Morgunblaðið - 24.01.2003, Page 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 41
AFMÆLI
HINNI alþjóðlegu bænaviku um
einingu kristinna manna sem hald-
in er þessa daga út um allan heim
lýkur hér á landi með sam-
kirkjulegri bænasamkomu annað
kvöld laugardaginn 25. janúar kl.
20 í St Jósefskirkju á Jófríð-
arstöðum, Hafnarfirði. Að þessari
samkomu standa Þjóðkirkjan,
Kaþólska kirkjan, Aðventistar,
Hvítasunnusöfnuðurinn, Íslenska
Kristskirkjan, Hjálpræðisherinn
Óháði söfnuðurinn, Vegurinn, og
KFUM.
Öllum sem þykir vænt um boð-
skap Jesú Krists og um að kristnir
menn sameinist í bæn og lofgjörð
Drottins eru velkomnir.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 26. janúar nk. kl. 14
verður haldin ensk messa í Hall-
grímskirkju. Prestur verður sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Hörður Áskelsson. Guðrún
Finnbjarnardóttir mun leiða al-
mennan safnaðarsöng og syngja
einsöng. Messukaffi að athöfn lok-
inni. Annað árið í röð verður boðið
upp á enska messu í Hallgríms-
kirkju síðasta sunnudag hvers
mánaðar.
Service in English Service in
English at the Church of Hall-
grímur (Hallgrímskirkja). Sunday
26th of January at 2 pm. Holy
Communion. The Third Sunday of
Epiphany.
Celebrant and Preacher: The
Revd Bjarni Thor Bjarnason. Org-
anist: Hördur Áskelsson. Leading
Singer and Soloist: Gudrún Finn-
bjarnardóttir.
Refreshments after the Service.
Málþing um líftækni
og siðfræði
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg og
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
standa í sameiningu fyrir málþingi
um líftækni og siðfræði miðviku-
daginn 29. janúar kl. 17–21.30 í
húsi KFUM og KFUK, á horni
Holtavegar og Sunnuvegar.
Yfirskrift málþingsins er Líf og
tækni, trú og Guð. Fjallað verður
um álitamál er varða rannsóknir
og nýtingu tækni við myndun og
varðveislu lífs á frumstigi þess og í
líffæraflutningum. Leifur
Þorsteinsson líffræðingur hefur
málþingið með yfirliti yfir þróun
tækni og möguleika á sviði líf-
tækninnar. Ekki er nauðsynlegt að
þekkja fræðin að hafa gagn af fyr-
irlestrinum. Trausti Óskarsson
læknanemi og Flóki Guðmundsson
heimspekinemi munu gera grein
fyrir rannsókn sinni á viðhorfum
lækna, presta og lögfræðinga til
þessara mála, einkum nýtingu
stofnfruma og fósturvísa. Har-
aldur Jóhannsson læknir fjallar
um kristinn mannsskilning og
gildi hans í þessu sambandi. Ragn-
ar Gunnarsson kristniboði mun
leitast við að svara spurningunum
hvort kristin siðfræði gefi einhver
svör, hvaða sjónarmið ættu að
liggja til grundvallar og hvar ætti
að setja mörkin og hvers vegna.
Ragnheiður Sigurðardóttir deild-
arstjóri svarar spurningunni
hvernig þetta snertir hana í henn-
ar starfi. Málþingið er öllum opið.
Þátttökugjald á málþinginu er 500
kr. og skráning í síma 588 8899
eða með tölvupósti á skrifstofa-
@krist.is. Skráningu lýkur þriðju-
daginn 28. janúar. Matur verður
seldur á staðnum og þarf að panta
hann fyrirfram. Kostar máltíðin
1.000 kr. en 800 kr. ef pantað er
fyrir 25. janúar.
Barnastarf í
Selfosskirkju
BARNASAMKOMA er í Selfoss-
kirkju á hverjum sunnudegi kl. 11.
Börnin fá að heyra guðspjall
dagsins, sem skýrt er með mynd-
um; þau læra bænir og sálmvers
og syngja söngva með fram. Auk
þessa fá þau í hendur efni til þess
að hafa með sér heim.
Áreiðanlegt er að stund á borð
við þessa getur orðið börnunum til
aukins þroska, að ógleymdri þeirri
uppistöðu í hlýjar minningar síðar
á ævi, sem hér verður til í hugum
þeirra.
Það er margsannað mál, að fátt
er börnum hollara en ánægjulegar
samvistir við foreldra eða aðra
fullorðna ættingja eða velunnara.
Jafnvíst er, að umgengni við börn
veitir hinum eldri ósvikna gleði og
er það því æði þakklát iðja að
hlynna að hinum ungu.
Fyrirkomulag þessarar barna-
samkomu í Selfosskirkju er með
þeim hætti að fyrst koma börnin
til kirkjunnar í fylgd forráða-
manna sinna. Messa hefst kl. 11 og
stuttu eftir það halda börnin í
fylgd leiðbeinenda sinna inn í
Safnaðarheimili Selfosskirkju. Þar
fer barnasamkoman fram. Þeir
fullorðnir, sem börnunum fylgja til
kirkjunnar, geta þá valið um það,
hvort þeir standa upp úr sætum
sínum í kirkjubekknum og fylgja
börnunum inn í Safnaðarheimilið
að vera þar við barnasamkomuna,
eða að öðrum kosti sitja kyrrir og
hlýða messu í kirkjunni. Skömmu
áður en messunni lýkur, venjulega
um eða rétt fyrir kl. 12 á hádegi,
koma svo börnin og kennarar
þeirra aftur inn í kirkjuna.
Ég vona innilega að sem flestir
forráðamenn barna hugsi vel til
kirkjunnar og athugi, hvort ekki
væri nú tilvalið að koma með börn-
in í þessar barnasamkomur á
sunnudögum.
Gunnar Björnsson,
sóknarprestur.
Samkirkjuleg
bænasamkoma í
St. Jósefskirkju,
Hafnarfirði
Morgunblaðið/Jim Smart
Hallgrímskirkja í Reykjavík.
STUNDUM – þegar ég
horfi um farinn veg,
flökrar það að mér að
þó ég í lífinu hafi ekki
alla tíð farið að settum
reglum samfélagsins,
þá sé ég, án þess að
hafa til þess unnið,
einskonar gæfumaður.
Blessuð forsjónin hefur
einhvernveginn séð til
þess.
Nú þegar ég á gam-
alsaldri vil öðru fremur
fara að settum reglum
verð ég þess stundum
var að reglurnar vant-
ar. Af hverju eru ekki til reglur um
það hvenær og um hverja maður á að
skrifa afmælisgreinar eða minning-
argreinar? Alveg óbærilegt að vera
alltaf að drepast úr móral þegar ein-
hver geispar golunni. – Hann hefði
nú átt nokkur orð skilið þessi o.s.frv.
Í dag er Gísli Alfreðsson, stórvin-
ur minn, sjötugur og það er svo
sannarlega ekki af neinni annarlegri
kvöð, lagaboðum eða reglum sem ég
drep niður penna af því tilefni. Sann-
leikurinn er sá að Gísli skrifaði um
mig afmælisgrein í Moggann þegar
ég varð sjötugur fyrir nokkrum ár-
um – grein sem varð til þess að ég sté
á stokk og strengdi þess heit að
skrifa um Gísla minningargrein þeg-
ar hann yrði jarðsunginn. Ég reikn-
aði semsagt með því að hann geisp-
aði golunni á undan mér.
Ég hef undanfarin ár fylgst
grannt með heilsu okkar beggja og
fæ ekki betur séð en ég sé allur úr
lagi genginn en ennþá bara þó nokk-
uð eftir af Gísla. Af þessu dreg ég þá
ályktun að ég fari á undan Gísla, svo
líklega fellur það í hans hlut að skrifa
eftirmæli eftir mig.
Margir hafa, einsog vænta má, í
gegnum tíðina orðið til þess að
mynda sér skoðun á Gísla og störfum
hans, enda hefur hann víða komið
við, en hræddur er ég um að fáir geri
sér fyllilega ljóst hve mikill heillakall
hann hefur verið fyrir þróun leiklist-
ar í landinu. Gísla er nefnilega afar
ósýnt um að halda eigin hróðri á loft,
eða einsog kellingin sagði þegar það
kom á baksíðu í Dagblaðinu að ís-
lensk stúlka hefði leikið stofustúlku í
gagnfræðaskólaleikriti í Arisona. Þá
sagði kellingin:
„Það þarf nú ekki að setja það í
alla fjölmiðla þó maður leysi vind í
Lofoten.“
En Gísli er semsagt sjötugur í dag
og ég get ekki annað en sent þessum
aldavini mínum kveðju mína.
Efst er mér í huga löng vinátta og
afar náin kynni. Við vorum áratug-
um saman vinnufélagar í Þjóðleik-
húsinu og deildum búningsherbergi
allan tíman, bjuggum hlið við hlið
niðurvið Tjörn lungann af blóma-
skeiði beggja, unnum að fjölmörgum
verkefnum saman, deildum geði,
gleði og sorgum, skemmtum okkur
saman, drukkum sam-
an og riðum út saman
og brölluðum allan fjár-
ann.
Ég lít svo á, að hafi
ég nokkurn tímann
eignast það sem kallað
hefur verið aldavinur,
þá sé það Gisli Alfreðs-
son. Ég ætti þessvegna
að vita hvað ég er að
tala um þegar ég drep
niður penna um þennan
góða vin minn.
Öndvert við flesta
aðra úr leikarastétt er
Gísli með óframfærnari
mönnum. Hann hefur alla tíð gefið
lítið fyrir potthlemmaslátt útaf eigin
afrekum og þessvegna vita allt of fáir
hve miklu þessi atorkumaður kom í
verk á annasamri starfsævi.
Þeir sem ekki þekkja Gísla, nema í
mesta lagi af afspurn, hafa stundum
freistast til að halda að honum þyki
notalegt að taka það rólega. En við
sem þekkjum hann vitum að hann er
ofvirki en, nóta bene – hann fer að
vísu mjög vel með það. Leikarar
ættu að vera þess minnugir að í hart-
nær tuttugu ár var hann í stjórn leik-
arafélagsins og lengstaf formaður,
eða frá 1967 til 1983. Allan þennan
tíma barðist hann einsog ljón fyrir
kjörum leikara og ég tel óhætt að
fullyrða að hafi atvinnuleikarar á Ís-
landi nokkurntímann búið við mann-
sæmandi kjör þá megi reikna með
því að það hafi verið fyrir harðfylgi
Gísla.
Árið 1983 gerðist hann hinsvegar
Þjóðleikhússtjóri og sinnti því starfi í
átta ár.
Gísli hafði starfað sem leikari og
leikstjóri við Þjóðleikhúsið í tvo ára-
tugi áður en hann varð Þjóðleikhús-
stjóri og þessvegna vissi hann fullvel
hvar umbóta var þörf svo leikhúsið
gæti svarað nútímakröfum um tækni
og aðbúnað í leikhúsi. Í tíð Gísla var
hljóðkerfi og ljósakerfi hússins full-
komnað, húsið var tölvuvætt, tvö ný
leiksvið litu dagsins ljós – smíða-
verkstæðið og litla sviðið í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar – Jónshúsi,
sem tekist hafði að fá undir Þjóðleik-
húsið í stjórnartíð Gunnars Thor-
oddsen.
Af þeirri stjórn tók við önnur rík-
isstjórn og virtist efst á óskalista
fjármálaráðherra þeirrar ríkis-
stjórnar að ná Jónshúsi aftur af
Þjóðleikhúsinu.
Gísla tókst eftir mikla orrahríð að
koma í veg fyrir það, en höfuðand-
stæðingur hans í þeirri rimmu var
Albert heitinn Guðmundsson.
Gísli fór með sigur af hólmi í þess-
um átökum og svo eftirminnilega að
nú er það til skjalfest, að ekki megi
svifta Þjóðleikhúsið Jónshúsi nema
stofnuninni sé búin sambærileg að-
staða eða betri í staðinn.
Þá var sýningarsalnum, að frum-
kvæði Gísla, gerbreytt í stjórnartíð
hans og vakti það mikla kátínu
áhorfenda að geta nú loks farið að
njóta til fullnustu þess sem fram fór
á sviðinu.
Ég vona að ekki sé á neinn hallað
þótt ég fullyrði að Þjóðleikhúsið væri
ekki nema svipur hjá sjón í dag ef
ekki hefði komið til skerfur Gísla Al-
freðssonar.
Gísli tók við skólastjórn í Leiklist-
arskóla Íslands eftir að hann lét af
störfum við Þjóðleikhúsið og stýrði
þeim skóla í átta ár og hefur svosem
verið til þess tekið hve gjörvilegt fólk
og hæfileikaríkt hefur úr þessum
skóla komið.
Og fallegar telpur, hvort sem það
er nú Gísla að þakka eða ekki.
Því má ekki gleyma að Gísli var á
sjöunda, áttunda og níunda áratugn-
um einn mikilvirkasti leikstjóri okk-
ar við sjónvarp, útvarp og víðar og
vann brautryðjendastarf í sjónvarpi
með athyglisverðum uppfærslum.
Auðvitað gæti ég haldið svona
áfram endalaust, en nú er mál að
linni.
Ég verð þó að geta þess að Gísli er
tæknifrík og tölvugúrú og væru sum-
ir okkar góðvina hans illa á vegi
staddir í lífinu, tæknilega, hefði hans
ekki notið við þegar allt var komið í
steik í tölvunni hjá okkur.
Eini veikleiki Gísla sem ég veit um
er sá að hann fær það yfirleitt á heil-
ann sem hann er að fást við hverju
sinni. Og ef til vill er það einmitt
styrkur hans. Ég gleymi því ekki
þegar hann þóttist hafa komist uppá
lagið með að járna hest. Hann fékk
járningar gersamlega á heilann og er
þetta í eina skiptið sem hann var við
það að ganga gersamlega framaf
mér.
Og eitt má ekki gleymast. Gísli er
söngmaður góður, og er þyngra en
tárum taki hve margir hafa farið á
mis við túlkun Gísla í söng. Því hefur
verið haldið fram að enginn verði
samur eftir að hafa heyrt Gísla Al-
freðsson flytja „Piparkökusönginn“
úr Dýrunum í Hálsaskógi og „Ol
man river“.
Ég vil svo að lokum þakka forsjón-
inni það örlæti að hafa lagt blessun
sína yfir vináttu okkar Gísla sem
varað hefur um áratuga skeið í gegn-
um þykkt og þunnt og óska Gísla
hjartanlega til hamingju með daginn
og íslensku þjóðinni til hamingju
með Gísla.
Hann er nú, með Guðnýju sinni
staddur í Mexíkó hjá Ernu og Bene-
dikt Árnasyni.
Til hamingju með daginn.
Flosi Ólafsson.
GÍSLI
ALFREÐSSON
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf í dag
kl. 13. Leifimi, æfingar við allra hæfi,
undir stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa,
kaffi og spjall. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Kaffispjall fyrir mæður. Góð upp-
lifun fyrir börn. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi).
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15. LLL –
KFUM&K í safnaðarheimilinu, Uppsöl-
um 3.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11–12.30.
Lofgjörð, barnasaga, prédikun og bibl-
íufræðsla. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla
alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
KEFAS. Föstudaginn 24. janúar er starf
fyrir 11–13 ára kl.19.30. Allir á aldr-
inum 11–13 ára eru hjartanlega vel-
komnir.
Fríkirkjan Vegurinn: Ráðstefna með
Ashley Schmierer ásamt Robert Maas-
bach í Veginum helgina 24. til 26. jan-
úar.
Föstudagur: Samkoma kl. 20, Ashley
Schmierer predikar, lofgjörð og fyrir-
bænir.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóa-
markaður frá kl. 10–18 í dag.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Næsta sam-
vera kirkjuskólans í Mýrdal verður í Vík-
urskóla laugardaginn 25. janúar, frá kl.
11.15 til kl. 12. Nýjar bækur og nýjar
myndir komnar. Brúðurnar eru komnar
úr jólaleyfinu. Þorrablót Víkurbúa verð-
ur um kvöldið.
Fjölmennið, takið með ykkur gesti.
Safnaðarstarf
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
SMS FRÉTTIR mbl.is