Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fljótir strákar, felum okkur, Agnes er að koma.
AUÐAR-hátíðin í dag
Hallaði mjög
á kvenfólkið
Verkefnið AUÐUR íkrafti kvenna end-ar formlega í dag
með hátíðarhöldum í
Borgarleikhúsinu þar sem
allt áhugafólk um nýsköp-
un er boðið velkomið á
meðan húsrúm leyfir. Upp
á ýmsu hefur verið fitjað
þessi þrjú ár, en til þessa
verkefnis var stofnað til
þess að auka veg kvenna í
íslensku atvinnulífi og þótt
víðar væri. Átakið þykir
hafa gengið vonum fram-
ar. Framkvæmdastjóri
verkefnisins er Halla
Tómasdóttir sem svaraði
góðfúslega nokkrum
spurningum Morgunblaðs-
ins.
– Rifjum fyrst aðeins
upp tilurð þessa verkefnis,
áherslur þess og tilganginn og
fyrirmyndirnar...
„Þegar Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins hafði starfað í rúmt ár
var ljóst að mikill munur var á
bæði fjölda og stærð umsókna
karla og kvenna í sjóðinn, og hall-
aði þar mjög á kvenfólkið. Guð-
rúnu Pétursdóttur stjórnarmanni
í Nýsköpunarsjóði var falið að
gera tillögur að verkefni til að
virkja konur til atvinnusköpunar.
Hún leitaði til Guðfinnu S.
Bjarnadóttur í Háskólanum í
Reykjavík, sem fékk mig í liðið.
Við þrjár höfðum ekki þekkst áð-
ur, en vorum frá fyrsta degi sam-
mála um að besta leiðin til að
virkja konur væri að styrkja
sjálfstraust þeirra með því að
veita þeim þekkingu. Einnig vor-
um við staðráðnar í að verkefnið
skyldi skila raunverulegum og
mælanlegum árangri. Við sóttum
í smiðju Bandaríkjamanna og Íra
og löguðum þeirra hugmyndir og
reynslu að íslenskum aðstæðum.
Við lögðum svo til þriggja ára
verkefni, margþætt fræðslu- og
hvatningarátak fyrir alla aldurs-
hópa kvenna, frá litlum stelpum
til reyndra stjórnenda.“
Hvernig finnst þér hafa tekist
til... skilur verkefnið eitthvað
áþreifanlegt eftir sig?
„Nú þegar hefur verkefnið skil-
að stórkostlegum árangri. Alls
tóku 1.480 konur beinan þátt í
námskeiðum AUÐAR, auk þús-
unda stelpna sem tóku þátt í deg-
inum Dæturnar með í vinnuna.
163 konur sóttu fjögurra mánaða
námskeið fyrir þær sem vildu
stofna og reka eigið fyrirtæki.
Segja má að þessi þáttur, sem
kallaður var frumkvöðlaAUÐUR,
hafi verið hjarta verkefnisins.
Haldin voru sex slík námskeið og
komust færri að en vildu. Af þess-
um 163 konum hafa 35% þegar
hafið rekstur og 25% til viðbótar
eru að ganga frá undirbúningi nýs
fyrirtækis. Þegar hefur 51 fyrir-
tæki verið stofnað og 217 ný störf
verið sköpuð! Þessar tölur sýna
svart á hvítu að fjárfesting í
menntun frumkvöðla skilar mark-
tækum árangri. Ég er sannfærð
um að þetta er bara
upphafið, því auk
þeirra fyrirtækja sem
væntanleg eru á næst-
unni, eiga ungu AUÐ-
AR-stúlkurnar eftir að
skapa fjölda starfa í
framtíðinni.“
– Var þessu verkefni alls staðar
vel tekið í þjóðfélaginu?
„Það er óhætt að segja að við-
tökur við verkefninu hafi verið já-
kvæðar, hvert sem litið er. Í upp-
hafi leituðum við til helstu
fyrirtækja landsins um samstarf
og fengum þannig Íslandsbanka,
Deloitte&Touche og Morgunblað-
ið til að standa að verkefninu með
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
Ég tel að þessi góðu fyrirtæki og
þjóðfélagið almennt hafi áttað sig
á mikilvægi þess að virkja sem
best krafta allra okkar þjóðfélags-
þegna, öllum til hagsældar.“
– Nú lýkur AUÐAR-verkefn-
inu í dag, hvað verður gert í tilefni
dagsins?
„Í dag verður lokahátíð AUÐ-
AR haldin í Borgarleikhúsinu. Við
eigum von á húsfylli AUÐAR-
kvenna, samstarfsaðila og ann-
arra velunnara verkefnisins. Þar
munum við líta yfir farinn veg,
horfa fram á veginn og eiga sam-
an glaða stund. Allt áhugafólk um
nýsköpun er velkomið.“
– Áttu von á því að eitthvert
framhald verði á þessu starfi... og
þá í hvaða mynd?
„AUÐAR-verkefnið hefur verið
valið „fyrirmyndarverkefni“ (best
practice) af framkvæmdastjóra
Evrópusambandsins og okkur
hefur verið boðið til Brussel til að
kynna verkefnið. Það er því aldrei
að vita nema AUÐUR láti að sér
kveða í einhverri mynd á alþjóð-
legum vettvangi. Hér heima vona
ég að stjórnvöld átti sig enn betur
á þeim krafti sem býr í fólki og
setji nú allt kapp á að virkja ný-
sköpunarkraft þjóðarinnar, karla
og kvenna. Þá er einnig afar mik-
ilvægt að búa frumkvöðlum það
umhverfi sem þarf til að fyrirtæki
þeirra vaxi og dafni og geti þann-
ig skapað ný störf.“
– Finnst þér þjóðfé-
lagið hafa orðið á ein-
hvern hátt kvenna-
vænna á þessum
þremur árum?
„Ég held að öllum sé
ljóst mikilvægi þess að auka fjöl-
breytni í atvinnulífinu. Árangur
AUÐAR sýnir að konur eru full-
færar um að taka þátt í nýsköpun,
og samfélagið er kannski orðið
kvennavænna að því leyti, að kon-
ur treysta sjálfum sér betur til að
nýta hæfileika sína en þær gerðu
áður.“
Halla Tómasdóttir
Halla Tómasdóttir fæddist í
Reykjavík 11. október 1968. Hún
lauk BS-prófi í viðskiptafræði
frá Auburn University og MBA-
prófi frá Thunderbird University
í Bandaríkjunum. Hún starfaði
sem starfsmannastjóri hjá fyrir-
tækjum bæði í Bandaríkjunum
og á Íslandi áður en hún hóf störf
við Háskólann í Reykjavík. Hefur
þar m.a. gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra AUÐAR í krafti
kvenna sl. 3 ár. Sambýlismaður
Höllu er Björn Skúlason og eiga
þau 16 mánaða dreng, Tómas
Bjart.
...eru full-
færar um að
taka þátt í
nýsköpun
Sími 510 8000 • Bíldshöfða 20 • 110 Reykjavík • www.husgagnahollin.is
f
a
s
t
la
n
d
-
8
6
1
6
HÚSGAGNAHÖLLIN
ASPEN
47.820
Loksins er komin ný sending af La-Z-Boy. Vegna hagstæðrar
gengisþróunar og góðra samninga eru stólarnir á frábæru
verði. Ef þú ætlar að setjast niður sestu þá í alvöru stól.
Það verður enginn þreyttur á að sitja í La-Z-Boy!
B85 x D85 x H45/102 sm
Áklæði: Nælon eða leður
Litir: Vínrautt, grænt, blátt og beige
Stillingar: Skemill og bak í einu handfangi
Stór skammtur af róandi