Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Dagskrá:
Veislustjóri: Atli Gíslason, hrl.
Minni karla: Þórhildur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri.
Minni kvenna: Hallur Hallsson, blaðamaður.
Skemmtiatriði: Óvæntar uppákomur deilda.
Happdrætti: Glæsilegir vinningar.
Dans: Hljómsveitin G - fiðringurinn sér um fjörið.
Miðar verða eingöngu seldir í forsölu
í Víkinni síma 581 3245 og hjá Erni Guðm. í síma 892 6462.
Nefndin
Þorrablót Víkings
verður haldið laugardaginn 1. febrúar nk.
í Víkinni og hefst kl. 19:00.
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeild:
Borgarnes: Skallagrímur - Tindastóll .19.15
Grindavík: UMFG - Snæfell.................19.15
Keflavík: Keflavík - Haukar ......................20
Njarðvík: UMFN - Hamar...................19.15
Smárinn: Breiðablik - Valur .................19.15
1. deild kvenna:
Keflavík: Keflavík - Haukar ......................18
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Ásgarður: Stjarnan - Valur .......................20
Framhús: Fram - Fylkir/ÍR......................20
Kaplakriki: FH - Haukar...........................20
KA-heimilið: KA/Þór - Grótta/KR............20
Vestmannaeyjar: ÍBV - Víkingur .............20
BLAK
1. deild kvenna:
Hagaskóli: Fylkir - KA ..............................19
Neskaupstaður: Þróttur N. - HK .............20
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Valur - KR .................................19
Egilshöll: Leiknir R. - Þróttur R. .............21
HANDKNATTLEIKUR
Portúgal – Ísland 28:29
Viseu, Portúgal, HM í handknattleik karla,
B-riðill, fimmtudaginn 23. janúar 2003.
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 2:6, 3:7, 6:7, 10:8,
10:10, 13:12, 13:14, 15:16, 17:16, 18:17,
18:20, 19:22, 20:23, 22:23, 22:24, 26:24,
26:27, 27:28, 28:28, 28:29.
Mörk Portúgals: Rui Silva 6, Eduardo
Coelho 5, Carlos Resende 4, Rui Costa 4,
Luís Gomes 3, Álvaro Martins 2/1, Victor
Tchikoulaev 2, Rui Rocha 1, Filipe Cruz 1.
Varin skot: Carlos Ferreira 2, Sérgio
Morgado 13/1 (þar af 6 aftur til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur (Silva rautt spjald
fyrir þrjár brottvísanir á 58. mín.)
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 7,
Einar Örn Jónsson 7, Ólafur Stefánsson
5/2, Sigfús Sigurðsson 3, Patrekur Jóhann-
esson 2, Rúnar Sigtryggsson 2, Aron Krist-
jánsson 1, Sigurður Bjarnason 1, Heiðmar
Felixson 1. Einnig léku Dagur Sigurðsson,
Róbert Sighvatsson, Gústaf Bjarnason.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 0,
Roland Eradze 12/1 (3 aftur til mótherja).
Utan vallar: 16 mínútur.
Dómarar: Janko Pozeznik og Darko Rep-
ensek frá Slóveníu.
Áhorfendur: Um 3.200, troðfullt.
B-riðill, aðrir leikir:
Þýskaland – Grænland........... (20:11) 34:20
Þýskaland: Stefan Kretzschmar 8/1, Mark-
us Baur 7/4, Christian Schwarzer 6, Mark
Dragunski 4, Volker Zerbe 4, Christian
Zeits 2, Pascal Hens 1, Jan Olaf Immel 1,
Klaus Dieter Petersen 1.
Varin skot: Hennig Fritz 9 (þar af 1 aftur til
mótherja), Christian Ramota 4 (þar af 2
aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Grænland: Jakob Larsen 8, Hans Peter
Motzfeldt 7, Rasmus Larsen 3/1, Niels
Poulsen 1, Peter Sikemsen 1.
Varin skot: Ulrich Winther-Hansen 4 (þar
af 1 aftur til mótherja), Niels Davidsen 16
(þar af 3 aftur til mótherja)
Utan vallar: 6 mínútur.
Ástralía – Katar ...................... (10:14) 23:28
Sasa Sestic 8, Milan Slavujevic 4, Darryll
McCormack 3, Brendon Taylor 3 – Ahmed
Al Saad 13, Abdulla Al Saad 7, Yousef
Ashoor 3.
Staðan:
Þýskaland 3 3 0 0 120:53 6
Ísland 3 3 0 0 114:60 6
Portúgal 3 2 0 1 93:69 4
Katar 3 1 0 2 66:94 2
Grænland 3 0 0 3 56:98 0
Ástralía 3 0 0 3 54:129 0
Leikir á morgun:
Portúgal – Þýskaland............................15.15
Ísland – Katar........................................17.15
Grænland – Ástralía..............................19.15
A-riðill
Marokkó – Kúveit ..................... (9:11) 22:25
Moustapha Taj 10 – Mashail Alenezi 9, Ali
Abdul Redha 7.
Pólland – Túnis ....................... (11:11) 24:22
Grzegorz Tkaczyk 11, Mariusz Jurasik 5 –
Sobhi Sioud 6, Wissem Hmam 4, Heykel
Mgannem 4.
Spánn – Júgóslavía ................... (12:9) 22:20
Manuel Colón 6, Alberto Entrerríos 4, Ant-
onio Ortega 4/2 – Dragan Skrbic 4, Nenad
Perunicic 4.
Staðan:
Spánn 3 3 0 0 79:63 6
Júgóslavía 3 2 0 1 80:56 4
Túnis 3 2 0 1 79:68 4
Pólland 3 1 0 2 69:80 2
Kúveit 3 1 0 2 59:87 2
Marokkó 3 0 0 3 64:76 0
Leikir á morgun:
Spánn – Kúveit ...........................................16
Júgóslavía – Túnis......................................18
Pólland – Marokkó .....................................20
C-riðill
Rússland – Króatía ................. (10:12) 26:28
Eduard Kokcharov 6, Dimitri Torgavanov
4, Alexei Rastvortsev 4 – Slavko Goluza 5,
Niksa Kaleb 4, Tonci Valcic 4, Petar Metli-
cic 4, Renato Sulic 4.
Ungverjaland – Sádi-Arabía . (22:12) 36:25
Istvan Pasztor 8, Laszlo Nagy 5, Carlos
Perez 4, Csaba Bendo 4 - Bandar Al-Harbi
6, Hani Hilal 6, Hussain Al-Akhwan 6.
Frakkland – Argentína............ (14:6) 35:18
Cédric Burdet 6, Bertrand Gille 5, Grégory
Anquetil 5 - Lucas Cruz Guerra 3, Mart-
ínViscovich 3, Bruno Civelli 3.
Staðan:
Frakkland 3 3 0 0 94:65 6
Króatía 3 2 0 1 82:74 4
Rússland 3 1 1 1 83:84 3
Argentína 3 1 1 1 74:90 3
Ungverjaland 3 1 0 2 90:85 2
Sádi-Arabía 3 0 0 3 66:91 0
Leikir á morgun:
Argentína – Ungverjaland ........................15
Króatía – Frakkland ..................................17
Rússland – S-Arabía ..................................19
D-riðill
Slóvenía – Egyptaland ........... (14:13) 26:27
Ivan Simonovic 13, Uros Zorman 3 – Huss-
ein Zaky 8, Sherif Hegazy 7.
Svíþjóð – Brasilía.................... (12:12) 29:21
Magnus Wislander 6, Johan Pettersson 6,
Mattias Franzén 5, Stefan Lövgren 5 –
Bruno Souza 8.
Danmörk – Alsír ....................... (9:13) 22:19
Lars Krogh Jeppesen 5, Lars Christiansen
5/1, Lars Jörgensen 3, Sören Stryger 3 –
Toufik Saadaoui 5/1, Abderezar Hamad 4.
Staðan:
Danmörk 3 3 0 0 83:67 6
Svíþjóð 3 2 0 1 83:73 4
Egyptaland 3 1 1 1 75:80 3
Alsír 3 0 2 1 66:69 2
Slóvenía 3 1 0 2 79:85 2
Brasilía 3 0 1 2 67:79 1
Leikir á morgun:
Alsír – Svíþjóð.............................................13
Brasilía – Slóvenía......................................18
Danmörk – Egyptaland .............................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
KR – ÍR 96:80
DHL-höllin, úrvalsdeild karla, Intersport-
deildin, fimmtudaginn 23. janúar 2003.
Gangur leiksins: 0:3, 7:10, 16:10, 16:16,
22:20, 24:24, 24.30, 30:35, 35:37, 44:37,
48:44, 53:48, 59:48, 62:52, 67:57, 67:64,
67:66, 76:69, 84:70, 84:77, 90:80, 96:80.
Stig KR: Darrell Flake 42, Herbert Arn-
arson 21, Baldur Ólafsson 13, Magnús
Helgason 8, I. Magni Hafsteinsson 4, Arn-
ar Kárason 3, Steinar Kaldal 3, Óðinn Ás-
geirsson 2.
Fráköst: 29 í vörn – 16 í sókn.
Stig ÍR: Eugene Christopher 27, Eiríkur
Önundarson 26, Hreggviður Magnússon
10, Ómar Sævarsson 5, Fannar Helgason 4,
Ólafur Sigurðsson 4, Pavel Ermonlinski 4.
Fráköst: 19 í vörn - 8 í sókn.
Villur: KR 14 - ÍR 18.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Eggert
Þór Aðalsteinsson.
Áhorfendur: Um 145.
Í KVÖLD
Íslenska dómaraparið fékk góðadóma fyrir þann leik enda eru þeir
tvímenningar í góðu formi og fengu
hæstu einkunn allra dómaraparanna í
þrekprófi sem þeir þreyttu fyrir mót-
ið.
„Okkur gekk bara mjög vel og við
fengum góð orð í eyra hjá eftirlits-
dómaranum eftir leikinn. Það var
mjög gott andrúmsloft í leiknum. Það
var auðvitað fast tekist á en það var
gert á heiðarlegan hátt,“ sagði Gunn-
ar í samtali við Morgunblaðið í gær.
Slök frammistaða Rússa á mótinu
hefur komið mönnum á óvart en eftir
þrjá leiki er uppskera þeirra aðeins
þrjú stig.
„Rússarnir eru bara ekki eins öfl-
ugir og áður. Þeir hafa ekki spilað vel
það sem af er og það er greinilegt að
það á sér stað einhver endurnýjun í
þeirra liði þó svo að gömlu jálkarnir
séu til staðar,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagði að um hörkuleik hefði
verið að ræða en Króatarnir voru þó
ofstast með frumkvæðið. „Það var allt
annað að sjá til Króatanna núna held-
ur en í leiknum við Argentínu. Boltinn
gekk vel hjá þeim og þeir voru greini-
lega búnir að taka sig á hugarfars-
lega. Það munaði þó minnstu að Rúss-
unum tækist að jafna en markvörður
Króatanna varði skot þeirra skömmu
fyrir leikslok. Króatarnir náðu frá-
kastinu og skoruðu síðasta markið.“
Gunnar sagðist ekki vita hvert
næsta verkefni þeirra á mótinu yrði
en frídagur er í dag. „Það er ekki búið
að raða dómurum á næstu umferð en
vonandi fáum við að dæma fleiri leiki.
Annars gildir það sama hjá okkur og
leikmönnum. Við tökum eitt verkefni í
einu og erum ekki að velta okkur upp
úr einhverju sem gerðist í gær.“
Morgunblaðið/Günther Schröder
Sigfús Sigurðsson í leiknum gegn Portúgal. Hann skoraði tvö
síðustu mörk leiksins og tryggði Íslandi sigur, 29:28.
Vel gengur
hjá Stefáni
og Gunnari
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæmdu leik Króata og
Rússa á Madeira í gær þar sem Króatar fögnuðu sigri, 28:26. Þetta
var annar leikurinn sem þeir Stefán og Gunnar dæma á mótinu en
þeir dæmdu leik Króata og Argentínumanna í 1. umferð riðlakeppn-
innar þar sem Argentínumenn komu öllum á óvart og sigruðu.
WILLIAMS-systurnar bandarísku, Ser-
ena og Venus, mætast í úrslitaleik opna
ástralska meistaramótsins í tennis á
morgun. Það verður fjórði úrslitaleikur
þeirra systra í röð á stórmóti og hefur
Serena unnið í hin þrjú skiptin, á opna
franska meistaramótinu, Wimbledon
og opna bandaríska meistaramótinu.
Takist Serenu að sigra verður hún
fyrsta konan í níu ár til að vera hand-
hafi fjögurra stærstu titlanna í senn, en
Steffi Graf lék þann leik árið 1994.
Það stóð þó tæpt hjá Serenu að kom-
ast í úrslitaleikinn því hún lenti undir,
1:5, gegn Kim Clijsters frá Belgíu í úr-
slitasetti undanúrslitanna í gær. Henni
tókst að snúa blaðinu við, vann 7:5, og
leikinn þar með. „Ég er baráttukona og
kom ekki alla leið hingað til að tapa,“
sagði Serena eftir leikinn. Hún vildi
ekki ræða úrslitaleikinn og sagði: „Ég
tek ekki vinnuna með mér heim!“
Venus var ekki í eins miklum vand-
ræðum með sinn belgíska andstæðing,
Justine Henin-Hardenne, og vann í
tveimur settum, 6:3 og 6:3.
Andre Agassi er kominn í úrslit í
karlaflokki eftir öruggan sigur á
Wayne Ferreira í þremur settum.
Agassi mætir sigurvegaranum úr við-
ureign Andy Roddick og Rainer
Schüttler, sem eigast við í dag.
Systurnar mætast
einu sinni enn
Reuters
Venus Williams fagnar.
„ÞAÐ átti að leika B-riðil heims-
meistaramótsins í Suður-
Portúgal því keppnin í þeim riðli
er líkust orlofsferð fyrir Þjóð-
verja, Íslendinga og Portúgala,
því andstæðingar þeirra, Ástr-
alía, Grænland og Katar, eru
hreinir byrjendur í handknatt-
leik,“ segir Leif Mikkelsen, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari Dana í
handknattleik í samtali við Jyl-
lands-Posten og er ekki hrifinn
af því hversu mikið er um slök lið
á heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik. Einkum þykir Mikkels-
en fyrrgreind þrjú lið í riðli Ís-
lands ekki eiga heima á mótinu.
Hann segir hins vegar að það
væri skemmtilegt hversu sterk
lið Argentínu og Brasilíu væru
og Argentína hefði hreinlega
komið á óvart á mótinu, með
sigri á Króatíu og jafntefli við
Rússa. Þó megi ekki gleyma því
að handknattleikur í Króatíu
hafi verið og sé í talsverðri
kreppu eftir velmektardaga upp
úr miðjum síðasta áratug.
Orlofsferð í B-riðli?
FELIPE Cruz, vinstrihandarskytta
Portúgala, var borinn af leikvelli þeg-
ar hann minnkaði muninn í 7:5 eftir
11 mínútna leik og kom ekki meira við
sögu eftir það. Garcia Cuesta, lands-
liðsþjálfari Portúgala, sagði eftir
leikinn að Cruz hefði tognað á vöðva
og þykir tvísýnt að hann geti leikið á
móti Þjóðverjum á morgun.
CUESTA sagði eftir leikinn að
hann hefði verið sáttur við frammi-
stöðu sinna manna. „Þeir gáfu 125% í
leikinn,“ sagði Cuesta og óskaði Ís-
lendingum til hamingju með sigur-
inn.
ÍSLAND og Portúgal áttust við í
15. sinn á handboltavellinum í gær. Af
þessum 15 leikjum hefur Ísland unnið
11 leiki, tvívegis hefur Portúgal fagn-
að sigri og tvívegis hefur jafntefli orð-
ið niðurstaðan.
ÍSLENDINGAR hafa haft betur í
fimm af sex síðustu leikjum þjóðanna
en liðin áttust einnig við á HM í
Frakklandi fyrir tveimur árum og
fögnuðu Íslendingar sigri, 22:19.
ÍSLAND lék fyrst gegn Portúgal
1977 í B-keppni í Austurríki og fögn-
uðu þá leikmenn Íslands stórsigri,
29:14. Viðar Símonarson skoraði
flest mörk, eða átta og Jón H. Karls-
son setti sjö mörk.
FYRSTI leikur Íslands og Portú-
gals á Íslandi var leikinn á Húsavík
1987. Þá varði Guðmundur Hrafn-
kelsson mark íslenska liðsins, sem
vann 29:18. Guðmundur Þ. Guð-
mundsson landsliðsþjálfari og Einar
Þorvarðarson, aðstoðarmaður hans,
hvíldu í þeim leik.
PERUGIA gerði sér lítið fyrir og
sló Juventus út úr ítölsku bikar-
keppninni í knattspyrnu í gærkvöld
með 2:0 heimasigri, en liðið hafði unn-
ið útileikinn óvænt, 2:1. Fabrizio
Miccoli, sem gerði bæði mörkin í fyrri
leiknum, skoraði fyrra markið í gær-
kvöld.
REAL Madrid mátti sætta sig við
jafntefli, 1:1, á heimavelli gegn Mall-
orca í fyrri leik liðanna í átta liða úr-
slitum spænsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu í gærkvöld. Javier Port-
illo kom Real Madrid yfir en Miguel
Angel Nadal jafnaði fyrir eyjar-
skeggjana.
FÓLK