Morgunblaðið - 16.01.2003, Side 48

Morgunblaðið - 16.01.2003, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 www.isb.is Vertu með allt á hreinu 2003 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga HREYFING er almennt talin góð fyrir heilsu manna og stöðugt fleiri stunda reglulega líkamsrækt af ein- hverju tagi. Af mörgu er að taka en ein vinsælasta líkamsræktin er sund. Hentar það bæði ungum sem öldnum og ekki fer á milli mála að krakkarnir, sem urðu á vegi ljósmyndara í Laugardalslaug, kunnu vel að meta frjálsræðið í vatninu og skemmtu sér konunglega. Morgunblaðið/RAX Gríðarlegt fjör í sundlauginni BORGARLÖGMAÐUR álítur að veiting byggingarleyfis fyrir fjöl- býlishúsið í Suðurhlíð 38 hafi brotið í bága við skipulagslög þar sem leyfi var veitt fyrir hærra húsi en sam- þykkt deiliskipulag heimilaði. Hann segir umfjöllun borgaryfirvalda um málið ekki hafa verið með þeim hætti sem gera verði kröfu um. Álitsgerð, sem unnin var af emb- ætti borgarlögmanns, var til umfjöll- unar á fundi skipulags- og bygging- arnefndar í gær en málið snýst um það að húsið sjálft er 40 sentimetrum hærra en samþykkt deiliskipulag svæðisins heimilar. Þá er það stað- sett hærra í hallandi lóðinni en ráð var fyrir gert og er heildarhæð þess í landinu því um tveimur metrum meiri en áætlað var. Borgarlögmaður telur þó ekki að skerðing hagsmuna nágranna bygg- ingarinnar sé með ólögmætum hætti vegna þessa. Húsið sé það langt frá næstu byggingum að tæplega sé um birtuskerðingu að ræða fyrir þá. Niðurstaða borgarlögmanns er engu að síður sú að umfjöllun bygg- ingaryfirvalda um málið hafi ekki verið með þeim hætti sem gera verði kröfu um. Álitsgerð borgarlögmanns um fjölbýlishús í Suðurhlíðum  Ekki gætt/17 Leyfið ekki í samræmi við lög FYRIRTÆKI á íslenskum hluta- bréfamarkaði eru almennt tiltölu- lega lágt verðlögð að mati grein- ingardeildar Búnaðarbankans. Greining Íslandsbanka telur að ávöxtun á hlutabréfamarkaði á þessu ári verði tæplega svipuð því sem var á síðasta ári, þegar Úr- valsvísitalan hækkaði um 17%, en spáir um 10% ávöxtun á mark- aðnum á árinu. Íslandsbanki segir að framundan sé nokkurra ára samfellt hagvaxtarskeið ef af stór- iðjuframkvæmdum verði og slíkar aðstæður séu til þess fallnar að ýta undir verð hlutabréfa. Þá verði aðgangur að fjármagni til ýmiss konar útrásar- og umbreyt- ingarverkefna auðveldari. Hag- stæðari markaðsaðstæður gætu að mati bankans jafnvel haft í för með sér að ný félög veltu fyrir sér skráningu í Kauphöll Íslands. Mikill gengis- og söluhagnaður í fyrra Greiningardeildir Búnaðar- banka, Íslandsbanka og Kaup- þings spá því að hagnaður stærstu fyrirtækjanna sem skráð eru í Kauphöll Íslands verði á bilinu 35%–42% minni á þessu ári en í fyrra. Skýringin er mikill gengis- og söluhagnaður á sein- asta ári sem ekki er gert ráð fyrir í ár. Búnaðarbankinn spáir fyrir um afkomu 25 fyrirtækja og sam- kvæmt spám bankans verður hagnaður þeirra 44,6 milljarðar króna á síðasta ári en 27,7 millj- arðar á þessu ári, sem er 38% lækkun milli ára. Í spá bankans segir að gengishagnaður fyrir- tækjanna 25 í fyrra sé áætlaður um 14 milljarðar króna, söluhagn- aður Baugs vegna sölu á hlut í Arcadia hafi verið 8 milljarðar og söluhagnaður Landsbankans vegna sölu á hlut í Vátrygginga- félagi Íslands hafi verið 1 millj- arður króna. Hagnaðurinn í fyrra án gengis- og söluhagnaður hafi því verið um 22 milljarðar. Spá Íslandsbanka nær til 26 fyrirtækja og samkvæmt henni minnkar hagnaður þeirra úr 45 milljörðum króna í 26 milljarða króna milli ára eða um 42%. Í spá Kaupþings eru 23 fyr- irtæki og lækkar hagnaðurinn úr 42,8 milljörðum króna í 27,9 millj- arða króna milli ára eða um 35%. Spá verðhækkun á hlutabréfamarkaði Fjármálastofnanir spá nú minni hagnaði fyrirtækja en á síðasta ári en þá var mikill gengis- og söluhagnaður  Hagnaður/B1 EE C ? E E 8 F B :   #( #( GHHG VIÐRÆÐUR eru nú í gangi milli stjórn- valda á Norðurlöndunum um að löndin taki sameiginlega þátt í heimssýningunni EXPO 2005. Heimssýning verður haldin í borginni Aichi sunnan við Tókýó. Davíð Oddsson forsætisráðherra, sem er í opinberri heimsókn í Japan, átti í gær fund með Watanabe, forseta undirbúningsnefnd- ar EXPO 2005. Eftir fundinn sagði Davíð að íslensk stjórnvöld hefðu áhuga á að taka þátt í sýningunni. Það yrði þó helst að gerast í samstarfi við önnur Norðurlönd. „Það eru viðræður í gangi milli Norðurlandanna og ég hygg að það sé vilji fyrir því að taka þátt í sýningunni en það verða allir að vera með til að af því geti orðið. Við erum hlynntir því að svo verði, það er gott að merki og fáni Íslands sjáist hér, en reynslan kennir okkur að þess- ar sýningar geta orðið ansi dýrar.“ Heimssýningin EXPO 2005 Skoða þátt- töku með öðrum Norð- urlöndum  Áhugi/10 NEMENDUR í framhaldsskólum eru ekki lengur velkomnir á Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn eftir að hluti þeirra varð uppvís að hrekkjum. Þegar nemendur ganga inn í Lands- bókasafnið, sem jafnan er kallað Þjóð- arbókhlaða, mætir þeim skilti þar sem fram kemur að aðgangur sé bannaður yngri en 18 ára. Ástæða þess að dr. Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður sá sér skylt að banna aðgang ungra viðskiptavina er að hennar sögn m.a. sú að hún var búin að fá sig fullsadda af ýmsum hrekkjum þeirra og hávaða . Hrekki framhaldsskólanema segir hún hafa hafa verið margvíslega en meðal annars hringdu einn dag vekjaraklukkur um allt hús og annan dag var lítilli, hvítri finku sleppt lausri um húsið sem olli miklu fjaðrafoki. Landsbókavörður hefur hug á að hafa verði við dyrnar í næstu próftörn þar sem viðskiptavinir þurfa að framvísa skírteini til að komast inn líkt og venja er á skemmtistöðum borgarinnar.  Framhaldsskólanemar/6 Unglingum út- hýst úr Þjóðar- bókhlöðu FYRIR nokkru var hægt að sjá litskrúðugt páfagaukapar í Blómavali. Vakti parið mikla eftirtekt viðskiptavina en því miður fór áreitið illa í gauk- ana og þeir undu hag sínum ekki vel í versluninni. Núna eru þeir komnir í var, á lager gæludýrabúðarinnar Dýra- ríkisins. Fuglarnir kallast ar- ar, eða aragaukar en hið latn- eska heiti þeirra er Ara Macao. „Parið er mjög æst í að komast í varp og var farið að reyna að hrekja fólk frá sér,“ segir Gunnar Vilhelmsson, eigandi Dýraríkisins. „Við settum varpkassa hjá þeim í nóvember en hann varð að tannstönglum fljótlega. Þau hafa svo öflugan bitkraft.“ Gunnar segir að innan skamms verði gerður annar varpkassi fyrir þau. „Karlinn er mjög glæsilegur á að líta en hann er ekki ánægður með konuna sína, því að varpið tókst ekki sem skyldi. Til- hugalífið tók á hana.“ Ararnir eru til sölu og segir Gunnar að þau fáist fyrir 800 þúsund saman, en gangverð erlendis á þessum fuglum er helmingi hærra. „Maður skil- ur ekki arapar í sundur. Þó að karlinn sé svona aðgangs- harður við kerlu sína myndi hann tæplega lifa hana ef þau yrðu aðskilin. Sambönd þess- ara fugla eru það sterk að ómögulegt er að skilja þá í sundur.“ Þegar verið er að rækta ara er eggið venjulega tekið frá fuglunum, því þarna er sann- kallað gullegg á ferðinni, sem jafnvel er hægt að selja á eina milljón króna síðar meir, að því er Gunnar segir. Morgunblaðið/Golli Páfagaukarnir eru í tilhuga- lífinu og standa vonir til að frúin verpi eggi fyrr en síðar. Páfa- gaukar á 800 þúsund LÖGREGLAN í Hafnarfirði lagði hald á 79 kannabisplöntur og um 80 grömm af hassi í húsleit í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þrír menn voru handteknir í kjölfarið. Að sögn lög- reglu er yngsti maðurinn tvítugur en sá elsti um fertugt. Yfirheyrslur stóðu yfir í gærkvöldi. Lögðu hald á 79 kannabisplöntur ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.