Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ RÖÐ af þáttunum The Bache-
lor er nú að hefjast á Skjá einum.
Í fyrsta þættinum kynnast
áhorfendur fimm mönnum, sem
metast um hver sé álitlegastur í
hlutverk nýs piparsveins. Þegar
skarið hefur verið tekið af hefst
barátta 25 glæsilegra stúlkna um
ástir þess sem þær telja allar hinn
eina rétta.
Skyldi nýi piparsveinninn vera
sá rétti fyrir eina af þeim vongóðu
konum er hann hittir í þættinum?
Hann á a.m.k. eftir að kynnast
stúlkum á borð við Amber, Heat-
her, Brooke og Shannon nánar
meðan á þáttaröðinni stendur.
Undir lokin kemur síðan í ljós
hvort hann eigi eftir að biðja hinn-
ar útvöldu.
Fyrsti piparsveinninn, Alex
Michel, valdi Amöndu Marsh í lok-
in, eins og margir muna eftir. Valið
stóð á milli Amöndu og Tristu
Rehn en sú síðarnefnda virðist
vera heppin með að hafa sloppið.
Hún er nefnilega stjarna nýrrar
þáttaraðar, The Bachelorette, sem
er eins uppbyggður og Pipar-
sveinninn, nema hvað hún fær að
velja úr strákum. Þátturinn fer vel
af stað en 17,4 milljónir horfðu á
fyrsta þáttinn í Bandaríkjunum,
fleiri en horfðu á Vesturálmuna.
Amanda og Alex eru enn saman
en hittast einungis stöku sinnum.
Alex hefur einnig verið í sambandi
við Tristu. Hún hefur sagt að
hann hafi lýst því yfir við hana að
hann hafi gert mistök með því
að velja Amöndu.
Alex vinnur nú fyrir sam-
bandssíðuna Match.com, sem
fannst hann vera kjörinn tals-
maður. „Okkur fannst vera
samsvörun milli þess, sem hann
hefur gert opinberlega og því
sem meðlimir hjá okkur þurfa
að fást við í rómantíkinni á
hverjum degi,“ sagði fram-
kvæmdastjóri Match.com, Trish
McDermott.
Sem talsmaður vefjarins ætlar
Alex að gefa viðtöl, mæta á uppá-
komur á vegum fyrirtækisins og
halda í ferðalög.
Önnur þáttaröð af The Bachelor hefst á Skjá einum
Nýr piparsveinn
Alex Michel, fyrsti piparsveinninn
í samnefndri þáttaröð, vinnur nú
hjá hjónabandsmiðluninni Match.-
com. Nýr piparsveinn verður
kynntur til sögunnar í kvöld.
The Bachelor 2 er á dagskrá Skjás
eins klukkan 22 í kvöld.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
DV
Yfir 57.000 áhorfendur
H.K. DV
GH. VikanSK RadíóX
SV. MBL
GH. Kvimyndir.com
Robert DeNiro, Billy Crystal
og LisaKudrow(Friends)
eru mætt aftur
í frábæru
framhaldi
af hinni
geysi
vinsælu
gamanmynd
Analyze
This.
Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. Sýnd kl. 10.15.
H.TH útv. Saga.
HL MBL Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6. ísl tal. Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i. 12. Sýnd kl. 6.10.
E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I
/ / /
/ /
/ //
ALMENN FORSÝNING kl. 8. B.i.14.
ÁLFABAKKI
EINNIG FORSÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8. B. I. 16.
ALMENN FORSÝNING kl. 8 í kvöld