Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTU munaði að flutninga-
skipið Sun Trader, sem skráð er á
Möltu, ræki upp í grjótgarð við höfn-
ina í Bolungarvík rétt fyrir hádegi í
gær.
Reimar Vilmundarson, skipstjóri
á rækjubátnum Sædísi frá Bolung-
arvík, segir að þegar minnstu mun-
aði hafi skipið átt fjóra eða fimm
metra eftir í grjótgarðinn.
„Ég sá að eitthvað var að fara úr-
skeiðis og ákvað að fara niður á
bryggu og horfa á. Hafnarverðirnir
kölluðu þá í mig til aðstoðar. Ég
sigldi inn á milli skips og grjótgarðs.
Þar keyrði ég á skipið og ýtti því frá
grjótgarðinum á meðan böndum var
komið upp á bryggju,“ segir Reimar.
Á meðan á þessu stóð hélt hann við
skipið með því að keyra af fullu afli.
„Skipið hefði getað skemmst tölu-
vert ef það hefði farið í garðinn.
Skrúfan var nálægt garðinum. Eins
var ég tæpur að skemma ekki neitt
hjá mér en það slapp.“
Reimar segir að það hafi tekið um
40 mínútur að koma skipinu þangað
sem það átti að vera.
Áður en hann stökk til hjálpar,
ásamt háseta sínum og einum hafn-
arverðinum, hafði lóðsbátur reynt að
aðstoða skipið við að leggjast að
bryggju. Ekki vildi betur til en að
landfestingar flæktust í skrúfu lóðs-
ins og var honum komið að landi til
að losa úr skrúfunni. Á meðan rak
skipið í frekar kyrru veðri hægt en
örugglega upp í grjótgarðinn að
sögn Reimars.
Hann segir höfnina þrönga og
hliðarskrúfa á flutningaskipinu hafi
verið biluð. Einhver mistök hafi orð-
ið sem leiddi til þessarar atburða-
rásar. Upphaflega átti að henda end-
um í land til að snúa skipinu í
höfninni. Það hafi ekki gengið eftir.
„Það gekk mjög fljótt að komast
að þessu. Svo kom björgunarsveitin í
Bolungarvík með gúmbát. Þrír
menn, sem í honum voru, komu svo
endum upp á bryggjuna. Eftir það
gekk mjög vel að koma skipinu á
sinn stað.“
Reimar segir að smá kul hafi ýtt á
skipið en það hefði farið verr ef vind-
urinn hefði verið sterkari. „Þá held
ég að ekki hefði verið ráðið við
neitt.“
Byrjað var að lesta skipið í gær-
kvöldi, en það er hér á landi til að
sækja 1.700 tonn af lýsi hjá loðnu-
verksmiðjunni Gná.
Lögreglan í Bolungarvík tók
skýrslu af málsaðilum og er málið
enn í rannsókn. Ekki er talið að
skemmdir á eignum hafi orðið. Einn-
ig mættu fulltrúar Siglingamála-
stofnunar til að skoða vettvang.
Skipstjórinn á Sædísi brást skjótt við yfirvofandi hættu
Flutningaskipið átti fimm
metra eftir í grjótgarðinn
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Skipið var aðeins 4–5 metra frá grjótgarðinum í Bolungarvíkurhöfn þegar tókst að ná tökum á því.
Í GÆR var undirritaður orkusamn-
ingur á milli Alcan á Íslandi og
Landsvirkjunar um kaup og sölu á
raforku til álversins í Straumsvík
sem jafngildir 30 MW afli. Sú orka
jafngildir nokkurn veginn árlegri
raforkunotkun á öllum Suð-
urnesjum.
„Ástæðan fyrir því að við gerum
þennan raforkusamning er bættur
rekstrarárangur hjá okkur,“ sagði
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Ís-
landi, í tilefni undirritunarinnar.
„Þessi samningur tryggir okkur
orku og staðfestir kaupverð.“
Þegar álverið í Straumsvík var
stækkað árið 1997 var gert ráð fyr-
ir að framleiðslugetan yrði 162 þús-
und tonn á ári. Með auknum stöð-
ugleika í kerrekstri,
straumhækkunum í kerskálum og
breyttum áherslum við stjórnun
fyrirtækisins hefur framleiðslan
vaxið umfram áætlanir. Á þessu ári
er markmiðið að framleiða rúm 176
þúsund tonn. „Við náum að fram-
leiða meira í sömu kerum,“ segir
Rannveig. Orkusamningur, sem var
undirritaður árið 1995 vegna
stækkunarinnar, miðaði hins vegar
við 162 þúsund tonna framleiðslu.
Með undirritun samningsins í gær,
sem gildi til langs tíma, styrkist
rekstraröryggi ÍSAL með tryggri
afhendingu raforku frá Lands-
virkjun.
Raforkuverð viðunandi
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir þennan
samning mögulegan fyrir Lands-
virkjun þar sem náðst hafi að halda
uppi öflugu rekstraröryggi í raf-
flutnings- og framleiðslukerfi fyr-
irtækisins. Orkukaup ÍSAL séu nú
bundin í föstum samningum og ekki
háð magni umframorku hjá Lands-
virkjun. „Þetta rafmagn hefur ver-
ið til að undanförnu í okkar kerfi
og þess vegna höfum við getað selt
Alcan á Íslandi þetta. Það hefur
hins vegar aldrei verið gerður
samningur til langs tíma á þessu
afli sem hér er verið að kaupa fyrr
en núna.“
Aðspurður segir Friðrik að orku-
verð miðist ekki við áður gerða
samninga. „Orkuverðið er sam-
kvæmt þessum samningi. Það er
trúnaðarmál eins og orkuverð í
öðrum samningum við álverið í
Straumsvík.“ Rannveig segir verð-
ið sem Alcan kaupir raforkuna á í
þessum samningi viðunandi.
Kanna mögulega stækkun
Alcan á Íslandi hefur látið gera
hagkvæmnisathugun vegna stækk-
unar álversins og þá er um að ræða
verulega stækkun á álverinu segir
Friðrik. Jafnframt hafa þeir látið
gera athugun á umhverfisáhrifum.
„Þetta liggur fyrir og niðurstaðan
er jákvæð. Það þýðir að fyrirtækið
sem á álverið getur hvenær sem er
undirbúið ákvörðun um stækkun.
Við erum tilbúin að ræða það en
auðvitað, eins og allir vita og hefur
komið fram hjá viðsemjendum okk-
ur í Straumsvík, þá er ekki hægt að
gera alla hluti í einu. Hugsanlega
gætu viðræðurnar hafist í fram-
haldi af þeim framkvæmdum sem
vonandi fara af stað innan tíðar,“
segir Friðrik.
Rannveig segir að Alcan á Íslandi
sé fyrst og fremst að kanna hvernig
hægt sé að hækka strauminn í ker-
unum til að auka framleiðsluna.
„Síðan er verið að kanna möguleika
á stækkun. Það er engin ákvörðun
komin um það enn.“ Sú ákvörðun
ræðst bæði af vilja stjórnvalda á Ís-
landi og hvaða tækifæri Alcan hafi í
öðrum löndum. „Alcan á kost á
ódýrri orku og góðum aðstæðum í
Kanada þar sem móðurfélagið er.
Einnig er verið að skoða kosti í
Kína og bera saman við önnur tæki-
færi.“
Rannveig segir stjórnendur
Alcan vera mjög sátta við rekstur
álversins á Íslandi. Aðalforstjóri og
helstu stjórnendur félagsins hafi
komið hingað til lands í nóvember á
síðasta ári og voru mjög ánægðir
með árangur álversins í Straums-
vík.
Rannveig minnist þess ekki að Ís-
lendingur hafi áður skrifað undir
orkusamning við Landsvirkjun fyr-
ir hönd álfyrirtækis og vonast til að
þetta verði ekki heldur í síðasta
sinn.
Nýr orku-
sölusamn-
ingur gerð-
ur við Alcan
Morgunblaðið/Golli
Sigurður Briem, Gunnar Gunnlaugsson, Friðrik Sophusson, Rannveig Rist
og Bjarni Jónsson ræðast við að lokinni undirskrift.
HÆSTIRÉTTUR komst að þeirri
niðurstöðu í dómi sínum í gær, að
íslenska ríkið væri bótaskylt vegna
vinnuslyss sem skurðhjúkrunar-
fræðingur varð fyrir í miðri skurð-
aðgerð á skurðstofu á Landspít-
alanum í febrúar árið 1996. Var
ríkið dæmt til greiðslu 8,3 milljóna
kr. í bætur. Skurðhjúkrunarfræð-
ingurinn hrasaði um skammel í um-
rætt sinn og slasaðist á fæti og
hlaut við það 35% örorku. Hin slas-
aða lést síðastliðið sumar og tók
dánarbú hennar við aðild málsins.
Hæstiréttur lagði til grundvallar
að skammelið hefði færst aftur fyr-
ir hjúkrunarfræðinginn án þess að
hún yrði þess vör, í sömu mund og
hún snéri sér við með verkfæra-
bakka í fanginu. Aðdragandi slyss-
ins og aðstæður á skurðstofunni
væru hins vegar ekki að öllu leyti
skýrar.
Datt um skammel
Fram kemur í dóminum að engra
samtímagagna njóti um atburðinn
en slysið var fyrst tilkynnt Vinnu-
eftirliti ríkisins alllöngu síðar, að
öllum líkindum ekki fyrr en í maí
1997, en tilkynningin er ódagsett.
Væri það í brýnni andstöðu við fyr-
irmæli laga og stjórnvaldsreglna
um tilkynningu vinnuslysa. Þá væru
í málinu engin gögn um viðbrögð
Vinnueftirlitsins. Þá hefði ekki farið
fram rannsókn strax í kjölfar slyss-
ins sem hefði getað skýrt málið
nánar og tekið af þann vafa sem
væri í því. Taldi Hæstiréttur að
Landspítalinn yrði að bera hallann
af því að ekki kom til slíkrar rann-
sóknar. Væri því óhjákvæmilegt að
leggja til grundvallar dómi, að um
aðgæsluleysi einhvers eða ein-
hverra starfsfélaga hjúkrunarfræð-
ingsins hefði verið að ræða þegar
skammelið lenti aftur fyrir fætur
hennar. Bæri ríkið því bótaábyrgð í
málinu.
Með dómi Hæstaréttar var dóm-
ur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 29.
apríl staðfestur. Málið dæmdu
hæstaréttardómararnir Guðrún Er-
lendsdóttir, Garðar Gíslason, Har-
aldur Henrysson, Hrafn Bragason
og Pétur Kr. Hafstein. Skarphéðinn
Þórisson ríkislögmaður flutti málið
fyrir hönd áfrýjanda, ríkisins, og
Garðar Briem hrl. fyrir dánarbú
hinnar látnu.
Ríkið bóta-
skylt vegna
vinnuslyss á
skurðstofu
LEIT AÐ sjómanni á Seyðisfirði
hefur enn engan árangur borið en
hans hefur verið saknað frá því á
mánudagskvöld. Á annan tug
björgunarsveitarmanna leituðu á
Seyðisfirði í gær en allt upp í 70
menn hafa tekið þátt í leitinni frá
því hún hófst. Leitað var eftir
strandlengjunni og inn í fjarðar-
botninn í gær en ekki var hægt að
koma við leit af sjó vegna veðurs.
Snjókoma og bylur var á Seyð-
isfirði í gær og leitinni því hætt
undir kvöld.
Í gærmorgun var kafað við
bryggjurnar í bænum og er von á
kafara frá Akureyri sem mun að-
stoða við það starf í dag. Einnig
verður leitað á bátum í birtingu.
Leitinni verður einnig fram
haldið á landi í dag en þá er von á
liðsauka frá Akureyri, af Héraði
og að sunnan.
Að sögn Guðna Sigmundssonar
hjá björgunarsveitinni á Seyðis-
firði hafa engar áreiðanlegar vís-
bendingar komið fram um ferðir
mannsins frá því síðast spurðist til
hans. Guðni segir ólíklegt að hann
hafi yfirgefið Seyðisfjörð.
Enginn ár-
angur af leit
í Seyðisfirði
ÞRÍR nemendur við Brekku-
bæjarskóla á Akranesi voru
gripnir af starfsmönnum Ör-
yggisþjónustu Vesturlands
þegar þeir brutust inn í skólann
um kl. hálftólf í fyrrakvöld.
Nemendunum, sem eru 14 og
15 ára, hafði tekist að komast
yfir lykil að skólanum.
Vísbendingar bárust um fyr-
irætlanir unglinganna, tveggja
pilta og einnar stúlku, og því
biðu starfsmenn öryggisþjón-
ustunnar eftir þeim inni í skóla-
byggingunni. Stúlkan og annar
pilturinn voru gripin á staðnum
en hinum piltinum tókst að
komast undan á hlaupum með
myndavél sem hann hafði stolið
í skólanum. Lögregla hafði
hendur í hári hans seinna um
kvöldið og hefur myndavélinni
verið komið til skila. Ekki er
ljóst hvernig nemendunum
tókst að komast yfir lykil að
skólanum.
Hrina skemmdarverka
Ingvar Ingvarsson, aðstoð-
arskólastjóri Brekkubæjar-
skóla, segir að nemendunum
hafi verið vísað heim í gær, í
samráði við foreldra, og þau
koma ekki í skólann í dag.
Hann segir málið mjög alvar-
legt og verði unnið í því áfram
með fjölskyldum barnanna og
félagsmálayfirvöldum. Hrina
skemmdarverka á Brekkubæj-
arskóla hófst í byrjun janúar og
hafa m.a. margar rúður verið
brotnar. Ingvar vonast til þess
að skemmdarverkunum muni
nú linna.
Nemendur
gripnir
við innbrot
í skóla
♦ ♦ ♦