Morgunblaðið - 24.01.2003, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 39
✝ Arndís Ragnars-dóttir var fædd í
Súðavík 16. apríl
1948. Hún lést á
Landspítala í Foss-
vogi 16. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar eru Ragnar
Þorbergsson, f. 15.
mars 1928, og Guð-
rún Jónasdóttir, f. 2.
nóvember 1929. d.
30. júní 1990. Arndís
var elst sex systkina
en þau eru: 1) Rann-
veig Jóna, maki
Samúel Kristjánsson
og eiga þau þrjá syni. 2) Jónas
Þór, maki Laura Hildur Jakobs-
dóttir og eiga þau þrjár dætur,
fyrir átti Jónas tvær dætur. 3)
Elvar, lést árið 2001, maki Anna
Sigurðardóttir og eignuðust þau
tvö börn, fyrir átti Elvar einn
son. 4) Eiríkur
Bjarkar og á hann
fjögur börn. 5)
Anna Lind, maki
Garðar Sigurgeirs-
son og eiga þau
þrjú börn.
Eftirlifandi eigin-
maður hennar er
Guðlaugur Þór Þor-
steinsson, f. 25.
september 1950.
Foreldrar hans eru
Þorsteinn G. Páls-
son vélvirki, f. 4.
júní 1916, d. 10. júlí
1989, og Ingibjörg
Guðlaugsdóttir húsmóðir, f. 6.
október 1917. Adda og Gulli
giftu sig 7. ágúst 1976, þau voru
barnlaus.
Útför Arndísar fer fram frá
Langholtskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku Adda mín, þá er þinni orr-
ustu lokið. Mikið held ég að það sé
gaman hjá þér núna, komin í þitt
sjálf. Það sem ég set á blað er ekki
annað en þakklæti fyrir að fylgja
mér, þessum aulans frænda þínum
í gegnum prófin. Þú varst eins og
klettur þegar ég var að taka þessi
árans próf, ekki fékk ég mikið að
sleppa við lesturinn eða kunnátt-
una. Þú hlýddir mér yfir og hvattir
mig áfram, beinlínis leiddir mig
gegnum þennan mikilvægasta
áfanga lífsins. Ekki veit ég hvort
ég hefði orðið það sem ég er í dag,
nema fyrir þinn stuðning.
Ég sendi þér Stjörnur Steins
Steinars í þakkarskyni:
Langt úti í myrkrinu liggurðu og hlustar
á hnattanna eilífa söng.
Þú er veikur og einn og vitund þín svífur
um svimandi víddir hins óræða geims,
í örvænum flótta á undan sér sjálfri.
Langt úti í myrkrinu liggurðu og hlustar
á hnattanna eilífa söng.
Og annarleg rödd mun í eyra þér segja:
þú sjálfur ert einn af þeim.
Gulli og Raggi, ykkur votta ég
mína samúð, svo og systkinum öll-
um.
Ebeneser.
Hún Adda er dáin. Minningarn-
ar hrannast upp, svo hratt, svo
margar og miklar, sem eðlilegt má
vera eftir meira en hálfrar aldar
stöðuga og góða vináttu. Stundum
hefur læðst að okkur æskuvinkon-
um hennar sá sterki grunur að hún
sem minnsta getu hafði, hafi átt
stærstan þátt í því að alltaf höfum
við haldið saman og verið í góðu
sambandi. Ung að árum, um ferm-
ingaraldur, fór hún að kenna þess
sjúkdóms sem hægt og bítandi
gerði henni allt mjög erfitt svo lít-
ils gat hún notið sem lífið hafði upp
á að bjóða. En Adda var einstök
manneskja. Aldrei nokkru sinni í
allan þennan tíma vottaði fyrir öf-
und í okkar garð né annarra sem
höfum átt gott líf og getað gert það
sem hugurinn stóð til, valið og
hafnað. Öðru nær, hún gladdist yf-
ir því sem vel gekk var öllum okk-
ar börnum góð og hlý, ómælt er
allt það sem hún hefur gaukað að
þeim í gegnum tíðinna. Í uppvexti
þeirra var alltaf jafn spennandi að
koma með í heimsókn til Öddu. Ef
þannig stóð á að ekki var hægt að
koma með þá var það öruggt að
eitthvað beið þeirra frá henni þeg-
ar heim var komið. Æðruleysi
hennar var einstakt. Ekki var hún
gömul þegar þessi umhyggja fyrir
öðrum kom í ljós. Minnisstætt er
okkur þegar hún sat löngum uppi í
fjárhúsi hjá kindum afa síns og tal-
aði við þær sem jafningja. Eitt sinn
hafði hún grun um að farga ætti
einni kindinni. Tók hún þá það ráð
að strjúka með kindina og freista
þess að bjarga henni frá dauða.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu
að kynnast þér.
( Ingibj. Sig.)
Í byrjun árs 1998 var hún orðin
mjög vanmáttug vegna sinna veik-
inda og flyst þá alfarið á hjúkr-
unarheimilið Skógarbæ og dvaldi
þar uns yfir lauk. En alltaf var
kollurinn skýr og vonin og bjart-
sýnin höfð að leiðarljósi. Oft hefur
okkur undrað hvað endalaust er
hægt að leggja á eina manneskju í
gegnum allt hennar líf, en undr-
unin er ennþá stærri yfir því
hvernig henni tókst alltaf að taka
þessu öllu og brosa í gegnum tárin.
Að lokum langar okkur að flytja
sérstakar þakkir til starfsfólks
deildar 14G, nú B7 Landspítalans
fyrir frábæra umönnun og velvild í
hennar garð, en þar dvaldi hún oft
síðustu þrjá áratugina.
Þú skilur eftir auðlegð þá
sem enginn tekið fær,
ást í hjarta, blik á brá
og brosin silfurtær.
Mesta auðinn eignast sá,
er öllum reynist kær.
(G. Ö )
Brynja, Elín (Ella), Halla,
Sigurbjörg (Sirrý) og fjöl-
skyldur.
Við Adda vorum herbergis-
félagar fyrsta veturinn okkar á
Héraðsskólanum í Reykjanesi við
Ísafjarðardjúp árið 1963. Sam-
búðin var afar ljúf og áfallalaus,
enda vandfundin jafn þægileg og
tilgerðarlaus stúlka og Adda. Mér
er minnisstætt er við skólasyst-
urnar lágum í hrúgu uppi í kojum
og Adda sagði sögur úr daglega
lífinu í Súðavík sem urðu að æv-
intýrum í frásögnum hennar af
fjölskyldu, vinum, störfum hennar
í æskulýðsfélaginu, en þar var
hún formaður, eða einhverjum at-
burðum. Mér fannst ég farin að
þekkja fjölda fólks í Súðavík, frá-
sagnargleðin var slík.
Þá strax var farið að bera á
sjúkdómnum sem lék hana svo
grátt.
Leiðir skildi í mörg ár. En þá
átti ég leið framhjá sjúkrastof-
unni hennar og hún kallaði á mig.
Athygli hennar hafði ekkert dofn-
að, en sjúkdómurinn hafði sett
sitt mark á hana, hún var búin að
vera langdvölum á sjúkrahúsi.
Síðan þá höfum við alltaf haft
samband. Ef hún var spurð
hvernig hún hefði það var svarið
oftast: „Bara fínt.“ Þó að hún ætti
erfitt með að tjá sig gafst hún
aldrei upp að leita að réttum orð-
um, – uppgjöf var ekki til í henn-
ar orðabók.
Hún hafði óþrjótandi áhuga á
því sem var að gerast hjá fjöl-
skyldu og vinum og alltaf að búa
til eitthvað til að gefa. En hún
kunni líka svo vel að þiggja.
Mikill lærdómur felst í því að
kynnast manneskju eins og Öddu.
Enginn kunni að meta hlutina
eins vel og hún. Maður sér hlut-
ina í nýju ljósi - þakklátur fyrir
það sem lífið hefur gefið manni og
þakklátur henni fyrir að hafa með
æðruleysi yfir hlutskipti sínu bent
manni á það. Minningin um Öddu
verður í heiðri höfð hjá mínu
fólki. Fáum hef ég kynnst sem er
eins vert og hollt að minnast.
Guðlaugi og fjölskyldu hennar
allri sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur. Ég bið Guð að umvefja
hana með gæsku sinni þar sem
hún er nú.
Matthildur G. Sverr-
isdóttir og fjölskylda.
ARNDÍS
RAGNARSDÓTTIR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Baadermaður
Baadermaður óskast á frystitogara
frá Hafnarfirði.
Upplýsingar í símum 555 2605 og 892 2222.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Síðumúla 21, s. 588 9090
Atvinnuhúsnæði óskast
- traustir kaupendur
Skrifstofubygging óskast
3500—4500 fm skrifstofubygging í Reykjavík
óskast nú þegar.
Atvinnuhúsnæði í Kópavogi óskast
1000—2000 fm atvinnuhúsnæði með góðri
lofthæð og innkeyrsludyrum, t.d. skemmu-
bygging, óskast nú þegar.
Allar nánari upplýsingar veita: Sverrir,
Stefán Hrafn og Kjartan.
HÚSNÆÐI ERLENDIS
Barcelóna — Menorca
Íbúð til leigu í Barcelóna og
á Menorca. Vetrarfrí/sumarfrí.
Uppl. gefur Helen í síma 899 5863.
KENNSLA
Enska fyrir
börn
10 vikna námskeið fyrir börn fædd 1987-'97.
Nemendur flokkaðir eftir aldri og kunnáttu.
Sérmenntaðir enskumælandi kennarar.
Hefst 1. febrúar og kostar 12.900 kr.
Ennþá eru nokkur sæti laus.
Opið hús 25. janúar frá kl. 11-15.
Sími 588 0303
Faxafen 8
LANDBÚNAÐUR
Góðursnautt land óskast
á mjög góðum kjörum eða gefins.
Landið mun verða notað til uppgræðslu og
skógræktar — helst í Rangárþingi eða Árnes-
sýslu — aðrir staðir koma til greina.
Upplýsingar í síma 551 5594 eða 898 2487.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum veður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Freyvangur 22, Hellu, eignarhl., gerðarþola, þingl. eig. Árni Kristjáns-
son og Iða Brá Árnadóttir, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands
hf., Hellu og Gúmmívinnslan hf., fimmtudaginn 30. janúar 2003
kl. 10.00.
Hraukur, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Ágúst Karl Sigmundsson,
gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Kaupfélag Árnesinga, Lánasjóður
landbúnaðarins og sýslumaðurinn á Hvolsvelli, föstudaginn
31. janúar 2003 kl. 12.00.
Lækjarbraut 7, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Unnur Hróbjartsdóttir,
gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., útibú, fimmtudaginn
30. janúar 2003 kl. 9.30.
Nýbýlavegur 20, Hvolsvelli, eignarhl. gerðarþola, þingl. eig. Benóný
Jónsson, gerðarbeiðandi Guðbrandur Óli ehf., föstudaginn 31. janúar
2003 kl. 10.00.
Suðurlandsvegur 2, 56,42%, Hellu, þingl. eig. Árni Kristjánsson,
gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 30. janúar
2003 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
22. janúar 2003,
Þórhallur Haukur Þorvaldsson, ftr.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
Myndsköpun—leikur
Viltu auka kærleikann í lífi þínu?
Hugleiðsla.
Þjálfun í teikningu
og litameðferð.
Að miðla af sér
og deila með
öðrum.
Sjálfsþekking.
Að setja sér raunhæf markmið.
Finndu það fegursta
í sjálfum þér.
Innritun og nánari uppl. í síma
865 5592 eða 568 4930 frá 16—
18.
Ásta Kristbergsdóttir,
arkitekt FAI.,
Landslagsarkitekt og myndþerapist MAA
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 1831248½ 9.0.
I.O.O.F. 1 1831248 Þb.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Ashley Schmierer ásamt Robert
Maasbach í Veginum helgina 24.
til 26. janúar.
Föstudagur
Samkoma kl. 20.00. Ashley
Schmierer predikar. Lofgjörð og
fyrirbænir.
Laugardagur
Kennsla kl. 10 til 16 um efnið
Leiðtogi í söfnuðinum...hvar ert
þú? Ashley Schmiere og Robert
Maasbach kenna. Opið öllum.
Sunnudagur
Samkoma kl. 16:30.
Ashley Schmierer predikar.
Lofgjörð, fyrirbænir, krakka-
kirkja, ungbarnakirkja og sam-
félag.
Allir hjartanlega velkomnir.
Í kvöld kl. 21 heldur Pétur Halld-
órsson erindi „Hlutföll í fornum
heimsmyndum“ í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Önna S. Bjarn-
adóttur sem fjallar um
„Svæðameðferð á fótum
(reflexology)“
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leið-
beiningum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 30. janúar kl.
20.30 í umsjá Jóns L. Arnalds
„Hugur er heimur III“.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is