Morgunblaðið - 18.03.2003, Síða 1
Dansinn
dunaði
Yfir 400 manns dönsuðu af
hjartans lyst í Höllinni 38
Hefur sett upp tugi sýninga
af ólíkum toga Listir 24
Allir með
rautt nef
Bretar hafa gaman af því
að gefa á góðum degi 55
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra lýsa yfir stuðningi við yfirlýs-
ingar George W. Bush Bandaríkja-
forseta, Tony Blair forsætisráðherra
Bretlands og Jose Maria Aznar for-
sætisráðherra Spánar, eftir fund
þeirra um Íraksdeiluna á Azoreyjum
á sunnudag. Að loknum fundi leiðtog-
anna gaf Bandaríkjaforseti Samein-
uðu þjóðunum sólarhringsfrest til að
ákveða hvort þær styddu stríð á
hendur Saddam Hussein Íraksfor-
seta undir stjórn Bandaríkjamanna.
„Það er augljóst að tíminn er að
renna út,“ segir Davíð. „Enn má þó
kannski vona að ekki verði stríð með
því að Íraksstjórn sjái að sér. Því
miður virðist Saddam Hussein ekki
eiga mjög mikinn tíma eftir. Ef hann
þráast enn við er ljóst að hann þarf að
taka afleiðingunum eins og sagði í
ályktun Öryggisráðs SÞ, sem sam-
þykkt var með 15 samhljóða atkvæð-
um. Ef það gerist, er augljóst að hann
hefur brugðist ályktuninni og er
nauðbeygður að horfast í augu við af-
leiðingarnar og allir vissu hverjar
þær yrðu.Við teljum að Azoreyjayfir-
lýsingarnar, bæði um stöðuna eins og
hún er í dag, og nauðsyn þess að þjóð-
ir heims standi saman um þessar að-
gerðir, og um uppbyggingu í Írak eft-
ir þessar aðgerðir, séu þýðingarmikl-
ar.“
Mikill stuðningur við
Atlantshafstengslin
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra tók ennfremur undir yfirlýs-
ingarnar að loknum fundi leiðtog-
anna.
„Ég held að fundurinn á Azoreyj-
um hafi á margan hátt verið merki-
legur. Þeir [George W. Bush, Tony
Blair og Jose Maria Aznar] lýsa yfir
miklum stuðningi við Atlantshafs-
tengslin sem eru okkur Íslendingum
lífsnauðsynleg og við hljótum að taka
undir þá yfirlýsingu,“ segir Halldór.
„Það er jafnframt tekið fram mikil-
vægi þess að ná niðurstöðu í Miðaust-
urlöndum, milli Ísraels og Palestínu,
sem ég tel skipta miklu máli. Þá er
ítrekað að Saddam Hussein verði að
afvopnast í samræmi við ályktun
1441, þannig að mér finnst niðurstöð-
ur þessa fundar vera með þeim hætti
að við hljótum að taka undir þær.“
Halldór sagði yfirlýsingu Banda-
ríkjaforseta um „stund sannleikans“
ekki vera neina yfirlýsingu um stríð.
„Það má segja að þetta sé yfirlýsing
um það að nú sé tími diplómatískra
leiða að verða liðinn. Síðan þessi
fundur átti sér stað hafa menn hætt
að leita þeirrar lausnar að ný ályktun
verði samþykkt hjá SÞ. Ég harma
það og leyni ekki þeirri skoðun minni
að mikilvægt hefði verið að gefa sér
lengri tíma. Ég tel hins vegar að land
eins og Frakkland hafi gengið mjög
langt í að tala um neitunarvald, áður
en fullreynt væri að samstaða gæti
náðst. Það er afskaplega mikilvægt
fyrir allan heiminn og ekki síst Atl-
antshafstengslin, að ríki haldi sem
mest saman á þessari örlagastundu.
Eins og málið stendur núna er það
ekki síst í höndum Saddam Hussein
hvernig fer. Ég hafði vonast til að sú
stund rynni ekki upp, en núna getum
við reiknað með hverju sem er.“
Taka undir Azoreyjayfirlýsingu
Davíð
Oddsson
forsætisráðherra
Halldór
Ásgrímsson
utanríkisráðherra
Sagan gerð
sýnileg
STOFNAÐ 1913 75. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
EKKI liggur nákvæmlega fyrir
hversu margir Íslendingar eru
staddir í nágrenni við hugsanleg
átakasvæði, en utanríkisráðuneytið
vinnur nú að því að taka saman lista
yfir þá.
Stefanía Reinhardsdóttir Khal-
ifeh, aðalræðismaður Íslands í
Jórdaníu, telur að þeir geti verið
yfir 20. „Hér í Jórdaníu eru fjórtán
Íslendingar og ég held að það séu
þrír eða fjórir Íslendingar í Kúveit,
svo eru Íslendingar í Katar, Kairó í
Egyptalandi og Oman,“ segir Stef-
anía.
Nokkrir tugir Íslendinga hafa
verið að störfum í pílagrímaflugi á
vegum Atlanta á svæðinu. Munu
þeir flestir vera farnir þaðan eða að
undirbúa brottför.
Fjöldi Íslend-
inga í Miðaust-
urlöndum óljós
Starfsfólk Atlanta/4
Fyrr um daginn drógu Bandaríkja-
menn, Bretar og Spánverjar til baka
drög að nýrri ályktun, sem lögð höfðu
verið fyrir örygg-
isráð Sameinuðu
þjóðanna, og
bjuggu sig undir
að hefja stríð í
Írak án stuðnings
ráðsins. Ari
Fleischer, tals-
maður Bush,
sagði að tilraun-
unum til að leysa
Íraksdeiluna á
vettvangi Samein-
uðu þjóðanna
væri lokið.
Utanríkisráð-
herra Íraks, Naji Sabri, hafnaði úr-
slitakostum Bush í gærkvöldi og
Saddam Hussein sagði að Írakar
væru tilbúnir að berjast gegn Banda-
ríkjamönnum og Bretum „hvar sem
er á allri jörðinni“ hæfu þeir stríð í
Írak. „Ef það er vilji Guðs munum við
berjast með rýtingum, sverðum og
kylfum ef skortur verður á öðrum
vopnum.“
Jeremy Greenstock, sendiherra
Bretlands hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagði, þegar hann tilkynnti að álykt-
unardrögin hefðu verið dregin til
baka, að Bandaríkjamenn, Bretar og
Spánverjar áskildu sér „rétt til að
grípa til eigin aðgerða til að tryggja
afvopnun Íraka“. Hann kenndi
Frökkum um að samstaða skyldi ekki
hafa náðst um nýja ályktun í örygg-
isráðinu.
Powell harmaði óeininguna í ör-
yggisráðinu. „Þetta er augljóslega
próf sem öryggisráðið hefur ekki
staðist,“ sagði hann.
Bandaríkjamenn og Bretar gáfu
öryggisráðinu sólarhringsfrest á
sunnudag til að styðja hernað í Írak
en Frakkar héldu afstöðu sinni til
streitu og hótuðu að beita neitunar-
valdi sínu gegn ályktuninni. Sendi-
herra Frakklands hjá Sameinuðu
þjóðunum, Jean Marc de la Sabliere,
sagði að Bandaríkjamenn og Bretar
hefðu áttað sig á því á síðustu stundu
að meirihluti öryggisráðsins væri
andvígur ályktuninni.
Dominique de Villepin, utanríkis-
ráðherra Frakklands, varaði við því
að hernaður í Írak myndi hafa „alvar-
legar afleiðingar“ fyrir Miðaustur-
lönd og alla heimsbyggðina.
Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði að áformin um hern-
að í Írak væru brot á alþjóðalögum og
síðasta ályktun öryggisráðsins heim-
ilaði ekki að hervaldi yrði beitt eins og
stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bret-
landi hafa sagt.
Robin Cook segir af sér
Robin Cook, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Bretlands, sagði af sér í gær
sem leiðtogi stjórnarinnar í neðri
deild breska þingsins til að mótmæla
áformum hennar um að hefja hernað í
Írak án stuðnings öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna eða bresku þjóðar-
innar.
„Ég get ekki sætt mig við sam-
ábyrgð á þeirri ákvörðun að skuld-
binda Breta til að taka þátt í hernaði í
Írak án alþjóðlegs samkomulags eða
stuðnings heima fyrir,“ sagði Cook í
yfirlýsingu eftir fund með Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands.
Jack Straw sagði í gærkvöldi að
stjórnin hygðist biðja þingið að styðja
þátttöku Breta í hernaði í Írak ef
nauðsynlegt yrði að beita hervaldi.
Búist er við að beiðnin verði borin
undir atkvæði á þinginu í dag.
Fær 48 stunda frest
Reuters
Íraskir Kúrdar á kerru nálægt bænum Dohuk í Norður-Írak. Þúsundir íraskra Kúrda héldu til fjalla í gær af ótta
við að hersveitir Saddams Husseins Íraksforseta myndu beita efnavopnum gegn þeim kæmi til stríðs í Írak.
Bush segir að Saddam Hussein verði
að fara í útlegð til að afstýra stríði
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti gaf í gær Saddam Hussein Íraks-
forseta og sonum hans tveggja sólarhringa lokafrest til að fara í útlegð
og sagði að ella hæfist stríð í Írak. Í ræðu, sem Bush flutti í nótt, hvatti
hann íraska hermenn til að berjast ekki fyrir stjórn Saddams Husseins
og kveikja ekki í olíulindum og varaði þá við því að þeir kynnu að verða
saksóttir fyrir stríðsglæpi. Hann sagði að Írakar hefðu fengið tólf ár til
að afvopnast og að hætta væri á mannfalli meðal bandarískra hermanna
og jafnvel árásum hryðjuverkamanna í Bandaríkjunum kæmi til stríðs.
Forsetinn útlistaði einnig áform sín um að aðstoða Íraka við endur-
uppbyggingu landsins eftir stríðið og við að koma á lýðræði.
GENGI hlutabréfa í kauphöllum í
Evrópu og Bandaríkjunum hækk-
aði í gær þar sem fjárfestar vona að
óvissunni í Íraksmálinu sé að ljúka
og að stríðið verði stutt. Banda-
ríska hlutabréfavísitalan Dow Jon-
es hækkaði um 3,6% og Nasdaq-
vísitalan um tæp 3,9%.
Gengi Bandaríkjadollars hækk-
aði gagnvart evrunni og japanska
jeninu og Brent-hráolía úr Norð-
ursjó lækkaði um 83 sent í 29,30
dollara á fatið.
Gengi hlutabréfa
hækkar verulega
Washington, Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
Möguleikar Saddams/16
Bush Bandaríkja-
forseti flytur ræðu
sína í nótt.