginn 16. janúar
kl 17, þar sem rætt verð-
ur um tímasetningu og
gjald. Kennari verður
Ásta Sigurðardóttir.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir, og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 almenn handa-
vinna, kl. 10–11 boccia,
kl. 13–16 kóræfing og
mósaik.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morgun-
stund, kl. 10 fótaaðgerðir
og boccia-æfing, kl. 11.30
matur, kl. 13 handmennt
almennt og frjáls spil, kl.
14.30 kaffi. Kvöldvist
verður 16. janúar kl. 20.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl. 19.39
tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur í
umsjá Skúla Svav-
arssonar. Fundurinn
hefst kl. 17. Allar konur
velkomnar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45, spil
hefst kl. 13.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúklinga
fást á eftirtöldum stöðum
á Austfjörðum. Á Seyð-
isfirði: hjá Birgi Hall-
varðssyni, Botnahlíð 14,
s. 472-1173. Á Neskaup-
stað: í blómabúðinni
Laufskálanum, Kristín
Brynjarsdóttir, Nesgötu
5, s. 477-1212. Á Egils-
stöðum: í Blómabæ, Mið-
vangi, s. 471-2230. Á
Reyðarfirði: hjá Grétu
Friðriksd., Brekkugötu
13, s. 474-1177. Á Eski-
firði: hjá Aðalheiði Ingi-
mundard., Bleikárshlíð
57, s. 476-1223. Á Fá-
skrúðsfirði: hjá Maríu
Óskarsd., Hlíðargötu 26,
s. 475-1273. Á Horna-
firði: hjá Sigurgeir
Helgasyni, Hólabraut 1a,
s. 478-1653.
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555 og
588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin mán.-
fim. kl. 10–15. Sími 568-
8620. Bréfs. 568-8621.
Tölvupóstur ms@msfe-
lag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minningar-
kort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minningar-
kort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna,
Tryggvagötu 26, Reykja-
vík. Opið virka daga frá
kl. 9–13, s. 562-5605,
bréfsími 562-5715.
Í dag er fimmtudagur 16. janúar,
16. dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Varpið allri áhyggju yðar á hann, því
að hann ber umhyggju fyrir yður.
(1Pt. 5, 7.)
K r o s s g á t a 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 frítíma, 8 gangbraut, 9
nabbar, 10 spil, 11 af-
henti, 13 rjóða, 15 dæld,
18 trufla, 21 aðstoð, 22
káta, 23 sívinnandi, 24
markmið.
LÓÐRÉTT:
2 rangt, 3 lét, 4 lét sér
lynda, 5 dósar, 6 mynni, 7
hafa fyrir satt, 12 hreinn,
14 elska, 15 komma, 16
óhreinkaði, 17 fáni, 18
guð, 19 málminum, 20
smábita.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 þukla, 4 gegnt, 7 kúgað, 8 féleg, 9 afl, 11 tása,
13 kurr, 14 skæra, 15 þökk, 17 rugl, 20 æði, 22 klökk, 23
lubbi, 24 tapað, 25 tíðni.
Lóðrétt: 1 þykkt, 2 kuggs, 3 arða, 4 gafl, 5 guldu, 6 tog-
ar, 10 frægð, 12 ask, 13 kar, 15 þekkt, 16 klöpp, 18 um-
boð, 19 leifi, 20 ækið, 21 illt.
ÉG er mikil áhugamann-
eskja um íþróttir svo og all-
ir í minni fjölskyldu.
Heldur finnst mér þó ein-
hæf umfjöllun í Morgun-
blaðinu síðustu vikurnar en
þar tröllríður handboltinn
öllum íþróttafréttum.
Nærtækasta dæmið er í
Morgunblaðinu hinn 13.
janúar. Þar eru 5 af 12 síð-
um lagðar undir handbolt-
ann og hinar að mestu undir
knattspyrnu í Evrópu.
Það er sjálfsagt mál að
fjalla um strákana „okkar“
þegar svo stórt mót er
framundan í handboltanum
en fyrr má nú aldeilis fyrr
vera.
Ég spyr t.d. var ekki
stjörnuleikur í körfuboltan-
um á Íslandi um helgina?
Voru hvergi mót á Íslandi
í sundi eða íþróttir ungs
fólks, annað en handbolti?
Ég skora á íþróttadeild
Mbl. að endurskoða þessa
stefnu sína. Allt fóður, bæði
andlegt og líkamlegt, þarf
að vera fjölbreytt, annars
bíður ekkert nema dauðinn!
Sama á við um íþróttasíðu
Morgunblaðsins.
Endurskoðið efnisvalið!
Með kveðju.
Íþróttaáhugamanneskja.
Dansinn í Hruna
ÞAÐ er ekki einleikið
hvernig R-listamenn koma
fram í skrifum og tali, eftir
ógöngur borgarstjóra
þeirra. Það er eins og Davíð
hafi slegið í höfuð Helga
Hjörvar þegar hann skrifar
– Veðrabrigði í vændum –
en virðist ekki vita að þau
eru löngu skollin á og í rit-
gerð sinni í Fréttablaðinu
miðvikud. 8. jan. sl. klykkir
hann út í skrifum sínum,
með því að segja: „Auðvitað
spyrjum við að leikslokum
en bölbænirnar sendast til
föðurhúsanna.“
Skyldi ekki megnið af
bölbænum félaga Helga
finna sér leið í föðurhús
hans? Framkoma Ingi-
bjargar Sólrúnar er ótrú-
leg. Í grein Hrafnkels A.
Jónssonar í Mbl. 8. jan. sl. –
Heit og handsöl – segir:
„Það var fullkomlega eðli-
legt í kosningabaráttunni
að krafist væri svara varð-
andi væntanlega þátttöku
hennar í landsmálapólitík.
Það að telja nánast óheið-
arlegt að krefja stjórnmála-
mann svara um framtíðar-
áform hljómar eins og farsi
og að telja það réttlæta það
að segja ósatt vekur spurn-
ingu um siðferði þeirra, sem
hafa slíkar skoðanir.
Það vakti einnig athygli
eftir ósannindi Ingibjargar
þegar Dagur Eggertsson
og sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir miðbæjarprestur
dönsuðu stríðsdans í gleði
sinni í fréttatíma sjónvarps-
ins. Og 10. janúar bætist
Einar Kárason rithöfundur
í stríðsdansinn með grein í
Mbl.
Þvílík blindni sem óneit-
anlega minnir á valdatíma
ónefndra harðstjóra síðustu
aldar.
Jóhann.
Þakka góða grein
ÞÓR hafði samband við Vel-
vakanda og vildi hann koma
á framfæri þökkum sínum
fyrir góða grein sem Guð-
rún Heiður, 13 ára, skrifaði
í „Bréf til blaðsins“ mánu-
daginn 13. janúar. Finnst
honum þetta gott hjá henni.
Góð grein
ÉG var að lesa grein eftir 13
ára gamla stúlku í „Bréf til
blaðsins“ í Morgunblaðinu
13. desember. Þetta er al-
besta grein sem ég hef séð
og vil ég vekja athygli fólks
á þessari grein.
Óska ég þessari ungu
stúlku alls hins besta.
Guðmundur Bergsson.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Fleira íþróttir
en handbolti?
Morgunblaðið/Kristinn
Víkverji skrifar...
LJÓTT er að lesa upplýsingarsem ríkislögreglustjóri birti á
þriðjudag um ofbeldi gegn lög-
reglumönnum árið 2001. Þar kom
fram að 81 sinni var ráðist á lög-
reglumenn og í 50 tilvikum hlutu
þeir áverka. Sextán voru kýldir,
ellefu bitnir, sparkað var í níu, þrír
skallaðir í andlit og jafnmargir
slösuðust þegar vopnum var beitt
gegn þeim. Árásum á lögreglu-
þjóna fækkaði reyndar milli ára en
þær eru engu að síður alltof marg-
ar. Það þarf ekki að fjölyrða um að
afleiðingar líkamsárása geta verið
varanlegar, valdið örkumlum og
jafnvel dauða. Stundum þarf ekki
nema eitt högg eða spark. Lög-
reglumenn vita svo sem að þeir
mega búast við átökum enda þurfa
þeir að hafa afskipti af fólki af
ýmsu sauðahúsi sem oft er dauða-
drukkið eða undir áhrifum eitur-
lyfja. Það breytir því ekki að árásir
á lögreglumenn sem eru að sinna
sínu starfi eru óþolandi. Það er
nokkuð ljóst að ef Víkverji þyrfti
að standa í öðru eins í sinni vinnu
væri hann fyrir löngu búinn að
segja upp.
Það er engin ný bóla að lögreglu-
menn verði fyrir árásum. Og án
þess að Víkverji sé að mæla núver-
andi ástandi bót, þá má ljóst vera
að stundum hefur það verið verra.
Frá þriðja áratug síðustu aldar og
fram yfir 1950 kom t.d. ósjaldan til
heiftúðugra ryskinga milli lögregl-
unnar í Reykjavík og mannfjölda
sem safnaðist saman á gamlárs-
kvöldum. Í bókinni Norrænum
sakamálum 2002 er þessu skil-
merkilega lýst. Í fyrstu beindust
skrílslætin ekki að neinu sérstöku
en lögreglumenn urðu fjótlega að
skotspæni skrílsins. Áttu þeir oft í
vök að verjast, bensíni jafnvel hellt
yfir þá og reynt að kveikja í! Sem
betur fer eru engin dæmi um jafn
alvarleg atvik nú á dögum. Eftir
1953 dró mjög úr þessum óeirðum,
m.a. vegna þess að þá voru veitt
leyfi fyrir brennum á ákveðnum
stöðum. Eflaust hefur það líka haft
sín áhrif að í stað þess að lög-
reglumenn fóru saman fjórir í hóp
með stálhjálma og með stórar kylf-
ur, fóru þeir nú tveir og tveir sam-
an. Eitthvað þótti óeirðarseggjun-
um þetta slappur vígbúnaður og
spurðu jafnvel eftir því á lögreglu-
stöðinni hvort lögreglan færi ekki
að koma út. Þetta virðist hafa virk-
að glimrandi vel, a.m.k. man Vík-
verji ekki eftir viðlíka óeirðum og
síðustu áramót voru víst fádæma
friðsæl.
x x x
VÍKVERJI vonar svo sannar-lega að árásum á lögreglu-
menn linni og óskar þeim alls hins
besta. Engu breytir þótt þeir hafi
enn einu sinni stöðvað hann fyrir of
hraðan akstur. Reyndar var Vík-
verji ekki sjálfur undir stýri að
þessu sinni heldur kunningi hans,
en Víkverji var í bílnum og var þar
af leiðandi líka stöðvaður. Þessi
kunningi Víkverja býr svo vel að
eiga kraftmikinn ítalskan sportbíl
og freistaðist til þess eitt augnablik
að sýna Víkverja hversu krafturinn
undir vélarhlífinni væri rosalegur.
En auðvitað þurfti lögreglan að
mæta bílnum og mældi hann víst á
90 km hraða þar sem hámarks-
hraði er ekki nema 60. Það er víst
ekki nóg að umferðin sé lítil sem
engin, bíllinn á góðum dekkjum og
ökumaðurinn þrælvanur. Allir
verða að virða umferðarlögin. Líka
Víkverji og kunningjar hans.