Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 9

Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 9 Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. 15% aukaafsláttur af samkvæmisfatnaði Peysutilboð Engjateigi 5, sími 581 2141. Útsala 30-70% afsláttur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. Bankastræti 14, sími 552 1555 Nýjar vörur Peysur og gallafatnaður frá Micha Danmörku Útsala Viðbótarafsláttur undirfataverslun Síðumúla 3-5, s. 553 7355 Opið virka daga kl. 11-18 • laugardag kl. 11-15 Útsala Lokadagar 40-50% afsláttur af mjúkum gæðavörum Handklæði, sloppar, náttföt, sængurver, rúmteppi og margt fleira. Tilboð á RB-rúmum Bæjarlind 12 - Sími 565 4300 Boswell skyrtur Ný sending Laugavegi 34, sími 551 4301 TVÍTUGUR piltur hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að stela hljóðfærum, hljómflutnings- og hljóðblöndunartækjum úr hús- næði við Brautarholt í september sl. Haldi pilturinn skilorð í þrjú ár falla 15 mánuðir af refsingunni niður. Pilturinn var ákærður fyrir að stela búnaði að andvirði rúmlega 1,7 milljónum króna. Hann játaði, að því undanskildu að hann kannaðist hvorki við að hafa stolið tveimur Boss stage tuner, snúrum og söng- kerfi né Fender Telecaster gítar. Með þessu broti rauf hann skilorð dóms sem hann hlaut í upphafi árs- ins 2002 en þá var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár. Á hann að baki skrautlegan sakarferil og m.a. verið dæmdur fyr- ir hótanir, þjófnað og skemmdar- verk. Við ákvörðun refsingar leit Arnfríður Einarsdóttir, skipaður héraðsdómari, til sakarferils hans en einnig til þess að hann er ungur að árum, hefur leitað sér aðstoðar við áfengis- og vímuefnavanda sín- um og farið í meðferð auk þess sem hann stundar vinnu. Þótti refsingin hæfileg 18 mánuðir og skildu 15 mánuðir af refsingunni vera skil- orðsbundnir. Kannaðist ekki við stuld á gítar Í FRAMHALDI af ákvörðun Lög- regluskóla ríkisins að afturkalla skólavist Svavars Vignissonar íþróttamanns hefur Landssamband lögreglumanna óskað eftir upplýs- ingum um hvaða reglur gilda varð- andi brottvikningu nemenda úr skól- anum. Óskar Bjartmarz, formaður sambandsins, staðfesti þetta í sam- tali við Morgunblaðið. Svavar handarbrotnaði í íþrótta- leik. Skólastjóri Lögregluskólans, Arnar Guðmundsson, taldi Svavar ekki í ástandi til að taka þátt í skól- anum þar sem nemendur þurfa dag- lega að að leysa verkefni sem krefj- ast góðs líkamlegs ástands. Nemendur á fyrsta ári Lögreglu- skólans eru ólaunaðir og samkvæmt lögum Landssambands lögreglu- manna ekki meðlimir í sambandinu. Skortir reglu- gerð um brott- vikningu FJÖLSKYLDA á Sauðárkróki vaknaði upp um hálffimmleytið í að morgni miðvikudags við það að verið var að stela bíl úr innkeyrslu þeirra. Bílnum, sem var vinnubíll, var ekið á brott. Húseigandinn hringdi strax í lögreglu og elti svo þjófana. Engin lögregluvakt er á þessum tíma sólar- hrings á Sauðárkróki. Stolni bíllinn fannst skömmu síð- ar, óskemmdur, sunnan við bæinn. Tveir menn, annar tæplega fertugur og hinn tæplega þrítugur, voru handteknir í öðrum bíl skammt frá og settir í hald. Þeir eru grunaðir um að hafa stolið bílnum ásamt því að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Tveir menn stálu bíl á Sauðárkróki ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákveð- ið að gefa sér lengri tíma en mánuð til að fara yfir öll gögn flugslyssins í Skerjafirði í ágúst árið 2000, en að- standendur fórnarlamba slyssins áfrýjuðu í desember sl. þeirri ákvörðun lögreglunnar í Reykjavík að aðhafast ekki frekar í málinu. Á vefsíðu aðstandenda, flugslys.is, er vitnað í bréf til þeirra frá ríkissak- sóknara sem telur að gögnin séu „mikil vöxtum“ og því óhjákvæmi- legt að fá lengri tíma en einn mánuð til að skoða þau, en það er sá frestur samkvæmt lagaákvæðum sem ríkis- saksóknari hefur til að taka afstöðu til ákvarðana lögreglustjóra þegar þær eru kærðar. Síðan segir á vefnum: „Lögreglan ákvað ekki einasta að aðhafast ekk- ert frekar í málinu eftir liðlega tveggja ára rannsókn, heldur hafn- aði lögreglan í kjölfarið kröfu okkar um rökstuðning fyrir þessari ákvörðun og um aðgang að öllum rannsóknargögnum. Í bréfi til ríkis- saksóknara nú fyrir áramót var mál- flutningur lögreglunnar harðlega gagnrýndur og þess vænst að rík- issaksóknari fallist á kröfugerð okk- ar í heild sinni svo ekki þurfi að leggja öll álitaefnin fyrir dóm til úr- lausnar.“ Lögreglurannsókn á flugslysinu í Skerjafirði Saksóknari gefur sér lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.