Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 47
Heimamenn spiluðu kröftugapressuvörn í byrjun en jafnt
var eftir fyrsta hlutann, 24:24. Í
öðrum leikhluta
hrökk Darrell í
gang svo um mun-
aði og sleit sig laus-
an undir körfu ÍR
en fram eftir þriðja hluta var leik-
urinn í járnum. Þá steig Eugene
Christopher inná sviðið og saxaði
að mestu upp á eigin spýtur for-
skot KR niður í þrjú stig. Fyrir
vikið varð nokkur spenna og Darr-
ell lét finna fyrir sér undir körf-
unni enda pressa á honum um að
skila drjúgum hluta stiganna. Það
kunni Herbert vel að meta, hann
kom sér hvað eftir annað í skot-
færi og hitti vel.
„Það snýst því mikið um að
hefna fyrir ófarir – ekki tala um
það heldur láta verða af því,“sagði
Herbert eftir leikinn. „Leikurinn
var svolítið daufur til að byrja með
– ætli þetta sé ekki of seint fyrir
þessa ungu stráka.“ Sem fyrr seg-
ir gegndi Darrell lykilhlutverki því
auk þess að skora nærri helming
stiga liðsins tók hann 17 fráköst.
Baldur Ólafsson tók 11 fráköst og
I. Magni Hafsteinsson 4 en varði
boltann þrívegis og átti 9 stoð-
sendingar.
„Ég átti ekkert sérstaklega að
skjóta en fékk opin færi og tók
þau. Boltinn fór ofan í en liðið þarf
að vera með í leiknum, það gengur
ekki að einn maður taki öll skotin
– þó að það sé gaman,“ sagði Ei-
ríkur úr ÍR sem var drjúgur í
byrjun. „Við erum í vandræðum
með Darrell inni í teignum og þá
koma menn þangað svo að útslagið
gerði að skilja skytturnar þeirra
eftir í opnum færum.“ Hreggviður
Magnússon tók 6 fráköst, Eiríkur
5 og Sigurður Þorvaldsson fjögur
en sást varla að öðru leyti.
Herbert hitti vel undir lokin
HERBERT Arnarson tók til við uppáhaldsiðju sína í Vesturbænum í
gærkvöldi og með fjórum þriggja stiga körfum í fjórða leikhluta
slökkti hann vonir ÍR um að vinna þriðja sigurinn á KR í vetur – KR
vann 96:80 eftir tap í fyrri viðureign liðanna auk þess að ÍR sló KR
út úr Doritos-bikarkeppninni. Þangað til Herbert hóf sýningu sína
hafði Darrell Flake nánast einsamall haldið KR í forystu.
Stefán
Stefánsson
skrifar
FÓLK
BANDARÍKIN sigruðu Noreg,
3:1, í fyrsta leiknum á alþjóðlegu
knattspyrnumóti kvenna í Kína í
gær. Thori Bryan, Tiffeny Milbrett
og Heather O’Reilly skoruðu fyrir
bandaríska liðið en Dagny Mellgren
fyrir það norska. Ísland mætir
Bandaríkjunum í vináttulandsleik
16. febrúar, í Suður-Karólínu.
MICHAEL Jordan varð í fyrri-
nótt þriðji stigahæsti leikmaður
NBA-deildarinnar í körfuknattleik
frá upphafi. Jordan skoraði 18 stig
fyrir Washington Wizards, þar af
16 í fyrri hálfleik, en það dugði ekki
liði hans sem tapaði fyrir New Or-
leans Hornets, 103:94.
JORDAN hefur nú skorað 31.424
stig í deildinni, fimm stigum meira
en Wilt Chamberlain, sem var í
þriðja sætinu. Kareem Abdul-Jabb-
ar er stigahæstur með 38.387 stig
og Karl Malone er næstur – 35.487
stig.
MALONE, sem verður fertugur í
ár eins og Jordan, var stigahæstur
hjá Utah í fyrrinótt, með 23 stig, en
lið hans tapaði samt í fyrsta skipti í
14 ár fyrir LA Clippers, 89:96 á
heimavelli.
CAFU, 32 ára, fyrirliði heims-
meistaraliðs Brasilíu í knattspyrnu
á síðasta ári, hefur skrifað undir
samning við japanska félagið Yoko-
hama Mariners sem gildir út árið
2005. Cafu leikur með Roma á Ítalíu
út þetta tímabil en þá verður samn-
ingur hans þar útrunninn.
NEWCASTLE reiknar ekki með
að fá brasilíska landsliðsmanninn
Kleberson í sínar raðir eftir að
samningaviðræður við félag hans,
Atletico Paranaense, fóru út um
þúfur í gær. Forráðamenn Paran-
aense gátu ekki sætt sig við tilboð
Newcastle og sögðu það skammar-
lega lágt fyrir leikmann í heimsk-
lassa.
MARIO Melchiot, hollenski varn-
armaðurinn í liði Chelsea, spáir að
Englandsmeistaratitillinn falli Ars-
enal í skaut annað árið í röð. Melch-
iot segir að Chelsea eigi ágæta
möguleika á að ná öðru sætinu en
liðið er í fjórða sæti deildarinnar á
eftir Arsenal, United og Newcastle.
„Mér finnst lið Manchester United
ekki nálægt því eins sterkt og þegar
ég kom til Englands fyrir þremur
árum en lið Arsenal er feikisterkt
og spilar eins og lið í tölvuleik.,“
WAYNE Bridges, bakvörður í liði
Southampton, verður að hvíla
næstu 3–4 vikurnar vegna meiðsla í
kálfa sem hann hlaut í leiknum við
Liverpool um síðustu helgi. Bridges
náði að spila 113 leiki með South-
ampton án þess að missa úr leik
sem er met í ensku úrvalsdeildinni.
MAGNÚS S. Þorsteinsson skor-
aði þrennu fyrir knattspyrnulið
Keflvíkinga sem sigraði Selfoss,
6:1, í æfingaleik í Reykjaneshöll í
fyrrakvöld.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson er í 6.–7. sæti yfir marka-
hæstu leikmenn heimsmeistarakeppninnar í hand-
knattleik eftir fyrstu þrjá leikdagana. Guðjón Valur
hefur skorað 22 mörk, jafnmörg og Mustapha Taj, leik-
maður Marokkó og þýska liðsins HSV Hamburg.
Grænlendingurinn Jakob Larsen er áfram marka-
hæstur. Hann gerði 8 mörk gegn Þjóðverjum í gær og
hefur skorað 27 mörk alls. Hussein Zaky frá Egypta-
landi og Ivan Simonovic frá Slóveníu eru næstir með 26
mörk. Simonovic skoraði 13 mörk gegn Egyptum í gær.
Stefan Kretzschmar frá Þýskalandi er fjórði með 25
mörk og fimmti er Ahmed Al-Saad frá Katar sem skor-
aði 13 mörk gegn Ástralíu í gær.
Eric Gull frá Argentínu, Lars Christiansen frá Dan-
mörku og Sasa Sestic frá Ástralíu eru í 8.–10. sæti með
20 mörk hver.
Guðjón Valur í
6.–7. sæti
„GUNNAR Sigurðsson er okkar markvörður númer
eitt og þó að sá möguleiki að fá Ólaf til okkar hafi
verið nefndur fyrr í vetur, stendur það ekki til,“
sagði Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar Fram, við Morgunblaðið í gær.
Ólafur Þór Gunnarsson, markvörður Skagamanna,
hefur verið orðaður við bæði Fram og Val á und-
anförnum vikum, eins og fram kom í blaðinu í gær.
Brynjar sagði að efnilegur markvörður úr Fjölni,
Ríkharð Snorrason, væri kominn í raðir Framara og
myndi veita Gunnari keppni um stöðuna. Ríkharð,
sem er 21 árs og hefur leikið með drengjalandslið-
inu, var aðalmarkvörður Fjölnis í fyrra. Þá kom 19
ára markvörður, Björn Björnsson, á sína fyrstu æf-
ingu hjá Fram í gær en hann hefur verið búsettur í
Noregi undanfarin ár og verið í röðum Molde.
Ólafur Þór fer
ekki til Fram
Í C-riðli er svipuð staða þar semDanir eru með fullt hús stiga, en
Egyptar settu mikla spennu í riðilinn
með því að leggja Slóvena, 27:26, og
risu loks úr öskustónni eftir slaka
frammistöðu í tveimur fyrstu leikj-
um mótsins. Þeir geta öðrum fremur
þakkað markverði sínum, El Nahib,
bæði stigin því á síðustu sekúndum
varði hann vítakast frá besta leik-
manni Slóvena, Ivan Simonovic.
Slóvenar voru marki yfir í hálfleik,
14:13, og jafnt var á nær öllum tölum
í síðari hálfleik allt þar til Egyptar
náðu þriggja marka forskoti, 25:22.
Slóvenar gáfust ekki upp en barátta
þeirra var dýr og tveimur mínútum
fyrir leikslok misstu þeir mann af
leikvelli og urðu að leika einum færri
allt til enda.
„Við lékum ágætlega að þessu
sinni ef þrjár síðustu mínúturnar eru
undanskildar,“ sagði Zoran Zivkovic,
þjálfari Egypta. „Þá fóru leikmenn
mínir á taugum og voru nærri því
búnir að missa leikinn niður í jafn-
tefli, en lukkudísirnar gengu í lið
með okkur,“ sagði Zivkovic.
Þeir gömlu lengi í gang
Svíar lentu í nokkrum vandræðum
með Brasilíumenn. Suður-Ameríku-
mennirnir höfðu frumvæðið í fyrri
hálfleik en Mathias Franzén tókst að
jafna metin, 12:12, áður en gengið
var til búningsherbergja.
Eftir að hvort lið skoraði eitt mark
í byrjun síðari hálfleiks komu fimm
sænsk mörk í röð og eftir það var
mesti vindurinn úr brasilíska liðinu
sem gekk lítt gegn sænsku vörninni
og Tomas Svensson, markverði.
„Þeir gömlu eru svolítið seinir í
gang,“ sagði Johansson, þjálfari
Svía, með bros á vör í leikslok.
Alsírbúar skutu Dönum skelk í
bringu og virtist um tíma sem þeir
ætluðu að endurtaka leikinn frá HM
1995 er þeir skelltu Dönum öllum að
óvörum. Danir áttu engin svör við
vörn Alsír í fyrri hálfleik og minnti
leikurinn á tíðum fremur á elting-
arleik en handknattleik. Sem fyrr
fóru Danir á taugum og í hálfleik
voru Alsírbúar fjórum mörkum yfir,
13:9, og var greinilegt að danska liðið
hafði dregið takmarkaðan lærdóm af
viðureigninni við Brasilíu á þriðju-
dag.
Í síðari hálfleik skiptu Danir yfir í
5/1 vörn úr 6/0. Þar með batnaði
vörnin og um leið komu hraðaupp-
hlaupin og Dönum tókst að snúa
leiknum sér í vil er þeir skoruðu sjö
mörk gegn einu frá andstæðingun-
um á upphafskaflanum. Þar með var
björninn unninn og Danir önduðu
léttar, altjent í bili. „Ég hata þennan
handknattleik sem Alsírbúar leika,
það er ekkert flóknara,“ sagði Torb-
en Winther, landsliðsþjálfari Dana
eftir leikinn.
Argentína
brotlenti
Morgunblaðið/Güncher Schröder
Guðjón Valur Sigurðsson lék gegn Portúgal í gærkvöldi og
skorar hér eitt af sjö mörkum sínum.
MEST spenna ríkir í C- og D-riðlum heimsmeistaramótsins eftir
leiki gærkvöldins. Frakkar eru reyndar með fullt hús í C-riðli eftir að
Argentínumenn brotlentu gegn þeim í gærkvöldi, 35:18. Frakkar
sigla því nokkuð lygnan sjó en síðan er alveg ljóst að fjórar þjóðir
berjast hart um sætin þrjú sem gefa áframhaldandi þátttökurétt.
Króatar koma næstir með 4 stig eftir góðan sigur á Rússum, sem
virðast miður sín um þessar mundir. Argentína og Rússland hafa
þrjú stig hvor þjóð og Ungverjar fylgja síðan fast á eftir með 2 stig
eftir stórsigur á Sádi-Arabíu sem reka lestina og eru ekki líklegir til
að blanda sér í baráttuna.
ÍÞRÓTTIR
ÍVAR Bjarklind, fyrrum leik-
maður með KA, KR og ÍBV í
knattspyrnunni, tekur líklega
fram skóna að nýju og spilar í
Danmörku fram á sumar. Hann
er við nám í Árósum og hefur
að undanförnu æft með 1.
deildarliðunum FC Århus og
Randers og úrvalsdeildarliði
Silkeborg. „Það er líklegast að
ég verði með FC Århus, sem er
um miðja 1. deildina, en það
fer þó eftir því hvort ég kem
mér í góða æfingu á ný,“ sagði
Ívar við Morgunblaðið í gær.
Hann lék síðast með KA sum-
arið 2001 en hann á að baki
100 leiki í efstu deild.
Ívar með FC Århus?
Reykjavíkurmótið
í knattspyrnu
A - riðill
19:00 Valur - KR
A - riðill
21:00 Leiknir R. - Þróttur R.
B - riðill
19:00 ÍR - Fram
B - riðill
21:00 Víkingur R. - Fylkir
Fös. 24. jan. Egilshöll
Sun. 26. jan. Egilshöll
Sá leikmaður sem sýnir bestu
tilþrifin fær verðlaun frá Pepsi
Aðgangseyrir 500 kr. fyrir 16 ára og eldri.
KNATTSPYRNUSAMBAND Ís-
lands hefur ákveðið að greiða 57
aðildarfélögum sínum samtals um
10 milljónir króna af rekstrarhagn-
aði ársins 2002. Þau félög sem
sendu lið til keppni í yngri flokkum
beggja kynja fá 200 þúsund krónur
hvert í sinn hlut en þau sem aðeins
sendu lið til keppni í yngri flokkum
annars kynsins fá 125 þúsund hvert.
Félög sem aðeins áttu aðild að sam-
eiginlegu liði með öðrum fá 62.500
krónur í sinn hlut. Knattspyrnu-
sambandið hefur verið rekið með
talsverðum hagnaði undanfarin ár.
Félögin fá 10
milljónir frá KSÍ