Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12.
DV
RadíóX
Sýnd kl. 5 og 8. B.i.12.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
LEON OG LE FEMME NIKITA
Sýnd kl. 5.30 og 8.
STEVEN SEGAL MORRIS CNESTNOT AND JA RULE
HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i.16 ára
Sá góði. Sá
vondi...og sá hæt-
tulegi! Hrikalega
flottur spennutryllir
með
rapparanum Ja Rule
og
Steven Seagal
Suma vini losnar þú ekki við...hvort
sem þér líkar betur eða verr
Frábær gamanmynd um tvær vinkonur sem
hittast aftur eftir 20 ár.Með
Óskarsverðlaunaleikkonunum Goldie Hawn
og Susan Sarandon ásamt hinum
frábæra Óskarsverðlaunahafa Geoffrey Rush.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i.14 ára
YFIR 80.000 GESTIR
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
kl. 5.30 og 9.30.
FRUMSÝND
FRUMSÝND
GRÚPPÍURNAR
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 14.
Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential þar sem rapparinn
EMINEM fer á kostum í sínu fyrsta hlutverki.
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Kvikmyndir.is
STEVEN SEGAL MORRIS CNESTNOT AND JA RULE
Sá góði. Sá vondi...og sá hættule-
gi! Hrikalega flottur spennutryllir
með
rapparanum Ja Rule og
Steven Seagal
Brettabíó kl. 6.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16 ára
Í
SLENSKU tónlistar-
verðlaunin voru afhent
með viðhöfn fyrir fullu
húsi í Borgarleikhúsinu í
gærkvöldi. Verðlaun voru
veitt í fjórtán formlegum flokkum
og voru Guðrún Gunnarsdóttir og
Gísli Marteinn Baldursson kynnar
á hátíðinni, sem var einnig í beinni
útsendingu á Rás 2 og í Sjónvarp-
inu.
Tónlistarverðlaunin eru upp-
skeru- og árshátíð tónlistarfólks
og er það sem stóð uppúr í sígildri
tónlist, djassi, poppi og rokki á
síðasta ári verðlaunað.
Sigur Rós með
tvenn verðlaun
Drengirnir hlédrægu en
ákveðnu í Sigur Rós hrepptu
tvenn verðlaun, fyrir hljómplötu
ársins í poppinu, sem þykja ein
stærstu verðlaunin og sem flytj-
andi ársins. Samkeppnin var hörð
en í báðum flokkunum kepptu þeir
við m.a. rokkkónginn Bubba og
sveitina Leaves, en þessir þrír
flytjendur fengu flestar tilnefn-
ingar, eða fjórar.
Hljómsveitin er í Bandaríkj-
unum og tóku fulltrúar Smekk-
leysu við verðlaununum fyrir
þeirra hönd. Einar Örn Benedikts-
son notaði tækifærið og minnti á
tengsl tónlistar sveitarinnar við
landið og baráttu hennar gegn
Kárahnjúkavirkjun.
Leaves hlutu hins vegar verð-
laun í öðrum flokki því að söngv-
ari sveitarinnar, Arnar Guð-
jónsson, var valinn söngvari
ársins. Hljómsveitin var einnig ein
þeirra fjölmörgu sveita, sem fram
komu á hátíðinni.
Einokuninni lokið
Björk Guðmundsdóttir og Emil-
iana Torrini hafa einokað verð-
launin fyrir söngkonu ársins frá
því að hátíðin fór fyrst fram árið
1994. Í þetta sinn voru þær ekki
tilnefndar og komu úrslitin eflaust
einhverjum á óvart.
Margir höfðu spáð Birgittu
Haukdal, söngkonu Írafárs, verð-
laununum en þau hreppti hin unga
Hera Hjartardóttir. Hera var ekki
viðstödd þar sem hún er á Nýja
Sjálandi, þar sem hún hefur búið
frá 12 ára aldri.
Birgitta kom samt við sögu á
hátíðinni því að hún var kosin
poppstjarna ársins í netkosningu
auk þess sem Írafár kom fram.
Björk minnti einnig á sig þar sem
vefsetrið Björk.com var kosið vef-
ur ársins.
Ungliðarnir í pönkrokksveitinni
Búdrýgindum voru valdir bjart-
asta vonin. Þeir hafa aldurinn með
sér og eru líklegir til að draga
frekari björg í tónlistarbú lands-
ins.
Lagið „Julietta 2“ með til-
raunapoppsveitinni Ske var síðan
valið lag ársins. Lagið hefur ekki
síst vakið athygli fyrir að vera
sungið á japönsku. Myndband
rokksveitarinnar Singapore Sling
við lagið „Listen“ var valið mynd-
band ársins.
Snúningssviðið í Borgarleikhús-
inu var nýtt til hins ýtrasta við
verðlaunaafhendinguna eins og
mátti sjá þegar Hamrahlíðarkór-
inn snerist á sviðið. Skömmu síðar
tók Þorgerður Ingólfsdóttir,
stjórnandi kórsins, við verðlaunum
semflytjandi ársins í sígildri tón-
list. Hún þakkaði fyrir að vakin
væri athygli á þessari tegund list-
sköpunar með ungu fólki.
Enn minnt á
tónlistarhús
Platan Baldr með verkum eftir
Jón Leifs í flutningi Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands var valin
hljómplata ársins í flokki sígildrar
tónlistar. John Speight hlaut verð-
laun fyrir tónverk ársins í þessum
flokki fyrir „Barn er oss fætt“.
Hann minnti á að hátíðin færi
fram í „húsi talaðs orðs“ og hvort
það „væri ekki gaman ef við vær-
um í húsi tónlistarinnar“ og hlaut
Íslensku tónlistarverðlaunin 2002 afhent í Borgarleikhúsinu
Tónlistar-
fólk fagnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Singapore Sling fékk ekki töffara- heldur myndbandsverðlaun fyrir myndbandið við lagið Listen.
Ekki bara æskudýrkun á Íslandi,
segir Ingibjörg Þorbergs heið-
ursverðlaunahafi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorgerður Ingólfsdóttir og Hamra-
hlíðarkórinn fengu verðlaun.