Morgunblaðið - 24.01.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
VERÐMAT endurskoðunarfyrir-
tækisins Deloitte & Touche á Frjálsa
fjárfestingarbankanum er faglegt
stórslys að mati Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis, sem keypti
bankann af Kaupþingi síðastliðið
haust. Verðmat Deloitte & Touche
var framkvæmt samkvæmt beiðni
stjórnenda Búnaðarbankans fyrir
fimm stofnfjáreigendur SPRON.
Samkvæmt verðmatinu keypti
SPRON Frjálsa fjárfestingarbank-
ann af Kaupþingi á um eða yfir ein-
um milljarði króna of háu verði.
Nú hefur SPRON gert úttekt á
verðmatinu og einnig fengið endur-
skoðunarfyrirtækið KPMG til að
fara yfir verðmatið. Niðurstaða
beggja er að vegna rangra forsendna
og útreikninga sé verðmat Deloitte
& Touche of lágt. KPMG segir verð-
matið 1,2 milljörðum króna of lágt og
SPRON telur muninn enn meiri.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, segir að þegar
villur og ýmsar rangar forsendur í
verðmati Deloitte & Touche hafi ver-
ið leiðréttar komi í ljós að SPRON
hafi keypt Frjálsa fjárfestingar-
bankann á mjög hagstæðu verði.
Verðmatið á Frjálsa
fjárfestingarbankanum
Faglegt
stórslys
að mati
SPRON
Villur/14
MEÐAL þess sem fram kemur í skýrslu
Rannsóknastofnunar flugslysa í Noregi um
flugatvik Flugleiðaþotu við Gardermoen
flugvöll 22. janúar í fyrra er að hefðu flug-
menn farið að vinnureglum flugfélagsins
hefði ekki átt að koma til atviksins en þot-
an fór í bratt klifur og mikla dýfu eftir að
flugstjóri ákvað að hætta við lendingu og
fara í fráhvarfsflug.
Fram kemur í skýrslunni að skiljanlegt
sé að uppnám og ruglingur hafi átt sér stað
eftir að annar flugmaðurinn tók að beita
stýrum og stjórntækjum þotunnar öfugt
við stjórn sjálfvirkrar eldsneytisgjafar.
Í skýrslunni er m.a. að finna eftirfarandi
lýsingu flugstjórans: „Ég tel að flugmaður
minn hafi rækt starf sitt sem vakandi og
samvinnufús áhafnarmeðlimur allt flugið
en í aðfluginu urðum við báðir vegna óeðli-
legs vinnuálags uppteknir við að sinna
smáatriðum í stað þess að horfa á heild-
armyndina. Og þegar við fengum skyndi-
lega hæðarskipunina frá flugstjórnarkerf-
inu og við vorum báðir með hugann við
fráhvarfsflugið urðum við ringlaðir og síð-
ar við hið ótrúlega bratta fall urðum við
enn ringlaðri.“
Flugatvikið við Gardermoen
Uppnám og
ruglingur í
stjórnklefanum
Talið að/28
ALVARLEGT umferðarslys varð á Vesturlands-
vegi miðja vegu á milli Reykjavíkur og Mosfells-
bæjar laust fyrir klukkan níu í gærkvöld þegar
tveir fólksbílar rákust harkalega saman. Engir
farþegar voru í bílunum en báðir ökumennirnir,
karl og kona, slösuðust í árekstrinum, karlinn þó
mun meira. Senda þurfti tvo tækjabíla á staðinn
til þess að komast að og ná ökumönnunum úr bif-
reiðunum.
Þeir voru síðan síðan fluttir á slysadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Að sögn
vakthafandi læknis var karlmaðurinn alvarlega
slasaður en konan mun minna. Til stóð að mað-
urinn færi í aðgerð í gærkvöld en hann var
þungt haldinn, að sögn læknis.
Loka þurfti Vesturlandsvegi í á annan tíma
vegna slyssins.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo
tækjabíla og þrjá sjúkrabíla auk neyðarbíls með
lækni og lögreglan sendi ennfremur fjölmennt
lið á slysstaðinn, bæði í björgunaraðgerðir og til
þess að sinna umferðarstjórnun.
Morgunblaðið/Júlíus
Harður árekstur á
Vesturlandsvegi
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir stjórn Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna van-
meta viðskiptahagsmuni Íslend-
inga vegna stækkunar Evrópu-
sambandsins og fjalla af nokkurri
léttúð um málið. Stjórn Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna telur
kröfur Evrópusambandsins um
hækkað framlag Íslendinga til þró-
unarsjóðs þess vegna stækkunar
ESB í hróplegu ósamræmi við það
sem í húfi sé.
Í ályktun sem stjórn LÍÚ sendi
frá sér í gær segir að hagsmunir Ís-
lands vegna stækkunar ESB séu
svo litlir að kröfur sambandsins um
á að hér er ekki eingöngu um hags-
muni útvegsmanna að ræða, heldur
einnig hagsmuni fiskvinnslu- og
verkafólks um allt land. 5% fram-
legð í framleiðslu ákveðinnar af-
urðar getur ráðið úrslitum um
hvort hún er unnin hér á landi eða
ekki. Þetta er því ekki aðeins
spurning um þá tolla sem við erum
að borga heldur einnig um þau
tækifæri sem við erum að missa af.
Þegar fjallað er um þessi stóru mál
verður að fjalla um allar hliðar
þeirra en ekki velja úr það sem
hentar hverju sinni,“ segir Halldór.
sambandsins um greiðslu í þróun-
arsjóð sambandsins séu óaðgengi-
legar með öllu en telur hins vegar
að stjórn LÍÚ fjalli um markaðs-
hagsmuni Íslendinga af mikilli létt-
úð og hún vanmeti þá hagsmuni
sem í húfi eru. Hann bendir á að út-
flutningur Íslendinga til umsókn-
arríkjanna hafi þrefaldast á árun-
um 2000 til 2001. Áætlað sé að
Ísland greiði ekki undir 500 millj-
ónum króna í tolla af fiskinnflutn-
ingi til Evrópusambandsins á ári
og slíkar fjárhæðir geti skipt ein-
stök byggðarlög verulegu máli.
Halldór segir að þannig séu
miklir hagsmunir í húfi. „Ég minni
3,8 milljarða króna greiðslu í þró-
unarsjóð og leyfi til fjárfestingar í
íslenzkum sjávarútvegi séu út í
hött. LÍÚ segir að samkvæmt bók-
un 9 við samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið hefðu tollar á út-
flutning til hinna nýju aðildarríkja
numið um 10 milljónum króna á
árinu 2001. Í dag hafi Íslendingar
tollfrjálsan aðgang fyrir sjávaraf-
urðir samkvæmt samningum við
hin nýju aðildarríki og eðlilegast sé
að svo verði áfram.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra undrast yfirlýsingu út-
vegsmanna. Hann tekur undir það
með stjórn LÍÚ að kröfur Evrópu-
Utanríkisráðherra og LÍÚ leggja ólíkt mat á áhrif stækkunar ESB
Segir LÍÚ vanmeta
viðskiptahagsmuni
LÍÚ segir/14
ÞRJÚ ár eru liðin síðan verkefninu Auður í
krafti kvenna var hleypt af stokkunum. Á
þeim tíma hefur verkefnið stuðlað að sköpun
51 fyrirtækis og 217 nýjum störfum en 1.480
konur hafa tekið þátt í námskeiðum á vegum
verkefnisins. Þetta kemur fram í forystugrein
blaðsins Auður í krafti kvenna sem fylgir
Morgunblaðinu í dag.
Í sama blaði kemur fram í viðtali við Höllu
Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Auðar, að
hróður verkefnisins hafi borist víða. Fyrir
skömmu var það valið ,,fyrirmyndarverkefni“
af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
sem hafði lýst eftir tillögum um hvernig auka
mætti nýsköpun kvenna. Fulltrúa Auðar hef-
ur verið boðið að kynna verkefnið í Brussel á
næstunni og það gæti leitt til þess að fleiri
Evrópuríki ákveði að fara sömu leið til að
virkja kraft kvenna, að sögn Höllu.
Lokahátíð Auðar-verkefnisins verður hald-
in í Borgarleikhúsinu kl. 14–18 í dag. Þar
verður meðal annars kynnt hvaða konur
hljóta Auðar-verðlaunin í ár.
Auður í krafti kvenna
217 ný störf
á 3 árum
flytjandi í flokki popptónlistar.
Arnar Guðjónsson í Leaves og
Hera Hjartardóttir unnu í flokk-
unum besti söngvari og söngkona
ársins 2002. Skúli Sverrisson
fékk þrenn verðlaun í flokki jazz-
tónlistar. Heiðursverðlaun fékk
Ingibjörg Þorbergs.
HLJÓMSVEITIN Búdrýgindi
var valin bjartasta vonin þegar
Íslensku tónlistarverðlaunin
voru veitt við hátíðlega athöfn í
Borgarleikhúsinu í gærkvöld.
Þetta var í áttunda sinn sem há-
tíðin fer fram.
Nýjasta plata Sigur Rósar, (),
var valin besta poppplatan á síð-
asta ári og hljómsveitin besti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Búdrýgindi fengu dynjandi lófaklapp þegar sveitin tók við styttunni.
Búdrýgindi valin
bjartasta vonin
Íslensku/50–51
♦ ♦ ♦