Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12.
kl. 5.30 og 9.30.
DV
RadíóX
Sýnd kl. 5 og 8. B.i.12.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV.
MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 60.000 GESTIR
STÆRSTA BONDMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
YFIR 70.000 GESTIR
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.14 ára
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
LEON OG LE FEMME NIKITA
Sýnd kl. 6, 8 og10. B.i. 12. Sýnd kl. 6 og 11.15. B.i. 16 ára
ÞAÐ var hinn sérvitri upp-
tökustjóri Rick Rubin sem
átti fyrst hugmyndina að
því að beina goðsögninni
Johnny Cash á nýjan leik
inn á fengsæl, listræn
mið. Afraksturinn var plat-
an American Recordings
(’94) hvar Cash söng rámri
röddu, studdur kassagít-
arleik einvörðungu. Efnis-
valið var bæði ný lög og
gömul og á American IV: The Man Comes
Around fetar hann áfram svipaðar slóðir og eru
vörðurnar nú orðnar fjórar. Hér eru sem fyrr í
bland, lög eftir Cash sjálfan og svo útgáfur af
lögum Depeche Mode, Sting, Simon &
Garfunkel og Nine Inch Nails m.a.!
Cash um Cash!
ÞAÐ er óhætt
að tilnefna
poppsveitina
sívinsælu Íra-
fár sem kraft-
mesta há-
stökkvara
Tónlistans fyrr
og síðar. Platan
Allt sem ég sé
hækkar sig um
137 sæti,
hvorki meira né
minna! Heldur en ekki glæst endurkoma hjá
Birgittu Haukdal og félögum. Þannig er mál
með vexti að platan vék af lista í upphafi árs
vegna skilaréttarmála en mest var skilað af Íra-
fársplötunni vegna vinsælda hennar en yfir
15.000 eintök fóru út af lager fyrir jól. Sveitin
sýnir hins vegar nú og sannar að vinsældir
hennar eru síst eitthvað fátkennt fár heldur
sannkallað og verðskuldað Írafár!
Aftur Írafár!
ÞAÐ kom dulítið á
óvart í rappheimum
um jólin er nýliðinn
Móri sló óforvarandis í
gegn, bæði hjá gagn-
rýnendum og áhuga-
mönnum um íslenskt
rapp. Fyrsta plata
hans er furðanlega
heildstætt verk og eft-
ir textum þessa dul-
arfulla drengs að
dæma hefur hann
marga fjöruna sopið um ævina þótt ungur sé.
Rappað er um vafasöm mál hér af miklu list-
fengi, undir mjúkum og hrynheitum takti og lög
eins og „Atvinnukrimmi“ og „Spilltar löggur“
senda hroll niður hrygginn. Svo vitnað sé í
kappann: „Ég mun aldrei aftur bera hlekki/Ég
bara einfaldlega get það ekki!“
Allir vilja Móra!
Uppþot!
!
" "
""#$%"$
"&'
"(
)"*"+
","
"(-.", !-/ 0 -
1"'
%' . 1
1"2"-
"
1"
"
3"$! "4
5"$!5"6/5"%72"'"%
"2"%!5"(2
8
5"9
"'"2"(-*
5"
"%* ":"-
"'"$
/ 4
7G
H
55
+ *
;
"9'/<
=-
(1-
$..
6
>>>"?'@
",
+"0 -"0-
&' /
A* "?!
<
88
A/
' ,";'
4
"9
?2!" 2!
%!
/
B
;"$ )";'
%
A ";-
B-
-
$0
"6 ! '
$
"4 '
C0
=-
9":"
;', "&,
( -"D"4"'@
4 "-"E"E
,
"#"% ,
A'FE"
G"$"'
H"(! "
1
(! "1"-'
'"I' " /"J
K7"
+"0 -"0-
4"?,"D"$ ''" '" ,"6
'.' "8'@
A 2
?
'..
&'-"@ "@
,"-
9"L'
F1"* " "7 "F
%!
B4
)
B"<<",E J
L "6
M
?
'"4)
,"B-
-"(,'@
$". 01 "$0
B "*
"F
"
N
". *,
-
3"+ 0
6// "B
4-
)"#O3"%"&'-"4 '
( " ,
"4 .-
(2
('
A'FE
N
(2
(2
(2
B%#
(2
(/'
B%#
$%L
+
"!
%!
(2
(2
+
"!
+
"!
('
N
+
"!
(2
"!
(2
(2
N
('
NÝJUSTU afurð Seattlesveitarinnar Pearl Jam
hefur verið vel tekið og hjálpar þar ekki síst hið
afbragðsgóða útvarpslag „I Am Mine“. Eddie
Vedder og félagar eru stundum sagðir síðustu
eftirlifendur gruggbylgjunnar svonefndu sem
hæst reis ca ’92/’93 og hafa Pearl Jam verið
óvenju fúsir til að kynna sjálfa sig og plötuna
nýju en tvær síðustu plötur, Yield (’98) og Bi-
naural (’00) læddust nánast óséðar út á mark-
aðinn á sínum tíma. Meira að segja var gert
myndband við áðurnefnt lag en slík athafna-
semi er afar sjaldgæf á Pearl Jam bæ.
Underworld – A Hundred Days Off
Síðasta Under-
worldplata,
Beaucoup Fish
(’99) olli talsverð-
um vonbrigðum.
Voru kallarnir,
sem vísuðu dans-
tónlist sumpart
veginn með hinni framúrskarandi
Dubnobasswithmyheadman (’93), að
missa það?
Hér hrista þeir af sér slenið á
vissan hátt en plötuna hrjáir einn
galli, sem er kannski misstór eftir
því hvernig á málin er litið. Tónlistin
– eins vel framreidd og hún er – er
löngu komin á söludag. Það er eitt-
hvað ankannalegt að hlusta á plötu í
dag, sem maður hefði fagnað sem
snilldarverki fyrir sex árum. Skiptir
þetta máli? Hugsanlega. A.m.k.
varpar þetta doða á verkið og nið-
urstaðan er því vonbrigði, enn og
aftur. Öll ytri hönnun er þó sem fyrr
til stakrar fyrirmyndar. Ef innihald-
ið lyti sömu lögmálum værum við
með meistaraverk í höndunum.
Godspeed You! Black Emperor –
Yanqui U.X.O.
G.Y.B.E. gaf út
eina af allra bestu
plötum ársins ár-
ið 2000, ótrúlega
melódískt og
„stórt“ verk og
nær ólýsanlega
hrífandi. Nálgun
sveitarinnar var um margt fersk, en
í því lá hluti aðdráttaraflsins. Á
þessari nýju plötu eru G.Y.B.E á
sömu slóðum, nákvæmlega sömu
slóðum. Þannig verður platan lítt
spennandi þeim sem þekkja til sveit-
arinnar en getur sömuleiðis hæg-
lega hrifið með sér nýja fylgjendur,
líkt og síðasta plata. Tónlistin er
nefnilega stórgóð – fiðringurinn
sem umlék mann fyrir tveimur ár-
um er bara langt undan. Það er
þannig auðheyranlegt að tónlist
G.Y.B.E. þolir illa ófrumlega end-
urtekningu. Jay-Z - The Blueprint²: The Gift &
The Curse
Austurstrand-
arrapparinn Jay
Z er svalur. Hann
þræðir einstigi
popprappsins og
þess framsækna
listavel sem sann-
ast einkar vel á hinni frábæru The
Blueprint, sem út kom árið 2001.
Framhald Blueprint, tvöfaldur
diskur takk fyrir, er skrýtinn að því
leytinu til að hann minnir lítt á fyr-
irrennarann. Heildstæður stíllinn
sem þar er að finna er látinn víkja á
meðan Jay dýfir tám í alla polla, fær
fólk eins og Lenny Kravitz, Beyonce
Knowles og Rakim til liðs við sig,
vinnur lögin í samvinnu við Nept-
unes, Timbaland og Dr. Dre m.a. og
þvælist úr suðurríkjarappi til sér-
tækra rímna til hreinna poppslag-
ara. Sprettirnir eru oft og tíðum
góðir en stundum mistígur meistar-
inn sig, sem virðist óhjákvæmilegt,
slíkt er umfangið hér. Það sem helst
heillar er æði og kraftur listamanns-
ins sem liggur undir öllu sem hér
gert, en hann ku sá allra iðnasti í
bransanum. En stundum er minna
meira. Arnar Eggert Thoroddsen
Erlend tónlist
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.