Morgunblaðið - 24.01.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 22. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 mbl.is
Reynsla
kvenna
Ginusögur á þremur tungumálum
í Borgarleikhúsinu Listir 24
Skapandi
fatahönnuðir
Hugmyndaflug og sköpunargleði í
íslenzkri fatahönnun Daglegt líf 4
Súrt
sælgæti
Súrt rengi í boði á bóndadaginn
eftir langt hlé Höfuðborg 19
HINDÚAPRESTAR sem tóku þátt í
sex vikna bænasamkomu á Indlandi
kveiktu í gær í tjaldbúðum, þar sem
þeir höfðu beðið fyrir friði í heim-
inum, og lentu síðan í áflogum við lög-
reglumenn og nágranna á svæðinu.
Um 200 prestar tóku þátt í bæna-
samkomunni sem var á vegum ind-
verskra stjórnmálaflokka. Þegar
lokaathöfn samkomunnar nálgaðist
var mikill urgur í prestunum vegna
þess að þeir höfðu ekki fengið nein
laun fyrir þjónustuna. Upp úr sauð
þegar nokkrir helgu mannanna
kveiktu í tjöldunum. Íbúar í grennd-
inni, sem höfðu fengið sig fullsadda af
því að heyra bænakvak úr hátölurum
allan sólarhringinn í 42 daga, réðust
þá inn á samkomustaðinn og lögðu til
atlögu við prestana.
Friðarbæn
endaði með
óeirðum
Bhopal. AFP.
KJELL Magne Bondevik, forsætisráð-
herra Noregs, er nú í Aþenu til að
verjast fjárkröfum Evrópusambandsins
í samningaviðræðunum um aðlögun
EES-samningsins að stækkun ESB, að
sögn norska blaðsins Aftenposten.
Grikkir gegna formennsku í ESB
þetta misserið og heimsókn Bondeviks
er í samræmi við áralanga hefð fyrir
því að norskir ráðamenn fái fund með
háttsettum fulltrúum ESB tvisvar á
ári.
Bondevik ræðir í dag við Kostas
Simitis, forsætisráðherra Grikklands,
og hyggst útskýra hvers vegna norska
stjórnin telur það fráleita kröfu að fjár-
framlög Noregs til þróunar- og upp-
byggingarsjóða ESB verði jafnmikil og
ef landið væri aðili að sambandinu.
Bondevik
verst fjár-
kröfum ESB
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fullyrti í gær að
margar þjóðir myndu fylkja sér
með hersveitum
Bandaríkjahers ef
svo færi að Banda-
ríkjamenn ákvæðu
að beita hervaldi til
að þvinga fram af-
vopnun Saddams
Husseins Íraksfor-
seta, jafnvel þótt
öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna
samþykkti enga nýja ályktun þar að
lútandi. Ekki yrði undan því skor-
ast að tryggja að Íraksstjórn réði
ekki yfir neinum gereyðingarvopn-
um.
„Ég held ekki að við þurfum að
hafa áhyggjur af því að þurfa að sjá
um þetta einir,“ sagði Powell, eftir
að leiðtogar Frakklands og Þýska-
lands, lykilbandamenn Bandaríkja-
manna í Atlantshafsbandalaginu,
hertu á andstöðu sinni við hernað í
Írak. „Ég er þess fullviss að það
verði sterkt bandalag [ríkja sem
fylkja sér með Bandaríkjamönnum
gegn Írak],“ sagði Powell.
Breski utanríkisráðherrann Jack
Straw sagði að enn væru „leiðir til
að leysa þetta með friðsamlegum
hætti“. Hann bætti við að fulltrúar
allra ríkjanna fimmtán, sem ættu
sæti í öryggisráði SÞ og samþykktu
í nóvember sl. ályktun um vopnaeft-
irlit í Írak, „vissu hvað þeir voru að
segja“ þegar þeir vöruðu við alvar-
legum afleiðingum, hlíttu írösk
stjórnvöld ekki skilyrðum um að
losa sig við ólöglegar vopnabirgðir.
Evrópa hlýði kallinu
Vaxandi ágreiningur milli Banda-
ríkjamanna og sumra hefðbundinna
bandamanna þeirra gæti hindrað að
samstaða næðist í öryggisráði SÞ
um viðbrögð við því sem fram kem-
ur í áfangaskýrslu vopnaeftirlits-
sveitar SÞ, en hún verður kynnt
fyrir ráðinu á mánudaginn kemur.
Ari Fleischer, talsmaður George W.
Bush Bandaríkjaforseta, reyndi í
gær að gera sem minnst úr ágrein-
ingnum. Hann sagði að forsetinn
væri „viss um að Evrópa hlýði kall-
inu“. Fleischer tók hins vegar fram,
að vel gæti svo farið að „Frakkar
myndu skerast úr leik“.
Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, full-
yrti í gærkvöldi að Saddam Hussein
hefði fyrirskipað að íraskir vísinda-
menn, sem veittu eftirlitsmönnum
SÞ upplýsingar um vopn Íraka,
yrðu líflátnir og fjölskyldur þeirra
einnig.
Powell viss um stuðning
Ágreiningur Bandaríkjamanna
við Þjóðverja og Frakka ágerist
Washington, París, Aþenu. AP, AFP.
Klofningur/16
Colin Powell
ÍSLAND sigraði Portúgal með
eins marks mun, 29:28, í æsi-
spennandi leik á HM í hand-
knattleik í Viseu í Portúgal í
gærkvöld. Mikill fögnuður
braust út á meðal þeirra sem
horfðu á leikinn á stóra tjald-
inu í Smáralind þegar sigurinn
var í höfn.
Portúgalir jöfnuðu 28:28
þegar tvær mínútur lifðu af
leiknum en Sigfús Sigurðsson
kom Íslandi yfir 90 sekúndum
fyrir leikslok. Portúgalir
fengu aukakast í blálokin en
Roland Eradze, sem stóð sig
frábærlega í íslenska mark-
inu, náði að verja og tryggja
sigurinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Hann varði! Áhorfendur í Smáralind fögnuðu þegar Roland Eradze varði og innsiglaði sigur íslenska liðsins. Mikilvægur/44–45
HM í Portúgal
Sætur sig-
ur á gest-
gjöfunum
ÖNNUR lota samningaviðræðna
EFTA-ríkjanna og Evrópusam-
bandsins vegna stækkunar Evr-
ópska efnahagssvæðisins verður
haldin í Brussel í dag. ESB mun á
samningafundinum halda fjárkröf-
um sínum á hendur EFTA-ríkjun-
um til streitu; að þau borgi í þróun-
ar- og uppbyggingarsjóði sam-
bandsins eins og þau væru
aðildarríki þess.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun íslenzka samninga-
nefndin færa rök fyrir því að ef Ís-
land væri aðildarríki, fengi það
meira greitt úr uppbyggingarsjóð-
unum en það greiddi í þá og því sé
tómt mál að tala um háar nettó-
greiðslur. Hins vegar setja íslenzku
samningamennirnir einnig fram þá
skoðun, að með því að leggjast í út-
reikninga á því hvað Ísland ætti að
fá til baka sem aðildarríki, sé í raun
verið að draga Ísland inn í viðræð-
ur, sem að öllu eðlilegu ættu að vera
hluti af viðræðum um aðild að ESB.
Samanburður
við Finnland
Í útreikningum sínum hefur
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins talið eðlilegt að Ísland
greiddi tæplega fertugfalt núver-
andi framlag sitt til fátækari ríkja
ESB, eða um 3,8 milljarða króna.
Frá því hefur framkvæmdastjórnin
talið eðlilegt að draga um þriðjung,
sem kæmi til baka úr sjóðum ESB
til Íslands ef það væri aðildarríki og
þá kemur út tala, sem er u.þ.b. 25-
föld núverandi framlög Íslands, eða
rúmlega 2,5 milljarðar.
Þetta telja íslenzku samninga-
mennirnir fásinnu og benda á að
Finnland, sem Ísland eigi einna
mest sameiginlegt með af aðildar-
ríkjum ESB hvað varðar landfræði-
lega staðsetningu, dreifbýli og at-
vinnuvegi, hafi árið 2000 fengið til
baka úr uppbyggingarsjóðum ESB
1,33 evrur fyrir hverja evru sem
það leggi í sjóðina.
Af hálfu samningamanna Íslands
hefur jafnframt komið fram í við-
ræðunum að það sé óviðunandi með
öllu að leggjast í útreikninga á því
hvað væri hæfilegt endurgjald til
Íslands úr sjóðum ESB ef Ísland
væri aðildarríki. Þetta hafi einmitt
verið einhver erfiðasti og tímafrek-
asti þáttur aðildarviðræðna flestra
ríkja, sem sótt hafi um aðild að
ESB.
Ísland hafi í fyrsta lagi ekki sótt
um slíka aðild og í öðru lagi sé frá-
leitt að ætla sér aðeins tæpa fjóra
mánuði til slíks verks. ESB sé í
raun að reyna að þvinga EFTA-
ríkin til ótímabærra aðildarvið-
ræðna.
Segja reynt að þvinga Ísland til
ótímabærra aðildarviðræðna
Önnur samningalota EFTA
og ESB í Brussel í dag
♦ ♦ ♦