Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 13
S M Á R A L I N D
komdu og ger›u ótrúleg kaup
- á›ur en allt klárast
Afsláttur af öllum útsöluvörum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
83
50
07
/2
00
2
bláa bomban
í Debenhams
er sprungin!
50-70%
Opi› virka daga frá 11-19 • laugardögum 11-18 • sunnudögum 13 - 18
Með blaðinu
á morgun fylgir
32 síðna tímarit
um heilsu
BROSLEGAR tilraunir tveggja
ungra manna til að sannfæra er-
lendan bargest um yfirburði Ís-
lendinga í auglýsingum sem Gott
fólk gerði fyrir Thule, hafa vakið
athygli víða um heim. Auglýs-
ingin „Beautiful Women“ (Íslensk
fegurð) hefur farið þar fremst í
flokki en í henni freista menn-
irnir þess að sannfæra bargestinn
um að íslenskar konur séu þær
fegurstu í heimi og telja upp ófáa
titla íslenskra fegurðardísa máli
sínu til stuðnings. „Beautiful Wo-
men“ varð nýlega fyrsta íslenska
auglýsingin til að birtast í ritinu
Shots, sem hefur að geyma úrval
þeirra sjónvarpsauglýsinga sem
mesta athygli vekja í heiminum á
hverjum tíma. Shots er að sögn
kunnugra nokkurs konar biblía í
auglýsingabransanum. Þá komst
hún í úrslit í hinni virtu Epica-
keppni.
Auka hlutdeild Thule verulega
Auglýsingin er ein af 11 sjón-
varpsauglýsingum úr herferðinni
„Bezt í heimi“ en sú herferð var
óbeint framhald af auglýsingum
þar sem tveir Danir voru jafnan
sýndir á spjalli og birtust á skján-
um fyrir nokkrum árum.
Að sögn Helga Helgasonar hjá
Góðu fólki hafa herferðirnar skil-
að sér í stóraukinni sölu á Thule.
„Þetta má sjá á sölutölum ÁTVR.
Markaðshlutdeild Thule í ÁTVR
jókst um nærri fjórðung á síðasta
ári. Þegar við fórum af stað með
dönsku auglýsingarnar þá var
markaðshlutdeild Thule einungis
nokkur prósent. Í dag er þetta
næstsöluhæsti bjórinn hjá
ÁTVR,“ segir Helgi. Hann segir
hróður „Íslenskrar fegurðar“
hafa borist hinum megin á hnött-
inn, alla leið til Nýja-Sjálands.
„Auglýsingin hefur vakið það
mikla athygli að hún hefur verið
sýnd víða um heim í sérstökum
skemmtiþáttum í sjónvarpi. Hún
var nýlega sýnd í nýsjálenska
sjónvarpinu sem dæmi um
óvenjulega og skemmtilega aug-
lýsingu,“ segir Helgi.
„Íslensk
fegurð“ hin-
um megin á
hnettinum
Sannfæringarkraftur þessara tveggja virðist slíkur að jafnt nýsjálenskir
sjónvarpsáhorfendur sem íslenskir neytendur taka við sér.
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES-ríkjum var 112,0 stig
(1996=100) í desember sl. og hafði
þar með hækkað um 0,2% frá nóv-
ember. Á sama tíma var samræmda
vísitalan fyrir Ísland óbreytt, 124,1
stig, segir í tilkynningu frá Hagstofu
Íslands.
Frá desember 2001 til jafnlengdar
árið 2002 var verðbólgan, mæld með
samræmdri vísitölu neysluverðs,
2,2% að meðaltali í ríkjum EES,
2,3% á evrusvæðinu en lægri, eða
1,9% á Íslandi. Mesta verðbólga á
evrópska efnahagssvæðinu á þessu
tólf mánaða tímabili var á Írlandi
4,6% og í Portúgal og á Spáni 4,0%.
Minnst var verðbólgan 1,1% í Þýska-
landi og 1,3% í Belgíu.
Minni verð-
bólga hér en að
meðaltali í EES
RICHARD Parsons, aðal-
framkvæmdastjóri AOL
Time Warner, stærsta fjöl-
miðlafyrirtækis í heimi, hef-
ur verið skipaður stjórnar-
formaður fyrirtækisins.
Hann tekur við af Steve
Case sem tilkynnti fyrir
nokkru að hann myndi láta
af starfi stjórnarformanns í
kjölfar hluthafafundar í fé-
laginu í maí næstkomandi. Frá þessu
var greint í frétt á BBC.
Gengi hlutabréfa AOL Time
Warner hefur fallið um 70% frá því
netþjónustufyrirtækið America On-
line og fjölmiðlarisinn Time Warner
sameinuðust fyrir tveimur
árum. BBC segir að sumir
stórir hluthafar kenni Case
um þessar ófarir og að þeir
hafi lagt að honum að hætta.
Hann kom frá AOL en flestir
af æðstu stjórnendum AOL
Time Warner, sem komu
þaðan, hafa hætt störfum hjá
hinu sameinaða fyrirtæki.
Parsons var einn af stjór-
nenum Time Warner og hefur verið
aðalframkvæmdastjóri hins samein-
aða fyrirtækis í tæpt ár. BBC segir
að hann muni halda áfram í því starfi
þegar hann verður stjórnarformað-
ur.
Parsons stjórnarformaður
AOL Time Warner
Richard Parsons