Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„LEIKURINN gegn Þjóðverjum
var okkur erfiður enda gegn einu
sterkasta liði heims um þessar
mundir,“ sagði Sören Hildebrand
þjálfari Grænlendinga eftir leik-
inn gegn Þjóðverjum, 20:34. „Ég
tel að Þjóðverjar verði í barátt-
unni um gullverðlaunin að þessu
sinni. Við gáfum allt sem við átt-
um í þennan leik og áttum ekkert
eftir á varatankinum þegar líða
tók á leikinn. Ég er stoltur af
mínu liði og við stefnum á að
leggja Katar og Ástralíu að velli í
næstu leikjum. Markmiðið er að
ná fjórða sætinu í B-riðli og kom-
ast í milliriðlana.“
Heiner Brand var ekki
ánægður með einbeitinguna hjá
þýska liðinu. „Við erum búnir
að ná fyrsta markmiði okkar
sem var að vinna fyrstu þrjá
leikina, en gegn Grænlend-
ingum voru margir leikmenn
ekki með hugann við efnið. Við
verðum að vinna Portúgal ef
við ætlum okkur að verða í
efsta sæti B-riðilsins. Portúgal
er með sterkt lið með reynda
leikmenn á borð við Viktor
Tchikoulaev og eru á heima-
velli. Þannig að ekkert lið getur
bókað sigur gegn þeim,“ sagði
Brand.
„Stefnum á fjórða sætið“
MATS Olsson, aðstoðarþjálfari
landsliðs Portúgal, sagði að
Portúgalar hefðu lagt mikið
undir til þess að vinna Íslend-
inga á heimavelli sínum. „Við
höfðum eytt miklum tíma í að
kortleggja íslenska liðið. Ekkert
kom okkur á óvart í leiknum.
Ólafur Stefánsson er „heilinn“ í
leik íslenska liðsins, við reyndum
að takmarka hans þátt í leiknum
með því að taka hann úr umferð.
Hinsvegar leysti íslenska liðið
vel úr sínum málum á lokakafla
leiksins, auk þess sem markvörð-
urinn (Roland Eradze) varði á
mikilvægum augnablikum. Við
höfðum ákveðnar væntingar fyr-
ir þennan leik og erum að sjálf-
sögðu daprir eftir tapið. Þetta
eru hinsvegar ekki endalokin
fyrir okkur hvað keppnina varð-
ar en við verðum að halda vel á
spilunum í næstu tveimur leikj-
um,“ sagði fyrrum landsliðs-
markvörður Svía, Mats Olsson.
„Ólafur er heilinn“
Segja má að vendipunktur leiks-ins hafi verið þegar Roland Val-
ur Eradze varði vítakast Portúgal-
anna þegar um 7 mínútur voru til
leiksloka í stöðunni, 26:24, Portúgöl-
um í vil en rétt áður hafði kollegi
hans í marki Portúgala varið víta-
kast Ólafs Stefánssonar. Markvarsla
Eradze ásamt góðri innkomu Heið-
mars Felixsonar stappaði stálinu í ís-
lenska liðið. Heiðmar minnkaði mun-
inn í 26:25 með glæislegu
smuguskoti og á skömmum tíma
fiskaði hann tvo leikmenn Portúgala
útaf og fékk að auki vítakast. Guðjón
Valur Sigurðsson jafnaði í 26:26 þeg-
ar 4 mínútur lifðu leiks og Íslend-
ingar létu ekki þar við sitja. Einar
Örn Jónsson kom Íslendingum í for-
ystu, 27:26 þegar þrjár og hálf mín-
úta var eftir og það sem eftir lifði
leiks var taugaspennan gríðarleg.
Portúgalar jöfnuðu jafnharðan en
þáttur Sigfúsar Sigurðssonar á loka-
mínútum vó þungt. Hann kom ís-
lenska liðinu í forystu, 28:27, og
skoraði svo sigurmarkið eins og áður
segir einni og hálfri mínútu fyrir
leikslok. Rétt áður fékk Comes að
fjúka útaf í 2 mín. og heimamenn því
einum leikmanni færri það eftir var
leiks. Það gekk mikið á síðustu mín-
útu leiksins. Stórskyttan Resende
skaut framhjá markinu þegar 50 sek.
voru til leiksloka. Íslendingar hófu
sókn sem lauk með því að dæmdur
var ruðningur á Aron Kristjánsson
þegar um 15 sekúndur voru eftir.
Portúgalar náðu ekki finna glufu á
íslensku vörninni og tíminn fjaraði út
án þess að þeir næðu að ógna ís-
lenska markinu. Íslensku leikmenn-
irnir stigu stríðsdans á gólfinu þegar
hinir slöku slóvensku dómarar flaut-
uðu til leiksloka enda mikill áfangi að
sigra Portúgala í leik sem fyrirfram
var réttnefndur sem lykilleikur ís-
lenska liðsins í riðlakeppninni.
Íslensku leikmennirnir voru fljótir
að þagga niður í portúgölsku áhorf-
endunum með afar sterkum upp-
hafskafla. Portúgalar gripu til þess
ráðs að klippa Ólaf Stefánsson út úr
sóknarleiknum en þessi leikaðferð
þeirra dró ekki máttinn úr íslenska
liðinu nema síður sé. Íslendingar
komust í 6:2 og 7:3 þar sem horna-
mennirnir Guðjón Valur og Einar
Örn fóru mikinn. Portúgalarnir
fengu dygga aðstoð frá slóvensku
dómurunum eftir þennan góða leik-
kafla íslenska liðsins. Patrekur og
Ólafur voru reknir af velli fyrir litlar
sakir og á örskömmum tíma jöfnuðu
Portúgalar metin í 8:8, og komust í
10:8. Þjóðirnar skiptust á að hafa
forystuna en Íslendingarurðu fyrir
áfalli undir lok hálfleiksins þegar
Ólafur var rekinn útaf öðru sinni.
Það sama henti Patrek í upphafi
síðari hálfleiks og við þetta þurfti
Guðmundur að stokka upp í varn-
arleiknum. Íslendingar náðu mjög
góðum leikkafla eftir 10 mínútna leik
í síðari hálfleik. Þeir skoruðu 5 mörk
á móti einu og voru komnir í 22:19
þegar hálfleikurinn var rétt tæplega
hálfnaður. Roland Eradze var drjúg-
ur á þessum kafla og varði geysilega
vel. Portúgalirnir neituðu að gefast
upp og þegar 12 mínútur lifðu leiks
hafði þeim tekist að jafna, 24:24.
Lokakaflanum er áður lýst en í hon-
um sýndi íslenska liðið mikla þraut-
seigju og það tryggði sér sætan og
mikilvægan sigur upp á framhaldið.
Hornamennirnir Einar Örn og
Guðjón áttu frábæran leik og voru
bestu menn Íslendinga. Sigfús var
dýrmætur í lokin og markvarsla Ro-
lands Vals vó mjög þungt og skipti
kannski sköpum eftir allt saman en
hann leysti Guðmund Hrafnkelsson
af hólmi þegar um 20 mín. voru liðn-
ar af leiknum. Ólafur var í strangri
gæslu en um leið og hann náði að rífa
sig lausan var ekki að sökum að
spyrja. Dagur og Patrekur náðu sér
ekki alveg á strik, en uppúr stendur
að vel samhent íslenskt lið með stórt
hjarta stóð undir væntingum ís-
lensku þjóðarinnar.
Mikilvægur
sigur í Viseu
ÍSLENDINGAR fóru yfir afar erfiða hindrun á heimsmeistaramótinu
í handknattleik þegar þeir lögðu heimamenn, 29:28, í æsispenn-
andi viðureign í Viseu í Portúgal í gær. Með gríðarlegri baráttu á
lokakafla leiksins tókst Íslendingum að snúa leiknum sér í vil.
Portúgalar höfðu tveggja marka forskot þegar rúmar sjö mínútur
voru til leiksloka en íslenska liðið sýndi gífurlegan viljastyrk og
mark Sigfúsar Sigurðssonar af línunni einni og hálfri mínútu fyrir
leikslok reyndist sigurmark leiksins.
Guðmundur sagði ennfremur aðhann þyrfti að tyggja gamla
tuggu enn og aftur. „Við tökum að-
eins einn leik fyrir í
einu, þetta hefur
verið sagt áður en
þjónar sínum til-
gangi. Fyrir hvern
leik eru mismunandi markmið og
áherslur í gangi. Nú tekur við und-
irbúningur fyrir leikinn gegn Katar,
þar má ekki slaka á og leikurinn
gegn Þjóðverjum er ekki einu sinni
til umræðu í okkar hópi.“ Um leik-
inn sagði Guðmundur að byrjunin
hefði lofað góðu, en í stöðunni 7:3
hafi hraðinn í sóknarleiknum verið
of mikill. „Sóknirnar urðu of stutt-
ar, það var óðagot á okkur og í kjöl-
farið fóru menn að tínast útaf í
vörninni. Þetta eru samverkandi
þættir sem gera það að verkum að
Portúgal náði að saxa á forskotið.
Við náðum varla að standa vörnina
þegar þetta var í hámarki í fyrri
hálfleik. Ég mun leggja áherslu á
þetta á æfingum og á fundum næstu
daga, að menn fari sér hægar af og
til þegar við náum forskoti. Loka-
kafli leiksins var hinsvegar erfiður
fyrir okkur sem vorum á vara-
mannabekknum og leikmenn.
Spennan var gríðarleg en sigurinn
var þeim mun sætari.“
Setti okkur í vanda þegar Ólaf-
ur var rekinn útaf í annað sinn
Á varamannabekknum var í nógu
að snúast fyrir Guðmund og Einar
Þorvarðarson aðstoðarmann hans,
skiptingarnar voru margar og á
köflum var ástandið illskiljanlegt
fyrir þá sem á horfðu. Guðmundur
sagði að sú staða hefði komið upp
vegna þess að Ólafur Stefánsson
mátti ekki láta reka sig af velli í
þriðja sinn í leiknum.
„Það setti okkur í vanda að Ólafur
fór tvisvar sinnum af velli í fyrri
hálfleik. Við þurftum því að vera á
tánum til þess að láta þetta rúlla
áfram, ástandið á varamannabekkn-
um var oft á tíðum ruglingslegt.
Ólafur bættist því við þá sem skiptu
útaf í vörn og sókn, á meðan við vor-
um að prófa okkur áfram með sókn-
arleikinn. Ég er afar ánægður með
hvernig til tókst. Við notum 13 leik-
menn og allir með tölu voru tilbúnir
í slaginn þegar kallið kom. Þetta er
atriði sem við rákum okkur á í Sví-
þjóð, og nú sýnist mér að allir séu
einbeittir þegar þeir koma inná.,
hvort sem það er í upphafi leiks eða
þegar ein mínúta er eftir. Svona á
það líka að vera, Roland Eradze
varði vel á þeim 45 mínútum sem
hann lék að þessu sinni og var ekki
að sjá að hann væri taugaóstyrkur á
útivelli gegn Portúgal.“
„Roland var búinn að segja okkur
frá því að hann hefði leikið með
landsliði Georgíu á útivelli gegn
Portúgal. Hann hafði staðið sig vel í
þeim leik og var viss um að geta
endurtekið leikinn. Hann sagðist
vera með sjálfstraustið í lagi því
hann hafði gert þetta áður. Guð-
mundur Hrafnkelsson fékk erfið
skot á sig í upphafi leiksins og
Roland sýndi það hversu öflugur
hann er. Vítakastið sem hann varði í
stöðunni 24:26 var vendipunktur í
leiknum. Hann gerði það að verkum
að við minnkuðum muninn í eitt
mark og fengum sjálfstraustið á
ný.“
Síðustu átta mínútur leiksins var
Ólafur Stefánsson í hlutverki leik-
stjórnanda og voru þá þrír örvhent-
ir leikmenn inná á sama tíma. Guð-
mundur sagði að um taktíska
breytingu hefði verið að ræða sem
hefði ekki oft sést hjá íslenska liðinu
en hefði heppnast afar vel að þessu
sinni.
„Heiðmar Felixson skoraði mik-
ilvægt mark, fiskaði vítakast og
náði varnarmönnum þeirra útaf.
Þessi uppstilling leysti úr
ákveðnum vanda sem við vorum í á
þessum tíma. Sigfús Sigurðsson var
ekki áberandi í sóknarleik Íslands
að þessu sinni og rétt áður en hann
skoraði tvö mörk í röð á lokakafla
leiksins íhugaði Guðmundur að láta
hann aðeins leika varnarleikinn, en
hætti síðan við.
Þurfum að setja
okkur í stellingar
„Við gátum ekki skipt eins mörg-
um útaf þar sem menn voru í vand-
ræðum eftir að hafa verið reknir út-
af í fyrri hálfleik. Sigfús fékk því að
fara í sóknina og skoraði þessi mik-
ilvægu mörk.“ Guðmundur bætti
því við að ekki gæfist langur tími til
þess að fagna þessum sigri. Katar
væri sýnd veiði en ekki gefin.
„Portúgal átti í vandræðum með
Katar, þeir voru yfir lengi vel í
leiknum og það var ekki fyrr en
undir lokin sem Portúgal landaði tíu
marka sigri, 31:21. Við þurfum ein-
faldlega að setja okkur í stellingar
gegn Katar. Það er ekkert annað á
dagskránni hjá okkur en sigur í
þeim leik,“ sagði Guðmundur.
Gríðarleg spenna
og sætur sigur
„ALLIR eru tilbúnir þegar kallið kemur. Hver leikur fram að þessu
krefst þess að við einblínum á mismunandi hluti, vissulega var
þessi leikur gegn Portúgal allt öðruvísi en hinir tveir sem við höfum
leikið fram að þessu. Einbeitingin var ávallt til staðar og nú þurfti að
bæta við hraðanum, ákefðinni og leika gegn liði sem á góðum degi
getur unnið öll lið í heiminum,“ sagði Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari eftir magnþrunginn spennuleik gegn Portúgal í
Viseu í gærkvöldi.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Viseu